Tíminn - 17.09.1991, Síða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 17. september 1991
UTLOND
Kosningar afstaðnar í Svíþjóð:
Jafnaðarmenn bíða
ósigur, erfiðar
stjórnarmyndunar-
viðræður framundan
Nýtt tímabil í stjómmálasögu
Svíþjóðar hófst í gærmorgun,
þegar Ingvar Carlsson forsæt-
isráðherra baðst lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt, eftir að
flokkur hans, Jafnaðar-
mannaflokkurinn, beið mik-
inn ósigur í þingkosningun-
um þar í landi.
Flokkurinn hefur ekki beðið annan
eins ósigur í sjö tugi ára. Flokkurinn
tapaði 18 þingsætum og hefur nú
138 þingmenn í stað 156 áður. Eftir
að kósningaúrslitin voru ljós, sagði
Carlsson að búast mætti við ringul-
reið í landinu. „Sænska þjóðin og
launþegar eiga eftir að gjalda þessa,“
sagði hann.
Úrslitin gefa þó ekki skýrar línur um
framhaldið, því að þrátt fyrir að borg-
araflokkunum hafi tekist að velta
jafnaðarmönnum úr sessi, tókst
þeim ekki að ná þeim meirihluta sem
þeir þurftu. Græningjaflokkurinn
þurrkaðist algjörlega út, en flokkur-
inn hafði 20 menn á þingi. Nýtt lýð-
ræði, flokkur sem var stofnaður fyrir
rúmlega ári síðan „til að fá meira fjör
í stjórnmálin", fékk 25 menn inn á
þing. Kristilegir demókratar unnu
verulega á, flokkurinn fékk 7,2% at-
kvæða í kosningunum nú, en ekki
nema 2,9% í kosningunum árið
1988. Miðflokkurinn missti töluvert
fýlgi, eða 11 þingsæti.
í gærmorgun sagði Ingvar Carlsson
við blaðamenn að hann hefði beðist
lausnar fýrir sig og ríkisstjórn sína,
og orðið hefði verið við beiöni hans.
Hann var beðinn um að sitja áfram
sem forsætisráðherra þar til ný
stjóm verður mynduð. Carlsson
sagði að hann hefði játað þeirri ósk.
Allan Larsson fjármálaráðherra tel-
ur að úrslit kosninganna eigi eftir að
skaða möguleika sænska efnahags-
kerfisins um aukinn efnahagsvöxt og
minnkandi atvinnuleysi. „Við meg-
um búast við óstöðugleika og tvísýnu
í efnahagsmálum og það mun hafa
afdrifaríkar afleiðingar fýrir landið,“
segir Larsson.
Thage Peterson, talsmaður þings-
ins, hélt fund með formönnum
flokkanna í gær. Hann sagði að ný
ríkisstjóm ætti að geta tekið við völd-
um strax í næsta mánuði, en þingið
tekur til starfa þann 1. október.
Carl Bildt, formaöur Hófsama sam-
einingarflokksins, sagði blaöamönn-
um í gær að hann væri tilbúinn til að
veita minnihluta stjóm forystu. „Ég
harma að kjósendur skyldu ekki gefa
okkur tækifæri til að mynda meiri-
hlutastjóm. En ég sé ekki ástæðu til
að kosningar verði haldnar aftur,"
segir Bildt
Ulf Andelson, fýrrum leiðtogi hóf-
samra, segir að fjögurra flokka ríkis-
stjóm hægriflokkanna sé ólíklegur
kostur. Þó sé óvíst að spá um hvað
verður.
Framtíð Carlssons sem leiðtogi jafn-
aðarmanna er óviss á þessari stundu í
kjölfar ósigursins.
Talið er aö Carl Bildt, formanni
Hófsama sameiningarflokksins,
verði falin stjómarmyndun.
Ingvar Carlsson og flokkur hans biðu mikinn ósigur í kosningunum
í Svíþjóð um helgina.
FLOKKUR FYLGI í % ÞING- FYLGI í % ÞING-
ÁRIÐ 1991 SÆTI ÁRIÐ 1988 SÆTI
Jafnaðarmannaflokkurinn 38,2 138 43,2 156
Hófsami sameiningarfl. 22,1 80 18,3 66
Frjálslyndi flokkurinn 9,2 33 12,2 44
Miðflokkurinn 8,6 31 11,3 42
Nýtt lýðræði 6,8 25 — —
Vinstri flokkurinn 4,5 16 5,8 21
Græningjafiokkurinn 3,4 — 5,5 20
Kristilegir demókratar 7,2 26 2,9 —
Aðrir — — 0,8 —
Samtals 100 349 100 349
Gro Harlem Brundtland, forsætis- jafn erfitt að stjóma Svíþjóð og Nor- fordæmi um skiptinguna í flokka-
ráðherra Noregs, sagði eftir að kosn- egi núna,“ segir Brundtland. keríi landsins. Það eiga efalaust eftir
ingaúrslitin voru Ijós að nú yrði jafn Olaf Johanson, leiðtogi Miðju- að verða vandræði við stjórnarmynd-
erfitt að stjórna Svíþjóð og Noregi. flokksins, sagði eftir kosningarnar: un.“
„Úrslitin eru hræðileg, það verður „Þetta eru úrslit, sem ekki eiga sér Reuter-SIS
Fréttayfirlit
BELQRAD - Óeirðir brut-
ust út aðeins klukkutíma
eftir að Carrington lávarður,
formaður friðarnefndar Evr-
ópubandalagsins, kom tii
Belgrad til að ræða við
stríöandi aðila um friðar-
horfur f Júgóslavíu. Evr-
ópubandalagið hefur vax-
andi áhyggjur af ástandinu
í landinu.
Ráðamenn f bandalaginu
hafa rætt um að senda
30.000 manna hersveitir til
Júgóslaviu eða þá að beita
efnahagsþvingunum til að
koma á friði.
HONG KONG - Frjáls-
lyndir unnu mikinn sigur f
fystu kosníngunum til lög-
gjafarþingsins. Þeir unnu
16 sæti af 18. Þetta er talið
sýna skýrlega að fólkið vill
meira iýðræði.
MANILA - Öldungaráðiö á
Fiiippseyjum hefur hafnað
áframhaldandi setu Banda-
rfkjahers i eyjunum í þriðju
og siðustu kosningum um
þetta mál. öldungaráðið
hvatti stjórnina i Washing-
ton til að kalla hermenn
sína, sem eru 8.000 tals-
ins, heim sem fyrst. Coraz-
on Aquino forseti hefur
sagt að hún hyggist halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um
þetta mál.
JERÚSALEM - Búist er
við aö annar fundur verði
haldinn um lán Bandaríkja-
manna tii ísraela. Banda-
ríkjamenn hafa sagt að
þetta sé mjög óheppilegur
timi fyrir lán, nú þegar frið-
arráðstefna Miðaustur-
landa er á næsta leiti.
Hassan, krónprins Jórdan-
fu, hefur sagt að lánamálið
sé prófsteinn Bandarikja-
manna um hvort (sraels-
menn láti kaupa sig til setu
á friðarráðstefnunni.
DES MOINES, lowa -
Bandarískir demókratar,
sem ætla sér að bjóða fram
mann á móti George Bush í
forsetakosningunum næsta
ár, hafa sett efnahagsmál
og þjóðemisréttindi efst á
kosningaloforðalistann.
CAPE CANAVERAL,
Flórida - Geimskutian
Discovery er komin á ioft á
ný. Verkefni hennar að
þessu sinni er að kanna
ástand ósonlagsins.
WASHINGTON - Bush
Bandaríkjaforseti mun hitta
Kohl, kanslara Þýskalands,
fljótlega til að ræða um að-
stoð við Sovétrikin.
Þjóðverjar eru á höttunum eftir Markus Wolf, sem er í Austurríki:
Verður hann sendur heim?
Þjóðveijar sögðu í gær að þeir vildu fá Markus Wolf framseldan til
Þýskalands þar sem hann yrði dreginn fyrir rétt fyrir njósnastarf-
semi. Wolf hafði yfirumsjón með njósnum í Bonn fyrir Austur-
Þýskaland og er nú í haldi í Vínarborg.
Dómsmálayfirvöld hafa viðurkennt
að fátt sé til úrræða til að fá hann
framseldan, þar sem njósnastarf-
semi er pólitískur glæpur, en ekki
eru neinir samningar um framsal
njósnara á milli landa.
Wolf, sem er 67 ára gamall, hefur
unnið sér tíma með því að sækja um
hæli í Austurríki sem pólitískur
flóttamaður. Ráðamenn þar segja að
það taki minnst tvær vikur að vinna
úr því máli.
„Ríkisstjórn Þýskalands hefur látið
það sterklega í ljós að mikill áhugi
sé á því að fá Wolf sendan þangað."
Þetta er haft eftir Júrgen Schmidt,
talsmanni dómsmálaráðuneytisins.
Hann hélt áfram og sagði: „Framsal
á milli landa nær ekki yfir pólitíska
glæpi. Svo að frá okkar sjónarhorni
hefur það engan tilgang að biðja
Austurríkismenn um að framselja
Wolf.“
Ráðamenn í Austurríki náðu Wolf á
sunnudag, tveimur vikum eftir að
hann fór í felur þarlendis, eftir
komu sína frá Moskvu, en hann
missti vernd eftir valdaránstilraun-
ina í Moskvu.
Talsmaður innanríkisráðuneytisins
í Austurríki segir að hann sé nú
undir þeirra vernd. „Það mætti kalla
þetta stofufangelsi. Hann hefur visst
frelsi, en við viljum vita hvar hann
er hvenær sem er.“
Wolf flúði til Moskvu skömmu fýrir
sameiningu Þýskalands, til að forð-
ast handtöku.
Franz Loeschnak, innanríkisráð-
herra Austurríkis, segist efast um að
samþykkt verði að veita Wolf pólit-
ískt hæli eða honum leyft að vera
áfram í landinu.
Óljóst er hvort þetta þýði að þýsk-
um stjórnvöldum verði að ósk sinni
eða hvort Wolf fái að fara úr landi og
hvert sem hann kýs sjálfur.
Schmidt sagðist vonast til að hann
yrði sendur til Þýskalands. „Við ætl-
um okkur ekki að sækja hann sjálfir.
Ég tel að best væri ef hann kæmi
hingað sjálfur," segir hann.
Wolf var yfirmaður austur-þýsku
leynilögreglunnar Stasi á tímabili.
Einn af njósnurum hans vann sig
upp í að verða aðstoðarmaður Willys
Brandt, sem var kanslari Vestur-
Þýskalands. Brandt varð að segja af
sér í kjöifar hneykslis, þegar upp
komst um aðstoðarmanninn árið
1974.
Wolf hefur skrifað tvær bækur eftir
að hann yfirgaf skuggaheim njósna
árið 1987. Hann hefur sagt í nokkr-
um viðtölum að hann vilji búa í
Þýskalandi. Reuter-SIS