Tíminn - 21.07.1992, Síða 5

Tíminn - 21.07.1992, Síða 5
Þriöjudagur 21. júlí 1992 Tfminn 5 Ekki er Iangt síðan Glasgow var útnefnd „Menningarborg Evr- ópu“. Nú hefur borginni hrakað svo mjög að vegfarendur um stræti borgarinnar, þar sem miskunnarleysið ríkir, mega gæta sín á að rekast ekki óvart utan í annað fólk. Það getur nefnilega leitt til hnífstungu. Og þar ganga ungar og glæsilegar stúlkur um götur og torg með hnífa sér til vamar. Okurkarlinn var þegar búinn að kasta hundi skuldunautar síns ofan af svölum til viðvörunar um að greiða skuldina strax. En þegar hann birtist næst til að rukka kúnnann, beið hann iánardrottins síns með Kalas- hnikov-árásarriffil. Okurkarlinn féll fyrir kúlnahríð vegna nokkurra hundraða sterlingspunda. Ekki langt í burtu, hinum megin f borginni, lá ungur Ástrali, sem hafði nýlega flust ásamt skoskfæddum for- eldrum sínum til gamla landsins vegna ofbeldis í Sydney, í blóði sínu eftir hnífstungu í bakið inn að mænu. Ástæðan var sú að einhver hafði ágimd á Reebok-skónum hans. Annars staðar var 67 ára gamall mað- ur stunginn hnífi í bakið vegna þess að hann haði óvart rekist á 16 ára strák í lyftu. Áratugur velgengni Glasgow liðinn? Nú er Glasgow orðin svona, lík- amsárásir virðast komnar úr öllu samhengi við ástæðumar sem leiða til þeirra. Og nú er engu líkara en að ofstopasinnaðar vofur hafi snúið aft- ur til að ofsækja borg, sem hélt að hún væri búin að grafa fortíðina til frambúðar eftir að hafa gengið allt í haginn í heilan áratug. Breytingin, sem varð á Glasgow á níunda áratugnum, var jafn ótrúleg og hún var óstöðvandi. Borgin, sem hafði verið niðumídd, varð fyrst „garðaborg“, síðan Menningarborg Evrópu. Sinatra og Pavarotti héldu tónleika á íþróttavöllunum, skítugar en fallegar gamiar byggingar í borg- armiðju vom hreinsaðar upp, stór- verslanir og litlar veitingastofur spruttu upp eins og gorkúlur á haug. Sjónlistir, leikhús og tónlistarlíf blómstmðu. Á mslasvæði reis 13 milljón sterlingspunda tónlistarhöll, sem gefur engri slíkri í heiminum neitt eftir. Yfirbragð Glasgow hafði svo sannarlega breytt um svip. En nú — jafn skyndilega og sjá mátti blika á rakblað á gömlu, illu tímunum þegar glæpahópar börðust í blóðugum bardögum — er allt aftur gjörbreytt. Á síðustu tveim ámm hef- ur mátt greina glögglega bláþræði í vefnum þegar mannskætt, fíkniefna- tengt stríð milli glæpaflokka hefur leitt til margra skotbardaga í mið- borginni. Það var nógu slæmt. En eiturlyf höfðu líka í för með sér ofbeldi, sem hefur valdið enn meiri áhyggjum, þar sem bæði mjög ungt fólk og fullkom- lega saklaust hefur blandast inn í átökin. „Brjálaði fostudagurinn“ í júnímánuði varð svo fjandinn laus á hlýju föstudagskvöldi. Þá vom gerðar þrjár morðtilraunir, framin vopnað rán, tíu hnífstungur og á annan tug árása og rána þar sem beitt var byssum, öxum, jámstöngum, rakhnífum og lensum. Tónar Moz- arts í tónleikahöllinni dmkknuðu í væli sírenanna þetta kvöld, sem hefur hlotið sess í sögu Glasgow sem „Brjálaði föstudagurinn". Állar þessar árásir vom algerlega ótengdar hver annarri og allar vom þær gerðar innan borgarmarkanna, allt frá fína úthverfinu Bearsden til ömurlegra fátækrahverfanna í aust- urhluta borgarinnar. Þegar leið að morgni næsta dags, vom aðalsjúkra- hús borgarinnar líkastar neyðar- stöðvum þar sem særðum úr stríði er komið í skjól, og skurðlæknar töluðu um að skurðstofumar þeirra líktust sláturhúsum. Hjúkmnarkona á slysavarðstofu I Glasgow hefur aö undanförnu ríkt hin mesta óöld. Lögreglan segist vera aö ná yfirhöndinni, en dauö- hræddir borgararnir treysta því ekki. Hverjar eru ástæðumar? Hvemig stendur á því að mörg þúsund ungmenna, ekki bara í Glasgow heldur víðast f þéttbýli Skot- lands, fara vopnuð út að skemmta sér? Og hver er ástæðan til þess að skrifstofufólk tekur leigubfla, þó að leiðin sé e.t.v. ekki nema um hálfs kflómetra löng, til að komast hjá því að ganga um götur miðborgarinnar að kvöldlagi? Jimmy Wray, þingmað- ur Glasgow, segir ástæðuna þá að fólk treysti því ekki að friður sé kominn á í Glasgow, þrátt fyrir hert lögreglu- eftirlit að undanfömu. „Það er raun- vemlegt ofbeldi þama úti og það staf- ar af því að mörg þúsund krakkar em alteknir af vonleysi. Borgarbúar em fúllir ótta. Líkhús borgarinnar er sneisafullt og enginn þar yfir þrítugu. Og slysadeildimar á sjúkrahúsunum okkar em fúllar af fólki með hræði- lega áverka. Glasgowbúar verða að horfast í augu við þá staðreynd að á bakhlið allrar velgengninnar í borginni er hér heil lágstétt krakka, sem hafa tekið upp ofbeldi eða em að verja sig gegn ofbeldi. Þetta em vonlaus til- felli, flest þeirra, og bardagar og vopnaburður er orðinn ákveðinn lífs- stfll. Við verðum að gera tvennt. í fyrsta lagi verður að sjá lögreglunni fyrir nægum mannafla og peningum til að uppræta orsakimar fyrir ofstop- anum. Þar á ég við eiturlyfín, sem streyma til borgarinnar. En við verð- um líka að leggja okkur fram og gera eitthvað, sem unga fólkinu okkar er til gagns.“ Eiturlyfjahópamir — og þeir skipta tugum sem em að verki í hverju einasta hverfi borgarinnar — kunna að eiga sök á árásunum, vopn- uðu ránunum og vændinu á götum Glasgow. En að því er reyndir rann- sóknarlögreglumenn segja, liggja flóknari ástæður að baki þessari nýju glæpabylgju. „Það em tveir algerlega ólíkir hóp- ar krakka í þessari borg,“ segir einn þeirra þar sem hann er á eftirlits- göngu í hörkulegum austurhluta borgarinnar. „Það er hópurinn sem Óöld í Glasgow eins stærsta sjúkrahússins sagðist aldrei hafa séð annað eins í 30 ár. Að hennar áliti var þetta hápunkturinn á 18 mánaða síauknu götuofbeldi þar sem böm allt niður í 12 ára aldur hafa komið við sögu. Þegar Skotar vöknuðu við fréttimar af þessum al- mennu líkamsárásum, urðu þeir að horfast í augu við enn eina nýja ljóta talnamnu. Fjöldi morða á svæði íög- reglunnar í Strathclyde, en þar er Glasgow meðtalin, hafði meira en tvöfaldast á fyrstu sex mánuðum árs- ins, úr 23 í 47, og morðtilraunum og alvarlegum árásum hafði stórfjölgað. Annars staðar í Skotlandi vom fram- in meira en hálf milljón alls kyns glæpaverka, sem var gífurleg aukn- ing frá árinu áður. 7000 lögreglumenn réðu ekkí við neitt Lögregluliðið í Strathclyde, sem er eitthvert hið fjölmennasta í Evrópu með 7.000 starfsmenn, viðurkenndi að glæpaaldan í Glasgow væri komin úr böndunum. Þjakaðir lögreglufor- ingjar sögðust vera tilneyddir að Iáta stóra bæi vera löggæslulausa og senda allt tiltækt lögreglulið á stræti Glasgow. Þingmenn heimtuðu stórfellda fjölgun í lögregluliðinu til að hreinsa til í eiturlyfjaheimi borgarinnar, og einn þeirra lagði m.a.s. til að herinn yrði sendur á vettvang. Það var gripið til harkalegra og víðtækra aðgerða. Lögregluliði var stefnt í stríðum straumum til mið- borgarinnar, mannskap og bflum, þ.á ARMADAf.fi Lögreglan þarfaö þrlfa til eftir skotbardaga f eltingaleik viö grunaöa. Að utan m. vopnuðum víkingasveitum. Nú halda lögregluyfirvöld því fram að þau hafi náð undirtökunum aftur og stjóm á ástandinu eftir að hafa gert upptækan aragrúa af skotvopnum og skotfærum, m.a. fjölmarga AK-47 árásarriffla, í glæpahreinsunarað- gerðunum. Um þessar mundir virðist ástandið í borginni með felldu á föstudags- kvöldum, þar sem heyra má disk- ótónlistina hljóma út af danshúsun- um og unglingamir spásséra vel klæddir á götunum. En lögreglubflar em á hverju strái og sveitir lögreglu- manna á sveimi hvarvetna. Kvíðin borgaryfirvöld, áhyggju- full yfir því að áratugur framfara verði e.t.v. að engu gerður með of- beldi sem stendur í nokkra mánuði, em farin að tala um falsaðar tölfræði- legar upplýsingar. En tölumar skrökva ekki. Né heldur endalausar sögur um skyndilegt ofbeldi, rán og hnífstungur. Fáir hafa trú á því að mánaðarlangt miskunnarlaust lög- reglueftirlit ráði niðurlögum ofbeld- isins, sem helst líkist farsótt. veður í peningum, og sá sem er alls- laus. Það er heilmikið ríkidæmi í þessari borg hjá þeim sem hafa vinnu. Heilmargir ungir krakkar eiga peninga til að kaupa sér Armaniföt og Golf GTi. Þeir geta borgað háa verðið á tískudiskótekunum og þeir hafa efni á að borga tuttugu pund fyrir skammtinn af alsælupillum. Það em þessir krakkar sem hafa gert vel- gengni eiturlyfjasalanna þá sem hún er og að sumu leyti hafa þessir krakk- ar líka orðið fómarlömb afbrýðisemi hinna krakkanna, sem hafa ekkert. Hinn hópurinn þefar af lími, reyk- ir hass og tryllist. Margir þeirra verða sendisveinar og hörkutól eiturlyfja- furstanna. Þetta em þeir, sem reka hníf eða rakblað í hvem sem er. Þetta er næsta kynslóð hörkutóla í Glasgow. Hinir krakkamir, þeir ríku, fara sjálfir að bera vopn. Við höfúm fúndið 18 sm langa bjúghnífa festa undir kjól mjög vel klæddrar ungrar stúlku. Ef þessu er öllu blandað saman við eiturlyf, er komið götuofbeldi, og það er alveg áreiðanlegt að götumar f þessari borg em hættulegri núna en þær hafa verið í hálfa öld.“ Sjúkrabflstjóri við Royal Infirmary sjúkrahúsið, sem er aðeins í nokk- urra hundraða metra fjarlægð frá miðborginni og ber hitann og þung- ann af þessari nýju óöld í borginni, hlær bara þegar spurt er hvort of- beldið tilheyri nú liðinni tíð. „Það var útborgunardagur á „Brjálaða föstu- deginum". En þeir eiga eftir að verða fleiri og þá em miklir peningar í um- ferð. Við skulum bara bíða og sjá.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.