Tíminn - 10.12.1991, Qupperneq 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 10. desember 1991
Stefán Jón í Afríku
Út er komin hjá Máli og menningu
bókin Guðimir eru geggjaðir - Ferða-
sagafrá Afríku eftir Stefán ]6n Haf-
stein útvarpsmann. Höfundur starf-
aði fyrir Rauða krossinn í Eþíópíu og
Súdan og fór margar ferðir um þessi
víðáttumiklu lönd. Petta er þó ekki
bók um hungur og örbirgð heldur
segir Stefán sögu manns sem leggur
af stað fullur af bamatrú húmanist-
ans, en allt reynist öðruvísi en hann
hugði, og að lokum verður hann að
fara lengstu ferðina inn í sjálfan sig.
Útkoman er afar óvenjuleg saga -
ferðasaga, þjóðarlýsing, saga um
hörmungar, gleði, glæsileik og stolt -
en þó öðru fremur persónuleg frá-
sögn.
Hrói og félagar
Bókaútgáfan Setberg hefur sent frá
sér bókina Hrói höttur í þýðingu Stef-
áns Júlíussonar.
Fáar sögur hafa vakið jafnmikla
hrifningu og spennu meðal bama og
unglinga og sagan af Hróa hetti,
Tóka munki, litla Jóni og félögum.
Þetta er splunkuný útgáfa, ríkulega
myndskreytt og litprentuð.
Kapphlaup
Bókaútgáfan Setberg hefur sent frá
sér bókina Babar - kapphlaupið til
tunglsins, í þýðingu Þrándar Thor-
oddsen.
Babar kóngur hefur árum saman ver-
ið í uppáhaldi hjá bömum vxða um
heim.
Hann veit hvað það er gott og gaman
þegar allir sameinast og hjálpast að
við að gera eitthvað sem er öllum til
gagns og gleði.
I íslenska sjónvarpinu em nú sýndir
vikulegir þættir um Babar og félaga.
Jón R. Hjálmarsson.
Af mannlífi og
atburðum
Mannlífsmyndir nefnir Jón R. Hjálm-
arsson bók sem harm skráir í 13 frá-
söguþætti og lýsir þar íslensku
mannlífi og atburðum.
Viðmælendur Jóns em tólf en tveir
frásöguþættir em eftir einn þeirra.
Fólkið er frá ýmsum landshlutum og
hefur frá mörgu að segja, svo sem bú-
skap í Flatey og skipsströndum á
fjömm Meðallands, laxveiði f ölfusá
og knattspymukeppni í Borgarfirði,
dulrænum fyrirbæmm í Þjófadölum
og grasalækningum einstæðar konu.
Körfubolti - Japísdeild:
Haukar létu
mótlætiö fara
í skapið á sér
— og Valsmenn unnu öruggan sigur 87-100
Gallagripur
Bókaútgáfan Setberg hefur gefið út
skáldsöguna Gallagripur eftir Isaac
Bashevis Singer.
í henni er því lýst hvem dilk það
dregur á eftir sér þegar veiklundaðan
en tungulipran hrakfallabálk skortir
heilindi, siðferðisþrek og skapfestu
til að stjóma lífi sínu.
Sagan gerist í Varsjá á nokkrum dög-
um árið 1906. Max Barabander er
pólskur Gyðingur með vafasama for-
tíð og eins og ýmsir sem hann um-
gengst. Hann hefur lengi verið bú-
settur í Buenos Aires, hefur auðgast
þar og er orðinn argentínskur ríkis-
borgari.
Með Gallagrip hefur Setberg gefið út
samtals níu bækur eftir Isaac Bashe-
vis Singer í þýðingu Hjartar Pálsson-
ar.
Ný ástarsaga
Bókaútgáfan Setberg hefur sent frá
sér nýja ástarsögu eftir Darúelle Steel,
Stjaman.
Danielle Steel hefur getið sér mjög
gott orð sem höfundur fjölskyldu- og
ástarsagna, en sögur hennar seljast í
risaupplögum.
barnabækur
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur sent
frá sér þrjú sígild ævintýri frá Hol-
landi. Þau em Dísa ljósálfur, Alfinn-
ur álfakóngur og Dvergurinn Rauð-
grani.
I kynningu FORLAGSINS segir:
„Eldri íslendingum em þessi ævin-
týri í fersku minni. Þau komu upp-
haflega út hér á landi um 1930 og
hafa allar götur síðan notið mikilla
vinsælda meðal bama og fullorðinna.
Hver man ekki álfastúlkuna Dísu
sem hrapaði af grein og týndi
mömmu sinrú, Hans litla og Huldu
sem komust í klær galdranomarinnar
og Rauðgrana eða Trítil litla sem
hraktist að heiman með Alfinni föður
sínum þegar dökkálfamir gerðu árás
á hólinn þeirra? En eins og öll góð
ævintýri enda þessi vel.
Höfundur sagnanna var hollenski
teiknarinn G. Th. Rotman. Hann var
fæddur árið 1893 og Iést fimmtugur
að aldri 1943. Á skammri ævi haslaði
hann sér völl sem einn snjallasti
myndasöguhöfundur í Evrópu og
teiknaði jöfnum höndum skopmynd-
ir úr stjómmálalífinu og ævintýra-
sögur fyrir böm. Hann hafði ótvíræð
áhrif á þróun myndasagna í álfunrú á
fyrri hluta aldarinnar og lét eftir sig
verk sem enn eru í hávegum höfð í
heimalandi hans og víðar."
Hver bók er rúmar 100 bls. Ragn-
heiður Kristjánsdóttir hannaði kápur.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
Ný unglingabók
eftir Gunnhildi
ísafold hefur gefið út unglingabókina
Söm eftir Gurmhildi Hrólfsdóttur.
Sara er 13 ára bam nýskilinnafor-
eldra. Hún á erfitt með að fóta sig f
nýju umhverfi og finnst hún veraaf-
skipt í heimi fullorðinna sem ekkert
tillit taka til tilfinrúnga og þarfa
unglinga.
Hún kemst í kynrú við krakka sem
hafa svipaðar skoðanir og hún og
hrífst af þeim spenningi sem fylgir
skuggaveröld þeirra. Svartnættið
virðist blasa við, en öll él birtir upp
um síðir, lífið verður aftur í lit.
Sara er sérstök saga um sérstaka
stúlku.
ísafold hefur áður gefið út eftir
Gunnhildi Hrólfsdóttur tvær ung-
lingabækur og tvær bamabækur sem
hlotið hafa prýðisdóma.
Ævintýri barnanna
Þrjár nýjar bækur í ritsafninu Ævin-
týribamanna.
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur gefið
út þrjár nýjar bækur í ritsafninu Æv-
intýri bamanna. Þær em Gosi, Litla
stúlkan með eldspýtumar og Þymirós.
Áður hafa komið út níu ævintýri í
þessu safni, allt sígild verk í safni æv-
intýra. Þorsteinn skáld frá Hamri hef-
ur þýtt öll ævintýrin.
í kynningu FORLAGSINS segir:
„Gömlu, góðu ævintýrin em alltaf í
fullu gildi og hér em sögð óborgan-
leg ævintýri sem böm hafa skemmt
sér við kynslóð fram af kynslóð. Þau
em endursögð við hæfi yngstu bam-
anna og myndskreytt af frægum
spænskum listamönnum."
Ævintýri bamanna em 32 bls. hver
bók. Bækumar em prentaðar á Spáni.
Sígild ævintýri
Bókaútgáfan Setberg hefur gefið út
bókina Ævintýri og sígildar sögur. Þór-
ir S. Guðbergsson og Hlynur Öm
Þórisson þýddu og endursögðu.
Litprentuð bók með vinsælum og
þekktum ævintýrum; Mjallhvít og
dvergamir sjö, GuIIgæsin, Pipar-
kökumaðurinn, Heimski Jói, Aladdín
og töfralampinn, Galdrapotturinn,
Jói og baunagrasið og mörg önnur
ævintýri.
Leyndar hugsanir
Komin er út hjá Máli og menningu
unglingabókin Súrar gúrkur og súkku-
laði. Höfundurinn er frönsk stúlka,
Stépharúe, og er þetta dagbók hennar
frá því hún var 13 og 14 ára. Bókin er
ótrúlega vel skrifuð af
unglingi að vera og segir höfundur á
einlægan hátt frá leyndustu hugsun-
um sínum. Hún segir sögu stúlku,
sem er að breytast úr barni í konu og
er að kynnast heimi fullorðna
fólksins, sem er spennandi en á
margan hátt öðmvísi en hún hélt.
Frásögrún er gamansöm og segir
sannleika sem flestir þekkja, ekki síst
unglingsstúlkur.
Guðlaug Guðmundsdóttir þýddi
bókina, sem er 212 blaðsíður og
kemur út í bókaflokknum MM-UNG.
Árbókaflokkur
Stefjabókin Eitt tygið ný '91 er ný-
komin út. Þetta er þriðja bókin f
árbókaflokknum eftir Olaf Gíslason,
Neðrabæ í Amarfirði. Hinar tvær em
Nýjaráttir ‘89 og Tygin nýju '91. Ljóð-
in em frá þeim tímum sem
ártölin f nöfnum bókanna benda til
og em öll Ijóðin dag- og ársett.
Höfundur hefur áður sent frá sér
vfsnagátusafnið Kveiktu á pemnni í
fimm heftum og staðið að útgáfu á
bók Gísla á Uppsölum, Eintali.
Haukar sýndu Valsmönnum ekki
mikla mótspymu á laugardaginn er
liðin mættust í Firðinum. Haukar
léku einn sinn slakasta leik á keppn-
istímabilinu og töpuðu 87-100.
Valsmenn léku af öryggi, en þurftu
ekki neinn snilldarleik til að sigra.
Haukar gerðu fyrstu körfu leiskins
og var það í eina skiptið sem þeir
komust yfir í leiknum. Valsmenn
náðu undirtökunum og snemma var
munurinn 10 stig, 18-28. Fyrir hlé
bættu Valsmenn enn við og höfðu 21
stig yfir í leikhléi 34-55.
í síðari hálfleik var lengst af 20 stiga
munur, en undir lokin náðu Haukar
aðeins að rétta sinn hlut og minnka
muninn í 13 stig áður en leikurinn
var úti.
Mótlætið fór mjög í skapið á leik-
mönnum Hauka, Pétur Ingvarsson
fór af leikvelli með tvær tæknivillur
og verður því í leikbanni í leiknum
gegn ÍBK á fimmtudag. Pétur hafði
leikið í leiknum ffam að þessu, en
bróðir hans Jón Amar gat ekki Ieikið
með þar sem hann er rifbeinsbrot-
inn.
Henning Henningsson og Jón Öm
Guðmundsson fengu hvor sína
tæknivilluna og Henning fór
Njarðvík sigraði Tindastól 97-82 í
Japísdeildinni í Njarðvík á föstu-
dagskvöld. í hálfleik var staðan 40-
43 gestunum í vil.
í síðari hálfleik tók Ástþór Ingason
sig til og skoraði úr fjómm þriggja
stiga körfum í röð og Njarðvíkingar
náðu tökum á leiknum og sigruðu
örugglega.
Ástþór, ásamt Jóhannesi Krist-
björnssyni voru bestu menn Njarð-
víkinga í leiknum ásamt Ronday Ro-
binson, en Haraldur Leifsson lék
best Tindastólsmanna, Ivan Jonas,
Pétur Guðmundsson og Einar Ein-
arsson voru einnig ágætir.
Stigin UMFN: Robinson 27, Jó-
hannes 17, Ástþór 12, Kristinn 12,
Teitur 11, Friðrik 8, ísak 4, Agnar 2,
Brynjar 2 og Stefán 2. UMFT: Har-
aldur 23, Jonas 22, Pétur 17, Einar
14, Björn 4 og Hinrik 2.
Á sunnudagkvöld léku njarðvíking-
ar gegn Skallagrímsmönnum í
Borgarnesi og sigmðu 79-104, eftir
að staðan í leikhléi var 34-57. Njarð-
víkingar höfðu undirtökin í leiknum
frá byrjun.
Stigin Skallagrímur: Birgir 25,
Krupatsjev 24, Elfar 10, Þórður J. 8,
Hafsteinn 6, Guðmundur 2, Þórður
H. 2 og Jón 2. UMFN: Robinson 27,
Teitur 27, Jóhannes 15, ísak 12,
Kristinn 12, Agnar 4, Ástþór 3, Frið-
rik 2 og Brynjar 2.
KR tapaði á Króknum
KR-ingar töpuðu þriðja leik í deild-
inni á sunnudagskvöldið, gegn
Tindastól á Sauðárkróki, 89-75.
Tindastólsmenn vom yfir nærri því
allan leikinn og sigur þeirra var ekki
í hættu í lokin. í leikhléi var staðan
snemma í síðari hálfleik út af með 5
villur. Sömu leið fór John Rhodes.
ívar Ásgrímsson og Rhodes skomðu
20 fyrstu stig Hauka í leiknum, en
eftir að Tómas Holton fór að gæta
ívars, átti hann erfitt uppdráttar. Þor-
valdur Henningsson og Bragi hittu
vel undir lokin, en þar em á ferðinni
leikmenn sem mættu fá fleiri tæki-
færi.
Franc Booker, Tómas Holton og
Magnús Matthíasson vom sem fyrr
bestir hjá Val. Matthías Matthíasson
lék einnig ágætlega og Ragnar Þór
Jónsson kom aftur inná liðið eftir
meiðsl og stóð sig vel.
Kristinn Albertsson og Kristinn
Óskarsson dæmdu leikinn af öryggi.
Haukar fengu á sig 29 villur gegn 15
áVal.
Stigin Haukar: John Rhodes 23, Pét-
ur Ingvarsson 16, Jón Öm Guð-
mundsson 12, ívar Ásgrímsson 12,
Bragi 8, Þorvaldur Henningsson 8,
Henning Henningsson 4, Reynir
Kristjánsson 2 og Hörður Pétursson
2. Valur: Franc Booker 37, Tómas
Holton 21, Magnús Matthíasson 20,
Matthías Matthíasson 8, Ragnar Þór
Jónsson 7, Ari Gunnarsson 7 og Sím-
on Ólafsson 2. BL
38-33 heimamönnum í vil.
Stigin UMFT: Pétur 20, Jónas 20,
Valur 18, Einar 14, Haraldur 13,
Björn 2 og Hinrik 2. KR: Guðni 20,
Axel 17, Baer 16, Hermenn 6, Óskar
5, Ólafur 3, Lárus 3, og Benedikt 2
Grindavíkursigur
Grindvíkingar unnu öruggan sigur
á Þór 72-85, á Akureyri á sunnu-
dagskvöld. Staðan í leikhléi var 31-
42.
Grindvíkingar tefldu fram nýjum
Bandaríkjamanni í þessum leik, Joe
Hurst og átti hann góðan leik, skor-
aði 28 stig, tók 20 fráköst og varði
fjölda skota.
Stigin Þór: Konráð 21, Herge 17,
Björn 14, Högni 10, Stefán 4, Helgi
4 og Birgir 2. UMFG: Guðmundur
29, Hurst 28, Pálmar 15, Hjálmar 5,
Rúnar 4 og Bergur 4.
Staðan í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik:
A-riðill:
Njarðvík.......11 10 1 1004-855 20
KR............ 10 7 3 927-845 14
Tindastóll ...11 4 7 978-1015 8
Snæfell.........9 3 6 707-827 6
Skallagrímur ...0 2 8 811-952 4
B-riðilI:
Keflavík........10 9 1 1033-829 18
Grindavík.......11 6 5 938-879 12
Haukar..........10 4 6 899-980 8
Valur............10 5 5 926-90510
Þór.............10 1 9 828-964 2
í kvöld leika Valur-UMFG á Hlíðar-
enda kl. 20 og Tindastóll- Snæfell á
Króknum á sama tíma.
BL
Körfubolti - Japísdeild:
Tveir sigrar
Njarövíkinga
um helgina