Tíminn - 22.02.1992, Page 6

Tíminn - 22.02.1992, Page 6
6 Tíminn Laugardagur 22. febrúar 1992 Hafsteinn Olafsson byggingameistari kynnir hér alíslenska hug- mynd sína að húsum úr gleri, áli, plasti og plötum sem kosta munu helmingi minna en hefðbundið húsnæði. Þau mun mega reisa á fáeinum dögum og þarfnast varla nokkurs viðhalds Hugmynd er komin fram að nýrri gerð íbúðarhúsa, hug- mynd sem ekki mun aðeins lækka kostnað við smíðina um a.m.k. helming, heldur mun einnig mega reisa húsin á fáeinum dögum. Þá munu þau ekki krefjast nokkurs um- talsverðs viðhalds er þau eitt sinn hafa verið reist. Þetta eru auðvitað ekki litlar fréttir í landi þar sem fólk eyðir gjarna meginhluta starfsæ- vinnar í að koma yfir sig þaki. Maðurinn sem er boðberi þessa fagnaðarerindis, Haf- steinn Ólafsson, hefur langa reynslu af nýjungum í húsa- gerð. Hann er bygginga- meistari að mennt og hefur alla ævi unnið við starfsgrein sína. Hann átti hugmyndina að fyrstu gluggaverksmiðju hérlendis, Ramma hf. í Njarð- vík, og stjórnaði henni um árabil. Þá hafði hann forystu um fyrstu húseiningaverk- smiðjuna í landinu, Húsein- ingar hf. á Siglufirði, annaðist uppsetningu hennar og var þar framleiðslustjóri nokkur ár. Við ræddum við Hafstein á dögunum um þessa nýju teg- und húsa, sem hann nefnir „hjálmhús" og hyggst reisa úr gleri, áli, plasti og plötum. „Ég fékk hugmyndina fyrir sex ár- um,“ segir Hafsteinn sem til svars viö fyrstu spurningu okkar. „Ég var heima að horfa á sjónvarpsfréttir, þegar fréttamaðurinn ræddi við mann sem verið hafði á Græn- landi. Hann hafði hrifist af ein- ingahúsunum sem við framleidd- um á Siglufirði og áleit aö svona hús þyrftu Grænlendingar að reisa sér. Ég gerði mér þó þegar Ijóst að þau mundu aldrei henta þar. En ég þekkti mann sem var að reisa sér hús á Grænlandi, hringdi til hans og bað hann að senda mér teikn- ingar af þeim húsum sem menn byggðu á Grænlandi. Það gerði hann og aðra eins hryggðarmynd hef ég ekki séð, veggirnir voru allt að 40 sm þykkir. Það var þarna sem ég fékk hugljómunina: Auð- vitað þurftu þeir á húsum að halda sem voru með ytri og innri útvegg. Égsá í einu vetfangi fyrir mér að- ferð sem hentaði til byggingar stærri sem smærri húsa. Tilraunahús á Keldnaholti Hugmyndin byggðist ekki síst á meginbreytingu á efnisvali við smíðina, sem svo aftur heföi áhrif á vinnulaun við bygginguna í heild — ég hugðist sýna fram á að timb- ur væri nánast óþarfur hlutur í byggingum yfirleitt og sömuleiðis steypa, nema í forsteyptum sökkl- um. Þar með teiknaði ég tilrauna- hús, sem af sparnaðarástæðum var þó aðeins 60 fermetrar að stærð. Fékk ég leyfi til að reisa það norð- austan við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins á Keldnaholti, að vísu ekki byggt úr þeim efnum sem ég hefði kosið, því í staðinn fyrir ál og plast varð ég að nota tré við þessa frumraun. En mælingar á eiginleikum aðferðarinnar feng- ust þarna og sýndu að allt gekk upp eins og ég hafði hugsað það. Tvennir útveggir Ég skal nú skýra nánar í hverju aðferðin er fólgin: Ál-prófílar eru notaðir í öll burðarvirki hússins o.fl. Gler kemur sem helsta klæðn- ing í útveggi, sem verða reistir í tvennu lagi. í ytri útveggjunum verður tvöfalt gler og er þar ytra byröið hert gler, sem þolir feikna mikið álag, en það innra t.d. venju- legt flotgler. Þá víkur sögunni að innri út- veggnum. Hann er hið minnsta í 30- 40 sentimetra fjarlægð fyrir innan ytri útvegginn og má vera allt að 2- 3 metra frá honum. Hann getur verið einfaldur eða tvöfaldur eftir smekk og má vera úr hvaða efni sem vera vill, tré, plasti, spónaplötum eða gleri. Innan hans tekur svo íbúðin sjálf við. Rétt er að taka fram að innri veggurinn leikur á rennibrautum í loftinu og má því aka honum til að vild og breyta þannig rúmtaki íbúðarinnar eftir hentugleikum og veðráttu. Blóma- og garðskáli Til þess að tengja saman álið og glerið í útveggjunum eru notaðir plastprófflar til að slíta kuldabrú í veggjunum. Svipaðir plastprófflar verða og uppistaðan í öllum öðrum byggingarhlutum — hurðum, lausum og föstum gluggum og lokuðum veggjum. (Ég bið lesendur að taka sérstak- lega eftir að bilið á milli útveggj- anna er til margra hluta nytsam- legt, t.d. getur það nýst sem blóma- og garðskáli ef vill.) Þrefalt plast verður látið yfir þak og þar yf- ir bárujárn eða báruplast, glært eða litað. Rétt er og að geta þess hér að sá hluti glers í ytri útvegg sem ekki gegnir hlutverki glugga, er fóðraður með litsterkum dúk eða öðru hentugu efni. Plötur úr einhverju ákjósanlegu efni eru látnar í loft og gólf ásamt einangrun. Milliveggir skulu vera úr eldtraustum plötum, sérstak- lega fræstum og settum saman með gúmmítengdum krækjum til að koma í veg fyrir hljóðburð um vegginn og húsið. Engin venjuleg grind er sett upp fyrir milliveggina en í gúmmíið skrúfast einn eða tveir álstafir, sem aldrei snerta kiæðninguna sjálfa. Allt er þetta gert til að koma í veg fyrir hljóð- burð um húsið, enda reyndist hljóðeinangrun hússins afar góð. Þota gat flogið yfir án þess að heyrðist. YTRA GLER T || LITSTERKUR j DUKUR INNRA GLER 1 10 D 1 Umsögn rannsóknastofnunar Rannsóknastofnun byggingariðn- aðarins gerði nákvæmar mælingar á eiginleikum tilraunahússins og læt ég umsögn sérfræðinga hennar fylgja með hér, en þar fæst svarað spurningum eins og um loftræst- ingu: „I upphafi árs hóf Hafsteinn Ól- afsson að byggja tilraunahús norð- austan við rannsóknastofuskála Rannsóknastofu byggingariðnaðar- ins. Húsið er að því leyti nýjung að aðskilinn er veðurhjúpur og innri hólfun hússins þannig að óupphit- að rými myndast allt í kring um húsið. Húsið er því eins og Haf- steinn kallar það „tvöfalt hús“. Starfsmenn Rb hafa fylgdust með þessari byggingu stig af stigi á byggingartíma hennar. Byggingar- aðferðin er tæknilega séð rökrétt, enda með henni sameinaðir kostir loftræstrar útveggjaklæðningar og þörf nútímamannsins fyrir gler- skála við hús sitt sem virðist allal- geng í dag. Ljóst er að húsagerðin hefur ýmsa kosti fram yfir venjuleg hefð- bundin timburhús. í fyrsta lagi sparast að mestu smíði glugga og PLAST SOKKLAR

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.