Tíminn - 10.12.1991, Qupperneq 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 10. desember 1991
Útsvarsálögur sveitarfélaga hækkuöu um fjóröung að raungildi 1985-1988:
Græða sveitarfélögin
milljarð á þjóðarsátt?
„Að öllu samanlögðu má fullyrða að sveitarfélög hafi aukið raun-
tekjur sínar af aðstöðugjöldum og fasteignasköttum um fullar 1000
milljónir vegna minni verðlagsbreytinga af völdum „þjóðarsáttar“,“
segir m.a. í fréttablaði Vinnuveitendasambandsins.
Bent er á að sveitarfélögin hafi notið
lækkunar verðbólgu betur en flestir
aðrir, vegna aukins raungildis eftir-
ágreiddra skatta. Með því að halda skatt-
hlutföllum óbreyttum hafi þau í raun
Akureyri:
Umferöarslys
og ungt fólk
vildi í sjóinn
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
var helgin almennt róleg og lítið
um að hafa þyrfti afskipti af fólki.
Þó varð eitt alvarlegt umferðar-
slys, og einnig þurfti lögregla að
hafa afskipti af ungri stúlku sem
henti sér í sjóinn við Torfunefs-
bryggju, og hugðist stefna út á haf.
Greiðlega gekk að ná stúlkunni á
land og varð henni ekki meint af
volkinu. Karlmaður á þrítugsaldri
hugðist einnig ganga í sjóinn, en
fannst hann kaldur og eftir nokkr-
ar fortölur félaga sinna snéri hann
við og hélt áfram að skemmta sér.
Á föstudagskvöld var ekið á mann
á Norðurgötu. Málsatvik voru þau
að maðurinn var að stíga út úr bfl,
en bifreið sem kom aðvífandi var
ekið á opna hurðina með þeim af-
leiðingum að maðurinn klemmd-
ist illa milli stafs og hurðar, og var
hann fluttur á sjúkrahús til að-
hlynningar. Sá, er á hann ók, hvarf
hins vegar af vettvangi og náðist
ekki fyrr en daginn eftir. Að sögn
lögreglu er málið fullrannsakað og
frágengið. hiá-akureyri.
snarhækkað rauntekjur sínar af fast-
eigna- og aðstöðugjöldum. Jafnframt
kemur fram að útsvarstekjur sveitarfé-
laganna hafi hækkað um hátt í fjórðung
að raungildi við breytinguna yfir í stað-
Komin er út hjá Iðunni Ijóðabókin
Fuglar og annað fólk eftir Matthías
Johannessen. Hér er um að ræða
gamansaman kveðskap margvísleg-
an, einskonar flugeldasýningu í
ljóðum, en föng fengin víða að, og
nánast engin takmörk fyrir því hvert
yrkisefnin eru sótt. Ýmist er kveð-
skaparefnið sótt til Dionysosar frá
því á 1. öld fyrir Krist eða Kaldadals
og vitnað til Jöklavinafélagsins um
heimildir.
greiðslukerfi.
.J'ótt samdráttur einkenni atvinnu-
starfsemi, er enn góður vöxtur f einum
þætti, þ.e. samneyslu rfkis og sveitarfé-
laga," segir blaðið. Með lækkun tekju-
skattshlutfalls úr 50% í 45% hafi ríídð
þó komið til móts við fyrirtæki. En það
sama verði ekki sagt um sveitarfélögin.
Þau hafi haldið skatthlutföllum óbreytt-
um, þrátt fyrir lækkandi verðbólgu, og
í upphafi segir: „Lífið er broslegt
leikhús" og fylgir bókin nokkuð
þeim efnisþræði ailt til enda. Matt-
hías er þekktur að því að eiga
margra strengi og hefur til þess ver-
ið talinn alvörumikill í skáldskap
sínum. Nú bregður hins vegar þann-
ig við, að hann lætur alvöruna lönd
og leið, nema þann vísdóm sem má
finna í öllu gamni. Fuglar og annað
fólk er því nýstárleg bók með nýstár-
legum kveðskap. IGÞ
þannig aukið skatttekjur sínar af eftir-
ágreiddum sköttum, þ.e. fasteigna- og
aðstöðugjöldum, nú síðast um fullar
1000 milljónir vegna lítillar verðbólgu í
kjölfar þjóðarsáttar.
Útreikningar VSÍ sýna að rauntekjur
sveitarfélaga hafa aukist um 46% ffá
1980-1991, sem er 16% umfram vöxt
landsframleiðslu. í krónum talið munar
mestu um þá gífurlegu hækkun á út-
svarstekjum, sem sveitarfélögin hafa
fengið f kjölfaf breytingarinnar yfir í
staðgreiðslukerfi skatta. Þetta skýrist af
því að sveitarfélögin fá nú útsvar af
hverri krónu sem ffam er talin, en áður
var hluti launatekna undanþeginn út-
ágreiddu sköttunum þó hækkað ennþá
meira að raungildi. Þannig hafa tekjur
af fasteignasköttum hækkað um 75%
og aðstöðugjöldum um 113% á sama
tíma. Stórstígastar hafa þær hækkanir
þó orðið eftir að sveitarfélögunum var
treyst fyrir auknum heimildum til þess
að ákveða sjálf skatttekjur sínar.
Með 6% hækkun fasteignamats á öðru
en atvinnuhúsnæði telur VSÍ ljóst að
sveitarfélög muni áfram njóta tekju-
auka á næsta ári, þ.e. takist að hemja
verðbólguna. Hins vegar verði ekki séð
hvaða rök standi til þess, að sveitarfélög
ein haldi áffam útþenslu og álögum
eins og ekkert hafi í skorist, þegar allir
aðrir þuríi að rifa seglin til að forðast
efhahagslegt strand. - HEI
svan.
Hlutfallslega hafa tekjur af eftir-
Safnahúsið Hvoll á Dalvík:
S.L fostudag, þann 6. desember,
voru liðin 75 ár frá fæðingu dr.
Kristjáns Eldjáms Þórarinssonar,
fyrrverandl forscta íslands. Af því
tilefni var opnuð mínningarstofa
utn hann í Safnahúsinu HvoU i
Datvík. Meðal viðstaddra voru frú
Halldóra Eldjám, ekkja forsetans,
ættingjar hans og vinir. Dr. Krist-
ján var Svarfdælingur, sem kunn-
ugt er, og með opnun stofunnar
vill stjóm Byggðasafnsins, sem
og aðrir heimamenn, heiðra
minningu hans. í ræðu, sem Júlí-
us Jón Daníelsson flutti við opn-
unina, kom fram að Krisiján átti
alltaf mjög sterkar rætur í Svarf-
aðardal, og málefni byggðarinnar
vom honum hugleikin, Og reynd-
ar var það eina sem hann iðraðist
að hafa ekki gerst bóndi í Svarfað-
ardal. Eftir hann liggja ýmis rit
um svarfdælskan fróðleík, svo
sem grcinargóð skrá um ömefni,
umfjöllun um foraa haugstaði,
svo eitthvað sé nefnt.
Minningarstofan var útbúin í
samráði við fjölskyldu dr. Krist-
jáns, og þar má m.a. sjá brjóst-
mynd af dr. Kristjáni og ýmsa
muni úr eigu hans og sýnishora
af fjármarki hans frá æskudögun-
um í Svarfaðardal.
Safnahúsið Hvoli var opnað í
árslok 1987; hefur því sífeUt vax-
ið fiskur um hrygg og em safn-
gripir nú orðnir á sextánda
hundrað. Þar fyrir utan era svo
sérsöfn, svo sem náttúrugripa-
safn scm geymir yflr 100 upp-
stoppaða fugla og Öll egg fs-
lenskra varpfugla. f grasasafni
era um 270 íslenskar plöntur,
steinasafn og yflr 300 tegundir
fsienskra skelja. í Hvoli er einnig
minningarstofa um Jóhann Pét-
ursson Svarfdæling (Jóhann
stóra), og nú bætist við minning-
arstofa um dr. Kristján Eldjim.
hiá-akureyri
Matthías Johannessen
Fuglar og annað
fólk, e. Matthías
Ari Trausti Guðmundsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson senda frá sér óvenjulega bók:
Ljóðskreytt umræöa um ríki náttúru
Meðai þeirra bóka, sem út koma nú
fyrir jólin, er fyrsta ljóðskreytta
bókin á íslandi með frumsömdum
ljóðum, að því best er vitað. Hér er
á ferðinni bókin „Úr ríki náttúr-
unnar — náttúrustemmur** eftir þá
Ara Trausta Guömundsson, sem
ritar meginmál, og Sigmund Emi
Rúnarsson, sem ljóðskreytir.
Bókin er að uppistöðu til 30 rit-
gerðir um margvísleg efni, sem
tengjast ríki náttúrunnar og sam-
skiptum manns og náttúru, sem Ari
TVausti hefur skrifað. Hver ritgerð
er síðan ljóðskreytt með stuttu Ijóði
eftir Sigmund Emi og tengist Ijóðið
efni ritgerðarinnar. Auk ljóðskreyt-
inga og fjölda mynda með megin-
máli eru í bókinni gamlar ljósmynd-
ir eftir Guðmund frá Miðdal, sem
myndskreyta ljóðskreytingarnar. í
samtali við þá Ara Trausta og Sig-
mund kom fram að hugmyndin að
því að tengja saman ljóð og náttúru-
fræðiritgerðir hafi komið upp úr
samvinnu þeirra á Stöð 2, raunar í
samtali þeirra í miðri fréttaútsend-
ingu. Ari hafi sl. vetur látið Sig-
mundi í té lauslegt yfirlit yfir efni
ritgerðanna og Sigmundur síðan
samið við þær stemmurnar.
Eins og áður segir eru í bókinni
margar Ijósmyndir eftir Guðmund
frá Miðdal, föður Ara Trausta, og
segir Ari að hann hafi fengið dóttur
sína til að velja úr mjög stóru ljós-
myndasafni föður síns myndir, sem
féllu að ljóðum Sigmundar.
Ari og Sigmundur líta á þessa bók
sem framiag til þeirrar vakningar,
sem nú á sér stað í umhverfismál-
um, og birtist m.a. í sívaxandi áhuga
almennings á náttúrunni og ýmsu
henni tengdu. Sagt hefur verið að
umhverfisvernd þekki engin landa-
mæri og slíkar manngerðar marka-
línur eru oftast framandlegar í nátt-
úrunni sjálfri. í þeim anda er þessi
bók kynnt. Hún er ekki afmörkuð
sem ritgerðasafn, eða Ijóðabók eða
Ijósmyndabók, heldur allt þetta f
senn.
Ritgerðir Ara TVausta fjalla um hin
margvíslegustu málefni og segir
hann að þörf hafi verið fyrir umfjöll-
un af þessu tagi, þar sem fræðilegt
efni er sett fram á aðgengilegan hátt
fyrir almenning. Þær spurningar,
sem leitast er við að svara í bókinni,
eru brýnar og leitast er við að taka á
málum og málaflokkum, sem þegar
eru í almennri umræðu, en umræð-
an er að mati Ara Trausta e.t.v.
byggð á fáfræði eða hleypidómum.
Hann náigast viðfangsefni sín alltaf
út frá náttúrufræðinni og á það við
um jafn ólík viðfangsefni og þau
hvernig lægðir verða til, hvort stein-
ar geti læknað, eða hvort veiða eigi
hvali.
Þeir Ari TVausti og Sigmundur eru
sammála um að hér sé ekki á ferð-
inni bók, sem komi til með að verða
notuð sem kennslubók í framhalds-
skólum. Hins vegar gæti hún nýst
framhaldsskólanemum eins og öðr-
um sem bakgrunnsefni. Þeir segja
að þetta sé ekki vísindarit í hefð-
bundnum skilningi, heldur innlegg
í grunnfræðslu á tímum þegar nátt-
úran og umhverfið krefst þess að
horft sé á hlutina öðrum augum en
hingað til.
Það er ísafold sem gefur bókina út.
Hún er 250 blaðsíður prýdd fjölda
mynda, bæði nýrra og gamalla, og er
í hörðum kili. - BG
Ari Trausti Guðmundsson og Sigmundur Emir Rúnarsson skoða
málin út frá sjónarhóii náttúmnnar í nýrri bók. Tímamynd: Ámi BJama