Tíminn - 27.05.1992, Qupperneq 20
í
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
■ !NN|
Bl LAPART ASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbæ
Sfmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HI.UTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
HÖGG-
DEYFAR
Versiið hjá fagmönnum
varahlut
Hamarsböfða 1 - s. 67-67-44,
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 27. MAfl992
Áttamannanefnd um atvinnumál stefnir að því að skila fyrstu tillögum snemmsumars: m m w
Nefnd um atvinnu- mönnum
mál hefur hafið störf S
Ólafur Davíösson, ráðuneytisstjórí í forsætisráðuneytinu og for-
maður nefndar um atvinnumál sem stofnuð var í tengslum við gerð
kjarasamninganna, segir að nefndin muni skila fyrstu tillögum fyr-
ir mitt sumar, um leið og þær verði tilbúnar. Ólafur segir að nefnd-
in muni skoða leiðir til að auka atvinnu strax á þessu árí og leiðir til
að auka hagvöxt þegar til framtíðar er litið. Nefndin hefur haldið
einn fund og mun halda annan strax eftir hvítasunnu.
í nefndinni eiga sæti fyrir hönd ASÍ,
Ásmundur Stefánsson, Guðmundur
J. Guðmundsson og Grétar Þor-
steinsson. Fyrir hönd VSÍ, Þórarinn
V. Þórarinsson og Víglundur Þor-
steinsson. Fyrir hönd VMS, Hjörtur
Eiríksson. Fyrir hönd Sambands ís-
lenskra Sveitarfélaga, Árni Sigfús-
son og fyrir hönd stjórnvalda, Ólafur
Davíðsson, en hann er jafnframt for-
maður nefndarinnar. Nefndin mun
auk þess njóta aðstoðar frá Þjóð-
hagsstofnun.
ðlafur sagði að nefndin ætti eftir
að ræða frekar um skipulag nefnd-
arstarfsins. Áformað væri þó að
nefndin skoðaði leiðir til að auka
hagvöxt og þar með atvinnu bæði
þegar litið væri til skamms og langs
tíma. Hann sagðist gera ráð fyrir að
nefndin taki fyrir eitt svið í einu og
sendi frá sér tillögur jafnóðum og
þær liggja fyrir. Ekki væri ætlunin
að útbúa langa og mikla skýrslu.
Ólafur sagði að fyrir nefndinni
lægi skýrsla um atvinnumál sem at-
vinnumálahópur aðila vinnumark-
aðarins vann í vetur. Hann sagði að
nefndin myndi fara yfir hana. Nefnd-
in fór á sínum lyrsta fundi yfir út-
tekt Þjóðhagsstofnunar á atvinnu-
ástandi og horfum á vinnumarkaði.
Ólafur sagði að nefndarmenn hefðu
í aðalatriðum verið sammála um að
hún gæfi rétta mynd af ástandinu
eins og það er í dag. Sumir nefndar-
menn hefðu hins vegar lýst yfir
áhyggjum um að ástandið kunni að
versna enn.
-EÓ
ítölsk farandsýning í Odda:
Borg lista og
menningar
„Padova: vagga menningar" er heiti
farandsýningar sem nú er til sýnis í
Odda við Sturlugötu.
Borgin Padova á Ítalíu á stór-
brotna sögu hvað varðar listir og vís-
indi og hafa hinir miklu menningar-
fjársjóðir hennar varðveist mjög vel
fram á okkar daga.
Áhrifavaldar eins og listmálarinn
Giotto, vísindamaðurinn Galileo og
rithöfundurinn Goethe dvöldust all-
ir í Padovu og þar er að finna sögu-
legar byggingar eins og til dæmis
Höll skynseminnar.
Háskóli íslands og ítalska sendi-
ráðið standa fyrir sýningunni og
verður hún opin til lO.júní.
—GKG.
Gatnaviögerðir hafnar í Reykjavík:
Gullinbrú malbikuð
í gærmorgun var fyrst hafist
handa við að leggja malbik í
Reykjavík, en byjjað var á Gullin-
brú sem er illa farin vegna
skemmda eftir nagladekk og sig í
götunni.
Helstu gatnaframkvæmdir t
sumar verða á Ósabraut en fram-
kvæmdum við hana hefur seinkaö
um ár, Hringbraut frá Melatorgl
að Snorrabraut, Miklubraut og
vesturhluti Kringlumýrarbrautar
frá Bústaðavegi í Kópavog.
„Kringlumýrarbrautin var
fræst fyrir nokkru síðan og yfir-
borðlð er orðið nokkuð óslétt.
ÞÖrf er á lagfæringum á Hring-
braut og Miklubraut bæði vegna
þess að búið er að keyra á fræstu
yfirlagi á hluta Miklubrautar og
svo eru þar veruleg hjólfór,“ segir
Sigurður Skarphéðinsson gatna-
málasfjóri. Viðgerð á malbiki
mun kosta 55 milljónir og kaup á
malbiki og fræsun kosta 132
milljónir. —GKG.
Hér gefur á aö líta turn nokkurn, „Specola" aö nafni, þar sem Gal-
ileo Galilei dvaidi lörigum stundum viö stjörnuathuganir.
Timamynd Ámi Bjama
Á sunnudag réðust þrfr menn
inn í ibúð við Suðurhóla í Breið-
holti og réðust þar á húsbónd-
ann, auk þess sem þeir veittu
konu hans þungt högg. Málsat-
vik eru á þá leið, mennimir þrir
bönkuðu á útihurð og opnaði
sonur hjónanna fyrir mönnun-
um. Ruddust þeir þá inn, hentu
logandi sígarettu f rúmið þar
sem konan lá og brutust síðan
inn í baðherbergið þar sem eig-
inmaöur hennar var í baði. Þeir
réðust sfðan á hann og börðu
hann með barefium og stórum
hringum. Hlaut hann Ijót sár á
höfði. Mennimir vom skömmu
síðar handteknir og að sögn
RLR stóðu yfirheyrslur yfir í
gær. Mennimir era taldir hafa
verið undir áhrifum vfmuefna.
Talið er að árásarmcnnirnir
hafi verið á vegum nágranna
mannsins, en deilur hafa verið á
milli þeirra síðastliðin tvö ár.
Maöurinn, sem ráðist var á, á
kött og hefur nágranninn gert
athugasemdir við að farið bafi
veríð Ula með hann og jafnvei
kært meðferðina. Fyrir skömmu
var farið með köttinn á dýraspít-
alann og hann rannsakaður. Þar
kom ekkert fram sem sannaði
illa meðferð á kettinum, utan
þess að hann var eilítið horaður.
Tveir mannanna höfðu kotnið
deginum áður f sömu erinda-
gjörðum, en tókst þá húsbónd-
anum að hrekja mennina, sem
voru vopnaðir horaaboltakylfu,
á flótta. -PS
Árekstur á ísafirði:
Fólksbíll
eyðilagður
Árekstur varð á Skutulsfjarðarbraut
á ísafirði í gær þegar dráttarvél var
ekið í veg fyrir fólksbO.
Engan sakaði en draga varð fólks-
bílinn af staðnum og er hann mikið
skemmdur. —GKG.
Tæpur mánuður frá því að miðlunartillaga sáttasemjara var undirrituð:
UEKKUN GJALDA VEGNA
LÆKNISKOSTNAÐAR BARNA
Gefin hefur verið út af heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu ný reglu-
gerð um greiðslur gjalda fyrir lækn-
isþjónustu, sem er í samraemi við yf-
iríýsingu ríkisstjórnar íslands, sem
gefin var út í tengslum við kjara-
samninga. Reglugerðin var gefin út
í gær og falla niður samkvæmt
henni gjöld vegna komu barna 6 ára
og yngri á heilsugæslustöðvar og til
heimilislækna, en gjöld þessi hafa
numið 600 krónum. Sameiginlegt
gjaldahámark vegna barna sömu
fjölskyldu lækkar úr kr. 12.000 í kr.
6000 á ári. Ennfremur eru lækkuð
gjöld fyrir börn sem njóta umönn-
unarþjónustu og verða þau sama
upphæð og elli- og örorkulífeyris-
þegar greiða fyrir alla læknisþjón-
ustu, hvort sem það er á heilsu-
gæslustöð, hjá sérfræðingum eða
vegna rannsókna. Þessi gjöld verða
einungins þriðjungur þess sem þau
voru áður.
Lækkun gjaldahámarks vegna
barna sömu fjölskyldu gildir frá síð-
ustu áramótum og verður þeim fjöl-
skyldum sem hafa fengið fríkort
vegna þess að gjöld þeirra hafa num-
ið 12.000 kr. sendur mismunurinn,
6.000 kr. Endurgreiðslan verður
send viðkomandi frá Trygginga-
stofnun ríkisins í formi ávísunar.
Hin tvö atriðin taka gildi frá og með
l.júní næstkomandi.
-PS
Stofnun sparisjóðs í Hveragerði undirbúin:
Fjármagniö
verði heima
„Vlð emm að safna hlutafé og sjóös eins og bér um ræðir. „Við
það gengur vel,“ sagði Jón Ragn- ætlum að hafa það 15-20 mifij-
arsson, hótelstjóri á Hótei Örk í ónlr,“ segir Jón. „Við teljum það
Hveragerði, en hann er einn mikilvægt að sem flestír standi
þeim aðila sem vinnur að stofn- að þessu og sjóðurinn verði
un sparisjóðs í byggðarlaginu í stöndugur,“ sagði hann og bætti
þeim tilgangi m.a. að halda fjár- Wð að ætlunin væri að sparisjóð-
magninu austanfjalls. urinn tæki til starfa seinna á
Samkvæmt lögum þarf um níu þessu ári.
mifijónir króna í stofnfé spari- —SBS Selfossi