Tíminn - 10.12.1991, Page 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 10. desember 1991
--------------------------------------------------------^
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og utför ástkærs eigin-
manns, föður, sonar og afa
Sigurðar Friðriks Haraldssonar
framreiðslumanns
Sérstakar þakkir færum við Sigurði Björnssyni lækni og hjúkrunarfólki á
deild 2A Landakotsspítala, Framsóknarflokknum, Búseta og Handknatt-
leikssambandi islands. Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hanna B. Jónsdóttir
_______________J
I rÍN FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS TBVœvACOTU 25 • SOOSEtfOSSI • SiMI 98 22111 .(CENNITALA«91181 -0289
Fjölbrautaskóli Suðuriands á Selfossi
leitar eftir kennara
á vorönn 1992, í efnafræði og stærðfræði. Einnig er lýst
eftir bókasafnsfræðingi í fullt starf.
Umsóknir berist fýrir áramót til skólameistara, sem veitir
nánari upplýsingar. Síminn er 98-22111.
Landsbygeðar-
ÞJÓNUSTA
fyrir fólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinnú
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur létt fólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5 • 108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 ■ 128 Reykjavík
E &n^tt'
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
91 SIMI -676-444
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Haraldur Áslaug Kristrún
Jólafundur
Félag framsóknarkvenna ( Reykjavík heldur jólafund þriðjudaginn 10.12. kl. 20:30
I flokkshúsinu við Lækjartorg.
Hugvekja — Haraldur Ólafsson
Dagskrá annast Kristrún Ólafsdóttir og Áslaug Brynjólfsdóttir. (Muniðjóla-
pakkana).
Takið með ykkur gesti.
Stjómln.
Borgnesingar, nærsveitir
Spilum félagsvist I Félagsbæ föstudaginn 13. desember. Síðasta kvöldið I þriggja
kvölda keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgamess.
UTLOND
Fundur leiðtoga Evrópubandalagsins hófst í gær:
Bretar vilja ekki vera
með í myntbandalagi
Bretland var einangrað í afstöðu
sinni á sögulegum fundi leiðtoga
ríkja Evrópubandalagsins sem hófst í
Maastricht í Hollandi í gær. Hin ell-
efu ríkin eru ákveðin í að taka upp
sameiginlegt myntkerfi. Leiðtoga-
fundurinn sem var boðað til, til þess
að hraða sameiningu Evrópu, hófst í
skugga vaxandi sundrunar innan
fyrrum Sovétríkjanna. Rússland,
Úkraína og Hvíta Rússland hafa lýst
því yfir að Sovétríkin séu ekki lengur
til og að þessi þrjú lýðveldi ætli að
stofna samveldi sjálfstæðra ríkja.
Leiðtogar EB-ríkjanna ræddu málið
í hliðarsölum og forsætisráðherra
Breta, John Major, sagði þróunina
valda sér miklum áhyggjum. Hann
óttaðist, að nú kynni að brjótast út
stríð, um öryggi og yfírráð yfir kjam-
orkuvopnum, mannréttindi og
ábyrgð á skuldum Sovétríkjanna.
Fyrsta seta leiðtogafundarins var
Major erfið. Hann hélt því fram að öll
EB-ríkin ættu að fá að velja það síðar
á þessum áratuga hvort þau vilja
verða aðilar að sameiginlegum gjald-
miðli eða ekki. Bretar eru einir um
þessa afstöðu.
„Það er alveg útilokað að Bretland
taki afstöðu til þess nú hvort það
verður aðili að sameiginlegum gjald-
miðli," sagði Major.
Mitterrand, forseti Frakklands, og
Kohl, kanslari Þýskalands, sögðu að
þjóðimar tólf yrðu að taka óafturkall-
anlega ákvörðun um að sameina
gjaldmiðla sína síðar á áratugnum og
að Bretum einum yrði gefinn mögu-
leiki á að taka endanlega afstöðu síð-
ar. Mitterrand og forætisráðherra
Ítalíu, Andreotti, lögðu til að loka-
frestur yrði settur á það hvenær sam-
eiginlegur gjaldmiðill kemur í gagn-
ið. Þjóðverjar lögðu til að ef sjö EB-
ríki uppfylltu hin ströngu efnahags-
legu skilyrði fyrir gjaldmiðilsbanda-
laginu árið 1996 gætu þau greitt at-
kvæði um að taka upp evrópsku
mynteininguna. Skilyrðin sem upp-
fylla þarf, taka til; hámarkshalla á
fjárlögum, verðbólgu, skulda ríkis-
sjóða og langtímavexti.
Háttsettur breskur embættismaður
reyndi að gera lítið úr sérstöðu Maj-
ors og sagði að þetta hefði verið góð-
ur vinnufundur. Enginn hefði gefið
neitt eftir eins og vænta mátti á fyrsta
fundi. Fjármálaráðherrar ríkjanna 12
hittust seinna til þess að reyna að
leysa ýmis smáatriði samningsins.
Embættismenn segja að þegar kom
Fundur leiötoga EB hófst í gær.
að því að fjalla um sameiginlega ut-
anríkis- og öryggisstefnu hafi Bretar
einir hafriað því að kosið yrði um að
taka upp þó ekki væru nema minnstu
smáatriði sameiginlegrar utanríkis-
stefnu. Hún yrði ekki tekin upp nema
ef það yrði samþykkt samhljóða.
Frakkland og Þýskaland hafa lagt til
að eftir að fúndurinn hefur sett utan-
ríkisstefnu bandalagsins ákveðin
markmið og utanríkisráðherrar ríkj-
anna verði sammála um ákveðnar að-
gerðir þá ætti meirihlutinn að ráða
um smáatriðin. „Langflestir eru á því
að einhverskonar meirihlutavald eigi
að vera,“ sagði hollenski innanríkis-
ráðherrann Piet Dankert Forsætis-
ráðherra Spánar, Felipa Gonzales,
krafðist þess að sameiningu Evrópu
yrði að tengja endurdreifingu auðs
frá ríku EB- ríkjunum til þeirra fá-
tækari. Fátækari EB-ríkin óttast að
fái þau ekki aðstoð geti þau ekki upp-
fyllt skilyrðin fyrir því að verða aðilar
að sameiginlegu myntkerfi og verði
því eftir þegar EB hefur hjálp við ríki
Austur-Evrópu. Þá er ágreiningur
um stefnu í félagsmálum og iðnaði
og hversu mikil völd Evrópuþingið
eigi að hafa.
Bretland naut stuðnings Danmerk-
ur, Portúgals og írlands í andstöðu
við sameiginlegar vamir. Breskir
ráðamenn vilja að sameiginleg ör-
yggisstefiia verði miklu lausari í sér
og falli undir stefnu Atlandshafs-
bandalagsins (NATO). Embættis-
menn sögðu að leiðtogar Vestur-Evr-
ópubandalagsins ætluðu að hittast
sérstaklega og skilgreina tengsl sín
við EB og NATO. Frakkland og Þýska-
land vilja að Vestur-Evrópubandalag-
ið verði her EB.
Reuter-SIS
Sautján manns slösuðust, þriggja saknað:
Sprenging í París
Sautján manns slösuðust, þar af
þrír alvarlega, í öflugri sprengingu
sem átti sér stað í úrhverfi Parísar í
gær. Þriggja er saknað. Björgunar-
menn leita þeirra.
Lögreglan segir að sprengingin hafi
orðið í fimm hæða fjölbýlishúsi en
ekki er vitað hvers vegna. íbúamir
segja að það hafi orðið vart við gas-
leka í húsinu, en ekki er vitað hvort
það olli sprengingunni.
Reuter-SIS
FRETTAYFIRLIT:
PÓLLAND - Dánartala í Póllandi hefur aukist um
20% slðan árið 1970 og er sú hæsta í Evrópu. A6-
aldánarorsök Pólverja eru kransæðasjúkdómar,
eða um 52% af öllum dauðsföllum. Einn Pólverji af
hverjum fimm deyr úr krabbameini. Heilbrigðisyfir-
völd segja einnig að míklar reykíngar og mikil
drykkja eigi slnn þátt I dauðsföllum landsmanna,
svo og alvarleg umhverflsmengun og streita vegna
efnahagsvandræða og stjómmálavandræöa.
KAIRÓ - Boutros Boutros Ghali lét af embætti að-
stoöarforsætisráðherra í Egyptalandi í gær, en
hann tekur við stöðu aöalritara Sameínöu þjóð-
anna um áramótin.
Ghaii þakkaði Hosni Mubarak, forseta, fyrir að
hafa tilnefnt sig í stöðuna.
MOSKVA - Að minnsta kosti ein kona lét lifiö í
sprengingu sem varð á markaðstorgi í Stavropol í
suðurhluta Rússlands, heimborg Mikhaíl Gorbat-
sjov, um helgina. Tass-fréttastofan segir að
sprengjan hafi veriö falin I litlum pakka sem var
komið fyrlr undir kyrrstæðum bli. Ekki var greint frá
hversu margir slösuðust, en talið er að fleiri en einn
hafi látist. Sérfræðingar vinna að rannsókn máls-
ins.
MANILA - Lögregtan á Filipseyjum handtók einn
Bandarikjamann, Spánverja og níu Nfberíumenn.
Þeir eru gmnaðir um að vera standa að eiturfyfja-
smygl tll Bandarfkjanna. Lögreglan lagði einníg
hald á átta kíló af herófni, sem er um 54 miltjón
króna virði. Herófniö er taliö koma frá Gullna þrí-
hyrningnum, en það er svæðið á milli Thailands,
Búrma og Laos. Mennimir notuðu Filipseyjar sem
viðkomustað fyrir heróinið áður en það átti aö fara
til Bandarikjanna. Lögreglan vill ekki gefa upp
hvernær útlendingamir voru handteknir, og nöfn-
um þeirra verður leynt uns þeir koma fyrir dóm-
stóla. Lögreglan telur að léleg öryggisgæsla á flug-
völlum og l höfnum sé ástæðan fyrir því hversu
mikið magn af fíkniefnum fer um Filipseyjar.
HELSINKI - Anatoly Sobchak, borgarstjórinn í
Sankti Pétursborg, fundaði með Maunu Koivisto,
forseta Finnlands, og Esko Aho, fbrsætisráðherra,
í gær, en Sobchak hefur beðið Finna um matvæia-
aðstoð. Sobchak verður ( Finnlandi í þijá daga og
er gestur rlkisstjómarinnar.