Tíminn - 27.05.1992, Síða 3
Miðvikudagur 27. maí 1992
Tíminn 3
Frystihús Fiskiðjunnar hf. á Sauðárkróki
Magnús Erlingsson
framleiðslustjóri og Kristmann
Kristmannson ásamt syni
Kristmanns til hægri við nýju
flæðilínuna.
Það sem er sérstakt við þessa flæði-
línu er að hún notar svokallað „ein-
staklingsflokkunnarkerfi". Hefð-
bundnar flæðih'nur eru með rennu
frá hverju skurðarborði, sem Uggur
beint út á færibandsreimina. Flæði-
hnan í Fiskiðjunni á Sauðárkróki er
með sérhólf fyrir hveija manneskju
fyrir sig og úr því er síðan losað út á
færibandið. Þegar hólfln eru losuð
lendir fiskurinn frá hveiju skurðar-
borði í hrúgu á færibandinu, sem
síðan er hægt að vigta og gæða-
fiokka. Þannig er hægt að fylgjast
með afköstum, nýtingu og skipting-
unni í pakkningar frá hverri konu
fyrir sig.
„Þetta er fyrst og fremst gert til
þess að verkstjórinn geti haft eftirlit
með því hvað hver og einn er að
gera,“ sagði Kristmann Kristmanns-
son, yfirverkstjóri hjá Fiskiðjunni hf.,
þegar Tímamenn ræddu við hann á
Sauðárkróki á dögunum. „Með örlít-
illi þróun í viðbót væri hægt að borga
einstaklingsbónus eftir þessu kerfi í
framtíðinni. Þetta er fyrsta flæðilína
sinnar tegundar og það má segja að
þetta sé fullkomnasta flæðilína í
heimi."
Það er Ingólfur Árnason, hönnuð-
ur frá Akranesi, sem á mestan heiður
af nýju flæðilínunni en byggði hana á
grunni tilraunaflæðilínu, sem hann
hannaði í Færeyjum. Þorgeir og Ell-
ert hf. á Akranesi smíðuðu flæðilín-
una, sem síðan var sett upp á Sauðár-
króki og tölvur og allur hugbúnaður
koma frá Marel hf. í Reykjavík.
Engarvega-
bréfsáritanir
til Júgóslavíu
eru Spánveijar
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið
að fella úr gildi samkomulag frá ár-
inu 1964 um vegabréfsáritanir til
fyrrum sambandslýðveldis Júgó-
slavíu. Sendiráði íslands í Stokk-
hólmi hefur verið falið að koma
þessari ákvörðun íslenskra stjóm-
valda á framfæri við stjómvöld í
Belgrad í Júgóslavíu.
Með þessari ákvörðun er utanríkis-
ráðuneytið að taka þátt í alþjóðleg-
um þrýstiaðgerðum á stjórnina í
Belgrad. Jafnframt er með þessu
verið að leysa ákveðið löggæslu-
vandamál, en vegna umrótsins sem
orðið hefur í Júgóslavíu er orðið erf-
iðara að fylgjast með fólki sem ferð-
ast um á gömlum júgóslavneskum
vegabréfum. -EÓ
Og nú sýna þeir listir sínar á íslandi
í tilefni 60 ára afmælis SIE
Fjórir valinkunnir spænskir meistara-
kokkar koma í heimsókn og bjóða upp
á listilega matreidda spænska saltfisk-
\ rétti á veitingastöðum um land allt.
| Joidi Busquets, Florencio Martinez, Juan Diez og Jesus Martinez feiðast
jHf á milli staða og slá upp saltfiskveLslu. Þeim til halds og trausts verða
tslensku listakokkamir Bjami Ólason, Rúnar Marvinsson og Utíar Eysteinsson
Stærsti framhalds
skóli á landinu
I V\óí*0’ x.
243 nemendum voru afhent loka-
prófsskírteini við skólaslit eins
fyrsta fjölbrautaskóla landsins og
þess stærsta; Fjölbrautaskóla
Breiðholts sl. miðvikudag.
Bestum árangri á stúdentsprófi
náðu Eva Vilhjálmsdóttir af félags-
fræðibraut, Þorsteinn Berghreins-
son af listasviði dagskóla og Kristín
Kristinsdóttir af viðskiptasviði
kvöldskóla.
Við skólaslitin flutti Kristín Arn-
alds skólameistari yfirlitsræðu og
gerði grein fyrir starfi og prófum í
dag- og kvöldskóla og kór skólans
söng undir stjórn Ernu Guðmunds-
dóttur. —GKG.
Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda