Tíminn - 06.06.1992, Page 10

Tíminn - 06.06.1992, Page 10
10 Tfminn Laugardagur 6. júní 1992 í miðborg höfuðborgar Kambódíu einkennist götu- myndin af mörgum þúsund- um reiðhjóla, þríhjóla fóts- tignum „rickshaw“vögnum og víetnömskum vélhjólum. Enn eru bflar fáséðir. Þeir fáu vörubflar sem sjást á víðum, rykugum breiðgötum frá ný- iendutímanum eru að mestu leyti tilheyrandi hemum, brynvarðir flutningabflar frið- arsveita Sameinuðu þjóðanna sem eiga að fylgjast með því að umskiptin í landinu til Iýð- ræðis gangi friðsamlega fyrir sig. Háir múrarnir umhverfis hallar- garðana á bakka Tonié Sap, hliðarár Mekongs, ljóma nýmálaðir í björt- um gulum lit. Risastór æskumynd af hinum sjötuga fyrrverandi ein- valdi landsins, Sihanouk, skreytir aðalhliðið að hallargarðinum. Þeg- ar hann sneri aftur til heimalands síns í nóvemberlok var höllin, sem þá stóð auð, sett í stand í snarhasti, flogið með húsgögn og gluggatjöld frá Tælandi til að gera bráðabirgða- þjóðarleiðtoganum og nýjum for- seta æðsta þjóðarráðsins kleift að setjast aftur að í gömlu höllinni sinni, sem hann hafði orðið að yfir- gefa 1979 til að forða sér frá Víet- nömum sem þá réðust inn í land hans. En óviðgerðu bakbyggingarn- ar á hallarlóðinni, salir og musteri með brenndar framhliðar og niður- níddar svalir, passa fremur inn í myndina sem vanhirt einbýlishús frá nýlendutímanum, klaustur- byggingar sem kveikt hefur verið í og óviðhaldin fjölbýlishús mynda. Fjölbreytt mannlíf undir berum himni Milli fábrotinna stjórnarráðsbygg- inganna hefur verið þrengt löngum röðum af kofum úr viði og báru- járni og fyrir framan þá falbjóða börn og gamlar konur sígarettur og, vegna skorts á nothæfum bens- íntönkum, bensín á lítraflöskum. í bakgörðunum, sem í eina tíð voru skrautlegir og enn iiggur í loftinu þungur ilmur Hawaiirósa og ja- smína, dvergfura og fragnipani- trjáa, hefur verið hrúgað upp bygg- aftur úr öskustónni ingarefni, en líka úrgangi og rusli. Hundar og endur flykkjast þangað í fæðuleit. Innan um þetta allt er eld- að á Iitlum prímusum, borðað og líka oft tekinn lúr í miðdegishitan- um undir stórum trjánum. Fyrir börnin í Phnom Penh eru rústirnar, eins og byggingarstaðirnir sem fer sífjölgandi, mikill ævintýraheimur. Undir háu þaki markaðssalanna ið- ar allt af lífi. Þrátt fyrir síðdeg- issvækjuna þrengir sér mannfjöldi Massey-Ferguson Vinsælasta og mest keypta vestur-evrópska dráttarvélin Fyrirliggjandi í ýmsum gerðum MF-390 vélar með svoköll- uðu „HiLine" húsi eru á sömu tilboðskjörum og giltu í haust, þær eru á sama verði og vélar með eldri gerð húsa. Gólfið er hindrunarlaust, skipting 12 samhæfðir gírar áfram og 12 afturábak hægra megin við ökumann, vendigír vinstra megin á stýri, mis- munadrifi og fjórhjóladrifi læst með rafmagnsrofa og tveggja hraða aflúttak sem stjórnað er úr ekilshúsi. Pantið strax og tryggið örugga afgreiðslu á lægsta fáanlega verði á sömu vildarkjörunum eins og í haust WléstiiSfy HOFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVIK ■ SIMI 91-634000 um þrönga gangana meðfram sölu- borðunum, sem sligast næstum undan þurrkuðum fiski úr nær- liggjandi Mekongfljótinu, hráu hænsnakjöti sem flugur sækja mik- ið í, kryddi og smáfjöllum af ávöxt- um og blómum. Á öðrum borðaröð- um ná hrúgurnar af reiðhjólavara- hlutum upp undir þak. En úrvalið af tæknitólum blekkir. Næstum allt er notað, en notað aftur og aftur, þar sem nýir hlutir eru svo dýrir að þeir eru ekki keyptir. Eftir næstum því 20 ára stríð og óvanalegt ástand að öðru ieyti er landið í svo djúpri efnahagsiegri kreppu að Kambódía er eitt af alfátækustu ríkjum heims. „Steinaldarkommún- ismi“ og „Lýðveldið Kampútsea“ Þrettán árum eftir að stjórn Pols Pot lauk ber yfirbragð Kambódíu enn djúp merki af þeim „steinaldar- kommúnisma" sem það varð að þola í fjögur ár. 1975, eftir sigur Rauðu khmeranna á hersveitum forsætisráðherrans Lons Nol, sem naut verndar Bandaríkjamanna, og hraðan brottflutning Ameríkan- anna úr þessum heimshluta, var ríkinu breytt í kommúnistaríkið „Lýðveldið Kampútsea". íbúar Phnom Penh, sem þá voru þrjár milljónir, voru fluttir burt í snar- hasti, borgin brennd og ofurseld villigróðri. Ekki bara einkaeignir, heldur líka peningar og markaðir voru afnumdir, þjóðbankinn sprengdur í loft upp og dómkirkjur rifnar til grunna. Álitið er að ein milljón, sumir telja það reyndar hafa verið þrjár milljónir, Kambód- íumanna lifðu ekki skelfinguna og íjöldamorðin af og í þeim hópi voru næstum allir læknar, kaupmenn, embættismenn, kennarar og einnig hugsuðir og listamenn. Hernám Víetnama batt enda á skelfingarstjórn Rauðu Khmeranna en meðan það stóð batnaði efna- hagsástandið aðeins lítillega. Þrátt fyrir vopnahléð, sem komið var á 1991, hafa borgarastríðsaðilarnir fjórir enn 200.000 manns undir vopnum. Það var ekki fyrr en það þrennt hafði gerst að kommúnistastjórn Huns Sen hafði samið um vopnahlé við hina þrjá aðilana að borgara- styrjöldinni, um eitt hundrað þús- und víetnamskra hernámsmanna höfðu snúið aftur til síns heima og bráðabirgðastjórn hafði verið kom- ið á fót að hjálparstofnanir og ríkis- studdar stofnanir tóku til starfa í sí- auknum mæli. Þessi aöstoð felst þó eingöngu í að flytja flóttamenn aft- ur heim og mannúðaraðgerðum. Þar er efst á blaði að annast þá ótal- mörgu sem hafa orðið fyrir skaða af jarðsprengjum, fórnarlömb leifa hins langvarandi borgarastríðs. Mörg hundruð þúsund af jarð- sprengjum eru enn falin í jörð í Kambódíu eða rétt undir vatnsyfir- borðinu á stórum hrísgrjónaökrun- um. Næstum fimmtíu þúsund Kambódíumanna hafa misst hand- leggi eða fætur við snertingu við jarðsprengjur, í hverjum mánuði bætast þar við um fjögur hundruð ný tilfelli. AIls staðar má sjá saman- tjösluð fórnarlömb á hækjum betla meðfram strætum og mörkuðum. Oft er þar um börn á skólaaldri að ræða. íbúamir aftur orðnir 8 1/2 milljón íbúar Kambódíu, sem að þrem fjórðu hlutum eru Khmerar og ein- um fjórða Víetnamar og Kínverjar, voru aftur orðnir átta og hálf millj- ón í árslok 1991, og búa á tæplega 180.000 ferkflómetra landsvæði. Áttatíu prósent íbúanna, sérstak- lega Khmerarnir, stunda landbún- að. Hrísgrjónabændurnir búa í kof- um úr bambus, tágum og pálma- blöðum, án rafmagns og vatns. Með naumu framlagi sínu tryggja þeir íbúum landsins grunnnæringu. Borgarbúar hafa aðallega safnast saman í Phnom Penh og þar hafa þeir nú aftur náð tölunni þrjár milljónir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.