Tíminn - 17.09.1991, Síða 8
8 Tíminn & ]Q3é(J/r
liiÍÍ SUF-SÍÐAN lliilMM
Nokkrar ályktanir miðstjórnarfundar Sambands ungra framsóknarmanna 30. ágústtil 1. september 1991:
HAMLAÐ GEGN HÆGRI VALD-
NÍÐSLU RÍKISSTJÓRNARINNAR
Nýkjörin stjóm KUFR ásamt Siv Friðleifsdóttur, formanni SUF.
Frá vinstri Einar Sveinbjörnsson, Enok Klemensson,
Siv Friðleifsdóttir, Sigurgeir Sigmundsson, Einar G. Einarsson
formaður KUFR, G. Valdimar Valdimarsson,
Gunnar Jón Yngvason, Skúli Skúlason og Ómar Stefánsson.
Ályktun um
kjör námsmanna
Miðstjóm Sambands ungra fram-
sóknarmanna gagnrýnir harðlega
síendurteknar árásir ríkisstjórnar
hægri flokkanna á námsmenn.
Valdníðsla og tillitsleysi mennta-
málaráðherra við námsmenn er al-
gjörlega óþolandi. Fyrirvaralaus
skerðing námslána sl. vor kom illa
við námsmenn og raskaði áformum
þeirra. Síðan skipar ráðherra nefnd
sem á að endurskoða reglur um
lánasjóðinn og eiga námsmenn
enga fulltrúa í henni. Námsmenn
hafa átt aðild að ákvarðanatöku um
LÍN um langt skeið og unnið þar af
heilindum, en hefur nú verið sagt
stríð á hendur af ráðherra.
Nýjasta afsprengi hægri aflanna
eru áform um skólaskatta til að fjár-
magna hallann á ríkissjóði og enn á
ný fara ráðherrarnir í orðaleik við
þjóðina og kalla skattinn innritun-
argjald.
Ákvarðanir um verulegar breyting-
ar á fyrirhugaðri starfsemi einstakra
skóla við upphaf skólaárs eru fyrir
neðan allar hellur. Hugdettur af
þessu tagi eru aðeins til þess fallnar
að eyðileggja undirbúning nemenda
og kennara og skapa glundroða og
óvissu í skólamálum.
Miðstjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna er furðu lostin á þeirri
þögn sem ríkir um kjör námsmanna
hjá ungliðahreyfingum stjórnar-
flokkanna. Þó þær hafi gefist upp í
baráttunni, munu ungir framsókn-
armenn halda henni áfram.
Miðstjórn SUF skorar á ungt fólk
að rísa nú upp og láta til sín heyra
sem víðast í þjóðfélaginu. Það talar
enginn okkar máli ef við gerum það
ekki sjálf.
Ályktun um byggðamál
Miðstjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna hefur þungar áhyggj-
ur af stefnu ríkisstjórnar hægri
flokkanna í byggðamálum. Vart má
á milli sjá hvor ríkisstjórnarflokkur-
inn er hægrisinnaðri.
Forsætisráðherra virðist einungis
sitja sem fulltrúi Reykjavíkurvalds-
ins í ríkisstjórn og vinnur markvisst
að því að ganga af atvinnulífi á
landsbyggðinni dauðu. Má þar til
telja fiskeldi, rækjuvinnslu, ullar-
iðnað og nú síðast mjólkurfram-
leiðslu.
Forsætisráðherra sér ofsjónum yfir
þeim fjármunum sem fara til upp-
byggingar atvinnulífs á landsbyggð-
inni í gegnum Byggðastofnun.
Hann hyggst leggja þennan þátt í
starfsemi Byggðastofnunar niður og
vísa landsbyggðinni á bankana.
í þjóðfélaginu hefur ríkt um það
sátt að ríkisvaldið og opinberir sjóð-
ir sjái atvinnulífinu fýrir nauðsyn-
legu áhættufjármagni og jafni út
sveiflur í ytri aðstæðum. Ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar boðar að nú skuli
þessu hætt. Þetta lýsir ótrúlegri
skammsýni og vanþekkingu á ís-
lensku atvinnulífi, sem alltaf hefur
þurft að búa við ytri sveiflur. Það er
einnig spurning hvernig skapa eigi
ný atvinnutækifæri ef ekkert
áhættufjármagn fæst, því ekki telja
bankarnir sig aflögufæra.
Miðstjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna hvetur alla íslendinga
til að standa vörð um það sem er
þeim næst og haga sínum viðskipt-
um þannig að þau komi fyrirtækjum
í þeirra heimabyggð fyrst og fremst
til góða. Við verðum að styðja við
bakið á okkar eigin fyrirtækium til
að halda atvinnunni heima. Á þenn-
an hátt tekst okkur vonandi að
þrauka af hina heimatilbúnu kreppu
sem ríkisstjórn hægri flokkanna
hefúr skapað.
Ályktun um Evrópumál
Miðstjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna vonast til þess að með
nýstofnuðum samtökum „Samstaða
um óháð ísland" sé komið kærkom-
ið mótvægi við einhliða áróður ut-
anríkisráðherra í umræðunni um
evrópska efnahagssvæðið, EES.
Miðstjórnin telur utanríkisráð-
herra hafa brugðist gjörsamlega
þeirri skyldu sinni að upplýsa þjóð-
ina um hvað samningar um evr-
ópska efnahagssvæðið snúast. Hvort
þetta er gert vísvitandi eða af fávísi
skal ósagt látið.
Andstaða við aðild íslands að EES
er vissulega fyrir hendi og því eðli-
legt að þjóðin fái vitneskju um mál-
ið frá þeim sem með það fara í
stjórnkerfinu. Höfuðmarkmið utan-
ríkisráðherra virðist vera að fjalla
ekki um EES á opinberum vettvangi
nema í skeytaformi eða með útúr-
snúningi og orðaleikjum, samanber
nýlegt dæmi um landbúnaðarvörur
á frílista.
Miðstjórn SUF gagnrýnir harðlega
umfjöllun um EES í rfkisfjölmiðl-
unum, en nú er svo komið að þjóðin
veit meira um áhrif EES á norskt
þjóðfélag en íslenskt.
Miðstjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna hvetur til stóraukinn-
ar umræðu um EES í þjóðfélaginu.
Fyrirvarar týndir
Miðstjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna lýsir vfir fullri and-
stöðu við þátttöku Islands í samn-
ingum um evrópskt efnahagssvæði,
vegna þess að fýrirvarar, sem settir
voru af íslands hálfu við upphaf
samninganna, eru týndir.
Félagsstarf SUF í sumar:
í sönnum, léttum
Þórsmerkuranda
Samband ungra framsóknarmanna
hefur staðið fýrir ýmiss konar fé-
lags- og málefnastarfi í sumar og í
haust. Haldinn var stjórnarfundur í
SUF 7. júní þar sem m.a. voru sam-
þykktar ályktanir sem birst hafa hér
í blaðinu.
Þann 29. júní stóð umhverfisnefnd
SUF undir forystu Sædísar Gunn-
laugsdóttur fyrir vinnuferð í rofa-
barðið Steingrímsþúfu, en upp-
græðsla barðsins er til merkis um
áhuga ungra framsóknarmanna um
ræktun landsins. Var barðið merkt
SUF með skilti, þannig að nú eiga
vegfarendur auðveldara með að
finna það og eiga þar stund.
Aðra helgi í júlí fóru SUF-arar í úti-
legu í Þórsmörk í samvinnu við
FUF-félagið í Árnessýslu. Vildi svo
vel til að ungir sjálfstæðismenn
voru þar einnig í hópferð. Komu
sérstakir fulltrúar þeirra, haldnir
léttum Þórsmerkuranda, í kurteisis-
heimsókn í tjaldbúðir SUF- ara.
Munu fulltrúar SUF-arar endur-
gjalda heimsóknina við vel valið
tækifæri.
Vetrarstarfið á
fullum dampi
Samband ungra framsóknarmanna
mun starfa af miklum krafti í vetur.
Málefnavinna heldur áfram, opnir
fundir á vegum nefnda eru í undir-
búningi og ýmis önnur starfsemi er
í bígerð.
Ungir framsóknarmenn munu
einnig nú sem íýrr taka virkan þátt í
almennu flokksstarfi Framsóknar-
flokksins. Þeim, sem vilja taka þátt í
starfsemi SUF í vetur, er bent á að
hafa samband við flokksskrifstofuna
í Hafnarstræti 20. Síminn er
624480. Einnig er fólki bent á að lesa
flokksmáladálkinn hér í Tímanum,
en þar auglýsir SUF starfsemi sína.
Fræðsluráðstefnan Stefna ‘91 á Sauðárkróki:
Úr Þórsmerkurferð SUF í júlí.
Vinnuferð í rofabarðið Steingrímsþúfu 29. júní undir stjórn
Sædísar Guðlaugsdóttur, formanns umhverfismálanefndar SUF,
sem er önnur frá vinstri.
Nýtt kjördæmissamband ungra framsóknarmanna stofnað:
KUFR í Reykjaneskjördæmi
Þann 27. ágúst var stofnað Kjördæ-
missamband ungra framsóknar-
manna f Reykjaneskjördæmi,
skammstafað KUFR.
Sambandið verður samstarfsvett-
vangur FUF-félaganna í kjördæm-
inu og er ætlað að vinna að eflingu
þeirra með því að vekja áhuga ungs
fólks á stefnu framsóknarmanna.
Formaður var kosinn Einar G. Ein-
arsson. Aðrir í stjórn og varastjórn
eru Sigurgeir Sigmundsson, Ómar
Stefánsson, Gunnar Jón Ingvarsson,
G. Valdimar Valdimarsson, Skúli
Skúlason, Enok Klemensson og
Einar Sveinbjörnsson.
Tækifæri ungs fólks
í breyttri Evrópu?
Þann 31. ágúst hélt SUF fræðslu-
ráðstefnuna Stefna ‘91 í Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki. Ráðstefnan var fjöl-
menn og þótti takast mjög vel.
Gunnar Bragi Sveinsson, formaður
FUF-Skagafirði, og hans heima-
menn eiga þakkir skildar fýrir mikla
aðstoð við framkvæmdastjóm og
starfsmann ráðstefnunnar.
Á ráðstefnunni flutti Tryggvi Gísla-
son, skólameistari MA á Akureyri,
erindi um tækifæri ungs fólks í
breyttri Evrópu. Jón Þórðarson,
deildarstjóri í Háskólanum á Akur-
eyri, flutti fýrirlestur um tækifæri
ungs fólks á landsbyggðinni, Andrés
Pétursson blaðamaður um hvort EB
stefndi í að verða bandaríki Evrópu,
Jóhann Pétur Sveinsson lögfræð-
ingur um jöfnun atkvæðisréttar og
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, um
stjórnmálaviðhorfíð.
Frá fræðsluráöstefnunni Stefna
Að ráðstefnunni lokinni fjöl-
menntu SUF-arar á héraðsmót
framsóknarmanna í Skagafirði, sem
haldið var í Miðgarði í Varmahlíð.
Þar stóðu SUF-arar fýrir skemmti-
legri uppákomu, svokallaðri Ragn-
'91.
ars Reykásskeppni. Mörgum sögum
fer af ballinu, sem haldið var að
loknu héraðsmótinu, en eitt er víst
að Skagfirðingar kunna að skemmta
sér.