Tíminn - 18.03.1992, Síða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 18. mars 1992
Andstaða gegn EB
vex á Norðurlöndum
Fyrir skömmu var haldinn í Helsinki í Finnlandi samráðsfundur
sem vinna gegn aðiid Norðurlanda að Evrópubandalaginu. Af ís-
lands hálfu sátu fundinn alþingismennirnir Hjörleifur Guttorms-
son og Kristín Einarsdóttir, formaður Samstöðu um óháð ísland. Á
fundinum var farið yfir framtíð norræns samstarfs og vaxandi and-
stöðu við aðild Norðurlandanna að Evrópsku efnahagssvæði og Evr-
ópubandalaginu.
í fréttatilkynningu frá stjóm Sam-
slaðu segir að andstaða gegn aðild
landanna að hinu breytta Evrópu-
nandalagi fari vaxandi. í Finnlandi
vanti Iítið á að til staðar sé sá þriðj-
ungur sem stöðvað geti aðild Finn-
lands að EB, en 64 af 200 þingmönn-
um haia lýst eindreginni andstöðu
við umsókn um aðild og margir eru
sagðir óákveðnir í afstöðu sinni. Inn-
an finnska Miðflokksins studdi að-
eins naumur meirihluti þá stefnu
Esko Aho, forsætisráðherra og for-
manns flokksins, að sækja um aðild
(29 með en 24 á móti). Hin harða
andstaða í Noregi er einnig vel þekkt
og vaxandi. f Danmörku eykst and-
staðan gegn Maastricht-samkomu-
laginu. í nýlegri skoðanakönnun
kom fram að aðeins þriðjungur kjós-
enda styður samkomulagið. Þjóðar-
atkvæðagreiðsla verður um sam-
komulagið 2. júní næstkomandi.
í yfirlýsingu frá fundinum er lýst
áhyggjum yfir að nú stefnir í að
Norðurlandaráð verði aðeins nor-
rænt útibú í Briissel. Lögð er áhersla
á að umræðan um aðild einstakra
ríkja að Evrópubandalaginu fari
fram á röngum forsendum. Það sé
ekki um að ræða aðild að bandalag-
inu eins og það er nú, heldur innlim-
un í sambandsríki, þar sem löggjaf-
arvaldið flyst til Brússel. Það er bar-
áttumál samtakanna að Norðurlönd-
in öll hafni aðild að „EB- Unionen",
hinu verðandi Evrópusamveldi.
Akueyri
Bylgja YE afhent
í Slippstöðinni
Fékk græn-
lenska rækju-
vörpu í vörpuna
í síðasta mánuði fékk Freyja RE 38
rækjuvörpu í vörpuna þegar skipið
var að veiðum út af Öndverðamesi.
Siglingamálastofnun ríkisins fékk
Jóhann Ásgeirsson netagerðar-
meistara hjá Seifi hf. til að mæla
vörpuna og telur hann öruggt að
rækjuvarpan sé ekki íslensk heldur
grænlensk að uppruna.
Um síðustu helgi var Matthíasi Ósk-
arssyni, útgerðarmanni og skip-
stjóra í Vestmannaeyjum, afhent
nýtt skip í Slippstöðinni á Akureyri.
Nýja skipið ber nafnið Bylgja VE 75
og er alfarið smíöað í Slippstöðinni á
Akureyri. Skipið bar vinnuheitið B-
70 og hefur um nokkurt skeið legið
við bryggju í Slippstööinni án þess
að kaupandi fyndist.
Samningur um kaupin var undirrit-
aður í október sl. Kaupverð skipsins
er um 300 milljónir króna, þar af var
eldra skip með sama nafni tekið upp í
á um 60 milljónir. Ljóst er að Slipp-
stöðin tapar verulega á skipinu, þar
sem kostnaður vegna þess er kominn
í ríflega hálfan milljarð króna. Einnig
telja margir að verð gömlu Bylgjunn-
ar hafi verið ofreiknað. Samkvæmt
heimildum Tímans munu þó Slipp-
stöðvarmenn hafa lagt allt kapp á að
losna við skipið nú þar sem endur-
skipulagning á starfsemi stöðvarinn-
ar stendur yfír og nýsmíðaskipið hef-
ur safnað á sig miklum skuldum í
formi dráttarvaxta af lánum.
Bylgja Ve 75 er 277 rúmlestir að
stærð, 33,4 m langt og 8,6 m breitt.
íbúðarrými er fyrir 18 manns í
tveggja og fjögurra manna klefum.
Lest skipsins er 260 rúmmetrar að
stærð, einangruð fyrir frystingu.
Tækjabúnaður skipsins er allur mjög
fullkominn. M.a. er það búið full-
kominni flakavinnslu á bolfiski og
heilfrystingu á grálúðu og karfa.
Skipið fer til veiða fljótt eftir heim-
komuna til Vestmannaeyja.
hiá-akureyri.
Yelferð á
varanlegum
grunni hK”rt"ngdir
tryggingamálaráðherra,
Sighvats Björgvinssonar
á Suðurlandi.
Selfoss - miðvikudaginn 18. mars.
Almennur fundur um heilbrigðis- og tryggingamál
verður haldinn að Hótel Selfoss kl. 20.30.
Vestmannaeyjar - laugardaginn 21. mars.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 10-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 11088.
Almennur fundur í Bæjarleikhúsinu kl. 17.00
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Frá vinstri: Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi, Magnús L. Sveins-
son, formaður VR, og Lýður Bjömsson, sagnfræðingurog höfund-
ur ritsins um SÖgu VR. Tímamynd Ami BJama
100 ára saga
VR komin út
Gefín hefur verið út saga Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, en félagið
varð 100 ára 27. janúar 1991. Sag-
an er í þremur bindum. Höfundur
er Lýður Bjömsson sagnfræðingur.
Á bak við bókina liggur fjögurra ára
starf.
Saga VR skiptist í tvo meginþætti.
Fyrri hluti sögunnar, sem skráður er
í fyrsta bindinu, nær yfir tímabilið
1891 til 1955. Á þeim tíma var félag-
ið sameiginlegt félag launþega og
vinnuveitenda. Annað og þriðja
bindið ná yfir tímabilið 1955 til
1991, þegar félagið er einungis skip-
að launþegum. Þetta er fyrsta alvar-
Iega tilraunin til að fjalla um versl-
unarhætti í Reykjavík síðastliðna
öld. Vikið er að ýmsum þáttum í
menningarsögu, en verslunarfólk
hefur átt verulegan þátt í að kynna
og móta borgarmenningu á fslandi.
Víða hefur verið leitað fanga um
heimildir. Gögn VR hafa reynst
drýgst, gjörðabækur stjómar, félags-
funda og nefnda, ársskýrslur, reikn-
ingar, VR-blaðið og bréfasafn. Einnig
hefur verið leitað fanga í tímaritum,
dagblöðum og pésum af ýmsu tagi.
Munnlegar heimildir hafa einnig
reynst mikilvægar, enda muna ýmsir
starf VR síðustu áratugi.
Fjöldi mynda prýðir bókina. Útgef-
andi er Vaka-Helgafell, en prent-
smiðjan Oddi annaðist prentun.
-EÓ
Slysavamafélag íslands:
LÍFLYKILLINN
TIL LÍFGUNAR
Slysavamafélag íslands hefur nú
byrjað að dreifa og selja svokallaðan
líflykil. Líflykillinn er lyklakippa
með áfostu plasthylki. í hylkinu er
hlífðargríma sem notuð er þegar
beita þarf blástursaðferð við að lífga
úr dauöadái.
Hlífðargríman er sett yfir vit sjúk-
lings og öndunarstútur í munninn.
Sá sem beitir blástursaðferðinni
snertir ekki varir sjúklingsins og
þannig dregur úr sýkingarhættu.
Blástursaðferðin verður þrifalegri
þar sem hvers konar uppgangur úr
sjúklingi fer ekki í andlit björgunar-
manns.
Hlífðargrímur sem þessar — líf-
lyklarnir — hafa náð talsverðri út-
breiðslu erlendis, sérlega þar sem
ótti manna við eyðnismit er mikill.
Slysavarnafélagið mun næstu daga
og vikur selja líflykilinn víða um
land og kynna notkun hlífðargrím-
unnar rækilega.
Líflykillinn verður seldur á 500 kr
og hugsanlegum hagnaði af sölu
hans verður varið til þess að efla
björgunarsveitir og slysavarnir.
Grunnskóla-
myndlist
Grunnskólanemendur sem komu í
Listasafn Islands í gær til að skoða
sýningu á verkum Finns Jónssonar
fengu í eins konar kaupbæti tón-
leika rússneska píanóleikarans Al-
exanders Makarovs sem iék verk
eftir Beethoven, Chopin, Rachman-
inoff og Gershwin.
Hópar grunnskólanemenda koma
daglega í söfn ríkisins; Listasafn ís-
lands, Safn Ásgríms Jónssonar og
Listasafn Einars Jónssonar og skoða
þau undir leiðsögn safnakennara. Á
þessu skólaári hafa sýningar verið
mjög fjölbreyttar og við hæfi allra
aldurshópa.
—sá.