Tíminn - 18.03.1992, Page 1
I-
ÉurannB
Miðvikudagur
18. mars 1992
55. tbl. 76. árg.
VERÐ I LAUSASÖLll
KR. 110.-
Þeir byggja og byggja
og byggja upp vandann
.Ástandinu á fasteignamarkaðin-
um má í stuttu máli lýsa á þann
veg að framboð íbúða er töluvert
meira en nemur eftirspum. Á
þetta jafnt við um notaðar íbúðir
og nýjar,“ sagði Þórólfur Halldórs-
son, formaður Pélags fasteigna-
sala. í slíku ástandi þurfi framleið-
andi vörunnar, hvort sem hún
heitir gosdrykkur, lambakjöt, tölva
eða íbúð, að laga sig að markaðn-
um, því markaðurinn lagi sig ekki
að framleiðandanum. Ríkjandi við-
horf byggingarmanna segir Þórólf-
ur hins vegar það að byggja og
byggja — og halda áfram að byggja
hvað sem öllum markaðslögmál-
um líður. Vandi byggingarmanna
sé hreint sjálfskaparvíti. Bygging-
ariðnaðurinn þurfi að undirgang-
ast allsherjar naflaskoðun.
Á ráðstefnu Meistara- og verktaka-
sambands byggingarmanna í gær
ræddi Þórólfur um: Hvers vegna
seljast nýjar íbúðir illa?
„Vandi byggingariðnaðarins stafar
ekki af því að ríkjandi húsnæðis-
lánakerfi sé andstætt byggingariðn-
aði, hann stafar ekki af því að eldra
íbúðarhúsnæði er fjármagnað eða
endurfjármagnað með lánum úr
opinberum sjóðum, hann stafar
ekki af því að bankar og lánastofn-
anir eru byggingariðnaðinum
fjandsamleg — vandi byggingar-
iðnaðarins er fyrst og fremst
heimatilbúinn vandi.
„Ríkjandi viðhorf byggingar-
manna er það að byggja og byggja.
Það verður að halda áfram að
byggja svo menn hafi eitthvað að
gera og missi ekki vinnuna. En
hversu lengi er hægt að halda
áfram með þessum hætti? Það er
deginum ljósara að ef ekki er mark-
aður fyrir hendi þá komast menn á
endanum í þrot.“ Meðan íbúðirnar
seljast ekki hlaða þær á sig fjár-
magnskostnaði sem étur upp hagn-
aðinn sem þá breytist í tap nema
verðið sé hækkað, en á hærra verði
seljast íbúðirnar vitaskuld enn síð-
ur.
„Hverju er um að kenna? Svarið er
byggingarmönnum sjálfum — það
verður engum öðrum um kennt,
þetta er hreint sjálfskaparvíti. Eng-
inn hefur hvatt byggingariðnaðinn
til að byggja svona mikið, ekki op-
inberir aðilar, ekki einkaaðilar, ekki
bankar eða lánastofnanir og allra
síst markaðurinn sjálfur, sem
reyndar er tæpast fyrir hendi."
Byggingariðnaðurinn þarf að und-
irgangast allsherjar naflaskoðun,
skilgreina vandann sem við er að
glíma og finna leiðir til úrbóta.
Þórólfur fjallaði því næst um
nauðsyn þess að byggingaraðilar
vandi undirbúning framkvæmda.
Það gangi ekki lengur að treysta
bara á guð og lukkuna. Kröfur
neytenda séu að breytast. Kaupend-
ur muni ekki til frambúðar sætta
sig við að kaupa íbúð á einhverju
illa skilgreindu byggingarstigi út á
fögur loforð um útlit. Ætla má að
ræða Þórólfs hafi verið mörgum
byggingarmanninum, bæði iðnað-
armönnum og verktökum, erfiður
biti að kyngja.
í lokin bað hann ráðstefnugesti að
setja sig í spor ungra hjóna með
barn, sem fengið hafi greiðslumat
er leyfi þeim kaup á 6,5 milljóna kr.
íbúð. „Hvort munduð þið gera,
kaupa nýja tveggja herbergja íbúð á
6,5 milljónir eða notaða þriggja
herbergja íbúð í góðu ástandi á
sama verði?“ - HEI
Fjölmargír gestlr litu við á Tímanum f gær og fengu sér sneið af afmæliskökunní, en blaöið fagnaðl 75 ára afmæli. Hér má sjá nokkr-
ar framsóknarkonur ná sér f kökusneið, f.v. Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður, Elín Líndal varaþingmaður, Ásta Ragnheíður Jó-
hannesdóttir varaþíngmaður og Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður. Bak við þær má sjá Siv Friðleifsdóttur, formann SUF, og Guð-
mund Bjamason alþingismann. Sjá einnig myndir á bls. 7 Tímamynd Áml Bjama
Guðmundur Þórsson matreiðslumaður:
„GÓD REYNSLA AF
GALLOWAYKJÖTINU"
„Bæði ég og kjötiðnaðarmennirn-
ir sem ég skipti við vorum sam-
mála um að þetta kjöt væri frábært
í alla staði. Mín reynsla af þessu
kjöti er mjög góð,“ segir Guð-
mundur Þórsson, matreiðslumað-
ur hjá Grillhúsi Guðmundar í
Tryggvagötu, en hann hefur fengið
til reynslu gallowaykjöt frá Sól-
heimabúinu.
Kjötið hefur einnig verið notað á
Hardrock Café og veitingahúsinu
Ömmu Lú. Aðspurður hver sé
munurinn segir Guðmundur: „Öll
fitusprenging í gallowaykjötinu
finnst mér vera miklu betri en í því
íslenska, það er mun holdmeira og
skrokkarnir eru þyngri. Fitan utan
á skrokknum er minni og vöðvarn-
ir stærri, þannig að við fáum
miklu skemmtilegra hráefni úr
þessum holdanautum en íslenska
stofninum. -ÁG.
Sjá einnig bls. 3
Guðmundur Þórsson matreiðslumaður
Framboð bæði notaðra og nýrra íbúða töluvert meira en eftirspurn, segir Þórólfur Halldórsson fasteignasali;