Tíminn - 12.05.1992, Qupperneq 3
Þriðjudagur 12. maí 1992
Tíminn 3
Verðum að hætta að tala um þessa loðnuvitleysu, segir Jakob Jakobsson fiskifræðingur:
EB-loðnan mundi engu bæta
við veiðiheimildir okkar
„Gf íslendingar ætia í raun og veru að semja (við EB) um gagnkvæm
veiðiréttindi og afsala sér 3.000 tonnum af karfa nær auðvitað engri átt að
þiggja í staðinn loðnu sem við fengjum hvort sem væri. Ef semja á um
gagnkvæm veiðiréttindi verðum við að sjálfsögðu að hætta að tala um þessa
loðnuvitieysu og hafa manndóm í okkur til að krefjast sams konar veiðirétt-
ar í lögsögu bandalagsins og það fær hér. Ég fæ ekki betur séð en allt ann-
að sé hrein undanlátssemi og uppgjöf af okkar hálfu“, sagði Jakob Jakobs-
son, fiskifræðingur á landsfundi Samstöðu um helgina.
Fjallaði hann þar m.a. um hugmyndir
um svokallaða gagnkvæma samninga
íslands og Evrópubandalagsins sem
oft hafa verið nefhdir í fjölmiðlum, og
mikinn misskilning sem þar hafi gætt
í sambandi við heimildir til loðnu-
veiða.
Menn hafi látið líta svo út sem um
„pappírsviðskipti" væri að ræða þegar
talað væri um skipti á loðnu og lang-
hala, þar sem hvorki hefðum við nýtt
langhalann né Evrópubandalagið
loðnuna. Grundvöllur samningsins
hafi hins vegar gerbreyst þegar Evr-
ópubandalagið krafðist þess að fá að
veiða hér 3.000 tonn af karfa. Þar sem
karfinn sé einn af okkar fullnýttu
stofnum yrði að draga úr veiðum ís-
lenskra togara sem næmi veiðum út-
lendinga. í staðinn skyldum við fá
30.000 tonn af loðnu, þ.e.æs. veiði-
heimildir sem Evrópubandalagið hefði
keypt af Grænlendingum.
Jakob segir aðalatriði þessa máls e.t.v.
það að á svæðinu milli íslands, Austur-
Grænlands og Jan Mayen sé aðeins
einn veiðanlegur loðnustofn. Þessi
loðna komi venjulega að suður- og
vesturströnd íslands og hrygni þar í
mars eða aprílbyrjun. Seiðin berist síð-
an með straumi vestur og norður fyrir
land og séu að langmestu leyti innan
íslenskrar lögsögu fyrsta árið. Á öðru
ári dreifist loðnan yfir stærra svæði og
nokkur hluti hennar sé þá oft innan
lögsögu Grænlands.
Þegar svo loðnan fari að verða veiðan-
leg á 3. aldursári komi stundum fyrir,
eins og td. á 9. áratugnum, að nokkur
hluti hennar hafi gengið alla leið norð-
ur undir Jan Mayen um hásumarið, en
síðan snúið aftur til íslands þegar líða
tók á haustið. Ævi loðnunnar lýkur svo
yfirleitt að lokinni hrygningu fyrri
sunnan landaðvori.
Aðalatriðið segir Jakob vera þá stað-
reynd, „að veiðiheimildir þær sem
Grænlendingar selja Evrópubandalag-
inu eru engin viðbót við þá loðnu sem
er á íslands — Grænlands—Jan May-
en svæðinu. Þetta er hluti af því sem
við viljum kalla íslenska Ioðnustofn-
• _ «
ínn.
íslendingar hafi líka veitt langsam-
lega mest oftast á bilinu hálfa til eina
milljón tonna á ári. Veiðar Norðmanna
hafi orðið mestar um 240 þús. tonn
vertíðina 1985/86. Færeyingar hafi
komist mest í 97 þús. tonn fyrir tveim
árum, en algengast að þeir veiði 20-60
þús. tonn. Loðnuveiðar Evrópubanda-
lagsins hafi hins vegar aðeins verið á
bilinu 5-20 þús. tonn á árunum 1980
til 1987 og síðan engar síðustu fimm
vertíðir.
„Þ.e.a.s. Evrópubandalagið hefur ekki
Úrslit Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
1 rl la nd va n in
írska söngkonan Linda Martin sigr-
aði í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva sem haldin var á laugar-
dagskvöldið í Málmey í Svíþjóð.
Það var lagið „Why me?“ sem heill-
aði evrópskar dómnefndir en bæði
lag og texti eru eftir Johnny Logan
sem áður hefur sigrað keppnina
tvisvar sinnum.
Spár breskra veðbanka reyndust
réttar hvað sigurlagið varðar en
Grikkir og ítalir, sem alla tíð hafði
Hálendisfrumvarpið á
Suðurlandi:
Lrtil
hrifning
Frumvarp umhverfisráðherra þar
sem gert er ráð fyrir að ráðherra
skipi sérstaka nefnd sem fari með
stjóm bygginga og skipulagsmála á
hálendinu, mætir mikilli andstöðu
meðal Sunnlendinga að því er kemur
fram í könnun sem Galiup á íslandi
hefur gert fyrir Samtök sunnlenskra
sveitarfélaga.
Ef marka má könnunina vilja 82,7%
aðspurðra óbreytt fyrirkomulag en
aðeins 13,9% að þessi mál flytjist til
ráðherranefndarinnar.
Ljóst er þó að frumvarpið er ekki á
allra vitorði. Þannig segjast 1,2% að-
spurðra þekkja það mjög vel, 7,5%
frekar vel, 27,6% frekar illa og 62,7%
segjast þekkja það mjög illa.
verið spáð botnsætunum, komust í
4. og 5. sæti.
íslenska lagið „Nei eða já" komst í
7. sæti og er það annar besti árangur
íslands í keppninni til þessa.
„Ég held við getum bara verið
ánægð, þó það hefði getað verið
skemmtilegra að komast ofar,“ segir
Sigríður Beinteinsdóttir, önnur
söngkvenna „Heart 2 Heart“ sem
flutti lagið. „Þetta tókst vonum
framar miðað við stress og annað
sem fylgir þessu.“
Sigríður gæti allt eins hugsað sér
að taka þátt í Söngvakeppninni aft-
ur: „Það færi þó eftir því hvort mað-
ur fengi gott lag. Ég held ég taki mér
þó frí næsta ár.“
Sigríður ber skipulagningu keppn-
innar gott orð og segir dvölina í
Málmey hafa verið miklu skemmti-
legri en í Zagreb á sínum tíma:
„Hópurinn var svo skemmtilegur
sem við vorum með. Það er ekki
bara hugsunin um að vinna sem fær
mann til að taka þátt í svona löguðu,
heldur er þetta ofsalega gaman."
Sigríður situr ekki auðum höndum
í sumar því í lok mánaðarins er von
á nýrri plötu frá Stjórninni, sem
fylgt verður eftir með tónleikaferð í
kringum landið. Einnig hefur
hljómsveitin verið beðin um að spila
í Noregi og í Danmörku.
Næsta sumar hefur Stjóminni ver-
ið boðið að spila í Kína af fyrirtæk-
inu China TVavels. „Carola
Haggkvist, sem vann í Söngva-
keppninni í fyrra, er að fara í ferð á
þeirra vegum núna og það er aldrei
að vita nema við förum ef samning-
ar takast," segir Sigríður að lokum.
—GKG.
nýtt sér þær veiðiheimildir sem það
hefúr keypt af Grænlendingum. Þetta
er engin tilviljun vegna þess að fúll-
orðin veiðanleg loðna finnst sjaldan
nema blönduð smáloðnu í græn-
lenskri lögsögu. Sá litli afli sem skip
Evrópubandalagsins náðu fékkst raun-
ar á umdeildu svæði milli Austur-
Grænlands og Jan Mayen. Tíl þess að
geta nýtt sér veiðiheimildir Grænlend-
inga nokkrar undanfamar vertíðir
hefði Evrópubandalagið þurft að fé
leyfi til að veiða þann kvóta í íslenskri
lögsögu."
Jakob bendir á að kvóti íslendinga
byggist venjulega á mælingum á
loðnustofninum þegar hann er kom-
inn austur fyrir land í janúar eða
febrúar. Hafi einhver þjóð ekki nýtt
sér veiðiheimildir sínar fyrr á vertíð-
inni gefi það auga leið að Hafrann-
sóknastofúun mæli stofninn því
stærri sem óveiddum veiðiheimildum
nemur.
„Þessi viðbót rennur beint inn í end-
anlegan kvóta íslendinga enda segir í
þeim samningi sem gilt hefur sl. þrjú
ár milli íslands, Noregs og Grænlands
að íslendingar skuli leitast við að not-
faeia sér þær veiðiheimildir sem ekki
hafa verið nýttar fyrr á veiðitímanum.
Það er af þessum sökum að 30.000
tonnin sem Evrópubandalagið kaupir
af Grænlendingum, og hefúr ekki nýtt
sér en ætlar nú að framselja íslend-
ingum, er engin viðbót við okkar
veiðiheimildir miðað við það sem
gerst hefur á undanfömum fimm ver-
tíðum. Það skal þó fúslega tekið fram
að veiðiheimildir við Grænland gætu
hugsanlega verið til bóta ef útbreiðsla
og göngur loðnunnar breyttust frá því
sem verið hefur undanfarin 10-15 ár,“
sagði Jakob Jakobsson fiskifræðingur.
-HEI
Allir nýju Fokkerarnir samankomnir á Reykjavíkurflugvelli í blíðunni sl. sunnudag.
Tímamynd Ámi Bjama
Fjórða og síðasta Fokker 50 flugvél Flugleiða kom til
landsins á laugardag:
Endurnýjun flugflotans
fyrir 20 milljaröa lokiö
Fjórða og síðasta Fokker 50 flugvél
Flugleiða, Valdís, kom til landsins
síðastliðinn laugardag. Við komuna
til landsins lenti vélin í Vestmanna-
eyjum, þar sem Margrét Johnson,
ekkja Amar Johnson, fyrrum for-
stjóra Flugfélags íslands, gaf vélinni
nafnið Valdís. Er þar með lokið end-
umýjun á öllum flugflota Flugleiða
sem kostað hefur tæpa 20 milljarða
króna.
Fjölmenni tók á móti flugvélinni á
flugvellinum í Vestmannaeyjum þar
sem hún lenti um kl. 13. Guðjón
Hjörleifsson, bæjarstjóri í Eyjum,
Margrét Johnson, ekkja Amar
Johnson, fyrrv. forstjóra Flug-
félags fslands og síðar Flug-
leiða, gefur nýrri Fokker 50
flugvél Flugleiða nafnið Valdís
á Vestmannaeyjaflugvelli.
Tímamynd SBS
sagði komu vélarinnar vera ánægju-
efni enda hefðu flugsamgöngur alla
tíð skipað stóran sess í lífi Eyja-
manna. Þar hefði flugvél fyrst lent ár-
ið 1939 þegar Agnar Kofoed- Hansen
og Bergur Gíslason fóru um landið
og könnuðu lendingarstði á TF-SUX,
en sú vél hangir einmitt uppi til sýn-
is í flugstöð Eyjamanna. Þá var nýju
flugvélinni gefið nafn sem áður segir
og almenningi boðið upp á kaffi og
meðlæti í tilefrii dagsins.
Að því búnu hélt Valdís til Reykja-
víkur, en áður en vélin lenti flugu
flugmenn allra fjögurra Fokker 50
flugvélanna lágflug yfir borgina og
sýndu þannig borgarbúum farkost-
ina. Þegar vélamar síðan höfðu lent,
var efnt til samkomu á Reykjavíkur-
flugvelli þar sem flugvélamar voru til
sýnis.
í stuttu ávarpi sem Sigurður Helga-
son, forstjóri Flugleiða, flutti við
þetta tækifæri sagði hann m.a. að
lending Valdísar væri stór áfangi í
flugsögu íslendinga. Á þremur árum
og þremur dögum hefðu Flugleiðir
endumýjað flugflota sinn fyrir 20
milljarða króna. „Þetta hefur félagið
gert án opinberra afskipta og án ríkis-
ábyrgðar. Flugleiðir eiga nú flota ell-
efu nýrra flugvéla og bjóða farþegum
sínum yngri flugvélar en nokkurt
annað áætlunarflugfélag í heimin-
um. Er þessi stóra fjárfesting lýsandi
dæmi um traust Flugleiða og traust á
framtíð ferðaþjónustu og öflugrar
byggðar um land allt," sagði Sigurð-
ur Helgason.
—SBS, Selfossi
, cScK
SKRUFU-
BITAHALDARI
Bit Click er segulskrúfubita-
haldari sem má setja á
patrónu með einu handtaki
yfir borinn. Þægilegt og
fljótlegt! Bit Click passar
fyrir um 95% þeirra borvéla
sem eru á markaðnum.
Leitið upplýsinga!
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 814670