Tíminn - 03.07.1992, Síða 2
2 Tfminn
Föstudagur 3. júlí 1992
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Það á að kalla
Alþingi saman
Ólafur Ragnar Grímsson:
Raunsæi ríkjandi í röðum
launafólks og Morgunblaðs
Mín afstaða er að kalla eigi Al-
þingi strax saman. Ef það á að
gera eitthvað með þetta mál er
ekki eftir neinu að bíða, segir
Ingibjörg Sólrún Gísiadóttir,
þingkona Kvennalistans.
„Ég er almennt mjög mótfallin því
að sett séu lög á dóma þannig að
mér finnst orka mjög tvímælis að
taka dóm Kjaradóms af með lögum,
ekki bara þennan dóm, heldur dóma
yfirleitt. Þá vil ég minna á að við
kvennalistakonur vorum andvígar
því á sínum tíma að lög voru sett á
BHMR. En það er spurning hvort
hægt sé að breyta 6. grein laga um
Kjaradóm, þannig að honum beri að
taka tillit til aðstæðna. Hugsanlega
mætti einnig setja þar inn að kostn-
aðurinn af úrskurði Kjaradóms
skuli ekki vera meiri en sá kostnaö-
ur sem verður af hækkunum á hin-
um almenna vinnumarkaði.
Ég er ekki sammála því að með lög-
um á Alþingi verði öllu snúið aftur
til fyrra horfs. Ég er ekki samfærð
um að þetta hafi verið réttlátt eins
og það var áður. Það er ekki hægt að
búa stöðugt við óbreytt ástand í
kjaramálum hvort heldur sem það
er hjá opinberum starfsmönnum
eða á almennum vinnumarkaði.
Kjaramál hafa verið sett á ís allt síð-
an þjóðarsátt var gerð. Það er fráleitt
að margir þeirra sem staðið hafa
hvað harðast gegn leiðréttingu á
launakjörum á síðastliðnum fjórum
árum, skuli nú sjálfir fá slíka leið-
réttingu."
Ingibjörg Sólrún segist ekki vera
ósátt við hvernig dómurinn tók á því
máli að setja aukagreiðslur inn í
laun, slíkt ætti að gerast á hinum al-
menna vinnumarkaði og taka inn í
launataxta. Þetta séu í mörgum til-
fellum duldar launagreiðslur sem
komi mjög illa út, ekki síst fyrir
konur sem fá þær í mun minni mæli
en karlar. Vegna aukagreiðslna
verða engin laun samanburðarhæf
og því þarf að breyta. Ef þetta yrði
gert almennt myndu sumir ekkert
hækka í launum. -BS
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
„Ég fagna því eindregið að laun-
þegahreyfingin skuli krefjast þess
að Alþingi komi saman án tafar,“
segir Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalags. „Ég
setti fram þessa tillögu strax í
fyrradag og rökstuddi það ræki-
lega, aö eina lausnin væri að Al-
þingi kæmi strax saman og sam-
þykkti lög sem hyggju á þennan
hnút.
Ég fagna því einnig mjög að
Morgunblaðið hefur tekið undir
þessa kröfu mjög eindregið. Það
hefur sýnt sig að raunsæið er ríkj-
andi í röðum launafólks og á rit-
stjórnarskrifstofu Morgunblaðs-
ins. Ég tel að ef ríkisstjórnin fer
ekki þessa leið hafi hún dæmt sig
vanhæfa til þess að taka á vanda-
málunum."
Ólafur Ragnar segir það hafa ver-
ið kjarnann í breytingunni á
stjórnarskránni fyrir rúmu ári að
Alþingi situr nú allt árið og að
hægt er að kalla það saman með
litlum fyrirvara. Hann segir að
enginn vafi sé á að Alþingi geti
sem fullvalda löggjafarstofnun
breytt lögum um Kjaradóm. Ýms-
ar útfærslur séu á með hvaða hætti
það verði gert sem alþýðubanda-
lagsmenn séu tilbúnir að ræða.“ í
reynd fæli það í sér að launabreyt-
ingarnar hjá þessu fólki yrðu þær
sömu og hjá öðrum í landinu á
gildistíma ASÍ og BSRB.
„Þetta er framkvæmanlegt," segir
Ólafur, „það er bara spurning um
vilja." -BS
Steingrímur Hermannsson:
Vill sjá tillögur
frá ríkisstjórn
um hvað gera skal
„Mín skoöun er sú að það sé sjálf-
sagt að verða við því að Alþingi
komi saman í júlí. Hins vegar vil ég
sjá hvaða tillögur ríkisstjómin er
með í málinu og hvað þar á að gera,
það er aðalatriöið," segir Stein-
grímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins.
Kristinn Hugason um stööu hrossaræktar á Vesturlandi:
EKKI UNDRANDI
Kristinn Hugason, hrossaræktar-
ráðunautur Búnaöarfélags íslands,
segist ekki undrandi á stöðu hrossa-
ræktar á Vesturlandi. Hann segir að
hrossarækt í þessum landshluta sé
misjöfn eins og í öðmm landshlut-
um en hann sé ánægður með niöur-
stöðu fjórðungsmótsins á Kaldár-
melum sem nú er nýafstaðið.
í spjalli við Tímann sagði hann að
skoðun sín væri sú að útkoman á
mótinu væri eins góð og framast
mætti við búast. Hrossaræktarráðu-
nautar hefðu grandskoðað hross í öll-
um landsfjórðungnum vikum saman
Telexgjöld
lækka
Samningar hafa náðst við banda-
rísk símafyrirtæki um lækkun
gjalda fyrir telexþjónustu milli ís-
lands og Bandaríkjanna.
Lækkunin nemur 26% og gildir
einnig fyrir telexþjónustu til Kan-
ada. Þannig lækkar mínútugjaldið
til Bandaríkjanna og Kanada úr
81,50 kr. í 60,00 krónur og tók það
verð gildi 1. júlí sl. —GKG.
nokkru áður en mótið hófst og ljóst
að staða hrossaræktar í fjórðungnum
væri misjöfn bæði innan héraða og
milli þeirra. Heildarstöðuna sagðist
hann meta þannig að mikið verk væri
óunnið eins og reyndar í öðrum fjórð-
ungum.
Vestlendingar standa frammi fyrir
sama vanda og aðrir en hann er sá að
hrossin eru of misjöfn. Það þarf að ná
upp jafnari stöðu í ræktuninni, sagði
Kristinn. Víða á landinu er of mikið af
lélegum hrossum en erfitt væri að
benda sérstaklega á einn landshluta
umfram annan.
Ef bera ætti hross úr Vesturlands-
fjórðungi saman við hross úr öðrum
landshlutum þá mætti kannski segja
að byggingarlag hrossanna þar væri
heldur lakara en sums staðar annars
staðar. Þó alls ekki lakast á íslandi.
Kristinn sagði að þessi landshluti
væri hrossfærri en Norðurland og
Suðurland og því ekkert óeðlilegt
þótt færri hross nái mótsþátttöku.
Það er auðsætt að framfarir eru í
fjórðungnum, sagði Kristinn. Hann
sagði gleðilegt að þetta fjórðungsmót
hefði verið betra hvað einstakíings-
flokka varðar en síðasta fjórðungsmót
og niðurstaða sín væri sú að mögu-
leikar til kynbóta væru verulegir í
landshlutanum. — Krás.
„Ég er sammála niðurstöðu lög-
fræðinga að bráðabirgðalög eru
útilokuð á dóm Kjaradóms, þau
voru nógu erfið á BHMR, en þar
var eitt ákvæði í 2. grein sem
gerði okkur kleift að gera það.
Mér fannst þessi málaleitan for-
sætisráðherra til dómsins, að taka
hann til endurskoðunar, í raun
óskiljanleg, það hefði verið sama
og að biðja hann að segja af sér.
En það er vitanlega hægara sagt
en gert að breyta þessum lögum,
það hefði það í för með sér að
Kjaradómur yrði lagður niður og
þá þyrfti Aiþingi sjálft að ákveða
laun allra þessara manna, sem
yrði óhemjuverk og mörgum
spurningum ósvarað um hvernig
ætti að standa að slíku. En það
kæmi til dæmis til greina að ná
þessum hækkunum að verulegu
leyti til baka með því að lækka
Steingrímur Hermannsson
ferðapeninga og alls konar hlunn-
indi sem menn hafa haft.“
-BS
Nýjung fyrir reykingafólk:
Nikótínplást
ur í 16klst.
Ný gerö nikótínplásturs er nú kom-
inn á markaöinn og þarf aðeins að
bera hann að deginum til.
Plásturinn þarf að bera í 16 klst. og
gefur hann frá sér níkótín í gegnum
húðina í 16 klst. sem jafngildir
venjulegum vökutíma á sólarhring.
Þannig fær notandinn ekki viðbót-
arnikótín á nóttunni og næmi
taugakerfisins fyrir nikótíni er aftur
til staðar að morgni. Hætta er á
svefntruflunum og óeðlilegum
draumförum sé slíkt nikótínhlé ekki
gert.
Níkótínplástrar komu fyrst í apótek
hér á landi þann 1. aprfi sl. Tálið er
að u.þ.b. 3000 manns séu í meðferð
núna með þeirra hjálp. 25% - 35%
þeirra sem reyna að hætta að reykja
annaðhvort með aðstoð nikótín-
tyggjós eða nikótínplásturs tekst
það endanlega. —GKG.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Hagur Islands-
banka vænkast:
Hagnaður
íslandsbanki var rekinn með 19
milljóna króna hagnaði fyrstu 4
mánuði þessa árs. Það er niikil
breyting frá því í fyrra þegar tap
var á rekstrinum að upphæð 252
miUjónir.
Hreinar fjármagnstekjur eru
nú 556 miUjónir en þær voru
423 miUjónir á sama tíma árið
1991 og nemur aukningin
31,4%. Aðrar rekstrartekjur
hafa aukist um 20 miiyónir
milll ára eða 3,7% og nema í
heild 559 mUijónum. Rekstrar-
gjöld nema 1117 milljónum og
lækka um 8,8% frá síðasta ári.
Hagnaður af rekstri bankans
frá 1. maí 1991 til 30. apríl
1992 var 333 miiljónir en á
þessu tímabili námu afskriftir
útlána alls rúmlega einum millj-
arði.
Framlag í afskriftareikning út-
lána er 430 miUjónir á fyrstu 4
mánuðum ársins en var 202
miUjónir á sama tíma í fyrra.
Framlag bankans í afskrifta-
reikning var 815 mUljónir allt
árið 1991.
Hagræðingin sem varð í kjölfar
stofnunar íslandsbanka skilar
stöðugt melri árangri og var
rekstrarkostnaður bankans
fyrstu 4 mánuði ársins 8,8%
lægri en á sama tíma 1991.
Nemur lækkunin 108 milljón-
um. Launakostnaöur hefur
lækkað á þessum tíma um 6,3%
og annar rekstrarkostnaður um
15,4%.
Eiginfjárstaðan er sterk og hafa
heildareignir bankans sem voru
59.393 miUjónir aukist um
2.234 milljónir frá áramótum.
Eigið fé nemur 5.233 mUIjón-
um. Samkvæmt nýjum lögum
um eigið fé viðskiptabanka sem
byggja á sambærilegum eriend-
um reglum á eigínfjárhlutfall að
vera að mlnnsta kosti 8%. Hjá
íslandsbanka er þetta hlutfall nú
10,24% eða vel yfir lögboðnu
iágmariri. —GKG.