Tíminn - 17.09.1991, Qupperneq 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKiP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhusinu v Tryggvagolu
S 28822 .
Lausnin er: Enzymnl'
*'§^Jíýtt í Evrópu
fl ■ Engin hárígræösla
aEngin gerlihi
j■# ■Engin lyf'
-■555—,
EUQO-HAIR
á Islandi
iyfjameðferð
■ Eiriíingis tímabundin notkun
Eigið hár með hjáip lífefna-orku
SS™ ®91 -676331e.ki.i6.oo
■ ■■■■■■■■■■■■■
G1 §&
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
SÍMI
91-676-444 TVÖFALDUR1. vinningur
Læknafélag Reykjavíkur átelur harðlega opinberar fyrirskipanir um sparnað í rekstri sjúkrahúsa:
LENGRI BIÐLISTAR
AÐ DAUÐALISTUM?
Stjórn Læknafélags Reykjavíkur átelur harðlega aðfdr yfírstjómar
heilbrigðismála að þeirri þjónustu sem þegnar landsins hafa þegar
greitt fyrir með sköttum sínum, en undanfarið hafa komið fram í fjöl-
miðlum fréttir um spamaðaráætlanir Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytis á sviði heilbrigðismála. Aukin þátttaka sjúklinga í lyija-
kostnaði er eitt dæmi þessa.
Nú hefur birst opinberlega fyrir-
skipun um að breyta SL Jósefs-
spítala í Hafnarfirði í stofnun fyrir
aldraða og leggja þar með niður
þá lækningastarfsemi, sem þar
hefur verið stunduð til langs
tíma. Enn fremur hafa verið
kynntar fyrirskipanir um að loka
skurðstofum nokkurra sjúkra-
húsa á landsbyggðinni. Aðrar fyr-
irskipanir um stórfelldan niður-
skurð heilbrigðisþjónustu munu
liggja fyrir, en án þess að hafa ver-
ið kynntar á opinberum vettvangi
enn sem komið er.
Það fylgir þessum fyrirskipun-
um, að Landspítali og Borgarspít-
ali munu verða í stakk búnir til að
taka því viðbótarálagi, sem fylgi
þessum lokunum. En samkvæmt
upplýsingum lækna þessara
sjúkrahúsa er fjarri lagi að svo sé,
allra síst ef fjárframlög til sjúkra-
húsanna í Reykjavík verða stór-
lega skert, eins og lagt hefur verið
til.
Fyrirskipunum þessum hafa ekki
fylgt nein læknisfræðileg rök,
engin þjónustuleg rök, engin hag-
fræðileg rök, né nokkur stjórnun-
arleg rök, sem hægt er að byggja
á. Einungis hefur fylgt sú fullyrð-
ing, að með þessu eigi að hag-
ræða.
Jónas Bjarnason, yfirlæknir og
formaður læknaráðs St. Jósefs-
spítala, segir að síðastliðinn mið-
vikudag hafi stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri spítalans verið
boðaðir á fund í ráðuneytið og
þeim tilkynnt að leggja ætti
sjúkrahúsið niður í núverandi
mynd. Á fundinum kom fram að
það væri búið að taka ákvörðun af
hálfu ráðuneytisins, en nú væri
það formannsins og fram-
kvæmdastjórans að framkvæmda
þetta.
Jónas segir að þessi tilskipun frá
ráðuneytinu hafi komið eins og
þruma úr heiðskíru lofti, því áður
hafði ekki einu sinni verið talað
um að hagræða á einn eða neinn
hátt. „Fyrstu boðin, sem við fáum
frá ráðuneytinu, eru að leggja
spítalann niöur.“
Ásgeir Theodórs, varaformaður
læknaráðs St. Jósefsspítala, segir
það ljóst að ekki sé búið að fjalla
um mál sjúkrahússins á Alþingi,
þar sem það kemur ekki saman
fyrr en 1. október næstkomandi.
,Ástæða þess að málið er lagt
fram í „tilskipunarformi" er okkur
hins vegar ekki kunnug,“ segir
Ásgeir.
Þá hefur ríkisstjórnin einnig
viðrað hugmyndir um sparnað í
rekstri sjúkrahúsanna í Reykjavík
og voru þær t.d. kynntar starfs-
fólki Landakotsspítala í gær. Þar á
meðal er hugmynd um að breyta
Landakotsspítala í elli- og hjúkr-
unarheimili og hætta allri bráða-
þjónustu. Það mun þó vera ill
framkvæmanlegt nema með um-
fangsmiklum og dýrum breyting-
um. Ýmsum skurðaðgerðum og
bæklunaraðgerðum hefur mjög
fækkað. Það hefur leitt til þess að
spítalinn er vannýttur, einkum
skurðstofur hans. —-js
Tínimii
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPT. 1991
Félagsmálaráðherra:
Aðgerðir til
að minnka
kostnað
leigjenda
í samræmi við stefnuyfírlýsingu
ríkisstjómarinnar hefur félags-
málaráðherra skipað nefnd til að
gera tillögur um aðgerðir til að
minnka húsnæðiskostnað leigj-
enda.
Nefndinni er ætlað að gera tillögur
um sérstakar aðgerðir eins og húsa-
leigubætur til handa tekjulágum
leigjendum. Hún mun hafa samráð
við Samband íslenskra sveitarfélaga,
Leigjendasamtökin og Húseigenda-
félagið. Tillögur nefndarinnar eiga
að liggja fyrir í formi lagafrumvarps
eigi síðar en 1. janúar næstkomandi.
Ráðherra hefur skipað Inga Val Jó-
hannsson, deildarstjóra í félags-
málaráðuneytinu, formann nefndar-
innar. Aðrir í nefndinni eru Rann-
veig Guðmundsdóttir þingmaður,
Sólveig Pétursdóttir þingmaður og
Þórhallur Jósepsson, deildarstjóri í
samgönguráðuneytinu. -aá.
Hugmynd um að leggja St Jósefsspítala niður mótmælt
harðlega. Níels Ámi Lund, formaður spítaiastjórnar:
Biðlistar
myndu
lengjast
verulega
í gær var haldinn fjölmennur
fundur í Hafnarborg í Hafnarfírði
þar sem mótmælt var þeirri hug-
mynd heilbrigðisyfírvalda að
leggja niður núverandi starfsemi
St. Jósefsspítala í Hafnarfírði. Á
fundínn mættu m.a. fulltrúar
bæjarráðs Hafnarfjarðar, stjóm
sjúkrahúss SL Jósefsspítala, yfir-
læknir Heilsugæslustöðvar Hafn-
arfjarðar, fúlltrúar frá Sólvangi,
yfíriæknirinn í Garðabæ, auk
þingmanna kjördæmisins.
Nfels Ámi Lund, stjómarfor-
maöur St. Jósefsspítala, segir í
samtali víð Tímann að Guðmund-
ur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, hafl gert grein fyrir
samþykktum bæjarstjómar, þess
efnis að hún legðist gegn þessum
niðurskurði.
Níels Árni segir að fundarmenn
hafl verið sammála um það að
sjúkrahúsið gegndi lykilhlutverki
í heilsugæslu á öllu svæðinu. Það
væri Ijóst að með þessu áformi
vawri í raun og veru verið að leggja
sjúkrahúsið niður í núverandi
mynd. Slíkt myndi raska verulega
allri þjónustu sem á sér stað á
þessu svæði núna. Þá var bent á
að sjúkrahúsið er mjög vel rekin
stofnun og menn töldu að það
vær) enginn spamaður í því að
leggja hana niður.
Þingmenn bentu á að þessi til-
laga á eftir að fara í gegnum þing-
iö, þ.e. heilbrigðisnefnd þingsins
og fjárlaganefnd. Það era allir
sammála um það að vinna þetta
mál á faglegum rökum. „Við telj-
um okkur geta sýnt fram á það að
þetta sé ekki rétt ákvörðun, að
skera spítalann niður og láta hann
hætta sinni starfsemi. Það vom
allir sammála um það að vmna á
þeim vettvangi, að kynna þetta
mál eins víða og við gætum.“
Níels Áml bentl á að önnur
sjúkrahús gætu ekki tekið við
starfsemi St. Jósefsspítala, biðl-
istar myndu þess vegna lengjast
enn frekar á öðrum sjúkrahúsum.
j»
Einn lengsti útreiðartúr sögunnar á íslenskum hestum er í undirbúningi:
RIÐIÐ FRÁ DANMÖRKU
OG ALLT TIL BEIJING
Tveir Danir hyggjast fara í útreiðar-
túr á íslenskum hestum og verður
sá útreiðartúr í lengra lagi, eða frá
Danmörku og til höfuðborgar Kína-
veldis, Beijing eða Peking.
Það er félag hestamanna með ís-
lenska hesta í Danmörku sem stend-
ur fyrir þessari löngu ferð ásamt
hestamönnunum tveim sem hyggj-
ast ríða hina löngu leið, þeim Poul
Rask og Steen Gees Christensen.
Þeir félagamir munu ríða með sex
íslenska hesta hina 15.000 km löngu
leið. Þeir munu leggja upp frá Dan-
mörku og ríða yfir Þýskaland, Pól-
land, Sovétríkin, Mongólíu og Kína.
Þrír hestanna verða fengnir héðan
frá íslandi, en þrír frá meginlandi
Evrópu. Þeir síðamefndu verða þó
að sjálfsögðu hreinræktaðir íslands-
hestar. Einn tilgangur ferðarinnar er
að framkvæma ýmsar vísindarann-
sóknir á hestunum, en íslenskir
hestar hafa ýmsa eiginleika og sér-
kenni umfram önnur hestakyn og
hafa sumir þessara eiginleika ekki
verið rannsakaðir að ráði.
íslenski hesturinn hefur ekki
blandast öðrum hrossastofnum eftir
að hann barst til íslands með land-
námsmönnum á 9. og 10. öld, en
hann er talinn vera kominn út af n-
evrópskum smáhestum sem notaðir
voru til reiðar fyrst og fremst. ís-
lenskir hestar eru taldir líklegir til að
komast þessa löngu leið sökum þess
hve þeir eru þrekmiklir, sterkir og
léttir á fóðmm.
Þeir Poul Rask og Steen Gees
Christensen em báðir langþjálfaðir
hestamenn og félagar í íslandshesta-
mannafélagi Danmerkur. Poul Rask
er flugvirki og flugumferðarstjóri að
mennt og hefur m.a. starfað hjá
danska flughernum og dönsku hjálp-
arstofnuninni DANIDA. Hann hefur
unnið til verðlauna fyrir reið-
mennsku.
Steen Gees Christensen er kennari
og hefur átt þátt í að koma á sam-
starfi milli danskra skóla og kennara
Poul Rask, annar tveggja
danskra hestamanna sem
hyggjast leggja upp í mjög
langa langferð á íslenskum
hestum — frá Danmörku til
Beijing í Kína.
Timamynd: Ámi BJama
við starfssystkini fyrir austan jám-
tjaldið sáluga. Hann býr á Borgund-
arhólmi og hefur verið formaður fé-
lags íslandshestamanna þar.
Sérstök sjálfseignarstofnun hefur
verið stofnað um Kínaför þeirra tví-
menninga og á hún að annast allt
skipulag og framkvæmd ferðarinnar.
Ætlunin er að afla fjár með styrkjum
frá fyrirtækjum og stofnunum og
frjálsum framlögum einstaklinga.
Stofnunin verður lögð niður jafn-
skjótt og ieiðangrinum er lokið.
Verði einhver hagnaður af Ijársöfnun
stofnunarinnar þá skal nota féð til
einhvers sem kemur ræktun ís-
lenska hestsins til góða. —sá
VNNNGAR FJÖLDi VNNNGSHAFA upph«)Ahvern VNNNGSH4FA
1. Sa(5 2.811.166
2. 4ÍII BT 6 81.418
3. 4*5 122 6.907
4. 3*5 4.190 469
UPPIÝSINGAR: SlMSVAHI 91-681511 lukxuUna991002