Tíminn - 17.09.1991, Síða 5
Þriðjudagur 17. september 1991
Tíminn 5
Samræmd lífsgildakönnun gerð víða um heim í fýrrasumar:
UM 77% ÍSLENDINGA
TILBÚNIR í STRÍÐ
Norðmenn eru greinilega mestir „frændur“ á Norðurlöndum. í
könnun voru þessar þjóðir spurðan Hvaða þjóð fínnst þér að standi
þér næst? Hér á landi nefndu rúmlega fjórðungur (26%) Norð-
menn, nokkru færri (22%) Dani og um sjötti hver (16%) nefndi
Færeyinga. í ijósi þess hve mjög íslendingar sækja til Svíþjóðar í
nám og störf vekur athygli að aðeins 5% fundu til mestrar frænd-
semi við Svía.
Frændsemi við Norðmenn er þó
hvergi ríkari en meðal Svía. Um
38% þeirra segja Norðmenn standa
sér næst, en 22% nefna Dani. Og
það sama er uppi á teningnum hjá
Dönum, flestir nafna Norðmenn
(28%), en miklu færri Svía (16%). Af
Norðmönnum sjálfum finna hins
vegar nær helmingurinn (44%) til
mestrar frændsemi við Svía, en um
fimmtungur nefndi Dani.
Þetta var aðeins ein af ótal spum-
ingum úr lífsgildakönnun, sem
framkvæmd var á síðasta ári. Að
hluta til er könnunin sambærileg
við gildakönnun, sem gerð var í
vestrænum löndum 1981-84 („ham-
ingjukönnunina" frægu). Lífsgilda-
könnunin var nú gerð samtímis í
miklum fjölda landa, m.a. öllum
löndum Vestur-Evrópu, Bandaríkj-
unum og Ástralíu, en sömuleiðis
mörgum löndum A-Evrópu og Asíu.
Frumniðurstöður fyrir Evrópulönd-
in voru kynntar í fyrsta sinn í Brus-
sel í gær. Félagsvísindastofnun, sem
sá um könnunina hér á landi, kynnti
þá sömuleiðis helstu niðurstöður
fyrir ísland og hin Norðurlöndin,
ásamt meðalútkomunni fyrir SV-
Evrópu.
Efnahyggja mjög sterk
Um lífsskoðun íslendinga varð nið-
urstaðan m.a. sú, að þeir eru stoltir
af þjóðerni sínu og bindast landinu
sterkum böndum. M.a.s. sögðust
77% íslendinga tilbúnir að berjast
fyrir land sitt ef til styrjaldar kæmi,
borið saman við aðeins 54% fbúa í
SV-Evrópu.
íslendingar aðhyllast efnahyggju í
mjög miklum mæli. Þeir setja hag-
vaxtarmarkmiðið ofar í forgangsröð
þjóðfélagslegra markmiða heldur en
félagsleg, umhverfisleg og persónu-
lega þroskandi markmið. Þeir trúa
því líka sterklega að vísindalegar
framfarir verði mannkyninu fremur
til góðs en ills.
Mikil áhersla íslendinga á jafnrétti
var ein af sérkennandi lífsskoðunum
þeirra, öfugt við flestar aðrar þjóðir
sem, við val á milli gilda, leggja al-
mennt meiri áherslu á frelsi einstak-
lingsins. Og stundum mun meiri,
t.d. í Bandaríkjunum. Hin mikla
áhersla á jafnrétti er ekki sögð vegna
þess að íslendingar séu sinnulausir
um frelsi einstaklinga, heldur hitt, í
hve miklum mæli þeir kjósa að hafa
hvort tveggja — frelsi og jafnrétti.
íslendingar virðast skera sig úr
vegna óvenju mikillar trúar á að
samkeppni sé af hinu góða. Hún
hvetji fólk til nýsköpunar og til að
leggja hart að sér í vinnu. íslending-
ar hafa sömuleiðis mikla trú á því að
vinnusemi leiði til velgengni í lífinu,
og svipar þar mjög til Bandaríkja-
manna.
Lögreglan nýtur mests
trausts
Stjórnmálaáhugi virðist hvorki
meiri né minni meðal íslendinga
heldur en annarra Evrópuþjóða. Og
þátttaka þeirra í ýmsum pólitískum
aðgerðum reynist heldur ekkert frá-
brugðin.
Við spumingar um traust fólks á
stofnunum þjóðfélagsins kom í ljós
að íslendingar bera mest traust til
lögreglunnar, 84% segjast bera mik-
ið eða nokkuð mikið traust til henn-
ar. Þá kemur menntakerfið (81%,
sem er veruleg aukning frá 1984 og
mun meira traust en það nýtur í
Evrópulöndum og Bandaríkjunum),
félagslega tryggingakerfið (69%,
sem er t.d. hærra hlutfall en í Sví-
þjóð), kirkjan (68%, sem er miklu
meira traust en almennt í Evrópu-
löndum) og dómstólamir (67%).
Stórfyrirtælgum betur
treyst en þjóðþingum
Alþingi nýtur trausts 54% íslend-
inga, sem hafa þar sérstöðu ásamt
Síldarútvegsnefnd:
Undirbýr sölusamninga
Sfldarútvegsnefnd hefur að venju
notað sumarið tíl að kanna markað
fyrir saltaða sfld vegna komandi
haustvertíðar og hefur hún þegar
rætt við kaupendur í öllum helstu
Kindakjöt:
Hækkar um 8,5%
Sexmannanefnd hefur ákveðið að
verð á kindakjötí skuli hækka um
8.5%. í nefndinni sitja þrír fulltrú-
ar neytenda og þrír fulltrúar fram-
leiðenda.
Einhugur ríkti á fundinum þegar
ákvörðun var tekin. Hún er þó háð
fyrirvara um hækkun sláturkostnað-
ar. Ákvörðun um hana lá ekki fyrir
þegar blaðið fór í prentun, en fast-
íega var gert ráð fyrir að hún yrði
4.5%. -aá.
viðskiptalöndum. Þess er vænst að
niðurstöður fyrirframsamninga við
Svía og Finna liggi fyrir um næstu
mánaðamót.
Rætt hefur verið við þá stofnun
rússneska lýðveldisins sem hefur
með innkaup á matvælum að gera
og alla þá aðila í Póllandi sem vitað
er að versli með saltsíld. Vegna
ástands efnahagsmála í þessum
löndum er of snemmt að spá um
niðurstöður. Óvæntir atburðir í Sov-
étríkjunum hafa tafið viðræður við
Rússa, en líkur benda til að semja
megi við Pólverja ef þeim verða ekki
settir strangir greiðsluskilmálar.
Ef samningar nást við Pólverja þarf
sfldin að vera komin á markað um
miðjan nóvember, enda éta þarlend-
ir mest af henni á jólaföstu og
lönguföstu. Eins og alltaf er og gert
ráð fyrir að selja nokkurt magn til
Norðurlandanna fyrir jól. -aá.
Friðrik H. Jónsson og Stefán Ólafsson kynna samræmda lífsgildakönnun sem lögð var fyrir fjölda
þjóða, þar á meðal íslendinga. Timamynd: Ami Bjama
Norðmönnum og Hollendingum.
Því í flestum öðrum löndum, sem
könnunin náði til, kvaðst innan við
helmingur íbúanna bera traust til
þjóðþingsins. Virðist sérstaklega at-
hyglisvert, að í mörgum þessara lýð-
ræðisríkja bera menn mun minna
traust til þjóðþinga sinna, sem þeir
hafa þó kosið fulltrúa á, heldur en til
stórfyrirtækja í þessum löndum,
sem þeir ráða víst oftast ósköp litlu
um.
Enn athyglisverðari er þó kannski
sú niðurstaða, að f helmingi aðildar-
ríkja Evrópubandalagsins (Frakk-
landi, Ítalíu, Spáni, Portúgal, Belgíu
og frlandi) bera menn meira traust
til Evrópubandalagsins heldur en
sinna eigin þjóðþinga. Hinar aðild-
arþjóðirnar bera álíka traust til
þinga sinna eins og EB.
Og þetta á ekki aðeins við um aðild-
arlöndin. Þótt aðeins 37% Svía
treysti þjóðþingi sínu, lýsa 59%
þeirra trausti á EB og 53% trausti á
stóríyrirtækjum sínum. Hérlendis
verða bæði EB og stóríyrirtækin
ennþá að lúta í lægra haldi fyrir AJ-
þingi (36% treysta EB og 39% stór-
fyrirtækjunum).
Almennt bera vestrænar þjóðir
heldur meira traust til Evrópu-
bandalagsins heldur en Atlantshafs-
bandalagsins (NATO). Það á líka við
hér á landi, þar sem NATO nýtur að-
eins trausts 35% íslendinga.
Þægilegir vinnufélagar
númer eitt
Kannanir benda til þess að íslend-
ingar séu vinnufúsir í meira lagi.
Spurðir um mikilvægustu atriðin í
störfum sínum er algengast að ís-
Iendingar nefni þægilegt samstarfs-
fólk og góð laun, en mikil frí voru
hvað neðst á blaði. Raunar var þessi
forgangsröðun svipuð víðast hvar.
Þó virðist það segja nokkra sögu um
reynslu Norðmanna af atvinnuleysi,
að „örugg ráðning" er hjá þeim í
öðru sæti (en því 8. hérlendis), en
góð laun niðri í því fimmta.
Þegar afstaða var könnuð til launa-
jöfnunar og hins vegar þess hvort
sanngjarnt sé að umbuna betri
starfsmönnum umfram þá slakari,
þótti enn ein togstreitan koma í Ijós
í lífsskoðun Iandans. Því þeir vilja í
senn umbuna þeim, sem betur
standa sig, og um leið að launamun-
ur í þjóðfélaginu sé ekki of mikill.
- HEI
Verktakasamband
i fyrir óstjóm á húsbréfakerfinu:
„111 að stuðla að lækkun vaxta eftír lánsfé hafi mjög dregist sam- kaupa, en ekki til að leysa almenn-
skorar stjóm Veridakasambands an að undanfömu. Við slíkar að- an fjárhagsvanda fólks eða U1 að
fslands á ríkisstjómina að stöðva stæður mættí ætía að ávöxtunar- standa undír neyslu eða eyðslu al-
nú þegar með lögum útgáfu hús- krafa og þar með afföll af húsbréf- mennings. Nú cr svo komið að
bréfa vegna greiðsluerfiðleika. um lækkuðu í stað þess að hækka. þessl lán bitna hvað harðast á
Jafnframt skorar stjóm Vf á Kf- Hækkunina nú virðist fyrst og ungu fólki og þeim sem eru að
eyríssjóðina í landinu að verja í fremst mega rekja tíl gífurlegrar eignast sfna fýrstu íbúð. Þetta
auknum mæli ráðstöfunarfé sínu útgáfú húsbréfa vegna greiðslu- fólk verður að bera hin óeðlilega
til kaupa á húsbréfum, a.m.k. erfiðleikalána. Slík útgáfa bréf- miklu afföll sem nú ero á húsbréf-
meðan ávöxtunarmöguleikar eru á anna stefni í að verða vel á þriðja um.
því stigi sem verið hafa fram að mlHjarð á árinu. Stjóm VÍ varaðí Þá átelur stjóro VÍ lífeyrissjóðlna
þessu.“ stjómvöld alvaríega við því um fyrír að halda vöxtum á húsbréf-
Þetta kemur fram í ályktun síðustu áramót að lögleiða fyrir- um uppi með spákaupmennsku.
stjómar VÍ um húsbréfakerfíð og greiðslu vegna greiðsluerfiðleika f Almenningur f landinu hlýtur að
vaxtamál, en í henni lýsir stjómin húsbréfakerfinu. Jafhframt var gera þá krofu til sjóðanna að þcir
áhyggjum sínum vegna þeirrar bent á að með slíku yrði grund- gætí hagsmuna félaga sinna jafnt
hækkunar sem orðið hefur á velli kerfisins sem almenns lána- í nútíð sem framtíð og ekki síður
ávöxtunarkröfu húsbréfa undan- kerfis fyrir íbúðakaupendur stefnt þeirra sjóðsfétaga, sem yngri era
farið. ívoða. ognúeru aðkoma séruppþakiyf-
Sijómin telur að vaxtahækkunin „Stjóm VÍ tehxr að leysa veröi al- ir höfuðið. Ábyrgð lífeyrissjóð-
séúröQu samhengi við ástandið á mennan fiárhagsvanda fólks með anna er mikil í þessu máli, enda
fasteigna-og peningamarkaðnum, Öðrum hætti en í gegnum hús- virðist vaxtastigið í þjóðfélaginu
enþarhafi verulega dregið úr við- bréfakerfið. Húsbréfakerfið var ráðast í vaxandi mæli af ávöxtun-
skiptutn með bæðl notaðar og nýj- sett á laggirnar tíl að veita fólld arkröfu húsbréfa."
ar íbúðir, auk þess sem eftirspura lánafyrirgreiðslu vegna íbúða- —-sá