Tíminn - 11.06.1992, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.06.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 11. júní 1992 Tíminn 3 Heilbrigðisráðherra fagnar 100 milljóna sparnaði Ríkisspítala: „Hagsýnar húsmæður“ spara 30 milljónir í eldhúsinu „Menn eru alls staöar að gera fyrir minna fé,“ sagði Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra, eðlilega himinlifandi yfir því að á sama tíma og hundruða milljóna króna spamaður nær fram að ganga á rekstrarkostnaði spítalanna hefur legudögum, fjölda sjúk- linga og aðgerðum fjölgað verulega. Á fundi fréttamanna í gær kynnti Sighvatur þá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar að rekstrar- kostnaður rfldsspítala hafi verið nær 100 m.kr. lægri (þ.a. laun 36 m.kr.lægri) á fyrstu fímm mánuðum þessa árs en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir 1% fjölgun legudaga, rúmlega 9% fjölgun sjúk- linga og rúmlega 10% fjölgun skurðaðgerða. Þessar 100 m.kr. svara til 4,3% spamaðar og eru þriðjungur þeirra 300 m.kr. sem áformað var að spara á á árinu 1992 öllu. Þannig að „betur þarf ef duga skal,“ hina sjö mánuði ársins. Enda kom fram að ekkert hef- ur náðst inn af þeirri rúmlega 100 milljóna kr. hækkun sem áætluð var á sértekjum (á árinu öllu), raunar hafa sértekjur þvert á móti heldur minnkað milli ára. Lausafjárstaða spítalans hefur líka versnað töluvert frá áramótum, eða um rúmlega 64 milljónir kr. Skamm- tímakröfur ríkisspítala námu 214 milljónum um áramót og einnig í maílok. Skammtímaskuldir hækk- uðu hins vegar á sama tíma úr 255 upp f 319 milljónir, þannig að hreint veltufé var þá orðið neikvætt um 105 milljónir kr. Meginvandi lausafjár- stöðunnar er sagður felast í óafhent- um tékkum eldri en 1 mánaðar að fjárhæð nærri 60 milljónir kr. sem safni upp verulegum vaxtakostnaði. Þegar nánar er gætt að því hver hef- ur verið duglegastur að spara kemur í Ijós að það eru ekki hvað síst hinar „hagsýnu húsmæður" sem Sighvatur má senda sérstakar þakkir sínar. Það er eldhúsið sem sparað hefur lang- stærsta upphæð, eða heilar 30 millj- ónir og um 19% á þessum fimm mánuðum. Bamaheimili sýnir á hinn bóginn hlutfallslega besta útkomu, þ.a. 31% og rúmlega 7 milljóna spamað. Kostnaður við ræstingar hefur lækkað um 15% eða 3 milljón- ir. Samtals hafa þannig sparast um 40 milljónir króna á þessum 3 sviðum rekstrarins sem konur sjá um nær einráðar. Hverjum helst er að þakka fyrir 17% og hátt í 9 milljóna spamað á Kristnesspítala er hins vegar spum- ing. Fjórar blokkir hafa síðan náð 8% spamaði hver: Kópavogshæli, sýkla- fræðiblokk, lyflækningablokk og kvenlækningablokk, sem samtals hafa sparað um 36 milljónir miðað við janúar-maí á síðasta ári. Og aðrar fjórar blokkir sýna 6-7% spamað: Bamalækningar, taugalækningar, lungnalækningar og hjúkrunarfor- stjóri. Á hinn bóginn em margar blokkir sem engum spamaði hafa náð og þar af 7 sem hafa aukið rekstrarkostnað um 8% eða meira miðað við sama tíma í íyrra. Eðlis- og tækniblokk hef- ur nú eytt 16% meira og 16% hækk- un er líka hjá tæknisviði. Kostnaður við apótekið hefur hækkað um 13%. Handlækningar, röntgenblokk og vakt/flutningadeild hafa allar aukið útgjöld sín um 8% milli ára. Margfalt met á þó meinafræðiblokk þar sem nettóútgjöld hafa hækkað úr 2 í 16 milljónir milli ára. Skýringin öll og meira til felst í 16 milijón kr. lækkun sértekna. - HEI Heilbrigðisráðherra, Sighvatur Björgvinsson, er að vonum ánægður með 9-10% fjöigun sjúklinga og skurðaðgerða samfara 100 milijóna kr. spam- aði í útgjöldum. Tímamynd Ámi Bjarna Bændaforystan í árlegri yfirreið: Bændafundir um landbúnaðarmál Nú stendur yfír árleg fundaferð Stéttarsambands bænda um land- ið. Fundir þessir eru í senn opnir umræðufundir og kjörmannafund- ir sem eru liður í kosningum til trúnaðarstarfa innan félagskerfís landbúnaðarins. Efst á baugi á fundunum er um- ræða um verðlags- og kjaramál landbúnaðarins, kvótamál og horf- ur í framleiðslu- og sölumálum. Framsögumenn eru Þórólfur Sveinsson, varaformaður Stéttar- sambands bænda, sem hefur fram- sögu á fundunum á Norðurlandi vestra, Gunnlaugur Júlíusson, hag- fræðingur Stéttarsambandsins, sem verður á fundi í Sævangi á Útboð ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi: Meðalávöxtun var 11,49% Alls bárust 67 tilboð í ríkisbréf að fjárhæð 982 milljónir króna í fyrsta útboði á 6 mánaða ríkisbréfum, en tilboð voru opnuð í gær. í þessu fyrsta útboði hafði ríkissjóð- ur skuldbundið sig til að taka tilboð- um að fjárhæð 300-500 milljónir króna. Heildarfjárhæð þeirra tilboða sem tekið var nam 506 milljónum króna og komu þau frá 32 aðilum. Meðalávöxtun samþykktra tilboða er 11,49%. Næsta tilboð fer fram 29. júní nk. Ströndum, Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri Stéttarsam- bandsins, sem er framsögumaður á fundunum á Vesturlandi og Norð- urlandi eystra og Haukur Halldórs- son formaður sem verður á fundun- um á Suður- og Austurlandi. í gær og fyrradag Voru fundir á Blönduósi, Sauðárkróki, Breiða- bliki á Snæfellsnesi og Mosfellsbæ. 15. júní verða fundir í Hótel Borg- arnesi, Sævangi á Ströndum og Þingborg í Árnessýslu. 16. júní í Ás- byrgi í V-Hún., Dalabúð í Dölum og Hlíðarenda Rang. 18. júní á Hótel KEA Akureyri og Tunguseli V-Skaft. 19. júní í Ýdölum, S-Þing. og Hroll- augsstöðum A-Skaft. 20. júní að Svalbarði N-Þing. og Brúarási Eg- ilsstöðum. —sá Starfsmannafélag Borgarness samþykkir miölunartillögu sáttasemjara með smávlðbót: 200 þús. kr. í orlofssjóð Starfsmannafélag Borgamcs- kaupstaðar hefur gert kjara- satnning við bæinn en félagið felidi miðlunartillögu sáitasemj- ara. Samníngamirvoru undirrít- aðir 26. maí sl. ið bauðst til að greiða 200 und króna eingreiöslu í oríofs- sjóð félagsins og á það var sæst,“ segir Anna Ólafsdóttir, formaður Starfsmannaféiags Borgamesbæjar. Að öðru leytí sé samningurínn alveg samkvæmt miðlunartillögu sáttasemjara. Að sögn önnu er félagið ungt og fámennt og sjóðir þess ekki stórir. Þessi eingreiðsla vegi því nokkuð í oriofssjóðinn. Greiðsl- tir í hann nemi 0,5% af launum. Greiðsian þýði það að tekjur hans verði i við það að félags- menn greiddu 1% af launum sínum í hann út sainningstíma- Varahlutaverslun okkar fyrir bíla og vélar verður opin á laugardögum klukkan 10-12 í júní, júlí og ágúst. Beinn sími varahlutadeildar er 63 41 30. Jtt ítts jý HOFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVIK, SIMI 634000.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.