Tíminn - 17.09.1991, Page 13
Þriðjudagur 17. september
Tíminn 13
£E@NB06INN&.
Þýsk kvikmyndahátíð
í Regnboganum
Þriðjudagur 17. septenber:
KL. 21:00
RASCHAUA
Öngþveiti- 5 mfn. þögul tilraunamynd eftir Ergún Chevik.
DRACHENFUTTER
Drekafóður-79. mln. verðlaunamynd eftir Jan Schutte. — M.E.U.
KL 23:00
EINE ROLLE DUSCHEN
Eitt stykki sturta
TREFFEN INTRAVERS
Stefnumót í Travers - M.E.U. Endurtekin sýning
Miðvikudagur 18. september:
KL. 21:00
SCHWARZBUNTMÁRCHEN
Svart og marglitt ævintýri
DER GLÁSERNE HIMMEL
Glertiiminninn - M.E.U. Endurtekin sýning
KL. 23:00
FRANKIE
Frankie
ÚBERALLIST BESSER, WO WIR NICHT SIND
Það er alistaðar betra að vera, en þar sem við erum
- M.E.U. Endurtekin sýning.
Aðalfundur
Landverndar
og ráðstefna um menningarlandslag, sem ber heitið:
Ásýnd íslands
fortíð — nútíð — framtíð
verður í Munaðarnesi 11., 12. og 13. október 1991.
Dagskrá verður send aðildarfélögum.
Landvernd.
J Frá
yt Tónlistarskóla
Kópavogs
Skólinn verður settur miðvikudaginn 18. september kl. 17 í
Kópavogskirkju.
Skólastjóri.
---------------------------------------------'N
D*
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför
Kristins Eiríkssonar
Goðheimum 11
Stefanfa Sigurjónsdóttir
Guðni Jónsson
Kristfn Jónsdóttir
Gunnar Jónsson
Eiríkur Kristinsson
Ólöf M. Eiríksdóttir
Birgir Eiríksson
Hólmfríður Eiríksdóttir
Einar V. Eiríksson
Jón Guðnason
Sigrún Sveinsdóttir
Gfsli Vilhjálmsson
Guðfinna B. Kristjánsdóttir
Kolbrún Eiríksdóttir
Kristján Otterstedt
Hólmfríður Ingvarsdóttir
Gestur Helgason
Sigríður Ingvarsdóttir
Lára Ingalls úr Húsinu á sléttunni er orðin
mamma, hún á tveggja ára strák:
Setur barnið ofar
kvikmyndaheiminum
Hvort sem henni líkar það betur
eða verr, og henni líkar það illa,
þá verður Melissa Gilbert alltaf
þekkt sem Lára Ingalls, stelpan í
þáttunum Húsið á sléttunni.
En nú er langt síðan þættirnir
hættu göngu sinni. Melissa Gil-
bert er orðin fullorðin kona, hún
er orðin 27 ára gömul og langt er
síðan fléttumar fengu að fjúka.
En gamalkunna brosið er enn á
sínum stað. Michael Landon, sem
lék föðurinn í þáttunum, er lát-
inn, hann lést fyrr í sumar. Það er
nú svo að Húsið á sléttunni
minnir mann á gömlu góðu árin,
þegar þess var beðið með óþreyju
að klukkan yrði fjögur á sunnu-
dögum svo hægt væri að fylgjast
með Ingalls-fjölskyldunni í gegn-
um súrt og sætt. Gárungarnir
kölluðu þættina Grenjað á gresj-
unni, en þeir hafa sennilega haft
alveg jafn gaman af þessum þátt-
um og við hin.
Melissa stóð í löngu sambandi
við kvennagullið Rob Lowe, en
árið 1988 giftist hún leikritahöf-
undinum Bob Brinkman. Og fyrir
tveimur árum eignuðust þau
soninn Dakota. Frá þeirri stundu
hefur leiklistarferill Melissu vikið
fyrir Dakota, sem skipar hæstan
sess í hennar Iífi.
„Ég held að það sé ónauðsynlegt
að ræða um fortíð mína,“ segir
hún. „Núna einbeiti ég mér að
nútíðinni, Bob og Dakota. Sonur
minn hefúr vakið hjá mér tilfinn-
ingar sem ég vissi ekki að ég ætti
til. Sú kona, sem er móðir, veit
um hvað ég er að tala.
„Að vera frægur sem krakki
heldur þér í fjarlægð frá fólki og
jafnvel vinum þínum, og þú verð-
ur að vera mjög strangur við
sjálfan þig til að höndla frægð-
ina,“ segir Melissa.
Það hefur henni sjálfri tekist
með miklum ágætum. Núna leik-
ur hún í leikriti sem maður
hennar samdi. Það heitir Bay-
house og var sett upp í Michigan.
„Ég býst ekkert frekar við að
vinna við kvikmyndir eða sjón-
varpsþætti aftur. Mér finnst ekki
að nokkur eigi að leggja allt líf
sitt í þann heim, því það er heim-
ur blekkinga og svika. Þú ættir
ekki að gefa meira af þér í þann
heim en þú nauðsynlega þarft,“
segir Melissa Gilbert að lokum.
Melissa segir að heimur hennar snúist að mestu um soninn
Dakota.
Sem Lára Ingalls, en þannig man fólk eftir henni.
Dakota hefur ekki hugmynd
um hversu fræga mömmu
hann á.
Hvað þá að hann viti að hans
vegna væri hún til í að gefa
það allt frá sér.