Tíminn - 22.02.1992, Blaðsíða 8

Tíminn - 22.02.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn Laugardagur 22. febrúar 1992 Bjami Arason syngur lagiö Karen í sjónvarpssal í kvöld. Hvort lagið verður okkar framlag í Malmö kemur þá í Ijós. Tfmamynd Áml Bjama Undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður í beinni útsendingu sjónvarpsins í kvöld: Malmö? Garöar Cortes. Garðar Cortes, óperustjóri: „Éggatnú dillaö mér“ „Veistu það að ég hef voðalega lítið séð af því í ár, nema að ég sá eitt lag, Nei eða já. Það fannst mér bara nokkuð gott hjá þeim. Þetta eru góðar söngkonur sem söngluðu þetta og gerðu það fallega. Ég gæti nú samt ekki tippað á að það lag ynni úti í Svíþjóð. En ég gat dillað mér við þetta lag og fannst það skemmtilegt. Það kostar jú peninga að framleiða eitthvað sem vekur at- hygli og er gott, en mér finnst keppnin jákvæð og vera þess virði. Ég hef nú reyndar yfirleitt fylgst bet- ur með henni, en ég geri nú,“ sagði Garðar Cortes um söngvakeppnina í ár. -PS Ámi Johnsen. Ámi Johnsen alþingismaður: „Óvenju ómelódískt“ „Ég hef heyrt lögin einu sinni og mér líst best á lagið með Helgu Möller og Karli örvarssyni, Þú um þig frá þér til þín, og ég tippa á það til vinnings. Ég hef ekkert nema gott um keppnina að segja, en hins vegar finnst mér lögin vera óvenju slöpp núna og óvenju ómelódísk og flöL Mér hefur svo sem dottið í hug að senda lag í keppnina, en hef aldr- ei reynL Ég hef hugmyndir, en ég hef aldrei framkvæmt það,“ sagði Ámi Johnsen alþingismaður í sam- tali við Tímann. -PS í kvöld ráðast úrslit í undan- keppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og verður þá valið eitt lag sem verður framlag íslands í Malmö í Svíþjóð í vor. Bein útsending verður í Ríkis- sjónvarpinu og hefst hún klukk- an 20.40 og stendur yfir í tæpa tvo tíma. Alls keppa níu lög um hnossið og voru þau valin af sér- stakri dómnend, sem var skipuð þeim Jóni Ólafssyni, Magnúsi Einarssyni, Helgu Möller, Kristni Svavarssyni og Magnúsi Kjartanssyni, en fjölmörg lög voru send inn til hennar. Lögin níu hafa undanfarið verið kynnt í sjónvarpi og útvarpi. Alls eru þrettán flytjendur að lögunum níu, en tveir þeirra flytja tvö lög. Það eru þau Helga Möller og Karl Örvarsson. I íyrra voru full- trúar íslands þeir Stefán Hilm- arsson og Eyjólfur Kristjánsson. Þegar flutningi laganna níu er lokið munu níu dómnefndir, átta úr landshlutunum og ein skipuð sérfræðingum, taka lögin til athugunar og gefa þeim stig og er stigagjöfin eins og tíðkast í lokakeppninni, þ.e.a.s það lag sem hver dómnefnd telur best fær 12 stig, það næsta 10, þá 8 stig og síðan 7,6,5,4,3 og 2, þannig að öll lög fá stig í keppn- inni. Sérfræðingadómnefndin hefur þá sérstöðu að hún gefur aðeins einu lagi stig og það fær 16 stig, þannig að þar er eftir miklu að sækjast. Það kemur því í ljós í kvöld hvaða lag og flytj- andi verður okkar framlag í Mal- mö í vor. Tíminn fékk nokkra valin- kunna íslendinga til að spá í spilin, en þegar blaðamaður hafði samband við þá kom í ljós að áhugi á keppninni virðist vera dvínandi. Flestir viðmælanda höfðu ekki séð eða heyrt lögin og gátu því ekki dæmt um þau. Ummæli þeirra um lögin og keppnina sjálfa fara hér á eftir. -PS Valur Gunnarsson. Valur Gunnarsson, 16 ára gítarleik- ari hljómsveitarinnar Viral Infection: „Þetta eru hund- leiðinleg lög“ „Ég get nú ekkert sagt um lögin, því ég hef ekki heyrt þau. Ég ætla ekki að fylgjast með keppninni, því þetta eru svo leiðinleg lög. Ég horfði á keppnina þegar ég var yngri og þeg- ar ísland byrjaði að taka þátt, en nú finnst mér þetta tíma- og peninga- eyðsla og lögin hundleiðinleg. Lög sem eru samin bara til að vinna eru ekki góð. Þetta er voðalega „comm- ercialt" og ég ætla ekki að horfa á keppnina í kvöld," sagði Valur Gunnarsson, gítarleikar Viral In- fection, í samtali við Tímann. -PS Sigrún Magnúsdóttir. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi: „Líst vel á Nei eða já “ ,>lér leist vel á lagið sem Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva syngja, Nei eða Já, en það er svona að lítt athuguðu máli. Mér finnst sjálfsagt að taka þátt í keppninni og hún er hvatning til þeirra sem vinna við lagasmíðar og jafnvel hugsan- legur ávinningur. Það er samt ekki sami spenningurinn og var fyrst, en ég held að við eigum að vera með. Ég hreifst með þegar við vorum í fjórða sæti fyrir tveimur árum og það er eitthvað sem óneitanlega kætir mann. Þetta var meira mál meðan unglingur var á heimilinu. Ég kem ekki til með að fylgjast með keppninni í sjónvarpinu á morgun, en hingað til hefur það verið gert,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir í samtali við Tímann. -PS 2 2 Lög og flytjendur: Reykjavík Vesturland Vestfirðir Norðurland vesti Norðurland eysti Austurland Suðurland Reykjanes k_ ra O) c ■«6 *fc (0 Úrslit > 'E I.Eva: Amar Freyr Gunnarsson. 2. Karen: Bjarni Arason. 3. Þú um þig frá þér til þin: Karl Örvarsson og Helga Möller. 4. Þá mátt mig engu leyna: Margrét Eir Hjartardóttir. 5. Nótt sem dag: Gylfi Hilmarsson. 6. Ljósdimma nótt: Guðrún Gunnarsdóttir. 7. Mig dreymir: Björgvin Halldórsson. 8. Einfalt mál: Helga Möller og Karl Örvarsson. 9. Nei eöa já: Grétar Örvarsson, Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva Ármannsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.