Tíminn - 10.12.1991, Page 3
Þriðjudagur 10. desember 1991
Tíminn 3
Verðbólgupúkinn fitnar í fjármála- og þjónustustofnunum bæði opinberum og frjálsum:
ber til desemberbyrjunar, eða um 1,2% að meðaltali, trúlega
vegna harðrar samkeppni matvöruverslana. ÞessHækkun varð tii
þess að vísitala framfærslukostnaðar iækkaöi nú um0,l% milli
mánaða. Fara verður á sjötta ár aftur í tímann til að finna dæmi
um lækkus framfærslukostnaðar, en þá þurfti tollalækkanir til.
Verðbólga hefur mælst 4,4% bólgan hefur fyrst og fremst
síðustu þrjá mánuði. En frá des- grasserað í lánastofnunum og hjá
ember í fyrra hefur framfærslu- þeim sem selja okkur þjónustu,
vísiíalan hækkað um 7,5%. Þegar baeði opinbera þjónustu og aðra.
litíð er á verðlagsþróunina þessa Þótt ótrúlegt sé eru ýmsir flokk-
tóif mánuði kemur í ljós að verð- ar matvara ódýrari heidur en í
byrjun jólamánaöar í fyrra. Þetta á Almennt var nú um mjög Htlar ir miklar kostnaðarhækkanir.
m.a. við um; sykur, feitmeti, kart- verðbreytingar að ræða á milli Kostnaóur vegna húsnæðislána er
öflur, kaffl og súkkuiaði og verð á nóvember og desember. I kjölfar þar efstur á blaði, með meira en
ávöxtum og grænmeti er að með- lækkunar á lánskjaravísitölu í sfö- 13% hækkun á einu ári. Verð á
altali hið sama og fyrir ári. Verð á asta mánuði varð nú smávegls þjónustu, bæði opinberri og
brauði og mjölvörum, mjóikurvör- lækkun á kostnaði vegna húsaæð- frjálsri, hefur Iíka hækkað um nær
um og kjöti hcfur hækkað í kring- islána. En á móti kom nokkur 11% að meðaltali. Voruverð f
um 5% á einu ári. Að meðaltali er hækkun á ferðakostnaði bæði í verslunum hefur hskkað mildu
aðeins um 3,3% dýrara að kaupa f einkabílnum og með strætó. Þegar minna. Jólaföíin kosta t.d. um 6-
jóiamatinn í ár heldur en í fyrra og litið er á þróunina síðustu tólf 7% meira en fyrir ári og húsgögn
aðelns rúmlega 5% dýrara heldur mánuðlna kemur i íjós að ákveön- rafmagnstæki og búsáhöld um 3-
en í jólamatlnn 1989. ir liðir skera sig sórstaklega úr fyr- 6% mcira. - HEI
Öll fjölgunin í utanlandsferðum ársins
orðið í september-nóvember:
Um 40% fleiri úti í
nóvember en í fyrra
Um 15.100 íslendingar komu til
landsins erlendis frá í nóvember-
mánuði. Þetta er um 4.350 manns,
eða 40% fleiri, en í nóvember í fyrra
og um 6.100 manns (68%) fleiri en í
sama mánuði fyrri tveim árum. At-
hyglivert virðist að utanfarar voru
nánast jafn margir í lok ágúst í ár og
í fyrra, eða rúmlega 92 þúsund
manns. Nú í endaðan nóvember var
fjöldinn hins vegar kominn í
137.600 manns, sem fjölgun um
6.300 manns milli ára — öil á síð-
ustu þrem mánuðum. Virðist því
stefna í að a.m.k. 5% fleiri íslend-
ingar bregði sér til útlanda á þessu
ári heldur en í fyrra.
Á hinn bóginn komu nú heldur
færri útlendingar til landsins í nóv-
embermánuði heldur en í fyrra, eða
tæplega 5.100 manns. Alls var fjöldi
erlendra ferðamanna kominn í um
139 þús. í nóvemberlok, sem er
1,3% fjölgun frá síðasta ári. - HEI
Gengur að einkavæða staðla- og prófunarstofnanir?
Finnur Sveinbjörnsson skrifstofustjóri:
Hver sem er getur
annast eftirlitið
„Nei það eru engin áform um slíkt
uppi. Ekki það ég veit. Ég reyndi
bara að benda á að tækin eru komin,
með aukinni notkun staðla og fleiri
staðlaðra aðferða er í raun hægt að
fela hverjum sem er eftirlit og próf-
un framleiðslunnar. Eins gilda orðið
víða staðlar um starfsemi svona
stofnana, meðhöndla þarf gögn með
vissum hætti, hlutleysi að vera
tryggt o.s.frv og þá eru komnar for-
sendur til þess að fela megi þetta
hverjum sem er og tiltölu auðvelt
orðið að fylgjast með því,“ segir
Læstur inni á
sólbaðsstofu
Lögreglan var kölluð út á föstu-
dagskvöld, á sólbaðstofu við Ármúla
í Reykjavík, en tilkynningin kom frá
starfsstúlku sem þar vinnur. Hún
hafði þegar yfirgefið staðinn, en þeg-
ar hún var að fara sá hún mann inn-
andyra. Þegar málið skýrðist kom í
ljós að maðurinn hafði brugðið sér í
Ijósatíma, en þegar tímanum lauk
uppgötvaðist að hann var einn á
stofunni og komst ekki út. Starfs-
stúlkan hafði hreinlega gleymt
manninum í bekknum og læsti hann
inni. -PS
Finnur Sveinbjörnsson, skrifstofu-
stjóri í viðskitparáðuneytinu.
Finnur segir í viðtali við Staðlatfð-
ini, fréttabréfi Staðlaráðs íslands, að
nú þegar alþjóðlegir staðlar komi í
stað íslenskra, þróun sem á vissan
hátt verður innsigluð með EES, hafi
skapast forsendur til að einkavæða
opinberar eftirlits- og prófunar-
stofnanir. Hver sem er geti annast
prófanir og vottanir, svo fremi sem
hann uppfylli gildandi staðla.
„Kerfið sem yrði notað við þetta
hefur verið kallað viðurkenning,
vottun og prófun. Neðst eru prófun-
arstofur eins og t.d. Rannsóknar-
stofa fiskiðnaðarins, eða byggingar-
iðnaðarins. Næst er svokalíaður við-
urkenningaraðili sem gerir úttekt á
þessum prófunarstofnunum, segj-
um einu sinni á ári, og kannar hvort
starfsemi sé í samræmi við þá staðla
sem þar gilda. Þessi viðurkenningar-
aðili á íslandi er Löggildingarstofan.
Sett hefur verið upp innan hennar
viðurkenningardeild.
Prófunin á framleiðsluvörunni get-
ur þá verið í höndum hvers sem er.
Það þarf enga ríkisstofnun til að sjá
um prófanir. Stjómvöld þurfa bara
að gera þá kröfu að stofan hafi hlotið
viðurkenningu og starfi samkvæmt
stöðlunum," segir Finnur Svein-
bjömsson. -aá.
Svona leit út á Heiðarfjalli á Langanesi þegar radarstöðin var starfrækt.
Málssókn í BNA á hendur bandarískum stjórnvöldum vegna meng-
unar á Heiðarfjalli. Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður:
íslensk ráðuneyti hafa
reynt að vernda herinn
Málsókn er nú að hefjast í Banda-
ríkjunum gegn bandarískum stjóm-
völdum vegna eiturefnamengunar á
Heiðarfjalli á Langanesi. Um síðast-
liðin mánaðarmót voru send út ný
sýni úr fjallinu samkvæmt staðli
rannsóknarstofu í Bandaríkjunum.
Jón Oddsson, hæstaréttarlögmaður
og lögmaður landeigenda, segir í
samtali við Tímann að þeir hafi fyrst
og fremst haft áhuga á að vita hvað
hefði verið sett í fjallið samkvæmt
bókhaldi hersins. „Okkur hefur nú
ekki gengið allt of vel með það, fyrr
en lögfræðingur okkar í Bandaríkj-
unum bað um þessar upplýsingar.
Þetta var síðan sent í gegnum ein-
hverjar stjórnarstofnanir í Banda-
ríkjunum, hingað heim til hersins.
Síðan er herinn að senda umbjóð-
endum mínum bréf, sem átti að
senda til lögfræðingsins úti. í bréf-
inu heimta þeir gjald fyrir upplýs-
ingarnar. Þetta er mjög sérkenniíeg
aðferð og nánast eins og um fjár-
kúgun sé að ræða“, segir Jón.
Aðspurður segir Jón að upplýsing-
ar um það hvaða efnum hafi verið
komið fyrir í Heiðarfjalli séu til enda
bókhald hjá hemum mjög strangt.
„Við vitum það að vamarmáladeild
og fleiri aðilar innanlands hafa að-
gang að þessum gögnum. Bæði um-
hverfisráðuneytið og utanríkisráðu-
neytið hafa unnið á móti okkur allan
tímann. Lögfræðingunum og vís-
indamönnunum úti í Bandaríkjun-
um finnst það mjög skrítið að her-
inn skuli vera í skjóli íslenskra ráðu-
neyta. Það er eins og íslensk stjóm-
vöid verði „kaþólskari en páfinn“ og
vilja vernda enn frekar bandaríska
hagsmuni heldur en Bandarikja-
menn sjálfir", segir Jón.
Jón tekur fram að gerð hafi verið
eins konar úttekt og samningur
„Memorandum of Understanding",
þess efnis að herinn sé farinn af fjall-
inu og beri ekki ábyrgð þar lengur.
„Hversu voldug sem ríkisstjórn er,
þá getur hún ekki fellt niður kröfur
einkaréttareðlis. Ef að ég skulda þér
1000 krónur þá getur ríkisstjómin
ekki ákveðið að skuldin sé fallin nið-
ur“, segir Jón.
Jón segir að áætlað sé að það kosti
2600 milljarða króna að hreinsa
fjallið. „Misskilningurinn í málinu
er að það halda margir að mínir
menn vilji fá 2600 milijarða króna í
sinn vasann. Krafan hjá þeim er
hreinsun og bætur til þeirra sem er
rekstrartjón. Ef að málið færi eins
og við emm að gera kröfu til, þá
myndu mínir menn fá einhverjar
milljónir fyrir það að hafa farið
þarna út í fjárfestingu og rekstur
sem verður að hætta við. Sfðan
myndu Bandaríkjamenn sjá um að
láta hreinsa þarna mengunina og þá
yrði hreinsunarþátturinn milliríkja-
mál. íslenska ríkið hefur verið erfið-
asti hjallinn í málinu og herinn hef-
ur alveg verið í skjóli við vamar-
máladeildina og umhverfisráðu-
neytið, þá höfum við þurft að fara
alveg framhjá kerfinu hérna heima
og fara beint f mál úti. Það getur
haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar, því
þetta vekur athygli í Bandaríkjun-
um. Það er farið að skrifa um málið
í blöð og þá er skrifað um að það sé
mengun hérna í fiskimiðunum.
Fiskmarkaður okkar í Bandaríkjun-
um gæti lokast, en aðalumræðuefn-
ið í blöðum þar núna er um meng-
unarmál", segir Jón
Jón segir að margs konar eiturefni
séu talin vera í Heiðarfjalli. Efnin
sígi niður í grunnvatn, en talið er að
þangað komist þau árið 1994. Þá
berast þau beint út í lífríki sjávar.
„Þá er þetta ekki lengur orðið mál
minna umbjóðenda og íslendinga,
þá er málið orðið alþjóðlegt", er álit
Jóns.
Lögfræðingurinn í Bandaríkjunum
byrjar á því að fá úrskurð um það að
fram fari rannsókn á Heiðarfjalli á
vegum hersins og á kostnað hans.
Þegar niðurstöður þeirra liggja fyrir
byrjar málsóknin sjálf. Lögfræðing-
ar í Bandaríkjunum og vísindastofur
eru að undirbúa þetta. Jón segir að
mjög víða sé hliðstæð mál að finna
td. í Þýskalandi. Tímarit í Banda-
ríkjunum hafa sýnt mengunarmái-
unum mikinn áhuga og Heiðar-
fjallsmálið hefur vakið talsvert
mikla athygli úti og tímaritin hafa
verið að senda hingað fyrirspumir.
Síðan kemur til geysilegur þrýsting-
ur aimennings í Bandaríkjunum um
að slíkar „hreinsanir“ eigi að eiga
sér stað. Og það er litið á svona mái
sem alþjóðleg, segir Jón að lokum.
-j*