Tíminn - 22.02.1992, Blaðsíða 17
Laugardagur 22. febrúar 1992
Tíminn 17
Þær hafa allar elsk-
að grimmdarseggi
í Berlín stendur Erich Mielke,
fyrrverandi yfirmaður austur-
þýsku leynilögreglunnar Stasi,
fyrir rétti, hrumt og gleymið
gamalmenni, 83 ára. Ákæran
sem hann verður að svara til
saka fyrir þykir fáránleg, þar sem
um er að ræða morð í Berlín á
árinu 1931. Konunni hans
Gertrud (84 ára) hefur orðið svo
mikið um að hún er búin að
skilja við hann og hefur aldrei
heimsótt hann í fangavistina og
ekki einu sinni svarað bréfum
hans. „Ég elskaði mann sem var
ekki sá sem hann þóttist vera og
var gift honum í 45 ár. Hann
laug alltaf að mér. Nú er allt um
seinan," segir hún.
í New York stendur guðfaðirinn
John Gotti (51 árs) fyrir rétti og
skortir þar líklega ekki á ákæru-
atriðin. Hann hefur eyðilagt líf
fjölda fólks með tilþrifamiklum
„atvinnurekstri“ (eiturlyfja-
braski, fjárhættuspili, vændi).
En kona hans Victoria, 48 ára,
stendur sem klettur við hlið
manns síns og segir hann ein-
staklega hlýjan og umhyggju-
saman fjölskylduföður sem dýrki
hana eins og heilaga veru. Er sú
mynd í samræmi við þá útgáfu af
guðfeðrum sem birtist í bíó-
myndum.
Yassir Arafat þykir ekki smáfríð-
ur maður og hefur ekki alltaf far-
ið með friði. Hann er orðinn 62ja
ára en hefur aldrei gifst fyrr en
nú að þær fréttir berast frá Tún-
is að hann hafi gengið að eiga 28
ára gamla stúlku, Suhad Táwil.
Og nú spyrja allir hvað komi til
að svo fríð og ung kona sé tilleið-
anleg að giftast byltingarforingj-
anum. Svarið er einfalt. Hún
kom til starfa á skrifstofu hans
sem fjármálaráðgjafi og fylgdist
full aðdáunar með honum og
störfum hans. Það þurfti ekki
meira til.
Saijida Hussein er kona fraks-
forseta, Saddams Hussein. Hún
er 56 ára en hann 59. f þeirra til-
felli var ekki um ástarbrúðkaup
að ræða, heldur var því ráðstafað
þegar þau voru á barnsaldri að
múslimskum sið. Sagt er að Saij-
ida sé einhver óhamingjusam-
asta kona veraldar, enda heldur
maður hennar óspart fram hjá
henni. Skilnaður er þó óhugs-
andi og hefði í för með sér bráð-
an bana hennar.
Magdalena Kopp, sem er áætluð
um fertugt, heldur tryggð við
hryðjuverkamanninn Carlos,
hvað sem á gengur. Hún hefur
hrifist svo af lifnaðarháttum
þessara samviskulausu morð-
ingja að hún hefur gerst fylgi-
fiskur þeirra hvers á fætur öðr-
um. Hún hefur því áunnið sér
hylli aðdáenda þeirra og er næst-
um því eins dáð á þeirra slóðum
(Damaskus, eyðimörkin) og
kvikmyndastjarnan Julia Ro-
berts annars staðar.
Elizabeth Maxwell (72 ára) er
ekkja blaðakóngsins Roberts
Maxwell sem hlaut dularfullan
dauðdaga á síðasta ári. Hún var
álitin hefðarkona fram í fingur-
góma þó að maður hennar væri
umdeildur. Nú stendur hún uppi
slypp og snauð og maður hennar
rúinn ærunni. Hún segir það
Gertrud Mielke hefur sagt
skiliö viö mann sinn, Erich
Mielke, sem var yfirmaöur
Stasi.
Victoria Gotti stendur viö
hliö manns síns, guöfööur-
ins Johns Gotti.
Suhad Tawil-Arafat er ný-
gift PLO foringjanum Yass-
irArafat.
Saijida Hussein lifir f óham-
ingjusömu hjónabandi
meö haröstjóranum Sadd-
am Hussein.
ósk sem hann myndi uppfylla.
Ósk hennar var hjónaband og
enn þann dag í dag álítur Saviva
mann sinn í fararbroddi þeirra
sem berjast fyrir friði í heimin-
um.
Sarah Amin er 36 ára og var um
skeið eftirlætiskonan í kvenna-
búri Idi Amin, hins illræmda
einræðisherra í Uganda sem ber
ábyrgð á dauða 300.000 manna.
Hann er nú 62 ára og lifir í út-
legð. Þau skildu að skiptum 1983
og hún býr nú í Þýskalandi. Þeg-
ar Sarah, sem kemur úr bláfá-
tækri fjölskyldu, er spurð að því
hvort hún hafi verið hamingju-
söm í hjónabandinu með þessu
skrímsli, svarar hún: Já, hann
tók mig með hvert sem hann fór,
jafnvel á fund Elísabetar drottn-
ingarl"
Magdalena Kopp elskar
hryðjuverkamenn. Nú er
hún I slagtogi meö hinum
alræmda Carlosi.
Elisabeth Maxwell finnst
maöur sinn, Robert Max-
well, hafa blekkt sig.
Saviva Gaddafi trúir því að
maöur sinn, Muhammar-el-
Gaddafi, sé aö berjast fyrir
friöi.
Sarah Amin skildi viö Idi
Amin eftir aö búiö var aö
koma honum frá völdum I
Úganda.
ekki verst að vera nú peninga-
laus, hitt sé miklu verra að hún
skuli hafa eytt lífinu með manni
sem hún hafi í rauninni ekki
þekkt. Það er beisk minning
aldraðrar og einmana konu.
Saviva Gaddafi er 47 ára eigin-
kona Muhammars-el-Gaddafi,
hins 49 ára einræðisherra í Lí-
býu. Þeirra ástarævintýri á sér
rómantískt upphaf. Hjúkrunar-
fræðingur hlúði með nærgætni
að særðum byltingarmanni þar
til hann komst til heilsu á ný. Að
launum bauð hann henni eina