Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 23

Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 23
JÓLABLAÐ 1991 Tíminn 23 NÝJAR BÆKUR \l Srl’l l\l KNSKAK SÖGUK Margucril' YojUDcenar Dísir flögra Út er komin hjá Máli og menningu smásagnasafnið Austurlenskar sögur eftir frönsku skáldkonuna Marguerite Yourcenar, í þýðingu Thors Vilhjálmssonar. f þessum sögum flögra skógardísir um og trylla af mönnum vitið, hetjur standast ótrúlegustu raunir, en ekíd yndisþokka kvenna og sjálf guðs- móðir vitjar manna mild og há; sólin skín heit og ástin nær út yfir gröf og dauða. Þessar austurlensku sögur sem Yourcenar lætur gerast fyrir löngu síðan f Kína, Japan, Indlandi eða Balkanlöndum virðast óháðar stund og stað — þótt hver og ein sé gluggi að heillandi heimi hins fjar- læga austurs fjalia þær allar um ástríður manna sem breytast aldrei, afrek þeirra og afglöp. Marguerite Yourcenar (1903-1987) var ein kunnasta skáldkona Frakka á öldinni og fyrst kvenna til að vera kosin í frönsku Akademíuna. Bókin er 110 bls., prentuð í prent- smiðjunni Odda hf. Kápu gerði Ro- bert Guillemette. Þroskaleið Bókaútgáfan Skuggsjá hefur gefið út bókina Leidin til andlegs þroska eftir bandaríska geðlækninn M. Scott Peck, í þýðingu Sverris Pálssonar, Akureyri. í þessari bók fjaliar M. Scott Peck um hvemig mönnum getur tekist að yfirvinna erfiðleika og vandamál í lífi sínu og í umfjöllun sinni styðst hann við reynslu sína af lækningu á fjöl- mörgum sjúklingum sínum, og nefn- ir dæmi þar um. Þegar reynt er að forðast vandamálin er fólki hætt við að staðna í stað þess að læra og þroskast af því að takast á við erfið- leikana, sem við er að etja. Peck sýnir okkur leiðir til þess að mæta erfið- leikunum og hvemig við öðlumst um leið betri skilning á sjálfum okkur. Hann ræðir eðli kærleiksríkra sambanda milli fólks; sýnir hvernig greina má muninn á ást og þvf að vera háður; hvemig maður getur orð- ið sjálfs síns herra, og hvemig maður getur orðið betra foreldri. Þessi bók sýnir hvemig hægt er að horfast í augu við raunveruleikann og um leið öðlast rósemi og aukna lífsfyllingu. Leiðin til andlegs þroska hefur í mörg ár verið meðal söluhæstu bóka í Bandaríkjunum. Hugmyndir um sjáfian sig Út er komin hjá Máli og menningu skáldsagan íslenski draumurinn eftir Guðmimd Andra Thorsson. Höfundur kveður margar persónur til sögunnar, sem gerist á mörgum sviðum og ólfkum tímum. Bók hans er þó öðm fremur saga um vináttu, ást — og svik, allt skoðað í tengslum við hugmyndir fslendinga um sjálfan sig, íslenska drauminn. Er íslenski draumurinn frægð, frami og skjót- fenginn auður eða vinna, strit og þegnskylda í þágu fósturjarðarinnar? Er það sjálfselska í öðru veldi eða metnaður fyrir hönd þjóðarinnar? Að sýna hugsjón sína með hvítum kolli 17. júní, undir rauðum fána í Kefla- víkurgöngu eða í hlaupagalla í Reykjavíkurmaraþoni? Guðmundur Andri Thorsson er fæddur árið 1957. Hann hefur áður sent frá sér skáldsöguna Mín káta angist (1988). íslenski draumurinn er 200 bls. Ingj- björg Eyþórsdóttir gerði kápu, en bókin var unnin í prentsmiðjunni Oddahf. íslenskar myndabækur Mál og menning sendir nú frá sér tvær myndabækur eftir Áslaugu Jónsdóttur myndlistarmann. Bækumar eru; Fjölleikasýning Ástu sem ætluð er yngstu bömunum og segir frá Ástu litlu sem heldur fjöl- leikasýningu í afmæli mömmu sinn- ar. Og Stjömusiglingin - Ævintýri Frið- mundar vitavarðar, sem segir frá því að önnur stjaman í Tvíburamerkinu hverfur. Friðmundur og hundur hans halda í mikla ævintýraferð um him- ingeiminn og tekst að hafa áhrif á gang mála. Báðar bækumar em unnar í prent- smiðjunni Odda hf. Vargas Llosa á íslensku Mario Vargas Llosa er einn af víðkunnustu rithöfundum Suður- Ameríku og það jók enn á frægð hans þegar hann bauð sig fram í forseta- kosningunum í ættlandi sínu Perú á síðasta ári og munaði litlu að hann næði kosningu. Skáldsögur hans berast vfðsvegar um heiminn en á íslensku hefur hann ekki verið þýdd- ur fyrr en nú að hin fyndna háðsaga hans, Pantaljón og sérþjónustan, birtist nú f íslenskri þýðingu. Sagan gerist í landamærahémðum í frumskógum Perú. Þar em miklir herir til að gæta landamæranna og þeir em Iangt leiddir vegna skorts á kvenfólki. Samkvæmt inngangi þýðandans, Sig- rúnar Ástríðar Eiríksdóttur lektor f spænsku, er þessi saga spunnin upp úr vemleikanum. W1 I wr, fé m pi Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum árum Kaupfélag Langnesinga wvwvWWWWN^, . //■ Sendum viðskiptavinum, svo og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsœlt komandi ár Þökkum gott samstarf og viðskipti á líðandi ári Ingvar Helgason hf Farsœlt nýtt ár 'JlhllllllL M: f///i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.