Tíminn - 09.11.1991, Síða 11
Laugardagur 8. nóvember 1991
Tíminn 19
Við sölu á notuðum bílum er miðað við 15% afföll frá verði nýs bíls á ári:
Japanskir bílar
eru auðseldastir
Þegar ráðist er í kaup á nýjum eða
notuðum bíl, er endursölugildi
hans atriði sem skiptir verulegu
máli. „Opinbert" gengi á nýlegum
bflum miðast við 15% afföll af
verði nýs bfls á hvetju ári fyrstu
fjögur árin. Með öðrum orðum:
Bfll, sem kostar milljón krónur nýr,
kostar 850 þúsund ársgamall, 722
þúsund krónur tveggja ára, og svo
framvegis. Málið er hins vegar ekki
alveg svona einfalt; sumir bflar selj-
ast einhverra hluta vegna betur en
aðrir.
Þær bflasölur, sem Tíminn hafði
samband við, voru á einu máli um
að japanskir millistærðarbílar væru
þeir sem seldust best. Yfirleitt voru
Toyota Corolla, Mitsubishi Colt og
Lancer nefndir í fyrsta sæti yfir þá
bíla, sem auðveldastir væru í sölu. í
kjölfarið fylgdu Nissan, Daihatsu,
Mazda og þar á eftir evrópskir bflar
og austantjaldsbflar. Amerískir bflar
og dýrari tegundir Vestur-Evrópu-
bfla voru oftast nefndir sem þeir
þyngstu í sölu, en þó væri það mis-
munandi á milli bflasala. Bflasala
Guðfinns hefur til dæmis um árabil
lagt áherslu á Mercedes Benz og
sölumenn þar á bæ kvarta ekki und-
an því að Benzinn sé þungur í sölu,
þó kollegar þeirra annars staðar hafi
aðra sögu að segja.
Þumalfingursreglan um 15% afföll
stjórnar því verði sem sett er á not-
aða bfla. Það fer síðan eftir tegund
bflsins, ástandi, notkun og fleiru
hvað kaupandinn greiðir á endanum
fyrir hann. Auðséljanlegir bflar fara
á því verði sem sett er á þá, og þess
eru jafnvel dæmi að þeir seljist fyrir
hærra verð, séu þeir í góðu ástandi.
Staðgreiðsla borgar
sig
Greiðslukjör eru atriði, sem kaup-
endur notaðra bfla ættu að athuga
vel áður en endanleg ákvörðun er
tekin. Með því að staðgreiða notað-
an bfl er oft hægt að gera mjög góð
kaup, ef seljandinn þarf nauðsynlega
á peningum að halda. Staðgreiðslu-
afsláttur er mjög mismunandi; yfir-
leitt frá 8%-10%, en í sumum tilfell-
um er hægt að fá 20%- 40% afslátt
með staðgreiðslu. Sé svo mikill af-
sláttur gefinn, er yfirleitt um að
ræða gamla bfla, eða bfla sem eru
gallaðir að einhverju leyti. Það getur
borgað sig að taka bankalán fyrir bfl
og staðgreiða hann, frekar en að
kaupa hann með afborgunum (sem í
mörgum tilfellum eru með sömu
vöxtum og almenn lán), en menn
verða líka að hafa í huga að ef bfll er
staðgreiddur, getur verið erfitt að ná
þeim peningum til baka, reynist
hann gallaður.
Eftir því sem bflar verða eldri,
minnka afföllin af þeim, en útlit og
talan á ökumælinum skipta því
meira máli. Almennt er talað um
10% afföll eftir fyrstu fiögur árin, þó
er það mismunandi eftir tegundum.
Með bættum samgöngum og vax-
andi vegalengdum á milli heimilis
og vinnu, hefur akstur „meðaljóns-
ins“ aukist. FVrir nokkrum árum var
meðalakstur á reykvískum einkabfl
12-13 þúsund kflómetrar, en í dag
þykir eðlilegra að tala um 15-20
þúsund kflómetra akstur á ári. Þar af
Íeiðandi eru notaðir bflar almennt
meira eknir en var á árum áður. Á
móti kemur að bættir vegir fara bet-
ur með ökutækin og viðhald og
hirða bfla hefur einnig batnað. Að
sögn bflasala skiptir kflómetratalan
á mælinum minna máli en áður;
kaupendur horfa fyrst og fremst á
ástand bflsins og hvort þeir geti auð-
veldlega losnað við hann aftur.
Clio
Fullkomnir
yfirburðir
60 sérfræðingar bílatímarita frá 17 löndum
gáfu Renault Clio hæstu einkunn eftir
reynsluakstur. Clio var kjörinn BILL
ÁRSINS í EVRÓPU1991 með einkunninni
312 stig, heilum 54 stigum meira en sá
bíll hlaut sem komst næst Clio.
BlLL ÁRSINS 1991
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633.
inéi háttar
álkgMkjiiin
aíbramnuiii^úk
Vorð áíiiir! kr.HÍ2/kílóið
Tilboásverá: