Tíminn - 12.05.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 12. maí 1992
Ráðstefna um öryggi og
samvinnu í Evrópu:
Hervald
fordæmt
Astandið í Bosníu-Hersegóvínu var
nýlega rætt á fundi í nefnd háttsettra
embættismanna Ráðstefnunnar um
öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÖSE).
Fjallað var um umsókn þarlendra
stjórnvalda um þáttöku í RÖSE og
væntanlega friðarráðstefnu RÖSE
um Nagorno-Karabakh. Einnig var
rætt um yfirlýsta afstöðu hins nýja
sambandsríkis Júgóslavíu að það sé
arftaki fyrrum Júgóslavíu.
Niðurstöður fundarins voru að full
þátttaka Bosníu-Hersegóvínu var
samþykkt samhljóða. Skorað er á alla
aðila, en einkum þó júgóslavneska
sambandsherinn, að stöðva átökin og
virða samkomulag um vopnahlé. Öll
þátttökuríki RÖSE samþykktu þá
áskorun fyrir utan Júgóslavíu.
Sambandsríkið samþykkti heldur
ekki yfirlýsingu þar sem ályktað var
að samkomulag um arftöku milli sex
Iýðvelda fyrrum Júgóslavíu væri
verkefni friðarráðstefnunnar í Brus-
sel. Slíkt samkomulag myndi ákvarða
hverjir kæmu fram fyrir hönd Júgó-
slavíu á alþjóðavettvangi.
Ýmsar ákvarðanir voru teknar um
fyrirkomulag friðarráðstefnu RÖSE
um Nogomo-Karabakh, og ákveðið
var að senda eftirlitssveit á vettvang
til að fylgjast með samkomulagi um
vopnahlé.
Fulltrúar íslands á fundinum voru
Gunnar Cunnarsson skrifstofustjóri,
og Helgi Gíslason sendifulltrúi.
—GKG.
„Kolkrabbaveski" með talnalás og spýtir bleki sé það brotið upp:
Þjófhelt seðlaveski
ný sænsk uppfinning
Sænskir hugvitsmenn hafa fundið
upp þjófhelt seðlaveski, í þeim til-
gangi að draga úr þjófnaði á
greiðslukortum, tékkheftum og
peningaseðlum fólks, t.d. á ferðalög-
um en einnig til daglegra nota.
Þjófavörnin í þessu öryggisveski
felst í fyrsta lagi í 4-stafa talnalás. í
öðru lagi er það búið 12 hylkjum
með sterkum lit, sem eiga að brotna
ef veskið er brotið og útbía eða eyði-
leggja það sem í því er, þannig að
þjófi gagnist ekki slíkt þýfi. Og í
þriðja lagi reynir framleiðandinn,
með skipulögðu skilakerfi og loforði
um fundarlaun, að gera það eftir-
sóknarverðara að skila veskinu
óopnuðu til eiganda heldur en að
reyna að brjóta það upp.
Sænska fyrirtækið Colloc Interna-
tional AB á heiðurinn af þessari
framleiðslu, sem það nefnir „Colloc
2002“-veski. Það er þegar komið á
markað í 20 löndum. Að stærð og
þyngd er það ekki svo frábrugðið
venjulegu seðlavesti. Colloc- fyrir-
tækið er hluti af svonefndum Colort-
ag hóp, sem í áratug hefur staðið að
markaðssetningu á þjófavörn á fatn-
að í verslunum vítt og breytt um
heiminn. Það kerfi byggist að hluta á
sömu hugmynd, þ.e. að þjófavörnin
spýti lit sé hún brotin upp og geri
flíkina þannig verðlausa og ónot-
hæfa fyrir þjófinn.
- HEI
Enn eykst fjölbreytileiki innan-
flokksátaka íAlþýðuflokknum. Mái
Ragnhelðar Davíðsdóttur og
Menningarsjóðs er ekki fyrr fallið í
skuggann af Júróvision, en kratar
geysast fram á völl þjóðmálanna
og stela senunni með uppákomu,
sem eflaust hefði dugað til vinn-
ingssætis, ef til væri Evrópu-
keppni flokkseigendafélaga.
Flokksstjóm hvað?
Þessi uppákoma snýst um það að
forusta flokksins vill sýna þingi og
þjóð hvað hún er töff og klár og
sjálfstæð og að hún þarf ekkert að
vera að velta lyrir sér hvað hinar
ýmsu stofnanir Alþýðuflokksins
vilji að flokkurinn standi fyrir.
Þannig samþykkti forystusveit AJ-
þýðuflokksins og þingflokkur að
keyra lánasjóðsfrumvarpið áfram,
án þess að gera tilraun til aö breyta
í því ákvæðum, sem flokksstjóm
flokksins hafði áður áiyktað rögg-
samlega gegn. í öðrum stjóm-
málaflokkum er foiystusveitin yf-
irieitt ekki nægjanlega huguö til að
viröa að vettugi ályktanir og sam-
þykktír stofnana, sem skilgreindar
eru sem æðstu stofnanir flokksins
á milli flokksþinga, en í Alþýðu-
flokknum gilda greinilega önnur
lögmál.
Foringi ungra jafnaðarmanna
virðist una því eitthvað illa að
þurfa að sitja og standa eins og
forystumenn flokksins bjóða, og
gelta einungis þegar honum er sig-
að. Hann kom fram í fjölmlðlum
rétt fyrir Júróvision og lét ófrið-
lega vegna áforma foringjanna um
að gera alla íslenska námsmenn
lánlausa í haust. Jafnaöarmanna-
formaðurinn ungi sagðl þetta vont
mál; þaft væri vafasamt aö ætlast
tíl þess að nemendur framfleyttu
sér meft bankalánum, auk þess
sem það hlyti aft teljast sjálfsögð
krafa að þingflokkurinn bryti ekki
mjög gróflega gegn yfirlýstri
stefnu flokksins, eins og hún er
ákveðin af þar til gerðum flokks-
stofnunum.
Það verður að viðurkennast að
ungkratlnn hefur talsvert tíl síns
máls. Þó að Garri
hafi ekki f hyggju
að skipta sér af
innanflokksátök-
um í Alþýðu-
flokknum, verður
ekki bjá því kom-
ist að nefna að
ungkratinn taldi einsýnt að að
óbreyttu myndi LÍN- málið koma
ti) kasta flokksþingsíns í næsta
mánuði, enda óþolandl að þing-
flokkurínn láti sem stefna flokks-
ins sé sér algerlega óviðkomandi.
Verður níu-daga
reglan notuð í ár?
Þar meft fer dagskráin á flokks-
þinghtu þjá krötum að verða all-
kræsfleg og spuming hvort ekki
verður að bæta nokkrum dögum
við þinghaldið. Meðal þess, sem
flokksforingjamir segja að flokks-
þing kratanna ætli að fjalla um, er
stefnumörkun fyrir næsta vetur
varðandi fjárlög og EES. Af þeim
málum, sem flokksforingjamir
hafa ekki talað um að eigi aö ræða,
eru mál flokks-
foringjanna
sjálfra, staða
þeirra og inn-
byrðis styrk-
leiki. Þannig
em horfur á að
þeir, sem lang-
þreyttir eru á Jóna- bræðralaginu,
láti tíl skarar skriða og bjóði fram
gegn sitjandi formanni. Það er
ekld lengra sfðan en að morgni Jú-
róvisiondags að bæjarstjórinn í
Hafnarfirði minnti á það f útvarp-
sviðtali að Jón Baldvin tilkynnti
um mótframboft sitt gegn þáver-
andi formanni, Kjartani Jóhanns-
syni, afteins 9 dögum fyrír flokks-
þing. Taldi bæjarstjórinn það aug-
ljóslega merid um að enn gæti ver-
ið von á slflm mótframboði nú. Ef
af þessari hallarfoyltingu verður í
Alþýðuflokknum, ems og margt
bendir til, er óhætt að fúllyrða að
haUarbylting Ragnheiðar í
Menntamálaráöi verður talin smá-
munir einir f samanburði. Engu aft
síður má reikna með að flokks-
þingið verði að ræða þá hallaifoylt-
Ingu, og raunar væri það ágætis
upphitunarumræða fyrir umræð-
una um hugsanleg umskipti í for-
ystu flokksins. Síðast en ekki síst
má búast við að á dagskrá flokks-
þingsins komi það mál, sem gaus
upp nú um helgina og snýst um
það hvort forysta flokksins á að
fylgja stefnu Alþýðuflokksins eða
hvort hún eigi að fylgja stefnu
Sjálfstæðisflokksins. Raunar þarf
að taka þetta grundvaUarmál fyrir
nokkuð snemma á flokksþinginu,
því að ef hinn almenni Alþýðu-
flokksmaður ætlar að faUast á þá
túlkun núverandi forystu og þing-
flokks að best sé að himsa ályktan-
ir æðstu stofnana Alþýðuflokksins
og fylgja bara stefnu sjálfstæðis-
manna, þá veröa önnur mál þmgs-
ins í raun óþörf og tilgangslaus.
Forystan myndi hvort sem er ekk-
ert mark taka á samþykktum
þingsins, nema ef þær féllu jafn-
framt að stefnu sjálfstæðismanna,
jafnvel ekki þó svo æxlaðist að
þingið myndi ákveða að skipta um
forystu.
Kallar á beina
útsendingu
En hver svo sem niöurstaðan
verður, er Ijóst að spennandi
flokksþing er framundan hjá kröt-
um og Ijóst að þeir koma til meö
að halda uppi fjörinu fram eftír
sumri. Slíkt er þakkarvert, því við
þetta dregur úr spennufaUinu eftir
Júróvision-keppnina, og ásamt Ir-
on Maiden-hljómleikunum hjálpa
kratamir tíl vift að brúa biUð þang-
að til Black Sabbath og Jethro Tull
koma UI hfjómleikahalds hér á
landi í haust Til að þetta megi tak-
ast sem besL er fjóst hverja kröfu
almenningur gerin hann viU beina
útsendingu frá flokksþingi krata!
Garri
Sarajevo Harðir bardagar geis-
uðu I gær milli herja Serba og mús-
lima í Sarajevo og öðrum bæjum
og þorpum í Bosníu. Bardagamir
eru taldi glöggt merki um að striðs-
aöilar reyna allt hvað af tekur að ná
landsvæöum á sitt vald og styrkja
þannig stöðu sína.
Maniia Fidel Ramos, fymjm vam-
armálaráðherra í stjóm Corazon
Aquino forseta Filippseyja, og Miri-
am Santiago, lögffæðingur og fyrr-
verandi dómari, eru líklegir sigur-
vegarar forsetakosninganna á Rl-
ippseyjum, en hvort þeirra sest í
forsetastólinn verður ekki Ijóst fyrr
en endanlegar niðurstöður at-
kvæöatalningar liggja fyrir I lok vik-
unnar. Mjög mikill viðbúnaður var af
hálfu yfirvalda til að tryggja öryggi
kjósenda og frambjóðenda í kosrv-
ingunum sjálfum og kosningabar-
áttunni og niöurstaöan er sú að
kosningamar urðu tiltölulega fiið-
samlegar á filippseyskan mæli-
kvarða.
Dushbane, Tajikistan. Rlkis-
stjóm ríkisins og stjómarandstaðan
hafa orðið ásátt um að mynda
samsteypustjóm í þeim tilgangi að
foröa landsbúum frá yfirvofandi
borgarastyrjöld að því haft er eftir
yfirmanni í her landsins.
Baku, Azerbadjan Azerar og
Armenar berjast um yfináö yfir
bænum Shusha í Nagomo-Karab-
akh sem er báðum hemaðarlega
mikilvægur. Iranir sendu samninga-
mann sinn til bæjarins til að reyna
að stöðva blóösúthellingar í deil-
unni um héraðið.
Kabúl Hershöfðingjar i herstjóm-
inni í Afghanistan sendu þúsundir
hemnanna inn í Kabúl um helgina
og hunsuöu þannig kröfur margra
skæruliðaforingja um að sljómar-
herinn drægi sig út úr borginni.
Briissel Viðræður um málefni ein-
stakra landsvæða tengdar viðræð-
unum um frið í Miðausturiöndum
hófust í Brussel í gær. Byrjunin var
þó ekki björgulegri en svo að (sra-
elsmenn hunsuðu fundinn og
mættu ekki vegna þess að Palest-
ínumenn sem búsettir eru utan her-
numdu svæðanna áttu fulltrúa á
fundinum. [ Kairo sögðu talsmenn
PLO að þeir væru ánægðir með
óopinbera þátttöku samtakanna I
viðræðunum um frið í Miðaustur-
löndum en byggjust viö að hlutur
þeirra i þeim yrði stærri með tíman-
um.
Jerúsalem Yitzhak Shamir, for-
maöur Verkamannaflokksins sem
er í stjómarandstöðu, segir að væri
hann leiðtogi (sraels myndi hann
hætta fjárveitingum til (sraelsmanna
sem eru að taka sér bólfestu á her-
numdu svæöunum. Landið þyrfti
sáriega á eriendri aðstoð að halda .
til að geta tekið sómasamlega á
móti innflytjendum. Slik aðstoð lægi
ekki á lausu á meðan Israelsmenn
tækju sér bólfestu á hemumdum
landsvæöum araba.
Bonn Helmuth Kohl, kanslari
Þýskalands, á í vændum fleiri
vandræði í formi fleiri verkfalla og
ókyrrðar. Hann réðst í gær harka-
lega á verkalýðsforingja og sagði
að stjómvöld reyndu eftir mætti að
halda markinu stöðugu en nytu I
engu stuönings verkalýðsfélaganna
við það.
London Áfrýjunardómstóll í Bret-
landi hefur látið lausa konu sem
dæmd var í 30 ára fangelsi fyrir
þátttöku i skæruliðastarfsemi IRA
og að hafa m.a. sprengt I loft upp
aitubil árið 1974.12 manns förust I
þeirri árás. Mál hennar verður tekið
upp á ný þar sem talið er að játning
hennar á sínum tíma hafi ekki verið
marktæk vegna andlegs ástands
hennar.
Bangkok Mjög hefur verið þrýst á
Sushinda, ókjörinn forsætisráð-
herra Thailands, að undanfömu að
hann segði af sér. Hann sagði I
gær að ef þingið færi fram á að
hann segði af sér myndi hann gera
það.