Tíminn - 27.05.1992, Side 14

Tíminn - 27.05.1992, Side 14
14 Tíminn Miövikudagur 27. maí 1992 Gæðaátak íslenskra sjávarafurða hf. á Vopnafirði: Góðurer hamstein bnuriim Fré Halll Magnússynl, fréttarltara Tímans é VopnaflrAI. „Geysilega er steinbíturinn góður.“ „Og ekki eru þorskréttimir síðri.“ At- hugasemdir sem þessar gaf að heyra frá ánægðum starfsmönnum Tanga hf. á Vopnafirði, þegar þeir höfðu bragðað á ljúffengum fískréttum Hilmars B. Jónssonar meistarakokks. Fiskréttimir vom unnir úr hráefni, sem farið hafði áður um hendur starfsmannanna daginn áður. Einar Björn Kristbergsson, gjaldkeri Ungmennafélagsins Einherja, tekur við íþróttastyrk íslenskra sjávarafurða hf. úr hendi Elínar Þ. Þorsteinsdóttur, markaðs- og kynningarfulltrúa fyrirtækisins. ís- ienskar sjávarafurðir veita samtals eina milljón kr. í styrki til íþróttafélaga víðs vegar um landið. Tímamynd HM Það var kærkomin tilbreyting hjá starfsfólki Tánga hf. á Vopnafirði, þegar fulltrúar íslenskra sjávaraf- urða hf. komu í heimsókn í tilefni „Gæðaátaks 1992“. íslenskar sjávar- afurðir hf. eru söluaðili fyrir Tánga hf. og því skiptir miklu máli fyrir báða aðila að fiskurinn, sem unninn er í frystihúsi Tanga hf., sé fyrsta flokks og unninn á þann allra besta máta sem kostur er. Reyndar hefur fiskurinn, sem unninn hefur verið í frystihúsinu á Vopnafirði, lengi ver- ið rómaður sem úrvals vara, en góð vísa er aldrei of oft kveðin, þegar um er að ræða vöruvöndun í freðfiskút- flutningi. En hverfum aftur að Gæðaátaki 1992 á Vopnafirði. Hefðbundin vinna og vinnsla í Tánga hf. lá niðri þann eftirmiðdag sem Elín Þor- steinsdóttir, markaðs- og kynning- arfulltrúi íslenskra sjávarafurða hf., Friðrik Blomsterberg og meistara- kokkurinn Hilmar B. Jónsson komu í heimsókn. Þessi föngulegi hópur er á hringferð um landið, þar sem þau heimsækja þá 27 aðila sem falið hafa íslenskum sjávarafurðum hf. sölu á frystum sjávarafurðum sín- um. Tilgangurinn er að opna um- ræðu meðal starfsfólks og stjórn- enda fiskvinnslufyrirtækjanna um mikilvægi gæða og staðlaðra vinnu- bragða við fiskvinnsluna. Það var Elín, sem hóf Gæðaátak 1992 á Vopnafirði með því að af- henda Einari Birni Kristbergssyni, gjaldkera Ungmennafélagsins Ein- herja, ávísun að upphæð 30 þúsund kr., en íslenskar sjávarafurðir hf. veita íþróttafélögunum á þeim stöð- um þar sem framleiðendur á vegum sölulyrirtækisins starfa, slíkan íþróttastyrk. Að afhendingunni lok- inni hóf Elín kynningu á sölustarfi íslenskra sjávarafurða hf. erlendis með hjálp litskyggna. Á meðan þessu fór fram var Hilmar B. Jónsson meistarakokkur á þön- um í eldhúsinu að elda ofan í starfs- fólk Tanga hf., sem tók hraustlega til matar síns að erindi Elínar loknu. Munnvatnið rann enn í stríðum straumum eftir málsverðinn, þegar Friðrik Blomsterberg áréttaði gildi hreinlætis og vandaðra vinnubragða við fiskvinnsluna, staðreyndir sem starfsfólk Tanga hf. er vel meðvitað um. En það er alltaf gott að láta minna sig á þessar staðreyndir með réttum og vel útfærðum skýringum, byggðum á ítarlegum rannsóknum. En veislunni var ekki lokið. Rúsín- an í pylsuendanum var sýnikennsla Hilmars B. Jónssonar, sem af sinni alkunnu snilld kenndi viðstöddum að matreiða fylltar fiskirúllur með rækjufarsi. Reyndar runnu fiskirúll- urnar ljúflega niður í maga Vopn- firðinganna að sýnikennslunni lok- inni. Á meðan Hilmar B. Jónsson matreiddi, undirstrikaði hann nauð- syn vandaðra vinnubragða með því að segja frá reynslu sinni við mark- aðssetningu íslenskra sjávarafurða hf. í Bandaríkjunum. Sagan var áhrifarík og smellin, en full alvöru. Hilmar sagði frá því, þegar hann var að segja mikilvægum kaupendum frá kostum íslensks fisks og vand- aðra vinnubragða, sem tryggðu góð- an, beinlausan fisk. Á meðan var fiskréttur úr íslenskum gæðafiski, fallegum hnakkastykkjum, ætlaður verðandi kaupendum, að bakast í ofni. En viti menn! Fyrsti munnbiti forstjórans var yfirfullur af sting- andi beinum, sem einhverjum kærulausum starfsmanni einhvers frystihúss á íslandi hafði yfirsést. Þetta var ekki besta leiðin til að kynna íslenskan fisk, og var greini- legt að starfsfólk Tanga hf. gerði sér fullkomna grein fyrir því. Það er því nokkuð öruggt að engin bein finnast í þeim hnakkastykkjum, sem unnin verða á Vopnafirði í sumar. Hiimar B. Jónsson meistarakokkur og Elín Þ. Þorsteinsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi íslenskra sjávarafurða hf., skenkja starfsfólki Tanga hf. Ijúffenga sjávarrétti. Tímamynd HM íslenskur fiskur í úflandinu: Gæðaátak 1992 á Fáskrúðsfirði Gæðaátak 1992, kynningarher- yfir atríði, sem varða gæðamál og ferð íslenskra sjávarafurða, gæðakröfuroghvaðhelstbæriað stendur nú sem hæst Sl. mánu- rækja við framleiðslu á matvæl- dag voru fulltrúar fyrirtæidsins á um. Hilmar B. Jónsson eidaði ferð á Fáskrúðsfirði, en þeir síðan Ijúffenga fiskrétti, sem við- munu meðan á átakinu stendur staddir neyttu að fundi loknum. heimsækja 27 framlelðendur, Á Fáskrúðsfirði var sl. haust sem falið hafa íslenskum sjávar- byijað að byggja íþróttahús og afurðum að selja afurðir sínar er- verður unnið að því verid í sum- lendls. ar, Árið 1986 stofnaði Kaupfélag Gæðaátak 1992 á Fáskrúðsfirði Fáskrúðsfjarðar verðhyggðan hófst með því að Benedikt reikning við inniánsdeild félags- Sveinsson, framkvæmdastjóri ins. Inni á reikningnum voru íslenskra sjávarafurða, afhenti 200 þús. kr. til styrktar íþrótta- Ingóifi Hjaltasyni, formanni húsbyggingu á staðnum. Inni á Ungmennafélagsins Leiknis, 30 reikningnum standa nú tæpar þúsund kr. styrk til fþróttastarf- 500 þúsund kr. og hefur Gísli semi félagslns. Þetta er í annað Jónatansson kaupfélagsstjóri nú sinn sem fyrirtækið styridr afhent Grétari Arnþórssynl, for- Leikni. manni byggingamefndar fþrótta- Benedikt kynnti síðan starfsemi hússins, reikninginn tii ráðstöf- íslenskra sjávarafurða, en að því unar vegna byggingarinnar. loknu fór Friðrik Blomsterberg —sá Hvað viltu í pottinn, góði? Fré Halll Magnússynl, VopnaflrAI „Hyað viltu nú í pottinn, góði minn? Þorsk eða ýsu? Þú getur svo sem fengið grálúðu eða karfa, en það er nú varla mannamatur hér á íslandi, þó útlendingar belgi sig fulla af þessháttar kvikindum." Eitthvað á þessa leið á hún Þor- gerður Jósepsdóttir til með að segja, þegar fólk kemur niður í frystihús að ná sér í sporð í soðið. Það gengur nefnilega oftast þannig fyrir sig á Vopnafirði, að soðningin er sótt nið- ur í frystihús þar sem Þorbjörg af- greiðir fiskinn af röggsemi. Ef ætlunin er að fá ferskan fisk í matinn, fer matseðillinn eftir því sem verið er að vinna að í það og það skiptið. Stundum fæst úrvalsgóður steinbítur, en oftar ýsa eða þorskur. Ef hráefnið, sem er verið að vinna, hæfir ekki smekk kokksins, þá er bara að fá sér frystan úrvals útflutn- ingsfisk úr frystigeymslunni. Vopnfirðingurinn Þorgeröur Jósepsdóttir í Tanga hf. skenkir þorsksporð í soðið handa blaðamanni Tímans. Tímamynd HM

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.