Tíminn - 22.02.1992, Síða 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI • BÍLAPARTASALA
Flugumýii 18D ■ Mosfellsbæ
Sfmar 668138 & 667387
AUÐV BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. MYND HJÁOKKU SÍMI 6 ITAÐ sbraut 12
R-BlLL HJÁÞÉR 79225
ÞJONUSTA
MÁLARAR
geta bætt við sig
málningarvinnu úti sem inni
Vönduð og góð vinnubrögð
Sími 670269
ÞÉTTING OG KLÆÐNING
Tínimn
LAUGARDAGUR 22. FEBR. 1992
Samstaða um óháð ísland telur EES- samninginn hafa versnað eftir nýjustu breytingar á honum:
[B-domstóllinn mun
hafa síðasta orðið
Stjóm Samstöðu um óháð ísland telur að í nýjustu útgáfu samningsins
um evrópskt efnahagssvæði (EES) hafi verið gengið langt til móts við
kröfur dómstóls Evrópubandalagsins. Stjómin telur að EB muni hafa
undirtökin á flestum sviðum EES. Bent er á að í flestum ríkjum EFTA,
nema íslandi, sé það viðurkennd skoðun að samningsstaðan nú sé mun
lakarí fyrír EPTA en síðastliðið haust.
Kristín Einarsdóttir, formaður
stjórnar Samstöðu, sagði engan
vafa leika á að þessi nýjasta útgáfa
EES- samningsins sé verri en fyrrí
niðurstöður. „Þessi niðurstaða er
áframhald af því undanhaldi sem
verið hefur af hálfu EFTA allan
samningstímann. Það er greinilegt
hver hefur undirtökin í þessum
samskiptum," sagði Kristín. Hún
sagði að það þyrfti alls ekki að
koma á óvart þótt EFTA-ríkin
standi ekki hart gegn kröfum EB.
Flest þeirra séu á leiðinni inn í EB
og séu því reiðubúin til að fallast á
kröfur EB.
í sérstakri bókun með samningn-
um hafa EFTA-ríkin fallist á að
setja í lög sín ákvæði, sem fela í sér
að reglur EES-samningsins séu
æðri landslögum viðkomandi rík-
is, ef til árekstra kemur. Sé leitað
eftir úrskurði EB-dómstólsins
vegna deilumála verður niðurstaða
hans bindandi og endanleg. Ef
samningar takast ekki innan EES-
nefndarinnar og ekki er fallist á að
leita eftir úrskurði EB-dómstólsins
getur samningsaðili gripið til
gagnaðgerða og fellt hluta af
samningnum úr gildi. Kristín
sagði að íslensk stjórnvöld, sem
kynnt hafa þessa nýjustu útgáfu
EES-samningsins, hefðu látið hjá
líða að kynna þessar staðreyndir. í
stað EES-dómstóls sé þannig kom-
ið flókið kerfi til úrlausnar ágrein-
ingsmála, þar sem EB hafi undir-
tökin á flestum sviðum.
Kristín sagðist telja litlar líkur á
að EB-dómstólinn geri nokkrar at-
hugasemdir við efni samningsins
vegna þess að búið sé að fallast á
flestar athugasemdir hans. Hún
sagðist búast við að Alþingi fái
samninginn til meðferðar fljót-
lega.
Kristín sagði að ýmislegt í samn-
ingi íslands og EB um sjávarút-
vegsmál þurfi að skoða vel. Hún
sagði t.d. fráleitt að ísland geti fall-
ist á að EB geti fengið ný veiði-
svæði í íslenskri landhelgi ef
bandalagiö telji veiðarnar óhag-
kvæmar á þeim veiðisvæðum sem
tiltekin eru í samningnum. Atriði
þessa efnis er að finna í texta sem
hefur að geyma efnislega lýsingu á
væntanlegum fiskveiðisamningi.
Eiginlegur samningur hefur ekki
verið gerður enn. -EÓ
Svarfdælingar íhuga
byggingu sláturhúss
fyrir heimaslátrun
Borgarráð hefur samþykkt kaup á geymsluhúsnæði
við Vstastfg og segja það af skipulagsástæðum. Sig-
rún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokkslns:
Sé engin skipulags
L.'LS
Meiríhluti borgarráðs hefúr sam-
þykkt að Reykjavíkurborg kaupi
hús sem staðsett er á lóð nr. 5 við
Vitastíg, en um er að ræða gamalt
hús sem er t eigu Guðmundar Ág-
ústssonar, fyrrverandi alþingis-
manns. Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulitrúi Framsóknarflokks-
ins„ segir að það sé furðulegt að
þremur dögum eftir að gengið sé
frá fjárhagsáætiun Reykjavíkur-
borgar þar sem spamaður hafi ver-
ið lykilorðið, þá sé það ákveðið að
henda tæpum 16 milljónum í að
kaupa þetta hús.
Rök borgarráðs eru þau að það
geti fallist á þessi kaup af sldpu-
iagsástæðum. Húsið stendur við
austurenda Vitastígs, inni í porti,
sem notað er sem vöramóttaka
fyrir fyrirtæki sem hafa starfsemi
sína við Skúlagötu. Það hefur ver-
ið notað sem vörugeymsla og á ár-
um áður var þar til húsa kjö-
tvinnsla Kjötmiðstöðvarinnar. Sig-
rún bókað! á borgarráðsfundi að
hún gæti ekki fengið séð að af
skipulagsástæðum værí nauðsyn
að borgarsjóður leysti tð sín hús-
ið. „Sjáifstæðismenn nota það
sem rök að húsið sé fyrir skipu-
lagi, en ég get ekki með nokkru
móti séð að svo sé, því að Vitastíg-
urinn endar inni í vöruafgreiðsiu-
porti og húsið er því ekkert fyrir og
það hafa aldrei komið upp vanda-
mál vegna staðsetningar hússins.
Það er furðulegt að þremur dögum
eftir að við erum að klára fjárhags-
áætlun þar sem tekist er á um
hveija króna og ákveðin var niður-
skurður til skóla og dagvistunar-
máJa, þá er ekkert mál að fleygja í
þetta hús 15,5 milijónum,“ sagði
Sigrún Magnúsdóttir í samtali við
Tímann. Hún ítrekaði að hún gæti
ekki séð nauðsynma á þessu og að
hún hefði ýmsar efasemdir um
hvað væri að gerast með þessum
húsakaupum. Sigrún sagði það
ætlun borgarinnar að nota húsið
um sinn og í bókun borgarráðs
kemur fram að það sé nauðsyn að
það sé notað sem geymsluhúsnæði
fyrir hinar ýmsu stofnanir Reykja-
vtkurborgar. Sigrún bendir á að til
séu skýrslur og töhir sem sanna
það að í borginni sé til nóg af
ónýttu geymsluhúsnæði, sem værí
margfalt hentugra en þetta hús.
Þess utan væri þess ekki getíð £
fjárhagsáætlun að skortur væri á
geymsluhúsnæði og ef svo væri
hægt að leigja siíkt húsnæði á
„spottprís". -PS
Svarfdælingar eru þessa dagana að
kanna möguleika á að koma sér upp
sláturaðstöðu á heimaslóðum.
Hugmyndin er að geta í það
minnsta sinnt heimaslátrun þar, en
einnig er inni í myndinni að koma á
fót löggiltu sláturhúsi, í stað þess
að flytja hvem einasta gríp til Akur-
eyrar. Þríggja manna nefnd vinnur
að undirbúningi málsins þessa dag-
ana, og er m.a. verið að svipast um
eftir hentugu húsnæði og kanna
hvort einhver væri fáanlegur til að
setja upp kjötvinnslu á svæðinu.
Að sögn Jóns Þórarinssonar á Hær-
ingsstöðum, eins nefndarmanna, er
forsaga málsins sú að á meðan Slát-
urhúsið á Dalvík var starfrækt
þekktist heimaslátrun varla, en eftir
að flytja þurfti öll afsláttardýr til Ak-
ureyrar fóru menn að slátra heima
til heimilisbrúks. Um síðustu ára-
mót var Ræktunarsamband Svarf-
dæla lagt niður og lögum sam-
kvæmt eiga eignir félagsins, um 3
milljónir króna, að renna til búnað-
arfélaganna á Dalvík og í Svarfaðar-
dal. Á lokafundi Ræktunarsam-
bandsins kom upp sú hugmynd að
peningunum skyldi varið til upp-
byggingar sláturaðstöðu hér í okkar
heimabyggð. Þriggja manna nefnd
var skipuð og er henni ætlað að
kanna alla möguleika og leggja fýrir
aðalfundi búnaðarfélaganna, sem
taka endanlega ákvörðun um hvort í
þetta veröur ráðist. Aðalfundir félag-
anna vepða um mánaðamótin
mars/apríl nk.
Jón sagði að eftir væri að leyta sam-
þykkis í landbúnaðarráðuneytinu,
en sagðist jafnframt trúaður á að
grænt ljós kæmi þaðan. Jón sagði að
meginmarkmiðið hefði verið að
koma upp sómasamlegri sláturað-
stöðu vegna heimaslátrunar, í stað
þess að menn væru að þvælast við
þetta út um öll tún. En um leið og
auglýst var eftir hugmyndum, fóru
almennir neytendur að hafa sam-
band og lýstu áhuga á að í Svarfaðar-
dal kæmi löglegt siáturhús, og töldu
það ekki síöur þjóna hagsmunum
neytenda en bænda.
hiá-akureyri.