Tíminn - 06.05.1992, Side 5

Tíminn - 06.05.1992, Side 5
Miðvikudagur 6. maí 1992 Tíminn 5 r Asta R. Jóhannesdóttir: Eru 260 einstæðir öryrkj ar hlunnfamir? Almannatryggingalögin eru yfir 20 ára gömul, og á þessum 20 árum hafa verið gerðar á þeim um 70 breytingar. Þegar lögum er breytt svo oft án þess að lögin í heild séu end- urskoðuð, vill oft fara svo að við breytinguna verði einhvetjir út- undan án þess að það hafi verið ætlunin í upphafí, en sú tel ég að sé raunin í því tilviki sem ég geri hér að umtalsefni. Tekjulágir einbúar fá heimilisuppbót Samkvæmt núgildandi lögum geta elli- og örorkulífeyrisþegar, sem eru einhleypir og hafa lágar tekjur og hafa ekki fjárhagslegt hagræði af sambýli við aðra, fengið heimilisuppbót greidda frá TVygg- ingastofnun. I framkvæmd er þessi lagagrein í núgildandi lögum túlkuð á þann veg að sá á aðeins rétt á heimilis- uppbót sem býr einn, aleinn. Allir, sem eru með einhverja fleiri í heimili, fá synjun um heimilisupp- bót, sæki þeir um, þó svo að þeir hafi ekki „fjárhagslegt hagræði af sambýlinu" og þó þeir séu „einir um heimilisrekstur". Má nefna sem dæmi einstæða móður, sem verður öryrki. Hún fær ekki heimilisuppbót vegna þess að hún býr með bami sínu. Eða öryrki sem verður móðir, þ.e. eignast bam, missir heimilis- uppbótina við það. Fullorðinn ekk- ill, lífeyrisþegi, sem enn er með barn heimilisfast hjá sér og það t.d. í námi, fær ekki heimilisuppbótina, þó svo hann hafi engan fram- færslueyri annan en bætumar frá TYyggingastofhun. Fjárhagslegt hagræði af sambúð við bam Það er erfitt að sjá hvert fjár- hagslegt hagræði það er að vera með barn eða böm á framfæri, oft- ast er það frekar aukinn kostnaður. Einstæðir foreldrar eru einir um heimilisrekstur, þó þeir séu með barn eða böm sín á heimilinu, ann- að er sjaldgæft Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp mitt til laga um breytingu á þessari lagagrein, svo efnalitlir einstæðir foreldrar, sem eru Iífeyrisþegar, geti notið heimilisuppbótar. Bætist við setningin: „Sé um aðra heimilismenn að ræða skulu bæturnar greiddar, enda séu þeir undir 20 ára aldri." Við málsgrein- ina em tekin af öll tvímæli um að einhleypir lífeyrisþegar með bam/böm á framfæri geti fengið heimilisuppbótina. Túttugu ára viðmiðun er í sam- ræmi við annað í lögunum. Þá hættir barn t.d. að fá greiddan menntunarbamalífeyri eða mennt- unarmeðlög. Bamalífeyrír og meölag, framfærslu- eyrir bams Ekki er sanngjamt að Iíta á greiðslur meðlags, bamalífeyris og mæðralauna sem fjárhagslegt hag- ræði af sambýli við böm sín, eins og gert er nú við framkvæmd lag- anna. Þær greiðslur eru fram- færslueyrir bamsins. Því ætti ein- hleypur lífeyrisþegi í sambýli við böm sín undir 20 ára að geta notið heimilisuppbótar, uppfylli hann önnur skilyrði sem sett eru í lög- unum um uppbótina, verði þetta frumvarp samþykkt. Það var áreiðanlega ekki tilgang- urinn með lagasetningunni í upp- hafi að einstæðir foreldrar bæru hér skarðan hlut frá borði. Þessi framkvæmd laganna ýtir einnig undir það að böm séu skráð annars staðar en hjá foreldrinu, sem er lífeyrisþegi eftir 18 ára ald- ur, þó svo að bamið búi hjá því for- eldri. Marga munar um minna, sér- staklega ef lífeyrisþeginn hefur engar aðrar tekjur en trygginga- bætumar. Öryrkja munar um heimilisuppbótina Einstaklingur, sem ekki á rétt á heimilisuppbót, fær grunnlífeyri 12.123 kr. og tekjutryggingu 22.930 kr. ef öryrki, og 22.305 kr. ef ellilífeyrisþegi. Þetta eru 34-35 þúsund krónur á mánuði. Er ein- hver, sem treystir sér til að lifa af þeim mánaðarlaunum, þó svo að hann fengi meðlag, mæðralaun og bamalífeyri til framfærslu bams 7.425 kr. og 4.653, og bamalífeyri 7.425 kr. eða rúmar 19 þúsund kr. í viðbót, sem er framfærslueyrir bamsins? Fimmtíu og þrjú-fiögur þúsund krónur til framfæris móð- ur og bams eða föður og bams er ekki mikið og það munar um heimilisuppbótina á slíku heimili. Sérstaklega hjá öryrkjunum, sem oft bera þó nokkum og jafhvel mikinn kostnað vegna örorku sinnar. í dag eru það 260 lífeyrisþegar, sem ekki fá heimilisuppbót vegna þess að þeir eru í sambýli við böm sín undir 18 ára aldri. Þeir em flestir öryrkjar. Þetta er ekki mjög stór hópur, en hópur sem yfirleitt hefur minnst umleikis í samfélaginu. Það hlýtur að mega verja ein- hverju af því fé, sem sparast í ríkis- rekstriiium, til að koma til móts við þetta fólk, sem oftast hefur bág- ust kjörin. Höfundur er delldarstjórl hjá Trygg- ingastofnun og varaþlngmaóur Royk- vfldnga. Hallgrímur Þ. Magnússon: Hagsmunir og verðmyndun Eitt af þeim málum, sem utanríkisráðherra hefur lagt mikla áherslu á eftir að hann komst inn í núverandi ríkisstjóm, er að fá þingið til að samþykkja svokallað GATT-samkomulag, en einn angi af því er að koma á sem næst hömlulausrí verslun með land- búnaðarvörur í heiminum. Utanríkisráðherra hefur verið óþreytandi í því að ferðast um land- ið á kostnað síns ráðuneytis, til þess að reyna að fullvissa þjóðina um það hversu gott það verði fyrir hana að fá erlendar landbúnaðarvörur á mun lægra verði en möguleiki væri á að framleiða þær á hér á landi, og þama sé um að ræða eina af fáum leiðum sem hægt sé að nota til þess að bæta afkomu íslenskrar alþýðu. Þetta held ég að sé alrangt hjá honum, heldur er hann þama orð- inn talsmaður alþjóðaauðvaldsins, sem stefnir að því að gera verslun með landbúnaðarvörur alþjóðlega, þannig að fjármagnseigendur geti komið á einu landbúnaðarkerfi í heiminum. Þar með er það fjár- magnið sem fær að ráða landbúnað- inum, en ekki þarfir þeirra sem vinna við landbúnaðinn, eða þarfir þeirra sem eiga að borða landbún- aðarvörur, eða spurt sé hvað sé best fyrir umhverfið þar sem þær eru ræktaðar. Þannig væri fjámiagnið farið að ráða lífi okkar frá vöggu til grafar. Við sjáum í dag hvemig þjóðir svelta á meðan stórfyrirtæki á borð við Goodyear, Volkswagen og Nestlé hafa á undanfömum ámm stundað stórkostlega eyðingu á regnskógum Brasilíu til þess að geta framleitt fóður fyrir nautgripi. Kjötið af þess- um nautgripum er síðan flutt frá Brasilíu til einhvers annars lands þar sem enn hærra verð fæst fyrir það en í Brasilíu. En á meðan þetta gerist er talið að um 70% af bömum í Suður-Ameríku séu vannærð. Einnig hefur eyðing regnskóganna miklar og geigvænlegar afleiðingar fyrir allt umhverfið, sem skiptir fyr- irtækin litlu máli, því að það er ekki þeirra budda sem þarf að borga fyrir skaðann, heldur er það þjóðfélags- ins að reyna að vinna á honum. En við það þarf þjóðfélagið að taka af sameiginlegum fjármunum, sem væri kannski betur varið í aðra þjónustu við þegnana. Dæmi um svona eyðslu er ein- mitt að finna í íslensku þjóðfélagi í dag, þar sem einn ráðherra Alþýðu- flokksins eyðir miklum fjármunum til þess að fára á umhverfisráðstefnu í Brasilíu og tekur með sér hóp manna til að skrifa undir alþjóðleg- ar samþykktir, sem við vitum nú þegar að koma ekki að fullum not- um, hvorki fyrir einstaklinga þjóð- félagsins né umhverfi okkar, vegna þess að ekki er grafist fyrirumrót vandans. Rannsóknir á verð- myndun í alheims landbúnaðar- kerfinu sýna að um það bil 60% af verði landbúnaðarvaranna fara til olíuiðnaðarins, vegna þess að nú- verandi landbúnaðarkerfi er svo háð orðið alls konar efnum, sem eiga uppruna sinn í olíuvinnslunni og notuð eru til þess að hvetja fram vöxt hjá viðkomandi plöntum. Það kostar aftur að skordýr sækja á plöntuna og þá þarf að nota skor- dýraeitur, en það er einmitt líka upprunnið hjá olíuiðnaðinum. Hugsum svo um alla þá orku, sem fer í setja niður og taka upp, og alla þá tækni, sem notuð er í landbún- aðinum þessu til viðbótar áður en neytandinn fær vöruna, en öll þessi orkunotkun kostar eitthvað. Höfuðskilyrði fyrir eðlilegu lífi okkar mannanna hér á jörðinni eru nokkur, en við það að láta þau koma til framkvæmda myndum við skil- yrði fyrir þróun á allt öðruvísi lífi og að það fái þróast á eðlilegan hátt og þar af Ieiðandi þurfum við engar umhverfisráðstefhur eða alþjóða- samþykktir í mengunarvömum. Þessi skilyrði eru: 1. fæðan á að vera náttúruleg, samansett úr lifandi efnum í sínu eðlilega og óbreytta umhverfi. 2. Hún á að vera heil, þ.e.a.s. eins og hún kemur frá nátt- úrunnar hendi, ekki skemmd, ekki sundurskorin, ekki unnin á nokk- um hátt, ekki hreinsuð og engum öðrum óviðkomandi eftium bætt út í hana. 3. Hún á ekki að innihalda nein eiturefhi, hún á að vera ræktuð á lífrænan hátt án nokkurs tilbúins áburðar eða nokkurs skordýraeit- urs. Svona mat er mjög erfitt að fá keyptan í veröldinni í dag, vegna þess að ræktun þessi þjónar ekki tdl- gangi fjármagnsins. En þarna er kannski einmitt að finna möguleika fyrir okkur íslend- inga til þess að vera í fararbroddi í heiminum, og þar að auki myndum við auka veg íslensks landbúnaðar til mikilla muna. Þjóðin á hreinan og tiltölulega ómengaðan jarðveg, iðnaðarmengun af okkar völdum í andrúmslofti er lítil, þó svo að tölu- verðrar mengunar gæti stundum af öðmm orsökum. Fólkið, sem bygg- ir landið er duglegt, en beina þarf kröftum þess í rétta átt, því að ef svona ræktun væri tekin upp þar sem hollusta er höfð í fyrirrúmi, væri hún miklu mannfrekari en sú gerviræktun sem stunduð er í heiminum í dag. Væri ekki nær fyrir ráðherra Al- þýðuflokksins að hugsa frekar um velferð almennings á íslandi, þeirra sem mynduðu flokkinn í upphafi, heldur en að vera handbendi al- þjóðaauðvaldsins, en baráttan við ftármagnseigendur var frumorsök- in fyrir því að flokkurinn var stofn- aður á sínum tíma. Höfundur er læknlr. Orð í eyra Útvarpsstjóra langar mig að mæla, en vil þó byrja á þvf að fagna skipun hans til þessa starfs og óska honum gengis í starfi. Umkvörtunarefnið er að ríkisút- varpið, rás 1, skuli byrja seinna helgidaga en virka daga. Þeir, sem snemma vakna, gera það flestir jafnt virka daga sem aðra og eiga skilið að fá kyrrláta músík í eyra strax kl. 7 og helst kl. 6. Á sumardaginn fyrsta mega árrisulir íslendingar bfða til kl. 8 með að opna útvarpið, en þá væri ástæða til að byrja útsendingar á sumarlögunum kl. 6, þó ekki væri það gert í annan tíma. Þeir, sem snemma vakna til vinnu, hlusta á hlaupum, en morg- unhanar vakna alla daga jafnt, hvort sem þeir þurfa þá til vinnu eður ei, og þeirra hlut legg ég til að bæta. Heiðmar Jónsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.