Tíminn - 17.09.1991, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 17. september 1991
Tíminn 9
Vinnueftirlitið:
Rannsakar mengun
af vinnu meö steinull
Vlnnueftirlit ríkisins, Meistara- og verktakasamband byggingar-
manna, Múrarasamband íslands, Samband byggingamanna og
Steinullarverksmiðjan hafa sett saman vinnuhóp til að kanna ryk-
mengun af framleiðslu og notkun einangrunarefna eins og steinull-
ar og glerullar.
Mikið hefur verið rætt um hvort
þessi efni geti valdið lungnakrabba.
Þó ekki hafi verið sýnt fram á það,
þykir sumum sem ekki séu nægar
upplýsingar til að segja megi að ryk
frá glerull og steinull sé hættulaust.
Starf hópsins er þríþætt: Að kanna
í samvinnu við Partek í Finnlandi
hvort mengun af steinull verksmiðj-
unnar á Sauðárkróki sé sambærileg
við mengun af öðrum steinullarvör-
um. Að mæla þá mengun, sem
menn verða fyrir er þeir einangra
með steinull. Og að útbúa leiðbein-
ingar um rétt vinnubrögð við ein-
angrunarvinnuna. Stefnt er að því
að settar verði reglur um vinnu með
glerull og steinull.
Helstu niðurstöður, sem nú liggja
fyrir, eru: Framleiðsla Steinullar-
verksmiðjunnar stenst fyllilega
samanburð við aðrar steinullarvör-
ur. AJlar mælingar, sem hér hafa
verið gerðar, sýna að mengun við
einangrunarvinnu er undir hættu-
mörkum. Þá hefur Steinullarverk-
smiðjan gefið út leiðbeiningar um
rétta meðhöndlun á steinull, sem
dreift verður til allra viðskiptavina
verksmiðjunnar. -aá.
Samband íslenskra samvinnufélaga:
Norræn neytendasamvinnu-
félög ræða um markaðsmál
Norræni markaðshópur Inter-CO-
OP samtakanna heldur ársfund
sinn í Reykjavík 18. og 19. septem-
ber í boði Sambandsins og Mikla-
garðs hf.
Inter-COOP var stofnað árið 1971.
Það er samtök neytendasamvinnufé-
laga í Evrópu, ísrael og Japan. Verk-
efni þeirra er að miðla reynslu sinni
og þekkingu til félaganna í hópnum.
Hluti af því starfi er unninn af Nor-
ræna markaðshópnum, markaðs-
stjórum norrænu félaganna í Inter-
COOP. Þeir hittast árlega og ræða
þau markaðsmál, sem efst eru á
baugi, og upplýsa hvern annan um
stöðu og þróun markaðs- og skipu-
lagsmála í löndum sínum.
Meðal eftiis ársfundarins nú verður
sWrsIa um stöðu smásöluverslunar
á íslandi og niðurstöður rannsóknar
á beinni markaðssókn, sem gerð var
á heimili samvinnumanna í Finn-
landi. Þá ræðir hópurinn „Smásölu-
verslun framtíðarinnar" frá nor-
rænu sjónarmiði.
-aá.
Vetrarstarf karlakórsins Stefnis:
Góður söngur,
léttir félagar
Karlakórínn Stefnir í Mosfellsbæ
byijar nýtt starfsár þann 1. október
nk. Kórínn hefur starfað í liðlega
50 ár og leggur áherslu á söngva úr
ýmsum áttum, einkum íslensk og
erlend lög af léttara taginu, en einn-
ig verk klassískra höfunda.
Helstu viðburðir í starfi kórsins eru
tónleikar á jólaaðventu og vortón-
leikar. Á síðasta ári hélt kórinn vor-
tónleika í Mosfellsbæ, Reykjavík,
Hvammstanga og Blönduósi. Tengsl
við erlenda kóra eru fastur þáttur í
starfi kórsins og hefur hann farið í
söngferðalög til Noregs og fleiri
landa. Næsta vor er von á þekktum
þýskum kór hingað til lands og mun
Stefnir endurgjalda þá heimsókn
síðar.
Kórinn hefur ágæta æfingaaðstöðu
í Varmárskóla í Mosfellsbæ og eru
æfingar einu sinni til tvisvar í viku.
Þeim, sem áhuga hafa á skemmti-
legum söng í léttum félagsskap, er
velkomið að hafa samband við söng-
stjórann, Lárus Sveinsson, og er bú-
seta í Mosfellsbæ ekki skilyrði fyrir
þátttöku í kórnum.
Gróðurhúsaáhrif rædd
Fyrsta norræna ráðstefnan um al-
hliða rannsóknir á gróðurhúsaáhrif-
um og hækkandi hita á jörðu fer
fram dagana 16.-18. september
1991 á Hotel Ascot í Kaupmanna-
höfn.
Háskóli íslands tekur þátt í þessari
ráðstefnu með lykilerindi. Að erind-
inu standa Dean Abrahamson gisti-
prófessor, Valdimar K. Jónsson pró-
fessor og Júlíus Sólnes prófessor, en
Dean Abrahamson flytur erindið. -js
Eldri borgarar í haustferð:
'■
1
Evrópu
A undanfömum árum hefur tlr-
val/Útsýn boðið upp á hópferðir fyr-
ir eldri borgara um feguratu héruð
Evrópu. Einni slíkri ferð iauk í by«j-
un þessa mánaðar. Tæplega 50 ís-
lendingar nutu 16 dýrðardaga í
Frakklandi, Sviss, Þýskalandi og
Lúxemborg, í 20-30 stiga sólarhita.
Þetta var hamingjusamur hópur
sem samiagaðist vel, glaðir í hjarta.
Á svona feröalagi skapast ótrúiega
fljótt hlýr ftölskyldubragur. Ailir eru
orðnir kunningjar fyrr en varir, og
rígur milli byggða og borgar er fjar-
lægur. Fararstjóri f þessari ferð var
Lilja Hilmarsdóttír. Er þar skemmst
frá að segja að hún nekti starf sitt af
kunnáttuscmi og snilld. Hópurinn
fann til öryggis. Lýsingar á löndum
og iandsbyggöum skýrar og
skemmtíiegar. Hllitsemi og fyrir-
hyggja á þann veg að alft var klappað
og klárt i hverjum einasta viökomu-
stað.
Hafl hún og feröaskrifstofan hjart-
ans þðkk fyrir eftirminnilega ferð.
• Pálmi Eyjólfsson
Ur verki Magnúsar Pálssonar, Sprengd hljóðhimna vinstra megin.
Alþýðuleikhús og Þjóðleikhús í samvinnu:
Vinstri hljóð-
himna sprengd
Alþýðuleikhúsið og Þjóðleikhúsið
frumsýna á Litla sviði Þjóðleik-
hússins í dag nýtt leikverk, eða
raddskúlptúr eftir Magnús Pálsson.
Verkið nefnist Sprengd hljóðhimna
vinstra megin og gerist að mestu á
Jón Isberg sýslumaður upplýsir um Hunaver:
Innheimti ekki vsk.
Jón Isberg, sýslumaður í Húna-
vatnssýslu, viíl koma eftirfarandi
upplýsingum um staðreyndum á
framfærí:
„Um virðisaukaskatt af rokk-
hliómleikum í Húnaveri.
Á hverju ári frá 1989 hefur mikið
verið rætt og skrifað um rokk-
hljómleika, sem haldnir hafa verið
í Húnaveri um verslunarmanna-
helgina. Og ekki hvað minnst um
hvort þessir hljómleikar væru
söluskattsskyldir og síðar virðis-
aukaskattsskyldir.
Árið 1989 innheimti ég, sem inn-
heimtumaður ríkissjóðs, ekki
söluskatt af þessum hljómleikum,
þar sem ég taldi þá ekki söluskatts-
skylda, eftir þeim reglum, þ.e. lög-
um, reglugerðum og öðrum fyrir-
mælum sem innheimtumönnum
ber að fara eftir. Skattstjórinn í
Reykjavík mun hafa komist að
sömu niðurstöðu og einnig ríkis-
skattstjóri.
Árið 1990 komst ég einnig að
þeirri niðurstöðu að hljómleikar
væru án virðisaukaskatts og inn-
heimti hann ekki. Þessari ákvörð-
un var ekki breytt af skattstjóran-
um í Reykjavík og ekki heldur rík-
isskattstjóra. Engar nýjar reglur
hafa verið settar um virðisauka-
skatt af hljómleikum á árinu 1990
eða fyrirmælum breytt. Þess vegna
innheimti ég ekki skattinn af rokk-
hljómleikunum, sem haldnir voru
í Húnaveri um síðustu verslunar-
mannahelgi. Sem hliðstæðu má
benda á að ekki mun hafa verið
greiddur virðisaukaskattur af
rokkhljómleikum í Hafnarfirði 16.
júní síðastliðinn.“
-j*
greifasetri þar sem fram fara átök
vegna ástamála greifadótturinnar og
bflstjóra greifans. Samtímis gerast
atburðir annars staðar, í öðrum tíma
og á öðrum tilverustigum.
Magnús Pálsson er myndlistarmað-
ur og kýs gjaman sjálfur að kalla
verk sín raddskúlptúra, eða sam-
bland af tali, tónlist, ljóði og mynd.
Áhorfendum er í sífellu komið á
óvart og þarf að hafa sig allan við að
fylgja því sem fram fer. Leikendur
koma ýmist fram sem einstaklingar
eða kór og skipta í sífellu um gervi.
Höfundur leikstýrir verkinu ásamt
Þórunni S. Þorgrímsdóttur, en þar
sem þau eru bæði myndlistarmenn
þá er María Kristjánsdóttir þeim til
ráðgjafar um leikstjómina. Hlutverk
eru í höndum John Speight óperu-
söngvara, Amars Jónssonar, Eddu
Amljótsdóttur, Guðnýjar Helgadótt-
ur, Guðrúnar S. Gísladóttur, Krist-
bjargar Kjeld og Stefáns Jónssonar.
Vegna anna verða aðeins 7 sýningar
á verkinu og verður sú síðasta 29.
sept nk.