Tíminn - 03.07.1992, Side 9
Tíminn 9
Föstudagur 3. júlí 1992
DAGBÓK
Gunnar Guðbjörnsson.
Tónleikar Gunnars Guðbjörns-
sonar í Norræna húsinu
Þriðjudaginn 7. júlí n.k. munu Gunn-
ar Guðbjömsson tenórsöngvari og Jónas
Ingimundarson píanóleikari halda tón-
leika í Norraena húsinu.
Á dagskrá þessara tónleika verður efn-
isskrá, sem þeir félagar ætla að flytja á
einsöngstónleikum í Wigmore Hall í
London í lok nóvember n.k.
Gunnar Guðbjömsson stundaði m.a.
nám hjá Sigurði Demetz Franzsyni og
framhaldsnám í Berlín og London. Hann
hefur sótt námskeið og einkatíma hjá
söngvurunum Nicolai Gedda og Emst
Haefliger, svo eitthvað sé nefnt. Veturinn
1991-92 stundaði Gunnar nám í Nation-
al Opera Studio í London.
Hann hefúr sungið í óperum á fslandi,
í Bretlandi og Þýskalandi og komið fram
á fjölda tónleika víðsvegar um Evrópu.
Má þar nefna einsöngstónleika í Covent
Garden ópemnni í London og tónleika
með Royal Philharmonic Orchestra í
Royal Albert Hall. Hann hefur gert fjölda
upptakna, m.a. fyrir RPO Records og
Philips CÍassics og nýlega söng Gunnar
upptöku fyrir BBC 3. Framtíðaráform
fela í sér áframhaldandi störf við Óper-
una í Wiesbaden þar sem Gunnar er fast-
ráðinn, Töfraflautu Mozarts á tónlistar-
hátíð í Zwingenberg og gala-tónleikar í
byrjun nóvember í tilefni af enduropnun
Wigmore Hall eftir viðgerðir.
Jónas Ingimundarson hefúr í áraraðir
verið einn af okkar fremstu píanóleikur-
um. Hann hefur komið fram hérlendis
sem erlendis sem einleikari og einnig
leikið með fjölda þekktra söngvara og
hljóðfæraleikara.
Fyrirlestur Halldórs Þorgeirs-
sonar í Bahá’í miöstöóinni
Það hefúr vakið nokkra athygli að Ba-
há’í samfélagið á fslandi sendi fulltrúa til
þátttöku á umhverfisráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Ríó. Upphaflega var ráð-
gert að íslenski fulltrúinn, dr. Halldór
Þorgeirsson plöntulífeðlisfræðingur,
tæki þátt í „Global Forum” ráðstefnunni,
sem haldin var af ópólitískum samtökum
samhliða aðalráðstefnunni. Þegar til Ríó
kom var hann hins vegar beðinn um að
taka sæti sem einn af fjórum áheymar-
fulltrúum Alþjóðlega Bahá’í samfélags-
ins á sjálfri umhverfisráðstefnunni.
Dr. Halldór fór með sýnishom af ís-
lenskum jarðvegi, sem tekinn var á Þing-
völlum við hátíðlega athöfn, til Ríó. Jarð-
veginum var komið lyrir, ásamt mold frá
fjölmörgum öðmm löndum, í minnis-
merki sem var í laginu eins og stunda-
glas, til að minna alla jarðarbúa á að tím-
inn er að renna út til bjargar lífríki jarð-
arinnar. Á minnismerkinu var eftirfar-
andi áletmn úr ritum Bahá’u’lláh,
opinberanda Bahá’í trúarinnar: .Jörðin
er aðeins eitt land og mannkynið íbúar
þess.“
Dr. Halldór mun halda opinberan fyr-
irlestur í Bahá'í miðstöðinni, Álfabakka
12,2. hæð, í Mjódd, iaugardaginn 4. júlf,
kl. 20.30. Erindið nefnist: Staða um-
hverfismála að Iokinni ráðstefnunni í
Ríó. Fyrirlesturinn er öllum opinn, end-
urgjaldslaust.
(Bahá’í samfélagið í Reykjavík)
BIG FOOT til sýnis viö
Kringluna
Að undanfömu hafa bandarískir ofúr-
hugar verið hér á landi og sýnt ýmsar
akstursíþróttir. Eitt farartækið, sem þeir
nota í sýningaratriðum, er svonefndur
„BIG FOOT“ tmkkur og hefur hann vak-
ið mikla athygli. BIG FOOT tröllið er
byggt upp úr Ford pallbíl. Hann hefur
verið stækkaður og breytt og er bíllinn
nú um 16 tonn að þyngd og 3,5 metrar
að hæð. BIG FOOT er fjórhjólastýrður og
dekkin mannhæðarhá.
Almenningi gefst nú kostur á að skoða
BIG FOOT tmkkinn og verður hann til
sýnis við Kringluna frá kl. 15 til 18 í dag,
föstudag.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. maí er skrifstofa okkar í Hafnarstræti 20, III. hæö, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Veriö veikomin.
Framsóknarftokkurinn.
Þórsmörk
Hin víðfræga og fjölsótta Þórsmerkurferö ungra framsóknarmanna verður farin dag-
ana 3. til 5. júlí n.k. Tjaldaö verður i Langadal. Vinsamlega tilkynniö þátttöku til SUF
i sima 91-624480. - Athugiö: Takmarkaö sætaframboð
Ferðamálaráð SUF.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Drætti I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestaö til 10. júli n.k. Vel-
unnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miöa, eru hvattir til aö greiöa heimsenda
giróseöla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I slma 91-624480.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarkonur
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir hópferð á Kvennaþingiö á Egils-
stööum 20.-23. ágúst n.k.
Vinsamiegast látiö skrá ykkur strax hjá Jafnréttisráði, simi 91-27420, og á skrifstofu
Framsóknarflokksins, simi 91-624480.
Framkvæmdastjórn L.F.K.
Sumarferð
framsóknarmanna
Fariö verður Kjöl aö Blönduvirkjun laugardaginn 8. ágúst.
Nánar auglýst síðar.
Fulltrúaráðið.
Hertogaynjan af Kent varö fyrir því óhappi aö ökkiabrotna og er nú meö vinstri fótinn í gifsi. Hún von-
ast til aö vera oröin óhölt þegar dóttir hennar gengur upp að altarinu 18. júií nk.
BRUÐKAUP
BRESKU K0NUNGS-
FJÖLSKYLDUNNI
Þó að ekki linni sögum um ófarir í
hjónabandsmálum innan bresku
konungsfjölskyldunnar, eru ekki all-
ir meðlimir hennar búnir að missa
alla trú á hjónabandinu. Þannig
heldur lafði Helen af Windsor fast
við þá áætlun sína að halda brúð-
kaup sitt með Ttm Táylor 18. júlí nk.
og stendur undirbúningur sem
hæst
Móðir brúðarinnar tilvonandi, her-
togaynjan af Kent, varð hins vegar
fyrir því óhappi að ökklabrotna þeg-
ar hún var að viðra hundana sína á
landareign fjölskyldunnar í Nettle-
bed í Oxfordshire. En svo skyldu-
rækin sem hún er, var hún komin á
stjá örfáum dögum síðar — með
vinstri fótinn í gifsi. Vonir standa til
að hún geti borið sig um gifslaus og
óhölt á deginum stóra.
Björn
Borg
gefst
upp
aö
lokum
Sænski tennisleikarinn og tísku-
fataframleiðandinn Björn Borg er
orðinn þreyttur á eiginkonu sinni,
Loredönu, eða svo svaraði hann
spurningum blaðamanna er þeir
forvitnuðust um nýja fylgikonu
hans, sýningarstúlkuna Angelicu.
Björn Borg eyddi nokkrum frí-
dögum í heimaborg sinni Stokk-
hólmi fyrir skemmstu, og var
Angelica, sem er þýsk og jafngöm-
ul Birni, 35 ára, með í för.
„Samband mitt við Loredönu
hefur alltaf verið með ágætum,"
sagði tennishetjan. „Loredana er
trygglynd á sinn hátt, en það
kemur að því að maður verður
þreyttur á hjónabandinu og ástin
kólnar.“
Sitthvað hefur gengið á í hjóna-
bandi hinnar ítölsku poppsöng-
konu og tennisleikarans, og hafa
þau iðulega fengið veglega um-
fjöllun í slúðurdálkum blaða um
allan heim. Skemmst er að minn-
ast þegar brunaverðir fundu Lore-
dönu meðvitundarlausa af lyfjaáti
í íbúð sinni í Mílanó fyrir ári. Þá
var eiginmaðurinn víðs fjarri á ör-
lagastund. Dælt var úr Loredönu
á spítala og komst hún til meðvit-
undar.
Björn giftist Loredönu í septem-
ber 1989, en hann var fyrst
kvæntur rúmensku tennisstjörn-
unni Mariönu Simonescu. Hann á
afturámóti sex ára gamlan son
Björn Borg sést hér í fylgd nýrr-
ar vinstúlku, þýsku sýningar-
stúlkunnar Angelicu.
með sænsku sýningarstúlkunni
Jannike Björling, en þau giftust
ekki.
w
I spegli
Tímans