Tíminn - 14.05.1992, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbas
Sfmar 668138 8 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Oömvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
bAtar*vara-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
HOGG-
> DEYFAR
QJ varahlutir
Verslié hjá fagmönnum
JdL
Hamarshöföa 1 - s. 67-67-44
3
Tíminn
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
Lífsbjörg í Norðurhöfum:
Skaða-
bóta-
kröfunum
var hafnað
Magnús Guömundsson kvikmynda-
gerðarmaður var sakfelldur íyrir
fjórar af sjö ákærum sem Grænfrið-
ungar í Noregi báru fram gegn hon-
um fyrir fullyrðingar sem hann lagði
fram í myndinni „Lífsbjörg í Norður-
höfum". Magnús var dæmdur til að
greiða 300 þúsund fyrir birtingu
dómnum og gert að draga ummæli
sín um Grænfriðunga til baka. Hon-
um var ekki gert að greiða skaðabæt-
ur. -EÓ
Ný útvarpsstöð
Hitt níu-sex
Ný útvarpsstöð, Hitt níu-sex, hóf út-
sendingar í gær á fm. 96,6. Forsvars-
menn stöðvarinnar segjast ætla að
þjóna sem breiðustum aldurshópi
hlustenda og gera það með því að út-
varpa íslenskri sem erlendri hljóm-
list.
SUMARIÐ HEFUR KOMIÐ HÆGT og hljótt þetta áriö, en frekar kalt hefur verið í veöri þaö sem af er maímánuöi. Bændur, sem marg-
ir hverjir eru á kafi í sauöburöi þessa dagana, eru hálfargir út í veöurguöina. Borgarbörn láta sig veöriö minna skipta, a.m.k. er auðvelt
aö gleyma því í leik í sundlaugunum. Tímamynd Árni Bjarna
Könnun á blóðfitu starfsmanna á Grundartanga:
Grænmeti í stað rjóma
Blóðfita (kolesterol) starfsmanna Jámblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga lækkaði um 7,5% vegna tilraunar sem þar hefur ver-
ið unnin af læknunum Ara Jóhannessyni, Reyni Þorsteinssyni,
Halldóri Jónssyni og Þóri Þórhallssyni. Guðrún Þóra Hjaltadóttir
næringarfræðingur var þeim til aðstoðar.
„Það vaknaði þessi hugmynd að
kanna áhættuþætti hjarta- og æða-
sjúkdóma meðal starfsfólksins,"
segir Ari Jóhannesson. „Okkur lang-
aði til að gá hvort hægt væri að hafa
áhrif á blóðfitu starfsmanna á
vinnustöðum. Árangurinn var betri
en við bjuggumst við.“
Tilraunin hófst í júní 1989 og lauk
Byssumaðurinn í Mávahlíö:
Sátu saman
að sumbli
Ungi maðurinn, sem skaut með
kindabyssu á annan við Mávahlíð 24
í fyrrakvöld, beið í gær enn yfir-
heyrslna. Hinn særði var aftur á
móti færður af gjörgæslu í gær.
Þeir höfðu setið saman að drykkju í
Mávahlíðinni ásamt tveimur bræðr-
um byssumannsins, en þeir bjuggu
þrír saman. Þegar vísa átti gestinum
út urðu ryskingar, þar eð hann vildi
ekki yfirgefa húsið. Blóðprufa hefur
verið tekin úr byssumanninum en
ekki hefur enn fengist úr því skorið
hvort eitthvað sterkara var haft um
hönd en vín.
—GKG.
í júní 1991. Reynt var að draga úr
feitmeti í mötuneyti starfsmanna til
að kanna áhrif þess á blóðfitu.
Feitur matur var fjarlægður úr
mötuneytinu svo sem eins og ný-
mjólk, smjör, feitir ostar, feitt álegg
og sósur með rjóma eða mayonnesi.
Boðið var þess í stað upp á t.d. græn-
metisborð, magurt álegg, magrar
mjólkurafurðir, gróft brauð, súr-
mjólk og all-bran.
Blóðfita starfsmanna var fyrst
mæld í upphafi könnunnarinnar,
svo eftir eitt ár og loks í júní 1991.
Ari Jóhannesson segir hana hafa
lækkað marktækt og yfir hópinn um
7,5%: „Þeir sem voru með hæstu
blóðfituna í upphafi lækkuðu mest.“
Ari segir að fæðisbreytingin verði
áfram við lýði í mötuneytinu: „Það
er meiningin að fylgjast með þessu
eitthvað áfram en það verður ekki
haldið áfram að fylgjast eins mark-
visst með blóðfitunni."
Ástæður þess að Járnblendiverk-
smiðjan varð fyrir valinu er að frá
því hún var opnuð hafa heilsugæslu-
læknar á Akranesi haft eftirlit með
heilsufari starfsfólks þar. í upphafi
vegna atvinnusjúkdóma, því verk-
smiðjan var ný og menn voru
hræddir um að upp kæmu einhverj-
ir nýir kvillar. Svo neyta flestir
morgunverðar og einnar heitrar
máltíðar í mötuneyti verksmiðjunn-
ar.
Tilraunir sem þessi hafa verið
reyndar erlendis en árangurinn hef-
ur ekki þótt góður. —GKG.
Kjartan Ragnarsson nýr for-
maður Leikfélags Reykjavíkur:
Iðnó vagga
menningar
Kjartan Ragnarsson hefur verið kos-
inn formaður Leikfélags Reykjavíkur
þar eð Sigurður Karlsson gaf ekki kost
á sér aftur.
Meðstjómendur eru Guðmundur Ól-
afsson og Hanna María Karlsdóttir.
í varastjóm sitja Sigrún Edda Bjöms-
dóttir, Jón Þórisson og Ragnheiður
Elfa Amardóttir.
Aðalfundur félagsins, haldinn 4. maí,
hefur sent frá sér ályktun þar sem
fagnað er „frumkvæöi Reykjavíkur-
borgar til endurbyggingar á húseign-
inni Iðnó við Vonarstræti". Minnt er á
að það hafi verið heimili félagsins frá
stofnun þess 1897 þar til það flutti í
Borgarleikhúsið haustið 1989. Leikfé-
lagið býður fram reynslu sína og að-
stoð sem að gagni mætti koma við
enduruppbyggingu hússins. —GKG.
Félag fangavarða:
Fagnar skýrslu
Félag fangavarða fagnar skýrslu
fangelsismálanefndar og tekur undir
niöurstöður hennar í flestum atrið-
urri en þar er lagt til að komið verði
upp nýju fangelsi.
Fangaverðir segjast hafa unnið við
slæmar aðstæður hingað til „en
ávallt verið reiðubúnir til að bæta
ástandið í fangelsunum. - GKG
Grikkland vann
Gríska landsliðið í knattspyrnu
karla bar sigurorð af því íslenska í
undankeppni heimsmeistarakeppn-
innar í Aþenu í gær. Grikkir skoruöu
eitt mark e.i íslendingar ekkert.
Kennarastöðum fækkað
um átta á Vestfjörðum
Kennurum á Vestfjörðum verður fækkað um 8,65 stöðugildi
næsta vetur og er ekki laust við ugg í mönnum vestra sökum
þessa.
„Hér verður skorin niður kennsla í
öllum grunnskólum meira eða
minna," segir Pétur Bjarnason,
fræðslustjóri á Vestfjörðum. ,Á
sama tíma og verið er aö tala um að
fjölga í opinberum störfum sem og
í þjónustustörfum hér á Vestfjörð-
um eru skorin niður með einni
ákvörðun 8-9 stöðugildi á svæðinu.
Við höfum að sjálfsögðu áhyggjur
af þessu."
Á fundi Fræðsluráðs Vestfjarða 7.
maí sl. kom fram að kennaraum-
sóknir hefðu aldrei verið fleiri og
meira væri um réttindafólk en áð-
ur.
Pétur telur ástæðuna vera tví-
þætta: „Samdráttur í skólakerfmu
þýðir minni vinnu en áður og fólk á
Reykjavíkursvæðinu missir vinn-
una sem það hafði áður. Ef fækkar
um annað hundrað störf í kennara-
stétt þá kemur það auðvitað fram í
því að færri leiðbeinendur fá vinnu
en áður. Hin ástæðan er sú að það
er almennur samdráttur í þjóðfé-
laginu og margir kennarar starfa
við önnur störf en kennslu."
Fræðsluráð Vestfjarða hefur mót-
mælt niðurskurðinum.
—GKG.