Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 21

Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 21
JÓLABLAÐ 1991 Tíminn 21 „Það var á dögum Snorra Sturlusonar. Að hennar ósk var hann valinn til þess að skjal- festa Völuspá, en hin dulklædda freyja mælti hana af munni fram. Undrið skeði um morg- un, við sólaruppkomu. Hvfla hennar var á bergi — bergstalli í hellismunna... Undur þetta mun hafa gerst á hinum yngri árum Snorra Sturlusonar, rétt fyrir eða eftir giftingarár hans, áður en hann reisti bú á Borg á Mýrum, því hellirinn, sem allar líkur benda til, er í túninu skammt frá Odda. Hann er saman fallinn að nokkru og yfir hann gróið. Um tvo hella er að ræða. Annar er nefndur í Bisk- upasögum og hét Sæmundar- fjós. Þar fórust nautgripir, er hann féll saman, er mun hafa verið af völdum jarðhræringa eða jarðskjálfta... Eg vildi fá vin minn Guðmund myndhöggvara frá Miðdal til þess að gjöra minnisvarða og reisa í Odda og opna hellinn. En þeir, sendi- boðarnir, leggja algert bann við slíku og segja að af geti hlotist þjóðarógæfa, að róta við slíkri kraftstöð." í Langekrutúni sjást merki um fallna hella og í Vindási var komið niður á helli, er grafinn var grunnur að fjósi þar fyrir allmörgum árum. Hrossabein voru í einum hellinum. í Lamb- haga eru fallnir hellar. Munn- mæli herma að þar hafi verið lambhellir Sæmundar fróða. Á Selalæk voru að minnsta kosti tveir hellar sem nú eru fallnir. Sagt er að fólk, sem sótti heyskap í Selalækjarflóð, hafi fengið að hafa aðsetur í öðrum þeirra. Gaddstaðir Heimildir eru til frá fyrri tíð um hella á Gaddstöðum. Matt- hías Þórðarson lýsir tveim heli- um, sem voru uppistandandi þegar hann kom þar árið 1917. Hvorugur þeirra var þá í notk- un. Annar var skammt frá bæn- um, um 5 m langur og 2,5 á breidd, með görðum beggja vegna. Þar voru nokkur fanga- mörk og ártölin 1779, 1891 og auk þess búmerki. Hinn var fullur af mold og hafði áður verið fyrir lömb. Báðir þessir hellar eru nú týndir. Þegar ver- ið var að grafa fyrir grunni nýs íbúðarhúss að Freyvangi 6 á Hellu á Rangárvöllum þann 3. júlí 1991 fannst áður óþekktur hellir. Austast í húsgrunninum kom vélskóflan, sem notuð var við verkið, niður á hellisop í sandsteininum neðst í grunn- inum. Við nánari athugun kom í ljós að við hliðina á því var og annar inngangur og var hann grafinn út með skóflum. Það, sem sjáanlegt er af hellinum, er um 6,5 m langur gangur, víðast um 1 m á breidd en um 1,6 m á hæð, því talsvert af lausamold liggur á gólfinu. Gangurinn hefur í upphafi verið um 1,7 til 1,8 m á hæð og eða nokkurn veginn manngengur. Innst vfkkar gangurinn út, eins og þar hafi verið nokkru víðari hvelfing, en erfitt er að gera sér grein fyrir því, vegna þess að hún er full af mold, sem annað- hvort hefur hrunið niður um innfall sem þar er innar, eða þakið hefur gefið sig. Hellirinn er höggvinn í frekar linan sandstein og víða má sjá för eftir verkfærið, sem notað hefur verið til að gera hellinn. Yngsti manngerði hellir, sem vitað er um hérlendis, er í Fiskhól á Ytri-Sólheimum f Mýrdal. Hann var gerður um 1940 og er not- aður sem kartöflugeymsla. Ljósmynd: Guðmundur J. Guð- mundsson. Þessi för eru víða rétt eins og þau hafi verið gerð í gær og bendir það til að hellirinn hafi lítið verið notaður eftir að hann var gerður. Það sérkennilega við þennan helli eru munnarnir tveir, sem á honum eru. í nyrðri munn- anum eru 4 þrep en í þeim syðri, sem er með tveim hlykkjum, eru tvö þrep og þar fyrir neðan dálítill stallur. Erf- itt er að segja til um hversu gamall hellirinn er. Gamla bæj- arstæðið á Gaddstöðum var á hólnum uppi yfir honum og hugsanlegt er að einhvern tíma hafi verið innangengt úr helli í bæ. Gleðileg jól Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum árum Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum - Reyðarfirði Borgarfirði - Seyðisfirði arsœlt komandiár

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.