Tíminn - 18.03.1992, Síða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 18. mars 1992
Erlendar
fréttir
„Skrýtið að geta ekki gengið um gólf neðri málstofunnar
framar," segir járnfrúin fyrrverandi:
Þingferli Thatcher
járnfrúar er lokið
Viðburðaríkum ferii Margrétar
Thatcher á breska þinginu lauk í
fyrradag og má segja að þáttaskil hafí
þar með orðið í breskum stjómmál-
um. Bretadrottning rauf þingið í
gær, þar sem þingkosningar verða í
landinu þann 9. aprfl.
rhatcher, sem nú er 66 ára að aldri
og löngum hefur verið nefnd lrJám-
frúirí', sagði að það væri undarleg til-
finning að verða ekki í framboði meir
eftir 32 ára þátttöku í stjómmálum.
„Það er skrýtið að geta ekki gengið
um gólf neðri málstofunnar framar...
mjög skrýtið," sagði hún.
Thatcher var forsætisráðherra á
tímabilinu 1979-1990, þegar upp-
reisn var gerð gegn einræðislegri
stjóm hennar í Ihaldsflokknum og
John Major var valinn í hennar stað.
í embætti kom hún á nánu sam-
bandi við Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta, sem var eindreginn frjáls-
hyggjumaður eins og hún, rýrði vald
bresku verkalýðsforystunnar og átti
sinn þátt í að binda enda á kalda stríð-
ið. Hún sagði í gær að mest mundi
hún sakna þeirrar „stórfenglegu til-
finningar" að vera stödd í sjálfri
miðju atburðanna.
Thatcher er kunnust 82 þing-
manna, er nú kveðja og ekki munu
vera í framboði meir. Annar er Nic-
holas Ridley, sem sagði sig úr ráðu-
neyti Thatchers eftir að hann hafði
látið hafa það eftir sér í tímariti að
Þjóðverjar hygðu á yfirráð í Evrópu
og að Frakkar væm kelturakkar
þeirra.
Önnur áberandi persóna, sem
kveður, er Sir John Stokes majór, sem
olli hneyksli er hann sagði fjölskyld-
um gísla í Persaflóastríðinu að hætta
að „væla og skæla". Hann hefur verið
uppnefndur „þingfúlltrúi 17. aldar-
innar". Þá kveður feitasti þingmaður-
inn, Sir Cyril Smith, en hann mun
þyngsti maður er á þinginu hefur set-
ið fyrr og síðar, vó nær 200 kíló.
Nú kveður og eidibrandurinn Mi-
chael Foot, en hann er nú 78 ára. Fo-
ot hóf þátttöku í stjómmálum 1945
og var foringi Verkamannaflokksins
Holger Schmidt passar ekki inn í
kerfíð, í það minnsta ekki hið
sænska. Nú hefur sænska útlend-
ingaeftirlitið ákveðið að afturkalla
dvalarieyfí hans og vísa honum úr
Iandi vegna of Iágra launa.
Það var fyrir fimm árum sem leið
Þjóðverjans Holgers Schmidt lá til
Svíþjóðar, nánar tiltekið til Lapp-
lands. Hann eyddi þar sumarleyfi
sínu og tók slfku ástfóstri við landið
og náttúmna að hann ákvað að setj-
ast þar að.
Að fengnu landvistar- og atvinnu-
leyfi festi Holger kaup á húsi með
smá landskika í kring og hóf að lifa
af landsins gæðum. A sumrin hefur
er flokkurinn beið hinn mikla ósigur
sinn fyrir íhaldsmönnum 1983. Þá
hverfur Denis Healy af þingi, sem eitt
sinn leiddi Verkamannaflokkinn.
Eini fyrrverandi forsætisráðherra
íhaldsmanna, sem áfram verður á
þingi, er Edward Héath. Hann er 75
ára og verður aldursforseti þingsins.
Undir hans stjóm gekk Bretland í
Evrópubandalagið, en hann mátti
víkja fyrir Thatcher 1975. Þá hverfur
þingforseti (speaker) neðri málstof-
unnar, Bemard Weatherill. Hann hef-
ur orðið heimsfrægur vegna sjón-
Holger ræktað grænmeti og kartöfl-
ur til eigin neyslu og til frekari bús-
drýginda gerir hann við sjónvarps-
tæki og tínir ber og selur.
Tekjurnar af þessari starfsemi hef-
ur numið um 200 þúsund ísl. kr. ár-
lega, sem er langt undir lágmarki.
Þrátt fyrir það hefur Holger ekki
þurft á styrkjum að halda af nokkm
tagi, og er að sögn nágranna sinna
hinn grandvarasti maður og vinsæll
meðal þeirra.
Slíkt telst hins vegar ekki til tekna
hjá yfirvöldum, sem hafa ákveðið að
vísa Holger Schmidt úr landi vegna
of lágra launa.
Mál þetta hefur vakið mjög mikla
Margaret Thatcher, fyrrv.
forsætisráðherra Bretlands.
varpsmynda þar sem hann sést
heimta „þögn í salnum", þegar heitt
hefur gerst í kolunum í umræðum.
Weatherill segist ætla að reyna að fá
keypta hárkolluna sem hann bar við
störf sín. Hana hyggst hann gefa syni
sínum, sem ætlar að gerast mála-
flutningsmaður.
athygli fjölmiðla í Svíþjóð og þykir
mörgum hér vegið að þeim sem síst
skyldi. Á sama tíma og Holger hinn
þýski hefur stundað sjálfsþurftabú-
skap í skógum Norður-Svíþjóðar
hefur fjöldi Norðurlandabúa flust til
landsins gagngert til þess að leggjast
upp á „sósíalinn", félagsmálastofnun
Svíþjóðar, að því er virðist. Ekki er
þó útséð um afdrif Holgers þessa
enn, þar sem m.a. Carl Bildt, forsæt-
isráðherra Svía, hefur tekið upp
hanskann fyrir hann. Hvort hins
vegar það kemur að haldi gegn skrif-
finnum útlendingaeftirlitsins, verð-
ur tíminn að leiða í Ijós.
—IVJ, Svíþjóð.
PRETORIA
F.W. de Klerk sagðist í gær
vera bjartsýnn á að hann fengi
stuðning við umbótastefnu
sína, en hann lagði hana í
dóm hvítra landa sinna í „þjóð-
ar“-atkvæðagreiðslu í gær.
Áður en kosningarnar hófust
létust fimm blökkumenn í upp-
þotum sem brutust út.
WASHINGTON
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði ( gær að sendur yrði
hópur sérfræðinga til ísraels til
að kanna hvað hæft væri í full-
yrðingum um að ísrael hafi
selt Kína, Suður-Afríku og öðr-
um ríkjum vopn og vopnabún-
að. Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins sagði að ísraelsk
stjórnvöld hafi samþykkt að
taka við sérfræðingahópnum.
TEL AVIV
Unglingsstúlka og karlmaður
voru stungin til bana af Palest-
ínuaraba frá hinu hertekna
Gazasvæði. Talsmaður ísra-
elsku lögreglunnar sagði að
árásarmaðurinn, sem tókst að
særa 12 manns til viðbótar,
hafi verið skotinn af lögregl-
unni og dáið skömmu síðar.
ISTANBUL
Tvær kraftmiklar sprengjur
sprungu í höfuðstöðvum lög-
reglunnar í Istanbul. Byggingin
skemmdist mikið og allir
gluggar brotnuðu. Fjölmargir
þeirra, sem inni í húsinu voru,
slösuðust illa.
MOSKVA
Varaforseti Rússlands, Alex-
ander Rutskoi, sagði í gær að
hersveitir Samveldisins ættu
að verða farnar frá þjóðemis-
átakasvæðunum í Kákasus og
Moldavíu eftir örfáar vikur.
Hann lýsti því yfir að hann
teldi að brottför Samveldis-
hersins frá þessum svæðum
ætti að verða snör og skilyrð-
islaus.
VORONOVO, Rússlandi
Harðlínukommúnistar, sem
bannað hafði verið að halda
fund í Sovéska þinginu í
Moskvu, söfnuðust í gær
saman í mjólkurframleiðslu-
þorpi og lýstu því yfir að
Sovétríkin hafi veriö endur-
reist. Það var lest sex rútubif-
reiða sem hélt áleiðis til þorps-
ins um 70 km frá Moskvu
snemma í gærmorgun og
hafði innanborðs fyrrum full-
trúa sovéska þingsins.
BONN
í dag hefur sjöunda herfylki
Bandaríkjahers brottför sína
frá Normandí, tæpri hálfri öld
eftir að það hernam landiö. (
herfylkinu eru um 73 þúsund
hermenn og búnaður þess var
m.a. notaður til að ráða niður-
lögum hersveita Saddams
Hussein í Flóabardaga.
Fáni herfylkisins verður í síð-
asta sinn dreginn að hún í
Stuttgart í dag, miðvikudag.
SEÚL
Norður- og Suður-Kórea
skiptust í gær á eintökum af
samkomulagi þarsem heimil-
að er gagnkvæmt eftirlit með
kjarnorkubúnaði landanna.
A morgun, fimmtudag, munu
löndin síðan senda eintök
samninganna til baka
undirrituð.
Senn Iíður að páskum og vertfð
ferminga er að renna upp. Ferm-
ingar og fermlngarveislur eni gagn-
mericur siður þar sem æskan stað-
festir skímarheit sitt frammi fyrir
Almættinu og fagnar síðan þessum
tímamótum í faðmi fjölskyldunnar.
Allt er þetta gott og blessað og ung-
lingum oftast mikið tilhlökkunar-
eíni. Garra býður þó í grun að þessi
kristOega hátíð utiglinganna sé víða
orðin að martröð foreldra. Jón Ár-
sæll Þórðarson, fréttamaður á Stöð
2, tók fyrir nokkrum dögum hóp
fermingarbaraa tali og í því fróð-
lega spjalli kom fram hvaða vænt-
Ingar börnin hafa til þehra gjafa,
sem þeim verða færðar á ferming-
ardaginn. Kæruleysisiega slettu
þau í góm og töluðu um hest, utan-
landsferð og hfjómflutningstækL
og virtust telja þetta sjálfsögðustu
hluti íheimi. Þegar fréttamaðurinn
síðan spurði börnin hvað væri eðli-
legt að Nonni frændi setti mikinn
pening í umslagið, sem hann gefur,
sögðu þau jafn kæruleysislegæ
„Svona 5-15 þúsund kr.“ Það svar-
ar til þess að þessi sami Nonni
frændi láti af hendi launin sín fyrir
þetta eins til þriggja daga vinnu.
Launamaður safnar
skuldum
En fermingargjafímar eru þó að-
eins hlutí þess kostnaðar, sem for-
eldrar fermingarbama leggja út í
vegna fermingarinnar; föt, veisla,
myndatökur o.fl. taka sinn toll úr
launaumslagi þeirra, en búast má
við að heildarútgjöld hlaupi á
hundruöum þúsunda. Þess eru
enda mýmörg dæmi að fólk steypí
sér f miklar skuldir vegna ferming-
ar, því enginn venjulegur launa-
maður stendur undir þeim krofum
sem í dag eru geröar vegna ferm*
ingar unglings. Þessa dagana
standa yfír miklar samningaviðræð-
ur og ræða forystumenn launþega
um kjarabætur. Ýtrustu kröfur fara
ekki mikið upp fyrir 3% kauphækk-
un. Fyrir Nonna frænda, sem hefur
um 100.000 kr. á mánuði, þýddi
þess) krafa um 300 kr. kauphækk-
un á mánuði, sem dugar ekki einu
sinni fyrir fermingargjöf handa
fjarskyldum ættingja.
Það er því í rauninni sorglegt til
þess að vita að sú gleððega athöfh,
þegar unglingur
staðfestir skímar-
heit sitt, skuli
vera orðin að fjár-
hagslegri martröð
fyrir allt það
venjulega launafólk sem á bara á
unglingsaldri.
Sú einfalda ráðlegging og lausn á
þessu máli, sem segir að fólk eigi
bara ekki að láta svona og að full-
orðið fólk eigi að bafa vit á að sníða
sér stakk eftir vexti í fermingarhá-
tíðarhöldum, dugar ekki. Landinn
er einfaldkga þannig að saman-
burðarfræðin ræður á endanum
mestu og Homo Islandicus klýfur
sig ekki nema t undantekningartil-
fellum frá því sem hópurinn að-
hefst Þannig er þetta og þannig
hefur þetta verið í áratugi.
Þjóðkirkjan á villi-
götum
Því hljóta það að vera mikil von-
brigði að íslenska þjóðkirkjan hefur
frekar alið á þeirri Mammonsdýrk-
un sem tengist
fermingum, en
dregið úr henni.
Jafnt prestar sem
biskupar hafa lýst
því yfir að
ástæðulaust sé að amast við því þó
fólk vilji fagna því með veglegum
hætti að unglingur á heimilinu gefí
Drottni staðfestingarheit sitt Þvert
á móti hefur kárkjan taliö það vera
af hinu góða að í kringum slíkan at-
burð riki gleði. Gani getur að hluta
fallist á þessi sjónarmið, en það er
ekki gegnheil gleði sem tekin er að
íáni og dregur á eftir sér margra
mánaða fjárhagslega tímburmenn.
Það er heldur ekki gegnheil gleði
$em byggíst á metingi og saman-
burði á efnislegum gæðum. Og það
er ekki hægt að gleðjast yfír því að
íslenskir unglingar eru, m.a. fyrir
tilstilli sjúklegrar fermingarmaníu,
orðnir gjörsneyddir öQu verðmæta-
mati og skQningi á því til hvers er
hægt að ætlast af Ifíhtu.
Rétt er að minna á að fordæml
eru fyrír því að tekist hefur verið á
við vanda af svipuðum toga og hér
hefur verið nefndur. Það eru ekki
nema 30 eða 40 ár síðan almennt
var farið að ferma í kyrtlum. Ástæð-
an var sú að fatnaður fermingar-
bama í kirkjunni var orðinn að
stórvandamálL Þannig voru Ld.
stúlkumar oft í sérstökum kjólum
við ferminguna og siðan jafnvei
Bðrum í veislunni. Þetta aflagðist
við kyrtlana, enda mæltist notkun
þeirra almennt gífuriega vel fyrir,
eför því sem Garra hefur verið sagt.
I dag gerir tórkjan ekkert ti) að
draga úr veishi- og gjafakapphlaup-
inu. Prestur, sem fyrrnefndur
fréttamaður á Stöð 2 ræddi við um
krofur feranlngarbamanna, hafði
ekki miklar áhyggjur af þessum
málum og taldi það mikið óréttlæti
að beina athyglinni að fermingar-
gjöfúm. Þessi ágæti guðsmaður
spurði meira að segja hneykslaður
hvort ekki mætt) með sama hætti
spyrja hvort menn, sem halda upp á
sextugsafmælið sitt, gerðu það
vegna málverkanna og annarra
gjafa sem þeir fál Svona viðhorf eru
því miður útbreidd meðal presta.
Nær væri að kirkjan reyndi að taka á
þessum málum og stýra neysluæð-
htu í einbvem skynsamlegan far-
veg. Garri hélt að klrkjan ætti að
veita leiðsögn, en eldd að vera tagl-
hnýtingur þeirra sem vilja selja sem
mest af vörum og þjónustu á sem
dýrustu verði. Gani
Þjóðverja vísað úr landi í Svíþjóð af sérkennilegri ástæðu:
Liggur ekki á sósíalnum