Tíminn - 27.05.1992, Side 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 27. maí 1992
Á ráðstefnu Sambands ungra framsóknarmanna um fiskveiðistjórnun lýsti Þröstur Ólafsson, formaður
nefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, því yfiir að hann vildi áfram byggja á kvótakerfi:
Þröstur segir sjávar-
útveginn ekki þola
veiðileyfagj ald
Einar Oddur Kristjánsson, fyrrverandi formaður VSÍ, og Þröst-
ur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sögðu á ráð-
stefnu sem Samband ungra framsóknarmanna hélt um stjórn
fiskveiða að þeir væru fylgjandi því að áfram yrði byggt á afla-
marki (kvótakerfi) við stjórn fiskveiða. Einar Oddur sagði að
menn yrðu að minnka fiskveiðiflotann þannig að sóknargeta
hans verði í samræmi við afrakstursgetu fiskimiðanna. Þá muni
skapast sæmilegur friður um stjórn veiðanna. Hann sagði að
flotinn hafl verið að stækka fram á þennan dag. Þessu þurfí að
snúa við með því að láta útgerðarmenn úrelda stærri skip en
þeir kaupa þegar þeir endurnýja skip.
Við erum allir eigin-
hagsmunamenn
Einar Oddur sagði í upphafi síns
máls að hann sem og aðrir Vestfirð-
ingar hefðu verið á móti kvótakerf-
inu þegar því var komið á. Þeir hefðu
barist gegn því á þingum LÍÚ í mörg
ár, en niðurstaðan hefði ávallt verið
sú að fylgismenn kvótans hefðu haft
góðan meirihluta. Einar Oddur sagð-
ist hafa passað sig á því að segja fátt
um stjórnun fiskveiðanna á meðan
hann gegndi formennsku í VSÍ. Það
væri oft gott fyrir menn að þegja og
íhuga málin.
Einar Oddur sagði ástæðuna fyrir
því að Vestfirðingar hefðu verið á
móti kvótakerfinu vera þá að þeir séu
eiginhagsmunamenn eins og allir
aðrir. Með kvótakerfinu hefði verið
tekin ákvörðun um að skera niður
veiðarnar. Kerfið hefði dregið úr
möguleikum Vestfirðinga til að draga
fisk úr sjó. Einar Oddur sagði að þó
margt mætti segja um kvótakerfið
væri þó a.m.k. eitt jákvætt við það og
það væri frjálst framsal veiðiheim-
ilda, án þess væri kerfið hrein skelf-
ing.
Meinsemdin er
of stór floti
Einar Oddur sagði að meinsemdin
í íslenskum sjávarútvegi væri of stór
fiskiskipafloti. Flotinn hefði verið að
stækka fram á þennan dag, vegna
þess að menn hefðu ekki treyst sér að
loka algerlega fyrir kaup á nýjum
fiskiskipum. Nú væri loksins búið að
setja þá reglu að fyrir hvert nýtt fiski-
skip verði að úrelda annað jafnstórL
Einar Oddur sagði að menn þyrftu að
ganga lengra og setja þá reglu að fyr-
ir hvert nýtt keypt skip verði að úr-
elda stærra skip. Hann sagði að leið-
in til að hámarka arðinn af fiskveið-
unum væri að veiðigeta flotans væri
sem næst veiðiþoli fiskistofhanna, og
sagði að uppíylltu þessu markmiði
næðist fram hámarksarður af veið-
unum. Hann sagðist telja hugsanlegt
að deilur um hvemig eigi að stjóma
veiðunum geti fallið niður ef takist
að minnka flotann.
Fari þeir sem fara
vilja...
„Sem Vestfirðingur trúi ég því að
með því að þróa þetta kerfi áfram svo
óréttlátt sem það var, svo andstyggi-
legt sem það var þegar það var sett á
og svo margar falskar forsendur sem
vom fyrir því, þá megi, með því að
taka hér upp sterka flotastjóm, koma
byggðum þessa lands í þá einu að-
stöðu sem þeim ber að komast í og
hafa rétt til, aðstöðu til að geta keppL
Þær þurfa að geta keppt á réttum
grundvelli í þjóðfélagi sem er nokk-
um veginn í jafnvægi og tryggir að
leikreglumar em nokkum veginn í
lagi.
Ef vestfirsk mið em heppileg til
sóknar þá verða Vestfirðir heppilegur
búsetustaður íslendinga í framtíð-
inni, eins og þeir hafa verið. Ef við
getum ekki keppt, ef aðrir staðir
reynast betri til sjósóknar, ef hagnað-
ur veiðanna verður meiri annars
staðar en á Vestfjörðum, þá mun fólk
fara annað. Við sem höfum búið, og
ætlum okkur að búa á þessum út-
kjálkum, höfum lifað við það svo
lengi að byggðirnar standi höllum
fæti. Við brynjum okkur fyrir þessu
og kunnum að líta á þetta þeim aug-
um einum sem menn litu til álfanna
áður fyrr og sögðu: Komi þeir sem
koma vilja og fari þeir sem fara vilja,
mér og mínum að meinalausu,"
sagði Einar Oddur.
Þröstur styður
kvótakerfið
Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra og annar tveggja
formanna í nefrid sem vinnur að
endurskoðun fiskveiðistjórnunar,
sagðist einnig vilja byggja áfram á
kvótakerfinu við stjórn fiskveiða og
kom það mörgum fundarmönnum
nokkuð á óvart.
„Ég er þeirrar skoðunar að við
megum ekki gera neinar þær breyt-
ingar á stjórnkerfi fiskveiða sem
kalla á snögg umskipti fyrir sjávar-
útveginn. Sjávarútvegurinn þarf að
fá frið. Hann verður að fá tíma og
útsýni til þess að geta tekið ákvarð-
anir langt fram í tímann án þess að
óttast að það sé alltaf verið að breyta
og skipta um þann grundvöll sem
hann þarf að lifa eftir."
Þröstur sagði að AJþýðuflokkur-
inn hefði gert þá kröfu að á ákveðn-
um tímapunkti fari útgerðarmenn
að borga fyrir afnot af okkar dýr-
mætustu auðlind, fiskimiðunum.
Hann sagði að sá tímapunktur væri
hins vegar ekki upp runninn. Fyrst
þurfi að eiga sér stað endurskipu-
lagning í sjávarútvegi, sem m.a.
miði að því að fiskvinnslustöðvar
sameinist. Jafnframt verði skuldir
sjávarútvegsins að minnka.
„Ég get tekið undir margt sem
menn segja um gallana á aflamark-
inu. Það er ekki gallalaust. Ég tel
hins vegar að við eigum að viðhalda
því. Við eigum ekki að fara yfir í nýtt
kerfi núna, heldur að sjá hvort þetta
getur ekki skilað þeim árangri sem
við stefnum að,“ sagði Þröstur um
kvótakerfið.
Þurfum stærri
fyrirtæki
Þröstur sagði að menn hefðu haft
tilhneigingu til að kenna kvótakerf-
inu um allt sem miður hefði farið í
sjávarútvegi. Hann sagði að menn
yrðu að gera greinarmun á stjórn
fiskveiða og almennri efnahags-
stjórn í landinu. Þröstur sagði að
spumingín sem menn þyrftu að
velta fyrir sér væri hvort núverandi
skipulag veiðanna leiddi menn út úr
núverandi vanda eða hvort það
hugsanlega yki á vandann.
Þröstur gagnrýndi afskipti stjórn-
málamanna af sjávarútveginum, en
viðurkenndi að stjórnmálamenn
þyrftu að búa til skipulag um stjórn
veiðanna. Þeir ættu hins vegar ekki
að hafa stefnu í atvinnumálum sem
„ Þetta stórra fiff er ekki til frekar en önnur fiff," sagði Einar Oddur á ráöstefnunni um töframátt veiöileyfagjaldsins. Þröstur Ólafsson virö-
ist vera oröinn sammála Einari Oddi. Halldór Ásgrlmsson hefur alla tíð barist gegn veiöileyfagjaldi, en stutt kvótakerfiö. Óskar Þór Karls-
son, sem stendur milli Halldórs og Einars Odds, er hins vegar haröur andstæöingur kvótakerfisins. Timamynd g.e.