Tíminn - 22.02.1992, Síða 9
Laugardagur 22. febrúar 1991
Tíminn 9
Ragnar Reykás:
„Leggst
vel í mig
s ' lí
i ar
Það er ekki spuming að Júóvisjón
leggst vel f mig og ef eitthvað er þá
er keppnin á uppleið. Þetta er svo
sannarlega hið besta sjónvarpsefni.
Auðvitað verður Stöðin með í
keppninni og til öryggis tippa ég á
okkar lag í fyrstu þrjú saetin," sagði
Ragnar Reykás, sem var óvenju
ákveðinn þegar Tíminn náði tali af
Ragnar Reykás.
Ragna Bjarnadóttir, eiginkona menntamálaráðhenra:
Mér finnst Gleðibankinn
alltaf bráðskemmtilegur
,JMér finnst þessi lög svo voðalega
lík, en dóttir mín segir að Karen,
sem Bjarni Arason syngur, sé besta
lagið. Ég hef nú ekki hlustað á öll
Iögin þannig að ég hef ekki tilfinn-
ingu fydr því hvort lögin í ár séu
betri eða verri en áður. Mér fmnst
það sjálfsagt og hvetjandi að taka
þátt í þessu. Það verða til falleg lög í
keppninni og ég man eftir mörgum
fallegum lögum. Við bundum nú á
sínum tíma miklar vonir við Gleði-
bankann, sem við sendum fyrst, og
mér finnst það alltaf skemmtilegt
lag. Ég mun áreiðanlega fylgjast
með keppninni í kvöld, því við erum
vön að gera það,“ sagði Ragna
Bjarnadóttir í samtali við Tímann.
-PS
Sr. Pálmi Matthíasson.
Vantar Geirmundarsveiflu“
„Ég hef nú ekki fylgst með keppn-
inni í ár, en mér fannst nú þrjú lög
svona Júróvision-leg. Ég var að mála
og heyrði lögin með öðru eyranu,
þannig að dómurinn er ekki alvar-
legur. Mér finnst vanta einhvern
neista í þetta núna og það er ekkert
lag sem heillaði mig alveg upp úr
skónum við það fyrsta. Ég vil hafa
þessi lög svolítið Geirmundarleg,
dálitla sveiflu og ég sakna þess alltaf
að Lífsdans Geirmundar var ekki
sendur út á sínum tíma. Ég er viss
um að hann hefði lifað ágætu lífi
þama. Mér finnst þessi keppni
dægradvöl, sem ég verð að játa að ég
hef gaman af. Hins vegar set ég
spurningarmerki við atkvæða-
greiðsluna og finnst hún oft dálítið
dularfull þegar til kemur. Almenn-
ingur verður að fá að velja meira,"
sagði Pálmi Matthíasson í samtali
við Tímann. Pálmi spáði um röð
fjögurra efstu laganna og fer hún
hér á eftir.
1. Nei eða Já, Grétar Örvarsson, Sig-
ríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva
Ármannsdóttir.
Sr. Pálmi Matthíasson.
2. ÞÚ um þig frá þér til þín, Karl Örv-
arsson og Helga Möller.
3. Ljósdimma nótt, Guðrún Gunn-
arsdóttir.
4. Þú mátt mig engu leyna, Margrét
Eir Hjartardóttir. -PS
Orn Óskarsson hljómsveitarstjóri:
„Það er ekki verið
að búa til
,JMín skoðun á'ísöngvakeppninni er
sú að hún er mjög af hinu góða og
alls staðar leynast gullkornin, burt-
séð frá því hvers konar tónlist við er-
um að hlusta á eða fremja. Menn
verða bara að átta sig á því að þarna
er verið að búa til eitthvað sem er
notað til daglegs brúks, það er ekki
verið að búa til spariföt og ef menn
taka því sem slíku er það mjög gott.
En ég er ekki fær um að dæma öll
þessi lög, því ég hef ekki heyrt þau
öll. Ég heyrði og sá lagið Nei eða já,
þar sem tvær stúlkur syngja. Þar
fannst mér ABBA komið og endur-
fætt og ég ætla að vona að þær
vinni. Þær voru fínar og þetta var
ágætt hjá þeim. Ég held að þetta sé
ágætt allt saman. Þetta er á hinn
bóginn ekki orðinn fastur punktur,
þettá er lumma og mjög „comm-
ercial", þannig að þetta á ekki eftir
að vera langlíft, því trúi ég ekki. Það
kemur eitthvað nýtt í staðinn og
fólk fær leið á þessu," sagði Örn
spariföt“
Örn Óskarsson.
Óskarsson hljómsveitarstjóri í sam-
tali við Tímann.
-PS
ÞAÐ VAR MIKIÐ UM DÝRÐIR í Perlunni síðastliðinn fimmtudag þegar Hekla hf. kynnti spán-
nýtt módel af Volkswagen Golf. Nýi Golfinn er nokkuð stærri en sá gamli og jafnframt aflmeiri, en
hann var fýrir skömmu kosinn bíll ársins 1992 í Evrópu. í leiðinni var haldið upp á 40 ára afmæli Volks-
wagen á íslandi. Eins og sjá má var fjölmenni við athöfnina, en Hekla hf. bauð gestum upp á léttar veit-
ingar í tilefni dagsins. Meðal þeirra sem héldu ræður var þýski sendiherrann á íslandi, en sendiherra-
hjónin fengu við þetta tæifæri afhentan fyrsta nýja Golfinn frá Heklu.
FLUGLEIDIR
Aðalfundur
Flugleióa hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 19.
mars 1992 í Höfða, Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum
fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til
sýnis, 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfa-
deild á 2. hæð, frá og með 12. mars kl. 14:00. Dagana 13.
til 18. mars verða gögn afgreidd frá kl. 09:00 til 17:00 og á
fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna
sinna fyrir kl. 12:00 á fundardegi
Stjórn Flugleiða hf.