Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 18

Tíminn - 20.12.1991, Blaðsíða 18
18 Tíminn JÓLABLAÐ 1991 Gleðileg jól farsœlt komandi ár Þökkum starfsfólki og viðskiptavinum gott samstarf á liðnum árum SAUÐARKROKI - HOFSOSI - VARMAHLIÐ - FLJOTUM hafa farið á vel heppnaða tónleika með Bubba, hafa um leið upplifað sérstaka stemningu þar sem orð og tónar spila saman eins og best gerist. Þessi fyrsta ósvikna tónleikaplata Bubba (áður sendi hann frá sér Blús fyrir Rikka, sem var að hluta tekin upp í hljóðveri), skilar þessari stemn- ingu heim í stofu. Og þar með er til- ganginum náð. Mörgum finnst Bubbi njóta sín best einn með gítarinn, eins og hann kemur fram á fyrri hluta þessarar skífú. Seinni hlutinn er léttrafmögn- uð þjóðlagastemning þar sem Bubbi nýtur aðstoðar Þorleifs Þorleifssonar, Reynis Jónassonar og Kristjáns Kristjánssonar. Annars eru öll lögin tólf með svipuðum blæ, þó þau spanni frá ísbjamarblús af sam- nefhdri fyrstu plötu Bubba, aftur til Blóðbanda, Sonnetu og Synetu, af þeirri nýjustu. Þverskurðurinn er ágætur og gefúr heillega mynd af trúbadornum Bubba Morthens. Á plötunni eru tvö lög, sem ekki hafa verið hljóðrituð áður, Þarafrumskóg- ur og Rómantík nr. 19, bæði fram- bærileg, en hvorugt beinlínis smell- ur. -ÁG Stórkúkar, eða stærstu smellir? Greitest (S)hits. Sverrir Stormsker. Skífan 1991. Sverrir Stormsker hefur sent frá sér eins konar „best of' disk, með átján lögum af fyrri plötum sínum. Djásnið ber hið frumlega nafn Greit- est (S)hits, sem er ágætis þver- skurður af kímnigáfu Stormskersins í gegnum tíðina. Þessi átján Iög em héðan og þaðan af átta laga ferli Sverris. Það er eng- in ástæða til þess að leggja neinn sérstakan dóm á efni, sem hefur komið út áður, en ef þessi lög væru að koma út í fyrsta skipti myndi ég spá „Stórkúkum" (eða á að þýða tit- ilinn sem Stærstu smellir Storm- skersins?) mikilli velgengni. Hitt er annað mál að sé litið á langan feril skáldsins, virðist manni eins og hann sé að vissu leyti staðnaður í nokkurs konar neðanbeltisútúr- snúningahúmor. Að öðru leyti er hann það ekki, eins og klassíska platan hans sýnir, og góðir sprettir á rómantískum nótum. Sverrir er afleitur söngvari fyrir minn smekk, þokkalegur lagasmið- ur, en hans sterkasta hlið er texta- gerðin, þar sem hann hefur bæði eyra fyrir hrynjanda og burði til þess að setja saman vitræna texta, útúr- snúna eða einlæga. Stormskerið hittir það oft í mark með Ijóðum sínum að íslenska vísitöluþjóðarsál- in hefur gott af því að eiga hann í plöturekkanum. - ÁG. Metnaðar- fullur Geiri Jörö. - Geiri Sæm. • Sb'fan 1991. Geiri Sæm er eiginlega hvorki nýtt nafn né gamalt í íslenskri tónlistar- flóru. Hann hefúr verið mitt á milli þess að vera þekkt nafn eða einn af fjöldanum í poppheiminum. Með plötunni Jörð, sem kom út í síðasta mánuði, stígur hann stórt skref í átt til vaxandi frama og trúlega á hún eft- ir að skipa honum sess í þessum geira dægurmenningarinnar. Tónlist hefúr reyndar aldrei hlotið fullnaðarviðurkenningu sem menn- ing, meðal stjómvalda. Gunnar Þórð- arson „poppafi“ er á listamannalaun- um, en þar með er virðing stórabróð- ur fyrir þessari tegund dægurmenn- ingar nánast upp talin. Það hefúr verið baráttumál tónlistarmanna og aðstandenda þeirra um árabil að virð- isaukaskattur af popptónlist verði felldur niður, eða allt frá því að bækur urðu skattfrjálsar við skattkerfisbreyt- inguna í tíð Jóns Baldvins sem fjár- málaráðherra. Þversögnin er furðu- leg. Svo dæmi sé tekið: sönglög með nótum, prentuð á pappír, eru undan- þegin skatti, en þegar sá, sem samdi lögin, selur þau á plasti þarf hann að greiða ríkinu fjórðung af hverri krónu sem kemur inn. Geiri Sæm er tónlistarmaður og á þann hátt kemur þetta honum allt saman við. Jörð er sólóplata Geira númer tvö. Fyrsta plata hans var með hljómsveitinni Pax Vobis, en eftir að sú sveit leystist upp gaf hann út breið- skífuna Fíllinn, en í kjölfarið fylgdi Er ást í tunglinu, sem hann gaf út með hljómsveitinni Hungastunglinu. Að fyiri verkum Geira ólöstuðum er þetta hans besta verk til þessa og reyndar eina platan sem ég hef kunnað al- mennilega að meta. Á Jörð er að finna tíu ný lög og einn smell síðan í sumar, Sterann, sem kom út á safnplötunni Úr ýmsum átt- um. Þorvaldur B. úr Todmobile kem- ur talsvert við sögu á þessari skífu, en hann stjómaði upptöku hennar og út- setur ásamt Geira fimm laganna. Þor- valdur setur að sjálfsögðu sín fingra- för á gripinn og fer vel á því, ekki síð- ur en á Eldfugli Karls Örvarssonar þar sem hann var einnig í hlutverki vél- stjóra. Að öðru leyti er einvalalið á bak við þessa plötu og nægir þar að nefna gítarleikarann Kristján Edelstein, Styrmi Sigurðsson, Nick Cathcart Jo- nes, Atla Örvarsson og fleiri. Við fyrstu hlustun virkar platan ekk- ert sérstaklega grípandi, en strax í annarri umferð tekur maður eftir grípandi melódíum laganna og eftir það venst hún betur og betur. Bestu lög að mínu mati eru Skuggadrottn- ing, Slagverk stríðsins og Verum rauð. Sterinn er svo topp lag, sem flestir ættu að kannast við af öldum ljósvak- ans frá í sumar. Einasti löstur Jarðar- innar eru textamir. Þeir minna á fát- kenndar tilraunir menntaskólaskálda til þess að beisla andann, af veikum mætti. í textana hefði mátt leggja meiri vinnu, sér í lagi í ljósi þess að Geiri er að leitast við að miðla boðskap til hlustenda. Þetta er þó ekki stór galli, þegar á heildina er litið, og ástæðuiaust að skammast þegar jafn metnaðarfull tónlist lítur dagsins ljós. -ÁG Bubba- stemning Éger. Bubbl Mortheiu. Steinar 1991. Enn einu sinni sendir Bubbi Mort- hens frá sér plötu og enn einu sinni góða. Hún heitir að þessu sinni Ég er og inniheldur tólf lög, sem vom hljóðrituð á tónleikum á Púlsinum með Bubba og félögum fyrir rúmu ári síðan. Tvö laganna em ný, en tíu þeirra misgömul. Þrátt fyrir langan dægurmenning- arferil Bubba á sviði tónlistar ber hann ekki merki stöðnunnar. Ef til vill vegna þess að hann hefur mest- alla tíð verið leitandi og gagnrýninn listamaður og reynt að halda sig við núið frekar en „nojuna". Þeir, sem

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.