Tíminn - 18.03.1992, Side 9
Miðvikudagur 18. mars 1992
Tíminn 9
Julia
Roberts
kemur lögregl-
unni í vandræði
Lögreglustjórinn í smábæ í
Vermont í Bandaríkjunum er
kominn í klípu, eingöngu
vegna þess að hann sýndi með-
borgaranum Juliu Roberts
hjálpsemi.
Lögreglustjórinn Ken Libby
lét ekki biðja sig tvisvar þegar
honum gafst tækifæri til að
sækja kvikmyndastjörnuna
Juliu Roberts á flugvöllinn og
aka henni 60 km leið á glæsi-
legan skíðastað. Hins vegar
voru bæjaryfirvöld ekki jafn-
hrifin, og ekki bætti úr skák
þegar þau fréttu að annar lög-
reglumaður hefði keyrt hana til
baka sömu leið.
„Vegna þess að þessir menn
voru með stjörnur í augunum
yfir fallegri leikkonu vanræktu
þeir störfin sem þeir eru ráðnir
til að sinna, þ.e. að vaka yfir ör-
yggi 3200 íbúa Stowe. Og það
var eingöngu vegna þess að þeir
vildu vera í návist frægrar
konu,“ segir einn ráðamanna.
Það breytir engu þó að lög-
reglustjórinn og lögreglumað-
urinn sem ók Juliu til baka seg-
ist hafa gert það í frítíma sínum
og þar að auki hafi þeir ekki
verið á embættisbílum. „Þeir
hefðu samt átt að biðja um
leyfi,“ segja bæjaryfirvöld.
Lögreglustjórinn segir að vin-
ur Juliu hefði haft samband við
sig og beðið hann að útvega bíl-
stjóra til að skutla henni þessa
bæjarleið svo að hún losnaði við
atgang aðdáenda. Lögreglu-
stjórinn ákvað að gera það í eig-
in persónu. Og fleiri lögreglu-
þjónar hefðu verið meira en til-
búnir að gera stjörnunni greiða.
Á skíðastaðnum er sagt að eftir
að hún fór hafi ekki verið stund-
legur friður fyrir greiðasömum
lögreglumönnum sem hefðu
ólmir viljað allt fyrir hana gera.
Sumir segja líka að lögreglan
hafi verið henni innan handar
með að fara í útsýnisferðir og
haft er fyrir satt að hún hafi fátt
látið fram hjá sér fara sem
markvert er í bænum, t.d. hafi
hún heimsótt ísverksmiðju!
Förunautur hennar var kærast-
inn Jason Patric.
Heimsókn þessa fræga fólks til
smábæjar sem varla er á landa-
bréfinu varð til þess að bæjar-
búar gerðu sér einhverjar vonir
um að þar ætluðu þau að láta
pússa sig saman. Ekki varð þó
úr því, en kannski í annað sinn,
því að þau hljóta að hafa gert
sér grein fyrir því að í Stowe býr
alúðlegt og hjálpsamt fólk —
eða a.m.k. á það við um flesta.
Lindu er margt til lista lagt. Hún hefur ákafiega gaman afþvíaö læra
og nú leggur hún stund á rússneskunám. Annars fer tlmi hennar f aö
stýra tveim heimilum þeirra Pauls, ööru fLos Angeles og hinu ÍÁstr-
alfu. Og auövitaö fer drjúgur tfmi I aö lesa handrit og læra rullur.
Linda Kozlowski er ánægö meö lífiö og tilveruna meö Paul Hogan
og lætur sig litlu skipta þó aö fjölmiölar hafi sent henni tóninn fyrir aö
hafa eyöilagt hjónaband hans.
Kona
Pauls
Hogan
leysir
frá
skjóðu
Linda Kozlowski lék á móti hin-
um eina og sanna „Krókódíla-
Dundee", Paul Hogan, og varð líf
hvorugs þeirra hið sama á eftir.
Paul Hogan varð eins konar þjóð-
arstolt Ástrala eftir velgengni
myndarinnar, og framhalds henn-
ar, en hitt þótti þjóð hans verra að
hann féll svo kylliflatur fyrir hinni
fögru Lindu að hann skildi við
Noelene, konuna sem hann var
búinn að vera giftur til margra
ára. Þau Linda og Paul giftust fyr-
ir tveim árum.
Ástralska gula pressan hafði sitt-
hvað að athuga við þetta athæfi,
en Linda hefur tekið þann kostinn
að láta ekkert í sér heyra. Hún hef-
ur í staðinn verið önnum kafin og
haldið sig fjarri kjaftatífum.
Linda er 33 ára, fædd og alin upp
í útborg Fairfield í Connecticut.
Hún fékk leikbakteríuna fimm ára
gömul, þegar hún sá Mary Popp-
ins. Þar með var framtíð hennar
ákveðin og hún gafst ekki upp.
Hún fékk inngöngu í hinn virta
Juillard School of Drama. Að
skólagöngunni lokinni hóf hún
hina algengu ferð um leikhús á og
við Broadway, og að lokum á sjálf-
um Broadway með litlu hlutverki í
Sölumaður deyr með Dustin Hoff-
man í aöalhlutverki. Hlutverkið
sjálft færði henni ekki mikið í aðra
hönd en Dustin bauð henni þó að
passa hús fyrir sig, sem var ákaf-
lega vel þegið því að hún átti svo
sem ekki neitt nema það sem
rúmaðist í tveim ferðatöskum.
Svo kom stóra tækifærið. Henni
bauðst að leika á móti Paul Hogan
í Krókódfla-Dundee, mestu kassa-
mynd Ástrala íyrr og síðar og
greiddu menn 600 milljónir doll-
ara fyrir að sjá hana og framhald-
ið. Linda segir þó myndina hafa
verið sér bæði til bíessunar og
bölvunar, kvikmyndaframleiðend-
ur hafí haft tilhneigingu til að
bjóða henni svipuð hlutverk
áfram.
En Linda grípur þá bara til sinna
eigin ráða. Hún er nú að vinna að
sinni eigin kvikmynd til að fá hlut-
verk sem henni líkar. Og nú þarf
hún ekki að hafa áhyggjur af pen-
ingamálunum, Krókódfla-Dundee
sér fyrir því.
Julia Roberts er
fögur kona og karl-
menn eru eins og
smjör í höndunum á
henni. En ekki er
útséö um málalyktir
fyrir lögreglustjór-
ann Ken Libby,
sem var henni svo
hjálpfús.