Tíminn - 27.05.1992, Page 11

Tíminn - 27.05.1992, Page 11
Miðvikudagur 27. maí 1992 Tíminn 11 kvótakerfi fyrir kattamef og finna nýja leið til að stýra fiskveiðunum. Ami fiallaði vítt og breitt um ókosti kvótakerfisins, ekki síst þá só- un sem hann sagði kerfið stuðla að. Hann sagði að gífurlega miklum afla væri hent í sjóinn. Menn reyni að hámarka knappa afkomu með því að hirða einungis það verðmætasta úr aflanum. Ámi tók nokkur dæmi. Hann sagði að skipstjóri á litlum netabáti hefði sagt sér að eftir tveggja daga brælu hefði hann kom- ið inn með fimm tonna afla. Fimm- tán tonn af dauðblóðguðum fiski hefðu farið í sjóinn. Skipstjórinn hefði sagt sér að hann yrði að ná sem mestum verðmætum út úr þeim litla kvóta sem hann ætti. Hann hefði ekki efni á að kaupa kvóta. Annar skipstjóri hefði fengið tíu tonn af ufsa í pokann, en þar sem skipið átti engan ufsakvóta hefði öllu verið hent í sjóinn. Árni sagðist telja að afla að verðmæti 5-10 millj- arða króna sé sóað með þessum hætti. Árni sagðist telja að það væri ekki hægt að laga þetta innan nú- verandi kerfis. Eðli þess kallaði á svona sóun. Útgerðarmenn verða að fara varlega með afnotaréttinn af miðunum Halldór Ásgrímsson, íyrrverandi sjávarútvegsráðherra, dró saman niðurstöður ráðstefnunnar í lok hennar. Hann sagðist vera sammála þeim Einari Oddi og Þresti að best sé að byggja áfram á kvótakerfinu við stjórn fiskveiða. Hann sagði jafn- framt að menn mættu ekki vera svo þröngsýnir að halda því fram að það megi ekki gera breytingar á því. Kerfið sé alls ekki gallalaust. Halldór sagði að það hefði tekið langan tíma að koma núverandi kerfi á. Það hefði ekki verið fullmótað þegar grunnur var lagður að því fyrir átta árum. Halldór sagði að menn spyrðu sig í dag eins og Einar Oddur, hvers vegna hefði verið fiárfest svona mik- ið í nýjum skipum á síðustu árum þegar markmiðið var að draga úr sókninni. Hann sagði að ein ástæð- an væri m.a. sú að sóknarmarkið hefði gert það að verkum að það gat borgað sig að kaupa ný skip. „Vest- firðingar vildu hafa sóknarmarkið vegna þess að þeir héldu þvf fram að þeir myndu standa sig best í sóknar- kerfinu, en það kom annað í ljós. Frystitogararnir stóðu sig t.d. afar vel í grálúðunni og unnu sér inn nýja kvóta. Menn vildu byggja upp samkeppni þar sem allir væru sem jafnastir. Hvað kom út úr þeirri samkeppni? Sumir græddu en aðrir töpuðu. Þeir sem töpuðu voru óánægðir, ekki síst Vestfirðingarnir sem töpuðu hreinlega að nokkru leyti þessum slag, slag sem þeir voru fyrirfi'am sannfærðir um að þeir myndu vinna," sagði Halldór og bætti því við að margir í þeim hópi sem vildu breyta kvótakerfinu hefðu þá trú að þeim myndi ganga betur í breyttu kerfi. „Getum við farið út í þessa sam- keppni sem fylgir sóknarstýring- unni? Er það ekki alveg Ijóst að sóknarkostnaðurinn mun vaxa á nýjan leik í því? Ég er a.m.k. sann- færður um það og þess vegna held ég að við verðum, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, að byggja á því kerfi sem hefur verið byggt upp á undanförnum árum,“ sagði Hall- dór. Hann sagði að kerfið væri ekki gallalaust eða óumbreytanlegt. Fyrsta grein laganna um stjórn fisk- veiða tryggi það. „Útgerðarmenn mega ekki halda það að þeir eigi kvótann. Þeir verða að vita það að ef þeir fara óskynsamlega með afnota- réttinn af miðunum þá verður hann af þeim tekinn. Ef útgerðarmenn myndu t.d. fara þannig með þennan rétt að allur afli yrði frystur úti á sjó þá yrði enginn friður um fiskveiðistjórnunina. Út- gerðarmenn verða því að fara gæti- lega með þennan rétt og taka tillit til sjónarmiða fólksins í landinu," sagði Halldór að lokum -EÓ Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, spuröi Einar Odd margra spurninga á fundinum, m.a. um áhrif fiskveiðistjórn- unar á lltil byggðarlög. Þá ræddi hann nokkuö viö Þröst um afskipti stjórnvalda af atvinnumálum t.d. um aðgerðirnar haustið 1988. gengi út á að búa til atvinnutæki- færi. Þó slfk stefna hljómaði vel og hefði fögur markmið þá kenndi reynslan mönnum að hún leiddi til ófarnaðar í langflestum tilfellum. Þröstur velti nokkuð fyrir sér hugsanlegum leiðum sem sjávarút- vegurinn gæti farið út úr skuldafen- inu sem hann situr nú í. Hann sagði að vaxtalækkun ein og sér dygði ekki því að 70% af skuldum sjávar- útvegsins væru í erlendri mynt. Þó Jóhannes Nordal væri valdamikill gæti hann ekki lækkað vexti í er- lendum bönkum. Gengisfelling dygði heldur ekki, það kenndi reynslan mönnum. Hann sagði að eina leiðin út úr vandanum væri innri skipulagning, þ.e. að fyrirtæki sameinist í stærri öflugri fyrirtæki. Hann sagði að einn meginkostur kvótakerfisins væri framsal veiði- heimilda. Hann sagðist hins vegar telja að vel komi til greina að binda eitthvað af veiðiheimildum við fisk- vinnsluhús. Hann sagði ennfremur að menn verði að leita leiða til að koma í veg fyrir að sjómenn sjái sér hag í því að henda fiski fyrir borð. Hver á að borga gjaldþrotin? Þröstur ræddi ekkert um veiði- leyfagjald, eða auðlindaskatt eins og sumir vilja kalla þessa gjaldtöku. Einar Oddur ræddi hins vegar nokk- uð um hana og sagði að kenning há- skólamanna um að aðeins með veiðileyfagjaldi sé hægt að hámarka virðisaukann af veiðunum væri bull og vitleysa. Hann tók jafnframt skýrt fram að sjávarútvegurinn eigi að greiða eðlilegt gjald til þjóðfé- lagsins af arði veiðanna. Hvemig slík gjaldtaka er útfærð sé þó aðeins tæknilegt atriði. Hann sagði að rökin fyrir veiði- leyfagjaldi væri ákaflega veik og aðr- ar aðferðir við stjóm veiðanna séu nærtækari. „Við stöndum hér uppi með sjáv- arútveg sem skuldar 94-95 milljarða króna. Það verður rosalega hörð barátta næstu árin að reyna að kom- ast út úr þessari skuldasúpu þannig að við lágmörkum þau gjaldþrot sem kunna að verða. Við verðum að lágmarka gjaldþrotin. Það gemm við hins vegar ekki til að verja út- gerðarmenn eða fiskverkendur, heldur fyrst og fremst vegna þess að þetta hagkerfi, þetta þjóðfélag í heild, mundi aldrei standast það að hér verði töp upp á tugi milljarða króna. Þetta er ekki eins einfalt og sumir halda. Það er mjög einfalt að strika út skuldir, en bókhaldið er tvöfalt. Það er debet við hurðina og kredit við gluggann. Það sem einn skuldar er eign einhvers annars. Þetta hagkerfi þolir það hreinlega ekki að við strikum út 30-40 millj- arða. Hver á að tapa þeim pening- um? Bankakerfið? Það sem banka- kerfið á er aðeins upp í nös á ketti í þessu dæmi. Eiga lífeyrissjóðimir að tapa, eða olíufélögin? Nei, það getur enginn tapað þessum peningum öðmvísi en að hér hrynji allt. Þess vegna verðum við einhvem veginn að lifa þetta af og reyna með öllu móti að koma okkur út úr þessu feni. „Menn sem kenna bömum hagfræði uppi í Háskóla... Hvemig dettur mönnum svo í hug að það sé aðferðin til bjargar að leggja aukin útgjöld á þennan at- vinnuveg sem svona hrikalega er staddur eftir óstjóm verðbólgunn- ar? Menn, sem kenna bömum hag- fræði uppi í Háskóla, hafa komið með þá kenningu og látið hafa það eftir sér á prenti, að það sé hægt að gera þetta með rosafi'nu fiffi. Bara svona,“ sagði Einar Oddur og smellti fingmm. „Þetta á að gera með því að fella gengið, lækka virðisaukaskatt- inn og taka um leið upp veiðileyfa- gjald. Samkvæmt þessari kenningu á almenningur ekki að verða fyrir neinu tjóni, sjávarútvegurinn stend- ur jafnsettur, enginn þarf að borga neitt og allt er í þessu fína. Svona menn em snillingar. Fyrir það íyrsta stenst þetta mgl ekki sem reikningsdæmi. Hvað ger- ist í einu þjóðfélagi þegar gengið er fellt? Þá fer allur árangur okkar í efnahagsstjórn í vaskinn, samdæg- urs. í öðm lagi em áhrif gengisfell- ingar á verðlag 0,5. Þetta er svona þumalputtaregla. Ef það er borið saman við virðisaukaskattinn þá fæst alltaf út helmings mismunur. Sjávarútvegurinn flytur út verð- mæti upp á 75 milljarða. Ef gengi er fellt um 10% kemur út úr þessu 5 milljarða gat. Ef gengið er fellt um 20% þá er gatið 10 milljarðar. Það er sama hvernig dæmið er reiknað, þetta stóra fiff er ekki til frekar en önnur fiff,“ sagði Einar Oddur. „Sjávarútvegurinn sem heild er það skelfilega staddur að hann getur ekki borgað veiðileyfagjald í dag, en sem betur fer em til mörg fyrirtæki sem geta borgað veiðileyfagjald," sagði Þröstur og minnti á mikil við- skipti með kvóta milli fyrirtækja. „Ég held hins vegar að það sé ekki hægt að búast við því að sjávarút- vegurinn sem heild geti skilað nein- um stómm fúlgum inn í ríkissjóð á næstu ámm, því miður. Hann er of illa farinn til þess,“ sagði Þröstur. Skiptir máli hver á kvótann? Yfirskriftin á ráðstefnunni var „Lendir kvótinn hjá Kolkrabban- um?“ Þessari spumingu var ekki mikið velt upp á fundinum. Spum- ingin var léttvæg í huga Einars Odds og hann sagði einfaldlega að sér væri alveg sama hver ætti sjávarút- vegsfyrirtækin svo lengi sem þau væm stór og öflug og gætu keppt á erlendum markaði. Hann tók fram að hann vildi að fyrirtækin væm í eigu íslendinga. Þröstur sagði að það væri ekkert í núverandi kvóta- kerfi sem kæmi í veg fyrir að kvót- inn kæmist í eigu Kolkrabbans. Hann sagðist hins vegar alls ekki vilja banna framsal veiðiheimilda. Hér sé einfaldlega um áhættu að ræða sem menn verði að taka. Fyrir- tækin verði að stækka og þau minni og óhagkvæmu verði að hverfa úr rekstri. Er afla hent fyrir 5-10 milljarða? Árni Gíslason og Óskar Þór Karls- son, frá nýstofnuðu félagi um nýja sjávarútvegsstefnu, fluttu einnig ræður á fundinum. Félagið stefnir að því að halda landsfund í júlímán- uði þar sem endanlega verður geng- ið frá stofnun félagsins. Það hefur þegar opnað skrifstofu að Suður- landsbraut 12 í Reykjavík. Félagið hefur haldið fundi víða um land þar sem félagið hefur verið kynnt. Mark- mið félagsins er að koma núverandi Marteinn Friðriksson og Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.