Tíminn - 17.09.1991, Síða 7
Þriðjudagur 17. september 1991
Tíminn 7
aaillli VETTVANGUR
Guðmundur Jónas Kristjánsson:
MIKILVÆG ÁLYKTUN
Á miðstjómarfundi Sambands ungra framsóknarmanna á Sauð-
árkróki helgina 31. ágúst-1. sept. s.l. var samþykkt mikilvæg
ályktun, þar sem lýst er yfír „fullri andstöðu við þátttöku íslands
í samningum um Evrópskt efnahagssvæði, vegna þess að fyrir-
varar þeir, sem settir voru af hálfu íslands við upphaf samning-
anna, eru týndir.“ Þá lýsir miðstjórn Sambands ungra framsókn-
armanna þeirri von sinni, að samtökin „Samstaða um óháð ís-
land“ verði „kærkomið mótvægi við einhliða áróðri utanríkisráð-
herra í umræðunni um EES“.
í ályktuninni kemur einnig fram
hörð gagnrýni á málflutning utan-
ríkisráðherra og fordæming á því,
hvernig ríkisfjölmiðlar hafa fjallað
um Evrópubandalagið og mál því
tengd.
Skelegg afstaða
Vert er að hrósa miðstjóm SUF
fyrir þessa lofsverðu ályktun, og
taka undir forystugrein Tímans 4.
sept. s.l. þar sem segir „að þessi
ályktun sýnir að ungir framsókn-
armenn hafa tekið skelegga af-
stöðu gegn áformum núverandi
ríkisstjórnar að semja sig inn í nýtt
ríkjabandalag sem hefði í för með
sér skerðingu á fullveldi íslands, ef
fyrirvarastefna Steingríms Her-
mannssonar væri lögð fyrir róða.
Þessi ályktun sýnir einnig, að ung-
ir framsóknarmenn ætla að hafa
forystu meðal ungs fólks í stjórn-
málaflokkum landsins um að
vinna gegn afsali íslenskra þjóð-
réttinda".
Já, æ fleiri eru nú að gera sér
grein fyrir því, hvaða hætta er á
ferðum, ef samningsdrög Jóns
Baldvins og félaga um Evrópskt
efnahagssvæði ná fram að ganga.
Sömu helgi og miðstjórn SUF
þingaði lýsti t.d. aðalfundur Stétt-
arsambands bænda miklum
áhyggjum sínum með þróun við-
ræðnanna um EES, og hafnar fyr-
irliggjandi samningsdrögum.
Þannig er þjóðin nú óðum að
vakna til meðvitundar um, hversu
samningsdrögin um EES eru orð-
in varhugaverð fyrir jafn fámenna
þjóð og okkur Islendinga, þegar
fyrirvaramir um svokölluð „fjór-
frelsi" Rómarsáttmála EB eru
orðnir jafri útþynntir og raun ber
vitni. Ályktun SUF er því svo sann-
arlega í tíma töluð, og er mjög
mikilvæg, ekki síst vegna fordæm-
isgildis, því þama hefur yfirstjóm
ungliðasamtaka næst stærsta
flokks þjóðarinnar tekið af öll tví-
mæli um sína þjóðlegu og ábyrgu
afstöðu í þessu stærsta utanríkis-
máli íslendinga á lýðveldistíman-
um.
Þingflokkurinn taki
af skarið
Á síðasta Flokksþingi framsókn-
armanna á s.l. hausti var samþykkt
skýr og skorinorð stefna gegn aðild
íslands að Evrópubandalaginu. í
því sambandi var t.d. bent á hætt-
una af svokölluðu „fjórfrelsi" Róm-
arsáttmála EB, en samkvæmt þeim
sáttmála er gert ráð fyrir óheftum
fjármagns- og fólksflutningum
milli landa, þ.m.t. búsetu- og at-
vinnurétti, kaup á landi og bújörð-
um og frjálsum aðgangi að auð-
Iindum. — En þetta óhefta „fjór-
frelsi“, sem Flokksþing framsókn-
armanna ályktaði réttilega gegn,
eru Jón Baldvin og félagar nú að
yfiríæra á hið Evrópska efnahags-
svæði, á mjög lævíslegan hátt.
M.ö.o.: Öll þau ákvæði í Rómar-
sáttmála EB um „fjórfrelsin" svo-
kölluðu, og sem Flokksþingið var-
aði sem mest við, virðast nú vera
komin nær óheft inn í sjálf samn-
ingsdrögin að Evrópsku efnahags-
svæði. Fyrirvarar Steingríms Her-
mannssonar í Evrópsku efnahags-
svæði, sem Tíminn vitnaði til í for-
ystugrein 4. sept. s.l., eru þess
vegna löngu útþynntir og fyrir bí í
þeim drögum sem nú liggja fyrir
um EES.
Það er því ekki eftir neinu að bíða
hjá þingflokki Framsóknarflokks-
ins að taka af skarið, og lýsa yfir
opinberri andstöðu gegn fyrir-
liggjandi samningsdrögum að
EES, eins og miðstjórn SUF hefur
nú réttilega gert, og þá á grund-
velli flokkssamþykktanna frá í
fyrra. Samningarnir um EES, sem
flokkurinn studdi fyrir kosningar,
eru nefnilega orðnir allt aðrir
„samningar" í höndunum á Jóni
Baldvin nú eftir kosningar. „Euro-
kratisminn" hefur tekið þar öll
völd. Þeir eru orðnir biðsalur að
sjálfu Evrópubandalaginu. Því til
sönnunar er sjálfur forsætisráð-
herra Noregs, sem túlkar samn-
inginn að EES sem jafngildi 70%
aðildar að sjálfu Evrópubandalag-
inu og krefst meir að segja þess að
samningurinn hljóti samþykkis
minnst 2/3 hluta norska Stór-
þingsins, ef hann eigi að öðlast
lagagildi þar í landi. Og þegar
þetta er skrifað, herma fregnir að
forsætisráðherrann norski hóti
jafnvel afsögn, því mikil gagnrýni
er orðin í Noregi á samningsdrög-
in, þar sem m.a. norski Miðflokk-
urinn telur að allt of mikið hafi
verið gefið eftir.
Þegar norskir Miðflokksmenn
eru farnir að óttast EES-samning-
inn gagnvart norskum hagsmun-
um, þarf enginn að undra þótt
framsóknarmenn á íslandi og aðr-
ir þeir, sem vilja standa vörð um
íslenskt fullveldi og sjálfstæði
smáríkisins íslands, geri það sama
og það af enn meiri þunga.
ÚR VIÐSKIPTALÍFINU
Maís-ræktun í Mexíkó
Maís er ræktaður á yfir tveim milljónum býla í Mexíkó og er ein aðalfæða landsmanna. Nú er ris-
inn ágreiningur um hvort maís á að falla undir fríverslun í samningum Norður- Ameríkulandanna
og Mexíkó, sem standa fyrir dyrum. Er maísinn orðinn pólitískt og efnahagslegt vandamái í samn-
ingaviðræðunum sem erfitt ættar að reynast að leysa.
í viðræðum Mexíkó við Bandarík-
in og Kanada um Fríverslunar-
svæði Norður-Ameríku er maís
ásteitingarsteinn. Maís er helsta
uppskera Mexíkó, og er maís
ræktaður á 2,25 milljónum
bændabýla, mörgum litlum og á
rýru landi, og er uppskera þeirra á
bónda og búverkamann 6-sinnum
minni en á maís-ekrum Banda-
ríkjanna. Maís og baunir er helsta
viðurværí fátæks fólks í Mexíkó,
a.m.k. fímmtungs landsmanna,
en til vemdar bændum er 70%
innflutningstollur á maís. Og er
tollurínn Bandaríkjunum þymir í
augum í fríverslunarviðræðun-
um.
Mexíkanska stjórnarflokknum,
Byltingarstofnanaflokknum (PRI),
er vandi á höndum, því að allt frá
því að byltingin gekk yfir landið
1910- 20, hafa bændur verið bak-
hjarl hans. Sagði Financial Times
svo frá 3. júlí 1991: „Á þessum
feiknarmikla vanda eru uppi önd-
verðar skoðanir á meðal mexí-
kanskra embættismanna. Sumir
þeirra segja málið svo viðkvæmt,
að ríkisstjórnin ætti að halda maís
utan viðræðna um (fríverslun-
ar)svæði, þótt Bandaríkin og Kan-
ada hreyfi mótmælum. (Hins veg-
ar halda aðrir þeirra fram), að eftir
tiltekinn tíma, t.d. þrjú ár, ætti
Mexíkó að fella með öllu niður toll
á maís. Ef ríkisstjómin hefði
brugðið á það ráð 1989, hefði (til-
skipunar)söluverð ræktenda lækk-
að úr 208,4 $ í 135,5 $ á tonn af
maís.“
Gestaprófessor við ITAM- tækni-
háskólann í Mexíkó-borg, Santiago
Levy, og Sweder van Wijnbergen
frá Center for Economic Research
í Bandaríkjunum hafa í álitsgerð
mælt með niðurfellingu maís-
tollsins. ,Aðeins þriðjungur hinna
2,25 milljóna maís-bænda selur
maís. (Hinir hafa hann sér til fram-
færis.) Og í hæsta lagi um 330.000
þeirra selja umtalsvert magn af
maís... En búverkamenn, um 3,75
milljónir ... munu njóta góðs af
lægra verði á maís... Sá agnúi er á,
eins og Levy og van Wijnbergen
benda á, að ræktað land félli mjög í
verði, ef maís-tollurinn yrði niður
felldur, og úr eftirspurn eftir
vinnuafli drægi... í álitsgerðinni
telst þeim til, að svonefndur „vel-
ferðar“-kostnaður af tollinum hafi
1989 numið 122 milljónum $ eða
svarað til 42% af ríkisstyrkjum til
maís-bænda, 292 milljónum $.
Á er annar vandi. Maís er að
mestu leyti ræktaður á ejido, bú-
jörðum í eins konar sameign ábú-
enda og sveitarfélaga. Ef Mexíkó
fellir maís undir fríverslunarsamn-
ing við Bandaríkin og Kanada,
kann það að nokkru að koma á
einkavæðingu ejido með því að
leyfa ábúendum, þótt ekki að
skylda þá til, að festa kaup á bú-
jörðum sínum.
gefur
FIAT
undir
fotinn
Ráðstjómarríkin hyggjast
selja allt að 30% hlut í hinum
miídu VAZ-bílasmiðjum á
Volgu-svæðinu, þar sem liö-
lega 700,000 bflar eru fram-
leiddir á ári. Um tilhögun slíks
útboðs hafa Ráðstjómarrflrin
ráðfært sig við íjársýslubanka
í New York, Bear Stearas &
Co. Vitað er, að ítölsku Fiat-
bflasmiðjurnar hafa hug á
kaupum á hlut í VAZ, en um
hæð væntanlegs kauptilboðs
síns hafa þau leitað ráða hjá
verslunarbanka í London,
Morgan Grenfell & Co., en í
apríl 1991 ræddi forstjóri Fi«
at, Paolo Cantarella, við ráð-
stjómina um fyrirkomulag út-
boðs hlutar í VAZ og náði við
hana samkomulagi um það. —
VAZ sehir þriðjung bfla sinna
tll útlanda.