Tíminn - 21.07.1992, Qupperneq 7
Þriðjudagur 21. júlí 1992
Tíminn 7
Þingvellir, höfuðstaður hestamanna:
Æskulýðsstarf,
útreiðar og
hraunréttin
endurhlaðin
Mikið er nú um að vera alla daga að
Skógarhólum á Þingvöllum. Æsku-
lýðsmót stendur yfir og eru
fimmtíu ungmenni þar hvaðanæva
úr Evrópu og stunda útreiðar og úti-
veru. Þá er stanslaust unnið að rétt-
arhleðslunni undir forystu Tryggva
Hansen og er gamla réttin smám
saman að taka á sig undurfagra
mynd. Síðast en ekki síst eru hópar
reiðmanna að koma og fara alla daga
og í vitund hestamanna eru Þing-
vellir vissulega höfuðstaður lands-
ins.
Hópur á leið til Þingvalla um Stíflisdal.
Hópur á leið frá Þingvöllum til
Reykjavíkur hjá Selkoti viö
Stíflisdal.
HESTAR
Umsjón: Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Sigurður Þórhallson, framkvæmdastjóri L.H., er mikill áhugamaö-
ur um æsklýðsstarfsemi innan vébanda hestamanna. Hann er
ánægður með þá mynd sem er aö koma á réttina.
Hilmar Guðmundsson var aö koma viö annan mann úr Kringlu-
mýrinni með þrettán hesta á leiö um Uxahryggi og Reykholtsdal
norður í Húnaþing.
Kallast þetta þjónusta?
Ekkert bensín að
hafa á Þingvöllum
Þingvellir eru ein mesta nátt-
úruperla iandsins og þangað
koma tugþúsundir gesta hvert
sumar. A Skógarhólum hefur
Landssamband hestamanna gert
mikið átak í því að hafa staðinn
sem bestan fyrir hestamenn enda
koma þangað hundruð hesta-
manna í viku hverrí, margir langt
að komnir, jafnvel yfir hálendið.
Svo undarlega vili til að ekki er
bensíndropa að hafa á Þingvöll-
um, — hvergi. Eldd er bensín-
sala við þjónustumiöstöðina, ekld
við Valhöll og eldd á Skógarhól-
um. Er þetta alveg með ólíkind-
um með tiliiti til þess fjölda sem
sækir staðinn á hveiju sumrí og
vill aka um hann og skoða.
Útiendinga dagar uppi á staðn-
um sem þingræðið á vöggu sína,
oft komnir úr öðrum beimsálf-
um, hestamenn komnir ofan af
hálendinu eru stopp með trúss-
bflinn og enginn á von á þessu af
tjaidbúðarfólki eða öðrum gest-
um. Svona þjónustuleysi og moi-
búaháttur á ekki heima á helstu
periu íslendinga, í rauninni
krossieggur maður puttana og
vonar að nóg eldsneyti sé á bflum
þeim sem skotið er undir þjóð-
höfðingjana sem heimsækja stað-
inn.
Hestaþing Sleipnis og Smára á Murneyrum:
Brakandi þurrkurinn
dró mjög úr aðsókn
Murneyrar á Þjórsárbökkum er einn
þessara staða landsins, þar sem sjálf
náttúran virðist hafa ákveðið móts-
svæðið og öll hestaþing heppnast
vel. Núna var brakandi þurrkur yfir
landinu, þannig að færra var um
gesti en venjulega og hafa menn þó
ekki alltaf látið veðriö hafa áhrif á
hestamótsferðir sínar. Rifjast upp
þegar Brynjólfur stórbóndi á Lækj-
arbotnum á Landi var spurður að
því óþurrkasumarið mikla hvort
hann ætlaði ekki að ríða á Murneyr-
ar. Túnið var allt flatt, heyið meira
eða minna hrakið, og það úr sér
sprottið, sem eftir var að slá: „Jú, jú,
nema að hann fari að rjúka upp með
einhvern helvítis þurrk.“
Hjá Smára sigraði Sigfús í Geld-
ingaholti A-flokkinn á Goða sínum
og sonur hans Guðmundur var
þriðji á Sesari. Milli þeirra var
Haukur Haraldsson á Gusti.
í B-flokki sigraði Unnur L. Schram
á Bráni. Önnur varð Annie B. Sig-
fúsdóttir á Stjarna og þriðji Sigfús
B. Sigfússon á Skenk.
í unglinga- og barnaflokkum voru
stúlkur sigursælar nema hvað Sig-
fúsi tókst að sigra barnaflokkinn.
Hjá Sleipni í A-flokknum sigraði
Snorri Ólafsson á Blakk, Einar Öder
varð annar á Júlí og Svanhvít Krist-
jánsdóttir þriðja á Vikivaka.
Valgerður Gunnarsdóttir sigraði B-
flokkinn á Goða, Þorvaldur Sveins-
son varð annar á Hugin og Sigurður
Ó. Kristinsson þriðji á Verðandi.
í tölti sigraði Valgerður Gunnars-
dóttir á Goða. Unnur L. Schram
varð önnur á Bráni. Þriðji var Bjarni
Birgisson á Glófaxa. Sigfús B. Sig-
fússon fjórði á Skenk og Jökull Guð-
mundsson fimmti á Brúnblesa.