Tíminn - 03.07.1992, Page 3
Föstudagur 3. júlí 1992
Tíminn 3
Breytingar á atvinnu
starfsemi á Höfn
Borgey hf. tók í gær við öllum sjávarútvegsrekstri Kaupfélags Aust-
ur-SkaftfelIinga á Höfn í Hornafirði. Fyrirtækið mun í framhaldinu
annast allan þann rekstur, hvort sem það er útgerð eða fiskvinnsla,
sem áður var á hendi Kaupfélagsins eða dótturfyrirtækja þess.
Borgey var eitt af dótturfyrir-
tækjum Kaupfélagsins, stofnað
1946 og hefur stundað útgerð síð-
an, en er nú orðið alhliða sjávarút-
vegsfyrirtæki. Fyrirtækið á tvo
togara og þrjá báta, en nú stendur
til að selja annan togarann, m.a.
til að létta af fyrirtækinu skuldum
og létta reksturinn. Þetta er einn-
ig gert vegna minnkandi kvóta.
Togarinn, sem seldur verður, er
Þórhallur Daníelsson
Ákvörðun um þetta var tekin á
hluthafafundi í Borgey í íyrradag,
eftir að fulltrúafundur Kaupfé-
lagsins hafði ákveðið að fara þessa
leið, en málið á sér langan aðdrag-
anda.
Halldór Árnason, framkvæmda-
stjóri Borgeyjar, segir að með
þessu sé verið að leggja grunn að
rekstrarbreytingum, samhæfingu
veiða og vinnslu með það að mark-
miði að þjónusta við neytendur
sjávarafurða verði betri. Þannig að
þegar fram líði stundir muni þetta
hafa töluverðar breytingar í för
með sér.
Niðurstaða Kaupfélagsins var að
rekstur þess yrði betur kominn
annars vegar í Kaupfélaginu
sjálfu, sem sér um verslun og
landbúnað, og hins vegar í einu
sjávarútvegsfyrirtæki, í stað þess
að vera með hluta af sjávarútvegs-
rekstrinum í Kaupfélaginu og svo í
dótturfyrirtækjum. Nýr kaupfé-
lagsstjóri, Pálmi Guðmundsson,
tók við störfum í gær, en Hermann
Hansson, sem verið hefur kaupfé-
lagsstjóri undanfarin 17 ár, lét af
störfum.
Halldór Árnason segir að hið
nýja fyrirtæki hafi gott starfsfólk
og mikla þekkingu og að menn
ætli sér að takast á við erfitt en
spennandi verkefni sameiginlega.
-BS
Breytingar í póstflutningi mílli Reykiavíkur
og Akureyrar:
Næturflutningar á póstl milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur og pósthúsa á
þeirri leið hófst 1. júlí sl., og eru
það mikíl tímamót í póstþjónustu
landsbyggðarinnar.
Nú eru bréf og bögglar, sem póst-
lagðir eru á hveijum stað fyrir kl.
16:30, afhentir viðtakanda næsta
virkan dag á þessari leið og á enda-
stöðvum póstleiðarinnar. Þetta er
fyrsta skrefið í þá átt að lahdsbyggð-
in njóti sömu gæða í þjónustu og
þéttbýlisstaðimír á Suðurlandi,
þ.e.a.s. að bréf og bögglar aíhendast
á næsta virka degi eftír póstlagn-
ingu. Samhliða hraðari póstsend-
Ingu leiðir þetta fyrirkomulag af sér
verulegá hagræðingu í póststörfum
á pósthúsum á viðkomuleið, þar
sem vmna og dreifing getur hafist
strax í upphafi vinnudags, kl. 8:00
að morgni. Framfarir f vegamálum
landsbyggðarinnar gera það kleift
að ráðist er í þessa fiutninga, og
vonast er til að tafir verði í lágmarki
og ekki meiri en með fyrri flutn-
ingamáta með flugi og langferðabif-
reiðum. —GKG.
ftilii
■hhhhhhhh
•;V," ■>*;
STÖRSÝNING
fl FERfl
TIL SYNIS OG REYNSLUAKSTURS ERU B BÍLAR:
Subaru Legacy - Nissan Sunny ES - Nissan Patrol
Nissan Terrano - Nissan Primera - Nissan Sunny 4WD
Stjórn Hafrannsóknar-
stofnunar sent sérstakt
erindisbréf:
Nýr formað'
ur stjórnar
Hafrann-
sóknar-
stofnunar
Brynjólfur Bjamason rekstrarhag-
fræðingur hefur verið skipaður
formaður stjómar Hafrannsóknar-
stofnunar af sjávarútvegsráðherra.
Jafnframt hefur stjóm stofnunar-
innar verið sent sérstakt erindis-
bréf á grundvelli gildandi laga og
er það í fyrsta sinn.
I erindisbréfinu kemur m.a. fram
að stjórninni er ætlað að sjá um yf-
irstjórn stofnunarinnar, taka
ákvarðanir um helstu atriði í
stefnu og starfi hennar og leggja
ráðgjöf vísindamanna stofnunar-
innar fyrir sjávarútvegsráðuneytið.
Auk þess skal stjórnin gera tillögur
til ráðherra um hvernig hátta skal
nýtingu einstakra fiskistofna, í því
skyni að ná hámarksafrakstri ís-
landsmiða til lengri tíma. Þá er
stjórninni ætlað að gera tillögur
um skipan ráðgjafarnefndar Haf-
rannsóknarstofnunar, sem er m.a.
ætlað að vera tengiliður milli Haf-
rannsóknarstofnunar og sjávarút-
vegsins.
Skipunartími nýrrar stjórnar
Hafrannsóknarstofnunar er frá 1.
júlí 1992-30. júlí 1996. Auk for-
manns eiga sæti í stjórninni þeir
Eiríkur Tómasson tilnefndur af
LÍÚ, Ólafur Karvel Pálsson til-
nefndur af starfsmönnum Haf-
rannsóknarstofnunar, Ragnar G.D.
Hermannsson tilnefndur sameig-
inlega af Farmanna- og fiski-
mannasambandi íslands og Sjó-
mannasambandi íslands, og Þor-
steinn Gíslason tilnefndur af Fiski-
félagi íslands.
—GKG.
3.07 Stykkishólmur 15:00 - 18:30
Bensínstöðin
Búðardalur 20:00 - 21:30
Bensínstöð Olís
4.07 Patreksfjörður 10:00 -13:00
Bensinstöð Esso
Tálknafjörður 14:00 -17:00
Hjá Fio-inn
Bíldudalur 18:00 - 20:00
Versl. Edinborg
5.07 Þingeyri 13:00-14:30
Bensínstöð
Flateyri 15:00-16:30
Bensínstöðin
Bolungavík 17:00 - 20:00
Finnabær
6.07 Suöureyri 20:00 - 22:00
Bensínstöðin
7.07 Súðavík 20:00 - 22:00
Bensínstöðin
11.07 ísaflörður 14:00 -17:00 Ernir
12.07ísafjörður 14:00-17:00 Ernir
Ingvar
Helgason
Sævarhöföa 2
sími 91-674000