Tíminn - 12.05.1992, Side 9
Þriðjudagur 12. maí 1992
Tíminn 9
tækniskóli
íslands
Háskóli og
framhaldsskóli
vekur athygli á því að umsóknarfrestur um skólavist árið 1992-93
rennur út 31. maí næstkomandi. Áætlað er að taka inn nemend-
ur í eftirtaldar deildir og námsbrautir:
Frumgreinadeild: undirbúningur undir nám í sérgreina-
deildum.
Byggingadeild: byggingaiðnfræði og byggingatæknifræði.
Rafmagnsdeild:
Véladeild:
rafmagnsiðnfræði, sterkstraums- og
veikstraumssvið, rafmagnstæknifræði.
véliðnfræði, vél- og skipatæknifræði.
Rekstrardeild:
Heilbrigðisdeild:
útvegstækni, iðnrekstrarfræði og iðnað-
artæknifræði.
meinatækni og röntgentækni.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, sem er opin dag-
lega kl. 8:30-15:30.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa skólans og deildarstjórar í
síma 91-814933.
Rektor
Aðalfundarboð
Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar hf. verður haldinn 20.
maí 1992 kl. 16,00 í Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, en skv. 16. gr.
samþykkta félagsins, skal taka fyrir eftirtalin mál:
1. Skýrslu stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfs-
ár.
2. Efnahags- og rekstrarreikningar fyrir liðið reikningsár,
ásamt skýrslu endurskoðenda, verða lagðir fram til
staðfestingar.
3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
eða tap félagsins á reikningsárinu.
4. Tekin skal ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og
endurskoðenda.
5. Kjósa skal stjórn og varastjórn og tilnefna fulltrúa ríkis-
ins.
6. Kjósa skal endurskoðanda.
7. Önnur mál, sem löglega eru uppborin.
Dagskrá fundarins, ársreikningur og skýrsla endurskoð-
enda liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund,
skv. 14. gr. samþykktar þess.
Steinullarverksmiðjan hf.
Vorferð
Félag framsóknarkvenna i Reykjavíkfer í vorferð siðdegis laugardaginn 16. mai n.k.
Nánar auglýst slðar.
Stjómln.
Hafnarfjörður
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, er opin alla þriðjudaga frá kl.
17.00-19.00.
Litið inn í kaffi og spjall.
Framsóknarfélögin I Hafnarfirói.
Ungt framsóknarfólk
á Vestfjörðum
Sameiginlegur stjómmálafundur ungra framsóknarmanna á Vestfjörðum og fram-
kvæmdastjómar SUF verður haldinn á isafirði laugardaginn 16. maí n.k. I húsi fram-
sóknarmanna að Hafnarstræti 8, kl. 16.30.
Kaffiveitingar. Félagar og aðrir áhugasamir fjölmennið.
FUF vió Djúp/SUF.
Framsóknarkonur
Suöurlandi
Félag framsóknarkvenna i Ámessýslu og Freyja, félag framsóknarkvenna f
Kópavogi, halda sameiginlegan VORFUND I Félagslundi, Gaulverjabæjarhreppi,
mánudaginn 18. mal n.k.
Fundurinn hefst með sameiginlegum kvöldverði kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, upplýsingafulltrúi
Tryggingastofnunar rikisins.
Ragna Gunnarsdóttir fer með gamanmál.
Ingibjörg Guðmundsdóttir stjómar fjöldasöng.
Þátttaka tilkynnist til Þóreyjar Kristjánsdóttur, sími 63307, fyrir laugardaginn 16. maí.
Fjölmennið og takiö með ykkur gesti.
Stjómir féiaganna.
Það er engin dómkirkja í baksýn — ekki einu sinni þorpskirkja, þegar brúökaupsmyndin er tekin. En
aldrei þessu vant er skriödrekinn þagnaöur, og það segir sína sögu.
Ástin sigrar stríöið:
Serbneskur hermaður
gengur að eiga króat-
íska unnustu sína
Hjónabandsheit króatískrar
stúlku og serbnesks hermanns á
iandamærum Júgóslavíu og Króa-
tíu hefur gefíð birtu og von um að
betri tímar séu í vændum hjá
þessu stríðshrjáða fólki.
Giftingarathöfnin fór fram und-
ir berum himni í grennd við borg-
ina Osijek, sem um skeið var mik-
ið í fréttum vegna hatrammra bar-
daga sem þar geisuðu, en á brúð-
kaupsdaginn þögðu byssurnar og
sannaðist sem oftar að ástin þekk-
ir engin landamæri.
Það var ekki mikil viðhöfn
vegna brúðkaupsins, en gömlum
hefðum var viðhaldið með því að
gestirnir sáu til þess að brauð og
egg voru við höndina.
Sú merking er tengd því að
brjóta brauð í sameiningu að nýju
fjölskylduna skuli aldrei skorta
mat, og eggin eiga að sjá til þess að Viö skulum vona aö framtíöin veröi ungu, hamingjusömu brúöhjón-
senn fjölgi í fjölskyldunni. unum björt.
Frumleg aukavinna
— sem reyndar misheppnaöist!
Samira Hannoch er ekki nema 16
ára skólastúlka í Svíþjóð, dóttir
sýrlenskra innflytjenda, en hún
hefur þó sýnt að hún hefur alla
burði til að bjarga sér í lífínu.
Þegar hana vantaði vasapeninga,
gerði hún sér lítið fyrir og tók til
starfa við atvinnugreinina
„kniftaverk“.
í þrjár vikur lét hún það vitnast
í bænum Södertalje að hún væri
reiðubúin að veita þjónustu sína,
gegn gjaldi að sjálfsögðu. Viðbún-
aðurinn var mikill, enda ætlaði
hún að lækna blinda og lamaða
með því að smyrja „heilagri olíu“,
sem spratt úr lófum hennar, á enni
þeirra sjúku.
Því miður hafði hún ekki erindi
sem erfiði, og þrátt fyrir miðilstil-
burði varð árangurinn enginn,
nema í einhverjum tilvikum hug-
arburður, enda kom í ljós að olían
kom úr bómullarhnoðrum sem
hún leyndi í höndunum.
Vonsvikin hætti Samira þess
L
vegna starfseminni 10. apríl, en
hafði þá þó borið svo mikið úr být-
um að hún hafði ráð á að bregða
sér í hressingarferð til Jerúsalem.
Til Svíþjóðar varð hún þó að vera
komin 2. maí til að setjast aftur á
skólabekk; þar er enga miskunn að
finna.
Samira Hannoch ætlaöi aö
vinna sér inn vasapeninga meö
þvl aö gera kraftaverk. Þau
mistókust reyndar öll, en hún
var þá búin aö vinna sér inn
nóg til að bregöa sér f frl til
Jerúsalem.