Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn JÓLABLAÐ 1991 Séö yfir Akureyrarpoli ofan úr Vaðlaheiði. Bókin Hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði eftir Jón Hjaltason komin út: Bretarnir höfðu engan áhuga á íslendingum né samneyti við þá Bókaútgáfan Hólar hefur sent frá sér bókina „Hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði", eftir Jón Hjaltason sagnfræðing. í henni er m.a. fjallað um hvenær hermenn komu í Eyja- fjörð, hvaðan þeir voru og hvar þeir settu niður herbúðir sínar og hver viðbrögð Eyfirðinga voru við gestakomu þessari. Jón Hjaltason fjallar um hernámsárin á Akureyri og í Eyjafirði í bókinni. Hin viðkvæmustu mál eru reifuð, svo sem „ástandið", nasismi, bretavinna og njósnaveiðar hernámsliðsins. Akureyri er í þungamiðju frásagnar- innar, enda voru þar höfuðstöðvar setuliðsins, fyrst þess breska og síðan hins bandaríska. Jafriframt því að draga upp ljóslifandi mynd af hemámi kaupstaðarins fer höfundur í fótspor hemámsliðsins, og fylgir því eftir utan frá Grenivík þar sem einkennilegt tundurdufl rekur á fjömr, inn á Mel- gerðismela og Hrafnagil, út í Öxnadal og Hörgárdal, eftir strandlengjunni um Dagverðareyri, Hjalteyri og Ár- skógssand og út í Hn'sey. Á Dalvík leita hermenn eftir óþekktri „laddí" og fyrsta dauðsfallið í stríðinu á íslandi á sér stað. Fyrir tilviljun tekur stríðið land á Ólafsfirði, en á Siglunesi reisa Bandaríkjamenn stóra ratsjárstöð. Breska hemámsliðið kemur til Siglu- (jarðar með síldinni, hreiðrar þar um sig og brátt skerst í odda með her- mönnunum og Siglfirðingum. Aðra sögu var að segja af nyrstu „herstöð" setuliðsins, en hún var úti í Grímsey; þangað komu vestur- íslenskir her- menn og vom hvers manns hugljúfi. Bókina prýðir mikill fjöldi Ijósmynda, sem margar hverjar em nú prentaðar í fyrsta sinn. Stór hluti þeirra kemur úr söfnum í Bretlandi og Bandaríkjun- um, nokkrar frá Life- útgáfunni, aðrar úr einkasöfnum breskra og banda- rískra hermanna og íslenskra áhuga- manna um stríðsárin. Hér á eftir fer kafli úr bók Jóns Hjalta- sonar Um hemámið í Eyjafirði og nefnist hann: Hermannalíf Hemámsliðið, sem steig á land á Ak- ureyri í maí og júní 1940, var að hluta til ættað frá borginni Sheffíeld, en heita mátti að allir liðsmenn Hallams- hire Battalion of the York and Lancas- hire Regiment komu hins vegar úr sveitahémðum Norður-Englands og höfðu lítið haft af stórborgum og þétt- býli að segja. Fyrir þeim var Akureyri stór kaupstaður og hefúr það sjálfsagt ekki orðið til þess að draga úr einstæð- ingsskap þeirra. En hvort sem her- mennimir vom úr sveit eða borg, var þeim það flestum sameiginlegt að vera ungir að ámm og óhamingjusamir. Þeir höfðu verið teknir úr faðmi fjöl- skyldunnar og sendir til ókunnugs lands. Villt náttúran, víðáttan, jöklam- ir og djúpir dalimir, allt var þetta svo frábmgðið heimkynnum þeirra sem mest mátti verða. Þeir höfðu alls enga þekkingu á íslandi og lítinn áhuga á að kynnast íslendingum; um borð í R.M.S. Andes á leið til eyjarinnar höfðu hermennimir skeggrætt um það er beið þeirra; myndu Eskimóar í snjóhúsum og heimskautabimir taka á móti þeim? Hvaða tungumál skyldi þessi furðuþjóðflokkur tala? Dönsku héldu þeir er mest vissu. Hermennim- ir ungu höfðu ekki farið víða og ættar- mótið var sterkt Um þá mátti segja það sama og Guðmundur Friðjónsson orti um ekkjuna við ána: „Hún elskaði ekki landið, / en aðeins þennan blett, / af ánni nokkra faðma / og hraunið svart og grett“. Hvort heldur þeir voru frá Yorkshire, Lincolnshire eða Lancashire voru skapgerðareinkennin þau sömu: þeir sóttust ekki eftir að kynnast ókunn- ugu fólki, höfðu lítinn áhuga á siðum annarra þjóða og skorti víðsýni þess er víða hefur farið og margt reynt Um Yorkshire- búa skrifaði Emest Gould, en hann var ritstjóri The Arctic Times, vikublaðs sem setuliðið gaf út á Akur- eyri: „Þeir eru fyrst og fremst Yorks- hire-menn og síðan Englendingar. Þeir em þöglir og trúa því statt og stöðugt að gmnnir dalir Yorkshire séu fegurstu náttúmfyrirbrigði vetrar- brautarinnar. Það tekur þá langan tíma að viðurkenna að nokkur, sem ekki er fæddur í Yorkshire, geti verið mennskur." Eflaust hafa þessi skapgerðareinkenni auðveldað setuliðsstjóminni að halda hermönnunum frá íslendingum. Enda þótt hún gripi aldrei til þess ráðs að banna óbreyttum hermönnum samskipti við íslendinga, var það engu að síður ljóst að herforingjamir vildu síður að óbreyttir liðsmenn þeirra blönduðu geði við landsmenn. Og her- mennimir fóm ekki í neinar grafgötur um að þeir vom í hemámsliði, óvel- komnir og án boðskorts af nokkm tagi. Áhersla var lögð á að setuliðið væri sjálfbjarga um sem flesta hluti: fæði, klæði, varahluti í bíla, byggingar- efni, læknisþjónustu og bensín. Á sunnudögum lofsungu hermennimir guð sinn í Akureyrarkirkju. Enskur herprestur stjómaði messunni og her- menn sáu um tónlist og söng. Þessi sjálfsþurftarstefna varð óneitan- lega til þess að samskipti Englendinga og íslendinga urðu minni en ella hefði orðið. Ólík tungumál þjóðanna stuðl- uðu ekki heldur að nánum kynnum, en vom þó ekki óyfirstíganlegt vanda- mál. „Vill you plís gjöra svo vel að Iána mér telefón?“ bað Þorsteinn Svan- laugsson enskcm varðmann, þegar bfll

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.