Tíminn - 23.10.1991, Síða 4

Tíminn - 23.10.1991, Síða 4
4Tíminn Miðvikudagur 23. október 1991 Stjórnvöld í Búrma eru ekki sátt viö hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár: AUNG SAN SUU KYI EKKI VERÐUGUR VERÐLAUNAHAFI Herforingjastjórain í Búrma gaf til kynna í gær að leiðtogi stjómarand- stöðunnar, Aung San Suu Kyi, ætti friðarverðlaun Nóbels ekki skilið. Teiknimyndir í dagblöðum stjóm- valda gáfu til kynna að friðarverð- launin hefðu betur verið komin í höndum framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, Javiers Perez de Cuellar, eða Nelsons Mandela sem stjórnvöld í Suður-Afríku höfðu í fangelsi í 27 ár. „Það er sérstaklega einkennilegt að þeir skuli nefna Perez de Cuellar, þar sem hann hefur oftar en einu sinni óskað eftir að Aung San Suu Kyi verði látin laus,“ segir stjómarerind- reki í Rangoon. Á mánudaginn kom sendinefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna til Búrma til að til að kanna hvað hæft sé í ásökunum á hendur herforingja- stjórninni um mannréttindabrot. Yozo Yokota, prófessor frá Japan, fer fyrir nefndinni. Stjórnarerindrekar í Aung San Suu Kyl. Búrma efast um að hann fái að hitta Aung San Suu Kyi eða aðra Ieiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem eru í Flugvél rænt í Tékkóslóvakíu: Flugræninginn gaf sig á vald lögreglunnar Flugræningi, sem rændi flugvél í Tékkóslóvakíu, hélt áhöfn- inni í gíslingu og krafðist þess að flogið yrði með sig til Líbíu, gafst upp í gær. Eftir 16 klukkutíma samningaviðræður við hann gaf hann sig sjálfviljugur á vald lögreglunnar. Þetta kemur fram í við- tali sem tékkneska fréttastofan átti við Martin Sendrych, tals- mann innanríkisráðuneytisins. Flugvélinni, sem var rænt á reglulegu flugi sínu frá Bratislava til Prag, lenti á flugvellinum í Prag um miðjan dag á mánudag, en var stýrt á hliðarvöll vegna ránsins. Flugræninginn hélt áhöfn flugvél- arinnar í gíslingu, en leyfði farþeg- unum að fara frá borði. Fréttastof- an segir að flugmanninum hafi tekist að laumast frá borði á meðan samningaviðræður við flugræn- ingjann stóðu yfir, en samninga- maður var sendur um borð. Flug- ræninginn krafðist 35 milljóna króna lausnargjalds. Samningamaðurinn fór fljótlega frá borði og stuttu síðar hótaði flugræninginn að nota Semtex- sprengju og sprengja flugvélina í loft upp. Semtexsprengjur eru gerðar í Tékkóslóvakíu og var slík notuð ár- ið 1988 þegar Boeing 747 þota Pan Am flugfélagsins var sprengd í loft upp yfir bænum Lockerbie á Skot- landi, með þeim afleiðingum að 270 manns fórust. Tékkneska fréttastofan hafði ekki heimildir fyrir því, hvort flugræn- inginn hafi haft sprengiefnið undir höndum. Ekki hefur verið greint frá nafni hans. Miroslav Kvasnak, leiðtogi víkingasveitarinnar þar eystra, sagði að þessi sami maður og rændi flugvélinni hafi framið vopnað rán í febrúar síðastliðnum. Utanríkisráðuneyti Líbíu sagði í tilkynningu áður en flugræning- inn gafst upp, að flugvélinni yrði ekki leyft að lenda í Líbíu eða fljúga yfir líbískt landsvæði. Þar kemur einnig fram að flugræning- inn yrði tekinn til yfirheyrslu ef hann neyddi flugvélina til Líbíu. Líbíumenn reyna nú að koma á betra sambandi við Bandaríkin og önnur vestræn ríki, sem hafa sakað þá um að styðja ofbeldisverk hryðjuverkasamtaka. Líbía er enn- þá á lista Bandaríkjanna yfir lönd sem styðja hryðjuverk. Reuter-SIS að bregðast við friðarverðlaunaveit- ingunni. í ofangreindum teikni- myndum er einnig talað um verð- launin sem „áróðursverðlaunin". En þrátt fyrir allt hefur herfor- ingjastjórnin ekki formlega sagt neitt um verðlaunin eða ritskoðað fréttaflutning um að Aung San Suu Kyi hafi hlotið þau. Búrmanskir stjórnarerindrekar í Tælandi segja að með þessu sé friðarverðlauna- nefndin að blanda sér í innanríkis- mál Búrma. Fréttir um að Aung San Suu Kyi hljóti friðarverðlaunin hafa borist um landið í gegnum erlendar út- varpsstöðvar. Fjöldi fólks var mjög ánægt, en of hrætt til að láta það í ljós við stjórnvöld. reuter-sis Sprenging við flótta- mannabúðir í Gautaborg: w u m Öflug sprengja sprakk í Gautaborg á mánudagsnótt með þeim afleiðingum að rúð- ur brotnuðu og hurðir skemmdust. Sprengjan sprakk við miðstoðvar flótta- manna í borgínni. Tveir flóttamannanna voru fluttir á sjúkrahús með tauga- áfall, en að öðru Íeyti slasaðist enginn. Flóttamennirnir eru flestir frá Júgóslavíu. Berry Nejding iögreglumað- ur segir að ekki sé búið að handtaka neinn vegna þessa, og að ekki sé vitað tii að nein róttæk samtök standi þarna að baki. í síðasta mánuði sprungu sprengjur í vöruhúsi og í op- inberri byggingu í Gautaborg. Nejding sagði að ekki væri tal- ið að þarna væri samband á miili. reuter-sls haldi. Herforingjastjórnin virðist ekki vita nákvæmlega hvernig hún eigi 14 ára unglingur frá Namibíu skotinn til bana: Herinn í Botswana talinn bera ábyrgð á þessu ódæðisverki 14 ára namibískur unglings- piltur var skotinn til bana þar sem hann var á siglingu á litl- um kanó með vinum sínum á ánni sem er við landamæri Namibíu og Botswana. Lögregl- an telur að herinn í Botswana hafí framið þetta ódæði. Talsmaður lögreglunnar í höf- uðborg Namibíu segir að Twey- ape Taetuka hefði verið skotinn til bana þann 14. október sl. þegar hann var að fiska með vinum sínum á Cuando-fljóti, sem aðskilur þessi tvö Afríku- ríki. Óeinkennisklæddir menn köll- uðu á Taetuka og vini hans þrjá, sem eru 5, 12 og 13 ára, frá bakkanum Botswanamegin og buðu þeim mat. Vinirnir þrír, sem komust lífs af, sögðu að mennirnir hefðu miðað rifflum á þá um leið og þeir komu að bakkanum og skotið á Taetuka. Lögreglan segir að lík hans hafi fundist neðar í ánni, en ekki hefur verið greint frá því hvort hann lést af völdum skotsára eða hvort krókódílar áttu þátt í dauða hans. Lögreglan í Namibíu segir að þetta sé í þriðja sinn sem skotið er yfir landamærin á þessu svæði, en þetta vilja ráðamenn í Windhoek ekki staðfesta. Lög- reglan telur að landher Bots- wana sé ábyrgur fyrir þessu. Stjórnarerindreki Botswana í Namibíu sagði að þessi atburður væri mjög sorglegur, en hún vildi ekki segja neitt annað um málið fyrr en hún fengi fyrir- mæli um það frá ríkisstjórn sinni, sem ætlaði að sjá til þess að þetta yrði rannsakað gaum- gæfilega. reuter-sis WASHINGTON - George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Mikhafl Gorbatsjov, forseti Sov- ótríkjanna, hittast á fundi í Madrid degi áður en friöarráö- stefna um málefni Miðaustur- landa verður haldin. Tiikynning um þetta barst frá Hvíta húsinu I gær. Fundurinn veröur 29. októ- ber. Fundur þeirra verður sá sjöundi á tveimur og hálfu ári. PARÍS - Franskír tollverðir fundu 11 tonn af kannabisefn- um f þýskri lystisnekkju, sem var á siglingu um Norðursjó. Þetta var filkynnt í gær. Sjö manna áhöfn sneWtjunnar hefur verið handtekin. FANmuNJCm, Kóreu - Chung Won-shik, forsætisráð- herra Suður-Kóreu, vill koma á betra sambandi á milli Norður- og Suður-Kóreu. Hann ætlar að halda fund í höfuöborg Norður- Kóreu með kollegum sínum þar. TÓKÍÓ - Japanir hafa aflétt viðskiptahömlum á Pretortu, og segjast vilja hjálpa til við að koma efnahag Suður-Afríku á réttan kjöl nú þegar framfarir eru mögulegar. Stjórnvöld í Jó- hannesarborg hafa fagnaö þessari ákvöröun. UTTARKASHI, Indlandi - Tala látinna vegna öflugra jarð- skjáifta í noröurhéruðunum við rætur Himalaja er kominn upp f að minnsta kosti 675 manns. TÓKÍÓ - Sjö helstu iðnríki heims eru tilbúin til aö láta 24 milljarða af hendi nú þegar til hjálpar Sovétríkjunum. Þetta er haft eftir fróttum í ríkissjónvarp- inu I Japan. Hins vegar segja embættismenn við japanska fjármálaráðuneytið að þessi frétt sé úr iausu loftl gripin. Þeir segja að iðnríkin sjö hyggist bíða átekta og sjá hvort Sovét- rlkin geti gengið að skilmálum þeirra. MOSKVA « Mikhaíl Gorbat- sjov, forseti Sovótríkjanna, og leiðtogar átta iýðvelda, innan Sovétríkjanna segja að Úkraína sé óbætanlegur hluti Sovétríkj- anna, og báöu Úkrafnumenn að sjá að sér og segja sig ekki úr bandalaginu. KARACHI, Pakistan - Abdui Quadeer Khan, einn helsti kjarnorkufræöingur Pakistana, segir að land hans eigi nú kjarnorkusprengju. Pakistanar hafa ætíð neitað grunsemdum vestrænna ríkja um að þeír væru aö smíöa kjamorku- sprengju, og sagt aö kjarnorku- stefna þeirra væri friösamleg og fyrir not f framtiðinni. RÓM - Milljónir ítata hættu vinnu sinni í gær í fjóra klukku- tíma í allsherjarverkfalli, til að mótmæla fyrirhuguðum sparn- aði forsætisráöherrans, Giulios Andreotti. LONDON - Breska sjónvarpið greindi frá því í gær að furtdist hafí fjöidagröf I Mongólíu. Talið er að þetta séu þúsurtdir Búddatrúarmanna sem Jósef Stalín fyrirskipaði að iáfa arepa.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.