Tíminn - 06.06.1992, Side 18

Tíminn - 06.06.1992, Side 18
18 Tlminn Laugardagur 6. júní 1992 Sjötug á hvítasunnudag: Gróa Jóhanna Salvarsdóttir Mágkona mín, Gróa Jóhanna Salv- arsdóttir, fulltrúi hjá Veðurstofu ís- Iands, á sjötugsafmæli þann 7. þessa mánaðar. Hún er fædd á Bjarnastöð- um á ísafirði 1922, en þar bjuggu þá foreldrar hennar, Salvar Olafsson, bóndi í Reykjarfirði frá fardögum 1931 og lengi síðan, og kona hans Ragnheiður Hákonardóttir, Magnús- sonar og Arndísar Bjarnadóttur frá Reykjahólum, alkunns stórbónda og dugnaðarmanns, Þórðarsonar. Bemsku- og æskuár hennar liðu við leik í hópi glaðværra systkina og annars æskufólks hér í sveit og við störf á hinu fjölmenna heimili í Reykjarfirði í tíð Salvars og Ragn- heiðar. Sé ég í sálnaregistri að þar hafa verið í heimili, er hún var 16 ára, hálfur þriðji tugur manna, rúm- lega, enda á sumrum að auki ung- lirigar aðkomnir, svo og lausráðið fólk eitthvað, gestkvæmt. Er ekki að efa að hún hefur snemma kynnst öllum störfum er búskap heyra til og gengið að verk- um með þeim dugnaði sem henni er gefinn og kjarki, sem enst hefur henni alla tíð, enda oft þurft á eigin- leikum þessum að halda við hin fjöl- breyttustu störf er hún hefur haft um ævina. Eftir að námi í Reykjanesskóla sleppti lá leið hennar úr heimahér- aði um sinn. En um skeið bjó hún með manni sínum, Halldóri Víg- Iundssyni, í Reykjanesi og ráku þau þar hótel á sumrum. Mann sinn missti hún 1977, en þeim varð auðið fjögurra barna, sonaeign. Hér verður ekki uppi höfð nákvæm skýrsla yfir störf og feril mágkonu minnar, en oft mun hafa reynt á þrek hennar og kjark við störf og í stríði, eins og við þekkjum mörg hver, er lifúm lífinu lifandi. Nefni: Akureyri við hjúkrunarstörf, ráðskona á hér- aðsskólum, Eiðar og Skógar, vita- varsla á Horni til þriggja ára og Dala- tanga tæpan tug, gistihús rak hún um skeið á Arngerðareyri ásamt bú- skap þar og hafði á hendi stöðvar- stjórn Pósts og síma í leiðinni, en þar var þá slík þjónusta allt til hausts 1958 og bar saman brottför hennar og flutningur þessarar þjónustu að Kirkjubóli í Langadal. Búið var í Múla í ísafirði um hríð og víðar ver- ið, forstöðukona Djúpmannabúðar nokkur sumur. Hin síðari ár mörg hefur hún verið ritari á Veðurstofu íslands og nýtur þar trausts yfirmanna og vinnufé- MINNING Jónas Bergmann Hallgrímsson Fæddur 13. maí 1945 Dáinn 3. maí 1992 Þann 3. maí sl. lést á sjúkrahúsinu á Blönduósi tengdasonur okkar, Jónas Bergmann Hallgrímsson, eftir haröa baráttu við þann sjúkdóm sem læknavísindin kunna enn engin ráð við. Andlát hans kom engum á óvart sem með fylgdist. Hann var fæddur á Helgavatni í Vatnsdal 13. maí 1945. Foreldrar hans eru Þorbjörg Jónasdóttir frá Marðarnúpi og Hallgrímur Eðvarös- son frá Helgavatni. Að honum stóðu traustar bændaættir og frá þeim erfði hann sína góðu eiginleika. Hann var traustur, sterkur og hlýr persónuleiki. Kynni okkar hófust er hann, ásamt dóttur okkar Sigurlaugu Helgu, hóf búskap á Helgavatni. Þau bjuggu fyrst í félagi við foreldra hans, en tóku síöar við búinu. Jónas var mikill náttúruunnandi Helgavatni og náttúruskoðari, sem og Björn Bergmann, frændi hans, var. Það var ætíð tilhlökkunarefni að fara í heim- sókn að Helgavatni. Alltaf var hugs- að til þess hvað hægt væri að gera okkur til skemmtunar. Margar ferð- irnar fórum við með Jónasi og fjöl- skyldunni fram á heiðarnar og víðar um Húnavatnssýslurnar. Alltaf var hann að fræða okkur um umhverfið og lífshætti fólksins sem þar býr. Dalinn sinn fallega var hann búinn að kenna okkur allan. Hann var góð- ur sonur sinnar sveitar og nú hefur Vatnsdalurinn misst einn sinna góðu sona. Jónas var ekki maður metorða. Líf hans og starf var helgað jörðinni hans og fjölskyldu sem hann unni svo mjög. Þar vann hann sín störf af þeirri alúð og hlýju sem 'einkenndu hann allt til enda. Þá var einstakt hve mikla umhyggju hann bar fyrir tengdaföður sínum eftir að hann varð fyrir þungu áfalli. Við eig- CMflS Gæöavara sem allir bændur þekkja Fáanlegar á frábæru veröi CLAAS R46 rúllubindivélin er algengasta rúllubindivélin á Islandi. Islenskir bændur þekkja vel CLAAS þjónustuna. CLAAS R46 hentar islenskum aðstæðum séríega vel, fíngerðu og fremur þungu heyi. Meöal þess útbúnaðar, sem er innifalinn í veröi þessara véla en telst gjarna til auka- búnaöar hjá öðrum, má nefna: • Búnaö í ekilshúsi dráttarvélar sem gefur Ijós- og hljóðmerki þegar bagginn er tilbúinn, svo stjórnandi geti byrjað að binda. • Vökvalyfta á sópvindu. • Matara fyrir sópvindu, sem m.a. kemur i veg fyrír að hey flækist eða stöðvist i aðfærslustokki. • Sérstakan búnað, sem kemur i veg fyrír að smágert hey slæðist með. • Sjálfsmurðar keðjur afyfirstærð. • Breið dekk, 15.5/55X17. • Baggasparkara. • Landhjól á sópvindu. • Tvöfaldan bindibúnað. • Baggahólf, sem haldið er saman með vökvaþrýstingi en ekki læsingu, svo ekki er hætta á skemmdum, þótt oftroðið sé i vélina. Ger/d pantanir strax til aö tryggja tímanlega afgreiðslu. Fáeinum vélum J<sWyMM lUldsúdfuj um honum svo óendanlega mikið að þakka og kveðjum hann með sárum söknuði. Tíminn einn megnar að milda sorgina hjá ástvinum hans, Sigur- laugu og börnunum þremur, öldr- uðum foreldrum hans og systkin- um. En eftir stendur minningin um góða drenginn okkar allra. Við biðj- um algóðan guð að leiða hann á landi ljóss og lífs. Blessuð sé minn- ing hans. Kristín Bjamadóttir, Maron Pétursson laga, svo sem verið hefur hvarvetna á vinnustað. Er henni í blóð borin samviskusemi og vönduð til orðs og æðis. Uppeldi á fjölmennu heimili, þar sem vinnusemi og regla voru í heiðri höfð, hefur og stuðlað að því að þroska með henni virðingu fyrir starfinu og gildi þess er vel er gert fyrir einstakling og umhverfi. Hitt vita færri að hún geymir með sér mikla hjartahlýju og réttlætiskennd, er þeir hafa vissulega merkt er eitt- hvað hafa umgengist hana að ráði, vinir, tengdafólk. Hún er kona sköruleg og segir meiningu sína á hlutunum þegar við á. Ófeimin. Gestrisni hennar er mikil og fylgja skrifi þessu alúðarþakkir frá okkur hér fyrir höfðinglegar móttökur jafnan er fundum ber saman við Faxaflóann. Nú er jörð tekin að grænka við Djúp og þú hyggur brátt á vesturferð til að Iíta þá mold augum sem hjarta þfnu stóð jafnan næst. Vinir þínir fagna þér og hlakka til samvista við þig þessa stuttu sumarstund. Velkomin vestur að djúpum dölum, lygnum fjörðum og glitrandi silungsám og verða þá í fylgd þinni að venju syn- irnir þrír, er nú eru ofar grænni torfu, svo og vinir og tengdafólk, og dóttirin Aðalheiður, en hana áttir þú áður en þú giftist, námsstjóri, hin mesta myndarkona, samrýmd móð- ur sinni og þér mikil hjálparhella. Heill þér sjötugri. Sr. Baldur Vilhelmsson, Vatnsfirði Vélamarkaður §• HÖFÐABAKKA 9 ■ 112 REYKJAVIK ■ SIMI 91-634000 JOTUNS Vaxtalaust lán - sértilboð Þið kaupið notaðar landbúnaðarvélar hjá okkur fyrir 20. júní og borgið 6. september VAXTALAUST Listi yfir notuó tæki til á lager • CLAAS 185 Sláttuþyria meö blásara • PZ 330 Múgavél • PZ 331 Múgavél • PZ 381 Múgavél • PZ 600 Heytætla • KVERNELAND 7512 Heypökkunarvél • MF4 Heybindivél • Vestmek Rúllutætari • CLAAS R4689 Rúllu- bindivél • MF 60H 1987 grafa • CLAAS R66 87 rúllubindi- vél 150x120 • Deutz-Fahr 87 rúllubindi- vél 120x120 • MF 87 heybindivél • MF 365 dráttarvél 2wd 1987 65 hö. • MF 350 dráttarvél 2wd 1987 47 hö. • MF 355 dráttarvél 4wd 1988 55 hö. • MF 350 dráttarvél 2wd 1988 47 hö. • MF 240 dráttarvél 2wd 1986 47 hö. • CASE 1394 dráttarvél m/tækjum 4wd 1985 71 hö. • MF 390T dráttarvél 4wd 1990 90 hö. • UNIV. 445 dráttarvél 2wd 1986 47 hö. • SAME EXPL. dráttarvél 4wd 198560 hö. • IH XL585 dráttarvél 2wd 1985 58 hö. • MF 350 dráttarvél 1987 • MF 240 dráttarvél 2wd 47 hö. • MF 355 dráttarvél m/trima ámoksturstækjum 2wd 55 hö. • MF 3080 dráttarvél m/frambúnaöi 1987 4wd 100 hö. • MF 205 iönaðarvél m/ámoksturstækjum 66 • CASE 783 dráttarvél m/veto ámoksturstækjum 4wd 1989 • Deutz 6207 dráttarvél m/grind 1982 • Eigum einnig Bandit sláttuvélar fyrir bæjarfélög og golfklúbba á sérstökum afsláttarkjörum. J@úíy)IK)IK) Míésodfy HÖFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVÍK • SÍMI 91-634000

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.