Tíminn - 27.05.1992, Page 2

Tíminn - 27.05.1992, Page 2
2 Tíminn Miðvikudagur 27. maí 1992 Jafnvægi á vinnumarkaði lækna í Evrópu í sjónmáli nema hér á íslandi: Fjöldi lækna menntaður til atvinnuleysis eða útlegðar Eftir offramboð lækna í flestum ríkjum V-Evrópu um langt árabil þykir ýmislegt benda til að jafnvægi náist þar á vinnumarkaði þeirra fljótlega upp úr aldamótum vegna markvissra aðgerða til að tak- marka fjölda útskrifaðra lækna. Á íslandi er raunin hins vegar öll önnur. Ekki er ráðgert að fækka útskrifuðum læknum frá Háskóla íslands á næstu árum þótt íslenskir læknar búi nú í raun við dulið atvinnuleysi. íslenskum læknum mun því halda áfram að fjölga um- fram störf næstu tvo áratugi a.m.k. Þetta þýðir að annaðhvort verð- ur fjöldi íslenskra lækna dæmdur í faglega útlegð í framtíðinni eða til þess að þiggja atvinnuleysisbætur úr ríkissjóði. Þetta er m.a. lesið úr niðurstöð- um könnunar sem Samtök ungra sjúkrahúslækna í Evrópu gerðu ný- lega á atvinnuhorfum og atvinnu- leysi lækna í V-Evrópu sem lækn- arnir Kristján Oddsson og Davíð 0. Arnar segja frá í Læknablaðinu. Er þetta fyrsta samræmda könnunin sem gerð er á þessu sviði í Evrópu. Tilgangur hennar var þríþættur: Að afla upplýsinga um fjölda lækna, aldur þeirra, kyn og fjölda atvinnu- lausra. Að spá um atvinnuhorfur næstu 1-2 áratugi. Og bera saman atvinnuástand milli landa. Af 1.050 þús. læknum í V-Evrópu reyndust 64.500 atvinnulausir, eða 6,1% að meðaltali (frá 0% upp í rúmlega 17% eftir löndum). Um 60% atvinnulausra voru ítalir, 23% Þjóðverjar og 9% Spánverjar, enda atvinnulausa lækna aðallega að finna í þessum löndum ásamt Aust- urríki og Hollandi. í þessum fimm löndum voru 57% allra lækna V- Evrópu. Konur fæstar í lækna- stétt á íslandi í Ijós kom að ekkert Evróðpuland á færri konur í læknastétt en ísland. Aðeins 16% íslenskra lækna eru konur en spáð að þær verði 28% um aldamót. I Portúgal er hins vegar nær helmingur lækna (47%) konur. Af öllum læknum álfunnar voru 28% konur og búist við að það hlut- fall verði 33% um aldamót. Hlutfall lækna og íbúa er líka tals- vert misjafnt í Evrópulöndum. Að- eins um 250 íbúar eru um hvern lækni á Ítalíu og tæplega 300 á Spáni. Hins vegar eru nær 630 íbúar um hvern lækni á írlandi, um 560 í Bretlandi og rúmlega 490 í Hol- landi. í öðrum löndum álfunnar er hlutfallið um 350 íbúar á hvem lækni. Á íslandi eru um 340 manns á hvern starfandi lækni, en yrðu að- eins 240 ef þeir læknar sem nú starfa erlendis kæmu heim. Jafnvægi um 2005 Læknum hefur fjölgað jafnt og þétt í álfunni frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Búist er við að læknum fjölgi um 1,85% á ári á yfir- standandi áratug, eða um helmingi hægar en á áratugnum 1980- 1990. Áratuginn 2000-2010 er svo ekki bú- ist við neinni fjölgun lækna í V-Evr- ópu — nema á íslandi þar sem talið er að læknar verði hvað flestir kringum árið 2010. Til að uppræta atvinnuleysi evr- ópskra lækna fyrir aldamót þyrfti eftirspurnin að vera að meðaltali um 2,3% á ári umfram eðlilega endur- nýjun. Upp úr aldamótunum lækkar þetta hlutfall verulega. Er því talið að jafnvægi framboðs og eftirspurn- ar náist í kringum árið 2005. Þykir þetta nokkuð bærilegt atvinnu- ástand til lengri tíma litið. Atvinnuleysi íslenskra falið í útlöndum Þó ekki sé atvinnuleysi meðal lækna hér á landi segir það ekki nema hálfa söguna, að mati greinar- höfunda. Af rúmlega 1.220 íslensk- um læknum sé tæplega þriðjungur- inn, eða nær 390, erlendis við nám og störf (þar af rúmlega helmingur í Svíþjóð og tæpur fjórðungur í Bandaríkunum). Ef gert væri ráð fyrir að 80% þessa hóps kæmu skyndilega heim án þess að aðrir færu utan gæti atvinnuleysi orðið 20-25% í stéttinni. „Atvinnuleysi ís- lenskra lækna er þannig falið er- lendis," segja greinarhöfúndar. Spár um atvinnuhorfur byggjast m.a. á því að frá og með 1990 út- skrifar H.í. 36 læknakandídata ár- lega. Og gert er ráð fyrir að 360 læknar verði að staðaldri við sérnám erlendis. íslenskum læknum muni því halda áfram að fjölga næstu ára- tugi. Búist er við að 60 læknum verði ofaukið hér um aldamót og að of- framboðið nái hámarki árið 2010. Ef framboð og eftirspurn ættu að haldast í hendur á þessum áratug krefðist það um 20 nýrra stöðugilda á ári umfram þau 14 stöðugildi sem árlega þarf til eðlilegrar endurnýj- unar. Af þessu megi ráða að of mikið sé að útskrifa 36 læknanema á ári miðað við núverandi aðstæður. Aðstoðarlæknar í 4-10 ár í stað 1-2 „Við verðum að spyrja hvort ís- land hafí efni á því að velja úr nokkra af hæfustu einstaklingum hvers árgangs og mennta þá til út- Iegðar," segir Einar Stefánsson um sama efni í sama Læknablaði. Hann segir það byggt á skamm- sýni að fjölga þurfi útskrifuðum læknum frá H.í. vegna skorts á að- stoðarlæknum á sjúkrahúsum á ís- landi, eins og raddir hafi jafnvel heyrst um. Sjúkrahús á íslandi reyni að manna stöður aðstoðarlækna og yngri lækna með aðeins 1-2 árgöng- um af læknum. í nágrannalöndun- um séu ungir læknar í aðstoðar- lækna- og námsstöðum í mörg ár og þessar stöður mannaðar af 4 til 10 árgöngum lækna. -HEI Stefanía Þorgrimsdóttir formaður Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík, sr. Bragi Skúlason, höfundur Vonar, og Sigurður Jóhannsson, fýrrv. formaður Nýrrar dögunar. Bók um sorg og sorgarviðbrögð: VON EFTIR SR. BRAGA SKÚLASON Hjá Hörpuútgáfunni er komin út bókin Von eftir sr. Braga Skúla- son sjúkrahúsprcst. Bókin fjallar um tilfinnlngar sorgarinnar og sorgarviðbrögö bæöi barna og fullorðinna og er byggð á reynsiu margra, bæði höfúndar sjálfs og fjölskyldu hans sem og fjöl- margra annarra víða um land. Fjallað er í bókinni um sorglega atburði af flestu tagi, svo sem missi fólks við lát eða skUnað eða af öðrum sökum og viðbrögö hinna syrgjandi við þeim. Höf- undur telur sorgina vera eðUleg viðbrögð við missi af sérhverju tagi og að margir vinir og bjálpar- aðUar forðist að ræða sorgina sjálfa við hinn syrgjandi sem þess vegna einangrist með sorg sfna sem ekki fær eðlUegan farveg. Bókin Von er 100 bls og unnin í prentsmiðjunni Odda. Kápumynd er eftir Rafn Hafnfjörð. Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna: Vill fá nýjan formann samninganefndar ríkis Stjóm BHMR hefur sent frá sér yf- irlýsingu þar sem hún mótmælir setningu Birgis Cuðjónssonar, skrifstofustjóra launadeildar fjár- málaráðuneytisins, í embætti for- manns samninganefndar ríksins og krefst þess að fjármálaráðherra skipi nú þegar nýjan formann nefndarinnar og sjái þar með tU þess að nefndin sinni lögboðnu Stjóm Hringsins hefur afhent vökudeild Bamaspítala Hringsins 6 monitora en það er tækjabúnaður til að fylgjast með lífsmörkum bama. Gjöfin kostar yfir 8 milljónir króna en virðisaukaskattur fékkst felldur niður og Flugleiðir flaug með tækin heim án endurgjalds. Við afhendingu gjafarinnar var minnt á að fyrir nokkrum árum var ákveðið að barnaspítali skyldi hlutverki sínu. BHMR vekur einnig athygli á því að enn sé ósamið við fjölda ríkis- starfsmanna og mótmælir því að fráfarandi formanni Ágústi Einars- syni hafi verið veitt lausn frá störf- um á þeirri forsendu að samningum við ríkisstarfsmenn sé lokið. BHMR bendir á að samningsrétturinn sé í höndum einstakra félaga og að sam- byggður út frá Landspítalanum á ár- unum 1992-1997 og nú er komin beiðni til fjárveitingarvalds um að setja peninga í byggingu barnaspít- alans. Herta Jónsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á Barnaspítala Hringsins, segir vökudeildina vera vel tækjum búna fyrir tilstuðlan Hringsins og standa þar af leiðandi vel að vígi en aftur á móti þurfi þjóð- in á barnaspítala aö halda. —GKG. þykkt miðlunartillögu sáttarsemj- ara hjá flestum aðildarfélögum BSRB og KÍ takmarki í engu rétt annarra stéttarfélaga til sjálfstæðrar samningsgerðar. -PS Evrópskt mistur Mistrið sem liggur yfir landinu þessa dagana er ættað frá meg- inlandi Evrópu og aðallega frá verksmiðjuskorsteinum Bret- landseyja, Hollands. Belgíu og Norðvestur-Þýskalands. Þær upplýsingar fengust hjá Veður- stofunni að þetta væri ryk vegna bruna en þessar þjóðir nota mikiö kol. Hlýindi fylgja og fyrir norðan var 18 stíga hiti fyrir há- degi í gær. Spáð er að mistrið verði hér næstu 2 daga en það gætí alveg eins haldist viku til 10 daga því það er þaulsetíð þegar það á annað borð kemur. —GKG. Hringurinn afhendir gjöf: MINNT Á SKORT Á BARNASPÍTALA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.