Tíminn - 18.03.1992, Síða 3
Miðvikudagur 18. mars 1992
Tíminn 3
Kári Marísson, bóndi í Sólheimum í Blönduhlíð, hefur samið um að viðhalda hreinleika holdanautastofnsins í Hrísey:
Galloway genabankinn
verður í Skagafirði!
Gengið hefur verið frá því að galloway holdanautastofninn verði varð-
veittur á bænum Sólheimum í Blönduhlíð í Skagafirði. Fyrstu hrein-
ræktuðu holdanautakálfarnir fæðast þar í vor, en ábúandinn Kári Mar-
ísson hefur ræktað þennan stofn í meira en áratug. Hann keyrir sitt
kjöt beint og milliliðalaust til neytenda og fullyrðir að hann geti lækkað
Iqötverð um tugi prósenta fái hann leyfi til þess að reisa sláturhús og
slátra sjálfur undir eftirliti dýralæknis.
,JÉg byrjaði á ræktuninni árið 1981,
en þá komu fyrstu blendingskýmgar
hingað,“ segir Kári. Síðan þá hef ég
ræktað upp þennan stofn með því að
láta sæða kýmar með því sæði sem
hefur haft sterkastan erfðavísi hverju
sinni. Smátt og smátt hef ég náð stofti-
inum hreinni og hreinni og núna í vor
fæðast kálfar sem em nánast hrein-
ræktaðir, eða 95-97% galloway, en 5-
7% íslenskir."
Lítið verið hugað að því
að tryggja framtíð
stofnsins
Kynbætumar hafa farið hljótt hjá
Kára og hann hafði til dæmis ekki
samband við Búnaðarfélag íslands fyrr
en 5 ámm eftir að hann hóf þær. Þeg-
ar ráðunautur frá Búnaðarfélaginu fór
norður og tók ræktunina út kom í ljós
að Kári var einungis nokkmm skref-
um á eftir kynbótastöðinni í Hrísey
hvað hreinleika stofnsins varðaði. Það
kom því í nokkuð rökréttu framhaldi
af þeim árangri sem hafði náðst, að
Kára var falið að varðveita galloway-
stofninn nú þegar ræktun hans lýkur í
Hrísey í sumar.
„Einhvem tíma hefði komið að því að
stöðin í Hrísey hefði lokið hreinrækun
á stofninum," segir Kári. ,Jín til þess
að hægt væri að ljúka verkefninu varð
að koma gripunum hreinræktuðum í
land og það hefur ekkert verið unnið
að því.“
Kári Marísson verður trúlega ekki
eini aðilinn sem kemur til með að
geyma gallowaystofninn. Með hliðsjón
af sjúkdómahættu og öðmm áhættu-
þáttum verður hann að vera til annars
staðar hreinræktaður og nú er verið að
athuga möguleika á að gallowaykynið
verði einnig staðsett á tilraunabúinu á
Möðruvöllum í Hörgárdal.
Holdanautin eru
hagkvæmari
Þeirri gagniýni, sem sett hefúr verið
fram á gallowaykjötið að undanfömu
vísar Kári á bug. Hann fullyrðir að
bragðgæði kjötsins ráðist fyrst og
fremst af því hvemig fóður gripimir fá.
Bragðið af kjötinu af alíslensku nauti
og gallowaynauti sé það sama, ef þau
em alin upp á sama fóðri við sömu að-
stæður. Kjötvöðvinn er grófari, en það
breytir ekki gæðum hans að öðm leyti.
Kári fullyrðir að hann nái bæði hærra
kjöthlutfalli af gallowaygripunum
miðað við fallþunga og einnig séu
gripimir þyngri en íslenski stofriinn.
Þetta rökstyður hann með saman-
Kári Marísson meðal gripanna í einni af lausagöngustíunum. Hann segir aö þessi gripir séu ekki illir
í sér, enda er ekki annað að sjá en vel fari á með honum og nautunum.
Kýr af gallowaykyni með kálf, en kálfarnir ganga undir allt sumarið.
burðartilraunum sem hann hefur
sjálfúr gert.
í dag er Kári með um 100 gripi á húsi.
Hann réðst í það fyrir nokkmm ámm
að byggja sérstakt lausagöngufjós fyrir
ræktunina, en hann er eingöngu með
nautgripi til kjötframleiðslu og lætur
kálfana ganga undir kúnum fyrsta
sumarið. Seinna sumarið er kálfunum
ekki sleppt út, heldur em þeir aldir
inni og grænfóðrinu keyrt í þá beint af
túninu.
Keyrir kjötiö út til
kaupenda
Sólheimabúið hefur farið ótroðnar
slóðir víðar en í ræktuninni. Kári selur
allt sitt kjöt sjálfur og keyrir það heim
til kaupenda, eftir að hafa látið með-
höndla það samkvæmt óskum þeirra.
Hann lætur slátra gripunum í löggiltu
sláturhúsi, en tekur síðan allt kjötið út
og lætur kjötvinnslu vinna það fyrir
sig áður en hann keyrir það út Hingað
til hafa viðskiptavinir hans aðallega
verið íjölskyldur, en hann hefur í
seinni tíð selt í auknum mæli til veit-
ingahúsa. Þetta fyrirkomulag er full-
komlega Iöglegt og Kári telur aðalkost
þess vera nánari tengsl á milli bóndans
og neytandans, sem hann segir skotra
tilfínnanlega í íslenskum landbúnaði í
dag.
Þrátt fyrir að hann geti með þessu fyr-
irkomulagi, þ.e.a.s. með því að sleppa
milliliðum á milli framleiðanda og
neytenda, boðið kjötið á lægra verði,
telur hann sig geta gert enn betur.
Þannig segist hann geta lækkað kjöt-
verðið um einhverja tugi prósenta,
fengi hann að reisa eigið sláturhús og
slátra gripunum sjálfúr undir eftírliti
dýralæknis. -ÁG.
Framkvæmdasjóður er ekki lengur til, en allaballar vilja útskýringar á bókhaldi hans síðustu misserin:
RÍKISENDURSKODUN Á
AÐ SKÝRA MÁL Sin
Málflutningur fór fram fyrlr
rétti í Osló í gær í máli því sem
samtök Grænfriðunga hafa
höfðað þar gegn Magnúsi Guð-
mundssyni kvikmyndagerðar-
manni vegna myndarinnar Ufs-
björg í Norðurhöfum.
f gaer voru sýndir þeir kaflar í
myndinni sem Grænfriðungar
telja að séu ærumeiðandi fyrir
samtök þeirra. Um er að ræða
sjö myndsketð og texti við þau
sem Grænfriðungar krefjast að
verði dæmd dauð og ómerk.
Grænfriðungar krefjast skaða-
bóta sem nema um þrem milij-
ónum ísl. kr. en Magnús Guð-
mundsson krefst sýknu. Hann
hefur jafnframt iagt fram iista
yflr fólk sem hann viU að beri
vitni fyrir réttinum. Þeirra á
meðai eru Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi sjávarútvegsráð-
berra, og Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra. —sá
Formaður Alþýðubandalagsins
hefur ítrekað ósk þingflokks síns
um að þingmenn fái skýrslu um
hvers vegna ríkisendurskoðun úr-
skurðaði Framkvæmdasjóð íslands
gjaldþrota, flmm mánuðum eftir að
Halldór V. Sigurðsson ríkisendur-
skoðandi kvittaði upp á ársreikning
sjóðsins. Sjóðurinn hefur verið
lagður niður með frumvarpi frá Al-
þingi en engin svör borist enn.
„Það eina sem hefur komið fram er
að í skýrslu „fortíaðarvandanefndar"
forsætisráðherra er vikið að því að
Ríkisendurskoðun hafi bent á að það
hafi verið skipt um ríkisstjórn, en
hvorki Alþingi né ríkisstórn geta
tekið slíka skýringu gilda," sagði Ól-
afur Ragnar í samtali við Tímann í
gær.
Ólafur Ragnar vildi ekki svara því
hvort ríkisendurskoðandi væri starfí
sínu vaxinn fyrr en skýrsla um málið
liggur fyrir. „Þetta er hins vegar afar
sérkennilegt og óvenjulegt mál og
má reyndar benda á að það hafa
komið upp fleiri slík mál á undan-
förnum misserum varðandi gagn-
rýni á störf ríkisendurskoðunar, þó
að þetta sé auðvitað það alvarleg-
asta."
Formaður Alþýðubandalagsins
sendi forseta Alþingis, Salóme Þor-
kelsdóttur, skriflega fyrirspurn
vegna málsins í gær. í bréfi Ólafs
Ragnars til þingforseta er áréttuð sú
ósk að Ríkisendurskoðun skili Al-
þingi skýrslu um ólíkar niurstöður
stofnunarinnar varðandi stöðu
Framkvæmdasjóðs íslands. Þessi
krafa var fyrst sett fram af þingflokki
Alþýðubandalagsins við atkvæða-
greiðslu um stjórnarfrumvarp, þess
efnis að Framkvæmdasjóður verði
lagður niður. Það frumvarp er lagt
fram í kjölfar skýrslu frá svokallaðri
„fortíðarvandanefnd" sem Davíð
Oddsson forsætisráðherra skipaði í
júní á síðasta ári til þess að fara yfír
fjárhag Byggðastofnunar og Fram-
kvæmdasjóðs. Hluti af þessari end-
urskoðun var skýrsla frá Ríkisendur-
skoðun um fjárhag Framkvæmda-
sjóðs. Sú skýrsla barst í ágúst 1991
og þar lýsir Ríkisendurskoðun því
yfir að sjóðurinn sé gjaldþrota og 1,7
milljarða vanti í afskriftasjóð Fram-
kvæmdasjóðs. Það sem vekur hins
vegar furðu er að einungis fimm
mánuuðum áður, í mars á sama ári,
staðfesti ríkisendurskoðandi, Hall-
dór V. Sigurðsson, ársreikninga
Framkvæmdasjóðs án nokkurra at-
hugasemda.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Alþýðuflokksins, sat sem fulltrúi
fjármálaráðherra í stjóm Fram-
lwæmdasjóðs 1989-1991. Hann
neitaði að undirrita ársreikninga
sjóðsins fyrir árið 1989, vegna þess
að ekki væri nógu mikið lagt fyrir í
afskriftasjóð. Össur skýrði frá því í
umræðum á Alþingi í desemþer að
hann hefði á sínum tíma spurt hvort
ríkisendurskoðandi hefði kynnt sér
reikninga sjóðsins með fullnægjandi
hætti og sér í lagi með hvaða hætti
afskriftir væm undirbúnar. Hann
fékk þau svör að ríkisendurskoðandi
hefði kynnt sér þetta mál og hann
teldi að með réttum hætti væri tekið
á afskriftasjóði Framkvæmdasjóðs.