Tíminn - 10.12.1991, Side 5
Þriðjudagur 10. desember 1991
Tíminn 5
Niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar keyrðar í gegnum þingflokka þrátt fýrir mikla andstöðu.
Margir þingmenn með fyrirvara:
Barnafólk og sjómenn fá
700 millj. skattahækkun
Bamabætur veröa lækkaðar um hálfan milljarð. Sjómannaafsláttur verður
lækkaður um 200 milljónir. 700 milljón króna útgjöld ríkisins verða flutt
yflr til sveitarfélaganna. Hluta Vestfjarðaganga verður frestað. Útgjöld ríkis-
sjóðs verða lækkuð um 1,5 milljaiða með flötum niðurskurði. Þetta eru
meðal tillagna ríkisstjómarinnar í ríkisQármálum sem eiga að skila þeirri
niðurstöðu að hallinn á ríkissjóði verði ekki nema 3,5 milQarðar á næsta
ári.
Tillögurnar voru samþykktar í
ríkisstjóminni eftir maraþonfund
sem stóð með hléum allan sunnu-
dag og mest alla aðfaranótt mánu-
dags. Þó nokkrir þingmenn rfkis-
stjórnarflokkanna eru ósáttir við
tillögumar og hafa lýst yfir fyrir-
vara í þingflokkunum við einstök
atriði. Atriðin sem einkum valda
ágreiningi em frestun hluta Vest-
fjarðaganga, þrenging sjómannaaf-
sláttar, breytingar á barnabótum og
þjónustugjald á hafnir. Fjármála-
ráðherra sagði í gær að hann væri
sannfærður um að tillögumar nytu
meirihlutastuðning í þingflokkun-
um. Um sum atriðin virðist sem
stuðningurinn sé mjög tæpur.
3,5 milljarða halli
Þegar fjárlagafmmvarpið var lagt
fram í haust gerði það ráð fyrir 4
milljarða halla. Tekjur áttu að verða
106 milljarðar og gjöld 110 millj-
arðar. Síðan hafa forsendur breyst.
Vegna frestunar álvers verða tekj-
urnar 1,5 milljarði minni og út-
gjöld hafa aukist um 1,6 milljarða,
m.a. vegna þess að ráðuneytin hafa
ekki treyst sér til að spara eins mik-
ið og áður var gert ráð fyrir og
vegna þess að ný útgjöld hafa kom-
ið upp á yfirborðið. Tekjumar vom
því komnar niður í 103,5 milljarða
og gjöldin upp í 111,6 milljarða.
Eftir fundarsetu helgarinnar telur
ríkisstjórnin að hún sé búin að
auka tekjurnar um 1,6 milljarð og
lækka gjöldin um 3 milljarða. Sam-
kvæmt þessu er niðurstaðan að
tekjur ríkissjóðs verða 105,1 millj-
arður og útgjöldin 108,6 milljarðar.
Flatur niðurskurður
Ríkisstjómin ætlar að skera niður
útgjöld ríkissjóðs með flatri skerð-
ingu. Þetta á að skila 1,5 milljarði.
Gert er ráð fyrir að niðurskurður á
launakostnaði verði heldur meiri
en skerðing á rekstrarkostnaði, en
að meðaltali á niðurskurðurinn að
vera 5%. Stjórnarandstaðan sagði f
gær að þessi tillaga bæri vott um að
ríkisstjórnin hefði verið komin í
þrot við niðurskurðinn og þess
vegna hefði verið ákveðið að fara
auðveldustu leiðina og nefna ein-
hverja tölu út í loftið til að hagræða
niðurstöðutölunni. Fjármálaráð-
herra sagðist telja að hér væri á
Verslunarmannafélag Suðurnesja:
Samskiptaöróug-
leikar í Leifsstöð
Verslunarmannafélag Suður-
nesja telur að Flugleiðum hafi
aldrei verið alvara með að bjóða út
farþegaafgreiðslu í Leifsstöð. Fyr-
irtækið hafi aðeins notað það sem
tilliástæðu til að segja upp starfs-
fólki til þess síðan að Iosna við
fjóra starfsmenn.
Þegar Flugleiðir tilkynntu um
skipulagsbreytingar þessar var
öllum 38 starfsmönnum í far-
þegaafgreiðslu sagt upp. Þegar
fyrirtækið féll frá þeirri ætlan
sinni vom 34 þeirra endurráðnir.
Verslunarmannafélagið hefur það
til marks um að tilgangurinn hafi
verið að losna við ákveðna fjóra
starfsmenn. Enda hafi verið ráðið
í störf þessara manna. Félagið
segir að ekki náist góður starfs-
andi á þessum vinnustað fyrr en
þeir sem misstu vinnuna hafi ver-
ið endurráðnir.
Einar Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, hefur sagt að
með uppsögnunum hafi í raun
orðið skipulagsbreytingar. Störf
og stöðugildi hafi verið færð milli
deilda. Frá farþegaafgreiðslu til
þjónustudeildar. Þar liggi hund-
urinn grafinn. -aá.
Landsspítalinn:
Eldur í brauðrist
Slökkvilið í Reykjavík var á sunnu-
dag kvatt á Landsspítalann í Reykja-
vík. Þar var eldboðunarkerfi í gangi.
Þegar á staðinn var komið, kom í
ljós að um reyk í brauðrist var að
ræða og þurfti því ekki stórvirkra
slökkvitækja við.
-PS
ferðinni raunhæfa tillögu og sagði
að henni yrði fylgt fast eftir í góðri
samvinnu við forstöðumenn ríkis-
stofnana.
Bamabætur skerðast
um 15-19 þúsund
með hveiju bami
Ríkissjóður ætlar sér að ná inn um
500 milljörðum með því að draga
úr barnabótum. í dag greiðir ríkis-
sjóður um 5 milljarða í barnabætur
og barnabótaauka. Þetta verður
gert með því að bamabætumar
verða lækkaðar og barnabótaauk-
inn tekjutengdur mun meira en nú
er gert. Barnabótaauki verður
skertur hjá hjónum sem hafa 2,1
milljón í árstekjur og fellur alveg
niður hjá hjónum sem hafa 2,4
milljónir í árstekjur. Skerðingin á
barnabótum er um 19 þúsund
krónur með fyrsta barni og um 15
þúsund krónur hjá hverju barni
sem þar við bætist.
Skerða á sjómannaafsláttinn um
200 milljónir, en í dag er hann alls
um 1,5 milljarðar. Þetta verður gert
þannig að aðeins verður veittur af-
sláttur hjá sjómönnum fyrir þá
daga sem þeir em á sjó. Þetta kem-
ur verst við hópa eins og beitinga-
menn sem hafa ráðningarsamning.
Beitingamaður sem f dag hefúr 120
þúsund á mánuði og greiðir 4 þús-
und í skatta, mun eftir breytinga
greiða 24 þúsund í skatt af sömu
launum. Sjómenn segja að þessi
breyting skili mun meiru í ríkissjóð
en fjármálaráðherra vill vera láta.
Ráðherra sagðist ekki trúa því, en
tók fram að ef það reynist rétt sem
sjómenn segja að breytingin skili
allt upp í 500 milljónum í ríkissjóð,
þá verði breytingin endurskoðuð.
Vestfjarðagöngum
fresta að hluta
Þeim hluta Vestfjarðaganga sem
opna leiðina til Súgandafjarðar
verður frestað um eitt ár, en það
mun spara 250 milljónir á næsta
ári. Göngin milli Skutulsfjarðar og
Önundarfjarðar eiga hins vegar að
verða tilbúin á réttum tíma. Fjár-
málaráðherra viðurkenndi að þessi
frestun kosti ríkissjóð einhverja
upphæð, en vildi ekki nefna tölur í
því sambandi.
Lagður verður skattur á fjárfest-
ingalánasjóði líkt og lagt er á
banka. Þetta á að skila 150 milljón-
ir. Hækkað aðflutningsgjald á stóra
og þunga bíla á að skila ríkissjóði
100 milljónum. Þrengt verður laga-
ákvæði um að selja tap. Aðeins
verður hægt að selja tap 5 ár aftur í
tímann.
Lagt verður á sérstakt þjónustu-
gjald á hafnir sem á að skila ríkis-
sjóði 125 milljónir. Gjaldið verður
lagt á afla og vörur og rennur til að
fjármagna hafnarframkvæmdir.
Fresta á svokölluðum beinum
greiðslum til bænda, þannig að þær
standi fyrir 12 mánuði í staðin fyrir
10. Þetta á að spara 295 milljónir.
Skerða á önnur útgjöld landbúnað-
arráðuneytisins um 70 milljónir.
Niðurgreiðslum á þurrmjólkurdufti
verður hætt og lagður verður á
jöfnunartollur á innflutt mjólkur-
duft.
700 milljónum ýtt
yfir á sveitarfélögin
700 milljónum verður ýtt yfir á
herðar sveitarfélaganna, þar af 400
mijljónum með því að flytja verk-
efni frá ríkissjóði yfir til sveitarfé-
laganna. Þar er m.a. um að ræða
verkefni sem varða þjónustu við
fatlaða. Þá verða tekjustofnar sveit-
arfélaganna skertir um 300 millj-
ónir til viðbótar. Það er m.a. gert
með því að láta ÁTVR ekki greiða
landsútsvar. Reykjavík fær þriðjung
af landsútsvari ÁTVR en afgangur
hefur farið í Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga. Ríkið mun jafna sjóðnum upp
tekjumissinn með hlutdeild í út-
svari. Fjármálaráðherra sagði að
sveitarfélögin hefðu aukið mjög
tekjur sfnar á seinustu árum og
eðlilegt að þau tækju á sig hluta af
þeim erfiðleikum sem ríkissjóður á
við að eiga nú.
Margar fleiri sparnaðartillögur
voru upp á borðinu en þeim var ýtt
til hliðar. Þar á meðal var tillaga um
að leggja virðisaukaskatt á laxveiði-
leyfi og tillaga um að ná inn aukn-
um fjármunum í ríkiskassann í
gegnum Hagræðingarsjóð. -EÓ
Lyklar voru komnir út um allan bæ, segir forstöðumaður Sundlaugarinnar í Laugardal
SKIPT YFIR í
ÖRYGGISSKRÁR
Töluvert hefur verið um þjófnaði úr
skápum sundlaugargesta í Sundlaug-
inni í Laugardag, segir Kristján ög-
mundsson, forstöðumaður sundlaug-
arinnar, í samtali við Tímann.
Kristján segir að þegar lyklum af
gömlu skránum var stolið, þá var það
of mikil fyrirhöfn að víxla skránum,
nýr lykill var einfaldlega smíðaður.
„Lyklar voru í raun og veru komnir út
um allan bæ. Þess vegna var nauðsyn-
legt að skipta um skrár í skápunum og
tryggja þar með öryggi sundlaugar-
gesta“, segir Kristján.
Kristján tekur fram að þegar gestir
kaupa aðgang að sundlauginni fá þeir
litla rákaða skífu. Sundlaugargestur
velur sér skáp sjálfur og þegar hann er
búinn að klæða sig úr þá lætur hann
skífuna í og læsir þar með skápnum,
en lykillinn gengur jafnframt út úr
skránni. Þegar sundlaugargesturinn
kemur til baka, stingur hann lyklin-
um í skránna og opnar skápinn og lyk-
illinn festist um leið í skránni.
Kristján segir enn fremur að nú sé
búið að gera allt sem í þeirra valdi
stendur, til að spoma við því að stolið
sé úr skápunum. -js
Svona líta nýju skrámar í Laugardalssundlaugunum út. Fólk fær
sérstaka mynt og stingur henni í raufina efst á sjálfri skránni og þá
losnar lykilinn og fyrr ekki. Timamynd: Aml BJama.
SMÁSAGHASAtH ^ ^ ^
““ erindi til allra
Bókaútgáfan
Hildur
AUÐBREKKU 4 - 200 K0PAV0GUR
SÍMAR 91-641890 0G 93-47757