Tíminn - 17.09.1991, Qupperneq 3
Þriðjudagur 17. september 1991
Tíminn 3
SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA
Coldwatet, USA IFPL, UK VlK .Hamboro IFPE. Parla IFPC. Tokyo UBSfl AMt
Fiskútflutningur SH til Sovétríkjanna hefur algerlega dottiö niður á þessu árí og hitt stórveldið,
Bandaríkin, hefur keypt kríngum 30% minna en í fyrra. Japanir eru nú orðnir stærstu kaupendurnir,
miðað við magn.
SH álítur tímabili verðhækkana á erlendum
fiskmörkuðum lokið, en spurningu um:
Verðstöðvun eða
verðfall í haust
Bráðabirgðatölur Fiskifélagsins:
Heildaraflinn
rúm 700.000 t
Samkvæmt tölum frá Fiskifélagi
íslands hefur þorskaflinn í ár, frá 1.
janúar-31. ágúst, verið 244.7 þús.
lestir, ef tölur eru leiðréttar sam-
kvæmt skekkjumörkum, en heimil-
aður heildarafli á þessu tímabili var
245 þúsund lestir, þannig að aðeins
um 300 tonn vantaði upp á að veitt
væri upp í kvótann. Hvað ýsuna
varðar á sama tímabili voru veidd
42.8 þúsund tonn, en heildarkvót-
inn var 40 þúsund tonn. Heildark-
arfaaflinn er á þessum tíma 56.3
þús. tonn, en heildarkvótinn var 65
þús. tonn.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélagsins var heildarafli hér við
land í ágúst 49.656 tonn, sem er
heldur meira en á sama tíma í fyrra
þegar veidd voru 47.796 tonn.
Þorskaflinn í ágúst er þó nokkru
minni nú en í fyrra, eða 20.703 tonn
á móti 21.101 tonni. Ýsuafli, karfa-
afli og annar botnfiskafli er svipaður
og í fyrra, en ufsaaflinn er tæpum
1.000 tonnum meiri í ágúst í ár en í
fyrra. Mest munar um miklu meiri
rækjuveiði í síðasta mánuði en á
sama tíma í fyrra. í ágúst í ár voru
veidd 4.288 tonn af rækju, en í fyrra
var samsvarandi afli 2.928 tonn.
Það sem af er árinu er heildaraflinn
orðinn 711.480 tonn á móti
1.105.029 tonnum í fyrra. Þessi
mikli munur skýrist að langmestu
leyti með minni loðnuafla í ár, eða
rúmum 200 þúsund tonnum á móti
meira en 600 þúsund tonnum á
sama tímabili í fyrra.
Bátar hafa það sem af er árinu veitt
415.768 tonn, togarar 260.721 tonn
og smábátar 34.991 tonn.
Af einstökum verstöðvum hefur
mestum afla verið landað í Vest-
mannaeyjum það sem af er árinu,
eða 88.036 tonnum, en Grindavík
kemur næst með 35.702 tonn. Ef
hins vegar aðeins er litið til landaðs
þorskafla, eru Vestmannaeyjar enn
hæsta verstöðin með 15.645 tonn af
þorski, en Hafnarfjörður er í öðru
sæti með 14.289 tonn. Þákemur Ak-
ureyri með 13.389 tonn.
Fulltrúi stúdenta í stjórn LÍN hirtir framkvæmdastjórann:
Sannanir
„Það sjónarmið er ríkjandi um fískmarkaðinn í dag, að verðhækk-
unartímabiiinu sé lokið. Kaupendur og seljendur velta því fyrir sér
hvort verðið, sem nú fæst, muni haldast í haust eða hvort það muni
lækka tii muna,“ segir Gylfí Þór Magnússon framkvæmdastjórí í
fréttabréfí Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, Frosti.
Svo dæmi séu tekin segir hann verð
á þorski, ufsa og karfa hafa verið
spennt til hins ýtrasta. Þurfi því ekki
að koma á óvart þótt kaupendur haldi
að sér höndum og vilji sá hvemig
verð þróast á næstunni. Þetta hafi Ld.
haft áhrif á karfablokk í Evrópu.
„Við sjáum ekki ástæðu til þess að
búast við hreinu verðfalli fiskafúrða
nú með haustinu, eins og heyrst hef-
ur talað um. Líkur em þó á, að verð á
einstökum tegundum og/eða pakkn-
ingum verði ekki eins hátt og á fyrri
hluta ársins," segir Gylfi Þór.
Hjá SH segir hann menn þeirrar
skoðunar, að rétt sé að leitast við að
halda núverandi markaðsverði, í sam-
vinnu við viðskiptavini erlendis. Mjög
snöggar verðbreytingar reynist alltaf
ákaflega slæmar, bæði fyrir framleið-
endur hér heima og neytendur. Verð-
lækkanir þær, sem menn þurfi að
sætta sig við, verði á hinn bóginn
látnar koma fram hægt og rólega til
að skapa ekki glundroða á markaðn-
um.
Gylfi Þór segir fréttir ekki hafa borist
af auknum veiðum og vinnslu ann-
arra þjóða á helstu fisktegundum
okkar. Aukins framboðs þeirra sé því
vart að vænta á næstunni. Fréttir frá
Alaska varðandi ufsaverð og ráðstöf-
un á afla bendi t.d. ekki til harðnandi
samkeppni. Haldist neysla svipuð og
verið hefur þurfi varla að óttast neina
birgðaaukningu. Á hinn bóginn segir
Gylfi Þór sjást nokkur merki þess að
hátt fiskverð dragi úr neyslu sjávaraf-
urða. Og birgðasöfnun af þeirri
ástæðu segi fljótt til sín.
Framleiðsla á vegum SH var 50.600
tonn fyrstu sjö mánuði þessa árs, sem
er 6% meira en á sama tíma í fyrra.
Aukningin er sögð mest í ufsa og
karfa, en einnig nokkur á sfld, stein-
bít, humri og rækju. Þorskframleiðsl-
an er hins vegar nánast sú sama og á
sama tímabili í fyrra.
Þrátt fyrir aukna framleiðslu milli
ára og að útflutningurinn er talsvert
meiri en framleiðslan, hefur nú
minna verið flutt út heldur en á sömu
mánuðum í fyrra. Birgðir hjá SH eru
því meiri nú en á sama tíma í fyrra.
Heildarútflutningurinn er 52.400
tonn, að andvirði 11 milljarða króna
(210 krAg meðalverð) það sem af er
. árinu. En var 59.000 tonn fyrir 10,4
milljarða (176 krAg).
Japanir keyptu um fjórðung alls út-
flutnings SH á tímabilinu, eða rúm-
lega 13 þúsund tonn, og næst mest
Sunnlensk sláturhús að hefja sauðfjárslátrun:
Áætla aö slátra
um 160.000 fjár
Sauðfjárslátrun í sunnlenskum
sláturhúsum er að hefjast í þess-
ari viku. Sláturtíðin stendur í 5-6
vikur eða til loka októbermánaðar.
Stöðvarstjórar sláturhúsanna
gera ráð fyrir að þeir slátri 160
þúsund fjár í haust en sú tala get-
ur þó breyst
Mestu er slátrað hjá SS á Hvol-
svelli, eða alls 54 þúsund fjár. Það
er helmingi meira en í fyrra, sem
helgast af því að sauðfjárslátrun SS
á Hvolsvelli lagðist af þegar kjö-
tvinnsla fyrirtækisins flutti þang-
að. SS í Vík og á Klaustri slátra 20
þús. fjár hvort hús. Höfn-Þríhyrn-
ingur slátrar samtals 36.500 fjár,
u.þ.b. 15 þús. á Selfossi og 21 þús.
í Þykkvabæ.
Byrjað var að slátra sumarlömb-
um upp úr 20. ágúst og fyrir þau
hefur verið greitt nokkuð hærra
verð. Sláturhúsmenn segja að
margir séu ragir við að leggja fé
inn strax í upphafi sláturtíðar, en
þeir segja það hins vegar betra,
enda sé kjötið þá fituminna en
þegar lengra líður fram á haustið.
-SBS, Selfossi
fór til Frakklands, um 11,5 þús. tonn.
Þar er í báðum tilfellum um verulega
aukningu að ræða. Útflutningur til
Bandaríkjanna hefur á hinn bóginn
minnkað í kringum 30% milli ára, í
tonnum talið, niður í rúmlega 10 þús.
tonn fyrstu sjö mánuði þessa árs. Þá
vekur sérstaka athygli að enginn út-
flutningur er til Sovétríkjanna það
sem af er þessu ári, borið saman við
hátt á fimmta þúsund tonn í fyrra.
Mælt í útflutningsverðmætum eru
Bandaríkjamenn aftur á móti ennþá
langefstir á blaði, með um 3,2 millj-
arða króna á því tímabili sem hér um
ræðir. Þá kemur Frakkland, um 2,3
milljarðar, og síðan Japan og Þýska-
land, um 1,9 milljarða hvort land.
- HEI
eða
„Mér þykir það með ólíkindum að af grein hins síðamefnda í Morg-
sjá það haft eftlr þér að um það bil unblaðinu 11. þm. f bréfi Péturs
600 námsmenn séu f því að segir aö námsmenn fari fram á að
svindla í stórum stfl á Lánasjóði Lárus styðji mál sitt einhverjum
íslenskra námsmanna. Ég kann- rökum og sýni fram á að 600
ast ekki við að upplýsingar, sem manns stundi svindl. Geti hann
stutt geti slíkar fullyrðingar, hafi það ekki, krefst Pétur þess að Lár-
komið fram í stjóm sjóðsins,“ us biðjist afsökunar, enda sé það
segir í bréfi sem Pétur Þ. Óskars- ekki gott mál að almenningur fái
son, fulltrúi stúdenta í stjóm ekki réttar upplýsingar frá mönn-
Lánasjóðs ísl. námsmanna, hefur um í æöstu stöðum og myndi sér
ritað Lárusi Jónssyni, fram- skoðanir um námsmenn út frá
kvæmdastjóra LÍN. forsendum sem ef til vill eigi ekki
Pétur skrifar Lárusi bréf í tiiefni við rök að styðjasL —sá
Frá Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði.
Bætt við húsnæði
í Hvaleyrarskóia
Nýlega var formlega tekið í notkun nýtt skólahúsnæði Hvaleyrar-
skóla í Hafnarfirði. Um er að ræða síðari hluta 1. áfanga, sem er um
600 fm, en fyrri hluti þessa áfanga var tekinn í notkun í fyrra. Hval-
eyrarskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk.
í þeim áfanga, sem nú hefur verið
tekinn í notkun, eru 7 almennar
kennslustofur, raungreinastofa, tón-
menntastofa, hóprými og stjómun-
ar- og vinnuaðstaða. Þá hefur einnig
verið komið fyrir til bráðabirgða að-
stöðu fyrir kennslu í verklegum
greinum og fyrir heilsugæslu.
Á því skólaári, sem nú er nýhafið,
verða um 200 nemendur í Hvaleyr-
arskóla í 1. til 6. bekk, en gert er ráð
fyrir að einn árgangur bætist við ár
hvert þar til 10. bekk er náð.
Skólastjóri Hvaleyrarskóla er Helga
Friðfinnsdóttir, en auk hennar eru
kennarar og annað starfsfólk 20 tals-
ins.
Arkitekt skólans er Ormar Þór
Guðmundsson og verktaki var ístak
hf.
Auk þessa áfanga í Hvaleyrarskóla
hefur húsrými í Setbergsskóla í
Hafnarfirði verið aukið um eina 150
fm. Vegna örari fjölgunar nemenda
en ráð hefði verið fyrir gert, hefur
verið komið upp tveimur lausum
kennslustofúm til að leysa brýnasta
húsnæðisvandann í vetur.