Tíminn - 05.09.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 5. september 1992
Tíminn 13
Barbara Alexander meö dótturina sem hún eignaöist meö James Alex-
ander.
helstu dagblöð birtu lýsingu á henni
ásamt myndum. Að sjálfsögðu vakti
mál þetta óskipta athygli almenn-
ings.
Dagblöðin sáu svo um að rann-
sókninni linnti ekki. Og dag nokk-
urn gengu fjórir lögreglumenn,
undir forystu Delgamos lögreglu-
stjóra, á fund Alexanders prófessors.
„Við skulum ræða málin hrein-
skilnislega, herra prófessor," sagði
lögreglustjórinn. „Það er hald okkar
f lögreglunni að seinni kona þín sé
ekki lengur á lífi. Verktakarnir, sem
byggðu húsið ykkar, hafa sagt okkur
frá því að það hafi ekki verið fullgert
er þið fluttuð inn í það. Til dæmis
hafi verið eftir að steypa kjallaragólf-
ið. Við höfum grun um að líkið af
konu yðar sé að finna undir þeim
hluta þess, sem þú steyptir sjálfur."
Prófessorinn varð náfölur. „Þér er
þó ekki alvara að ég hafi unnið konu
minni mein? Ég legg við drengskap
minn að ég myrti hana ekki.“
Saksóknari fýlkisins hringdi í pró-
fessorinn daginn eftir.
.dierra prófessor," sagði hann með
áhersluþunga. „Blaðamennimir
skrifa um þig án afláts og öll þjóðin
mun telja þig sekan, ef þú veitir okk-
ur ekki Ieyfi til að rannsaka húsið.
Þá verður það almannarómur að þú
hafir einhverju að leyna.“
Prófessorinn vissi að saksóknarinn
hafði rétt fyrir sér. Hann bað sak-
sóknara samt um að gefa sér um-
hugsunarfrest Hann vildi fyrst ræða
málið við Rósu, fyrri konu sína.
RAÐNING A
KROSSGÁTU
Beinagrínd meö
kross í kjúkunum
Daginn eftir gengu þau saman á
fund lögreglustjórans. Þau höfðu
meðferðis skriflegt leyfi til húsrann-
sóknar heima hjá prófessomum.
Undir miðnættið, því næst þremur
og hálfu ári eftir að Barbara Alex-
ander hvarf, urðu örlagaríkir at-
burðir heima hjá prófessomum.
Lögreglan vann að þvf, við birtu frá
sterkum ljóskösturum, að brjóta
upp kjallaragólfið. Eftir um það bil
klukkustundar Ieit kom lögreglan
niður á beinagrind af kvenmanni.
Hún var vafin í rekkjuvoð sem var
svo til óskemmd. Kjúkur beina-
grindarinnar voru krepptar um tré-
kross sem var allt að metri á lengd
og hálfur metri á breidd. Loks var
Barbara Alexander komin í leitimar.
Rósa og James Alexander voru nú
bæði færð fyrir rannsóknardómara
og þá sagði prófessorinn eftirfarandi
sögu:
„Eg var að vinna úti í garðinum og
mig vantaði eitthvert áhald, svo ég
skrapp inn eftir því. Þegar ég kom
inn rakst ég á Barböru, sem tók til
eins og svo oft áður við að skamma
mig fyrir það hversu oft ég heim-
sótti fyrrverandi konu mína og
böm.
í þetta skiptið gekk hún svo langt
að hún sótti hamar niður í kjallar-
ann, þar sem enn var unnið að smíð-
um, og hótaði að rota mig fyrir það
að ég elskaði hana ekki. Þá missti ég
gjörsamlega stjóm á mér. Ég ýtti
harkalega við henni, sem varð til
þess að hún datt niður tröppumar
niður í kjallarann. í fallinu skall hún
utan í hlaða af múrsteinum, sem
hrundi yfir hana. Þegar ég kom að
henni sá ég mér til skelfingar að hún
var látin."
Eftir þessa atburði bar prófessorinn
þá sögu út að seinni kona hans væri
horfin, hefði hlaupist að heiman og
ýjaði að því að annar karlmaður
hefði veríð í spilinu.
Framburður prófessorsins var
skráður og staðfestur ásamt skýrslu
lögreglunnar. Rósa var látin laus, en
prófessorinn handtekinn. Þegar
hann hafði setið nokkra mánuði í
gæsluvarðhaldi, var hann látinn
laus gegn 10.000 dollara tryggingu.
Gifting
í annaö sinn
Þrem dögum síðar héldu þau Rósa
og James Alexander yfir fylkjamörk-
in til Colorado og létu gefa sig sam-
an þar öðm sinni, en það hefði verið
óframkvæmanlegt í heimalylki
þeirra, Wyoming, þar sem hann Iá
undir ákæm.
Að brúðkaupinu loknu var hann
hnepptur í gæsluvarðhald á nýjan
leik, þar sem hann hafði brotið skil-
yrðin fyrir frelsinu með þessu flakki
á milli fylkja.
Þegar mál hans kom fyrir rétt var
frásögn hans af dauða eiginkonunn-
ar dregin mjög í efa. Var hann
dæmdur fyrir manndráp og gat gert
sér vonir um að verða náðaður fyrir
góða framkomu í fangelsinu eftir
fimm ár.
Alexander prófessor sat hálft annað
ár í fangelsinu — dæmdur fyrir
glæp sem hann hafði ekki framið.
Hann hafði tekið á sig sök sem var
ekki hans, eins og sannaðist þegar
sannleikurinn um hvemig dauða
Barböm hafði borið að höndum.
Sagan öll
Róbert, sonur Barböm af fyrra
hjónabandi, sem nú var orðinn tíu
ára gamall, kom að máli við lög-
regluna.
Þar sagði hann ofureinfalda en
jafnframt áhrifamikla sögu, sem
varð til þess að þrír lögreglumenn
gengu þegar á fund Rósu Alexander.
Og allt kom heim, þegar hún játaði
grátandi að eiga alla sök á dauða
Barböm.
Hún skýrði svo frá að eiginmaður
hennar hefði tekið sökina á sig, svo
að hún gæti verið hjá bömunum
fimm, sem æsku sinnar vegna
hefðu frekar þörf fyrir móður en
föður. Sagði Rósa að hann hefði lagt
allt í sölumar fyrir þessi böm, svo
þeim yrði ekki tvístrað og komið
fyrir á uppeldisstofnunum. Það
hefði verið fyrst og fremst þess
vegna sem hann hefði farið sjálfvilj-
ugur f fangelsið.
James Alexander var látinn laus
hið snarasta, eftir að hafa verið sak-
laus í fangelsi í 18 mánuði fyrir ut-
an gæsluvarðhaldið.
í rauninni var ekki hægt að segja
að Rósa ætti heldur sök á dauða
Barböm; þar hafði verið um slys að
ræða. Daginn, sem það bar að
höndum, hafði Rósa heimsótt pró-
fessorinn og beðið hann um pen-
inga fyrir nauðsynjum handa böm-
unum. Það var Barbara sem kom til
dyra. Prófessorinn var að vinna í
garðinum og hafði ekki hugmynd
um að Rósa væri komin.
Konumar ræddu saman í útidyr-
unum og venju sinni trú reifst Bar-
bara yfir því hversu mikil samskipti
prófessorinn ætti við konu sína og
böm frá fyrra hjónabandi. Rósa
sagði að hann ætti til þess fullan
rétt og deila kvennanna jókst orð af
orði.
Barbara gerðist þá svo æst að hún
gætti sín ekki og steig skref aftur á
bak með þeim afleiðingum að hún
steyptist niður kjallaratröppumar. í
fallinu reif hún með sér múrsteins-
hlaða sem hvolfdist yfir hana og
hún beið samstundis bana.
Rósa lagði á flótta, skelfingu lost-
in. Hún hitti prófessorinn úti í
garðinum og sagði honum hvað
komið hafði fyrir og þau fóm sam-
an inn í húsið. Þau gerðu sér sam-
stundis grein fyrir hvaða afleiðing-
ar þetta banaslys kæmi til með að
hafa. Þau yrðu sökuð um að hafa
lagt á ráðin og í sameiningu orðið
Barböm að bana.
Að lokum varð það úr að þau grófu
líkið í kjallaranum og prófessorinn
lét krossinn hjá líkinu til þess að
greftmnin bæri einhver merki
kristilegrar útfarar.
Róbert litli hafði orðið vitni að því,
sem þeim fór á milli, móður hians
og Rósu.
Honum þótti mjög vænt um móð-
ur sína og föður, en leit nánast á
stjúpa sinn sem ókunnugan mann.
Þess vegna þagði hann þar til sam-
viskan knúði hann til að segja allt af
létta.
Enginn var sóttur til saka fyrir
þetta slys. Rósa og James Alexander
ólu börnin fimm upp í sameiningu,
börnin sem prófessorinn var reiðu-
búinn til að eyða góðum hluta ævi
sinnar í fangelsi fyrir.
Einar Farestveit & Co.hf
Borgartúni 28 S 622901 og 622900
Olíufyllti rafmagnsofninn frá ELFA LVI er skrefi framar!
ELFA LVI ofnornir
eru framleiddir í
Svíþjóð með sama
og útliti og
venjulegir vatnsofnar.
Hagstætt verð og
greiðsluskilmólar.
* Enginn bruni ó
rykögnum né jónabreytingar
sem orsaka þurrt loft.
* Lógur yfirborðshiti.
* Auðveld uppsetning.
x Bréfanám er góður kostur X
Þú sparar tíma og ferðakostnað og ræður
námshraðanum. Við notum kennslubréf,
hljóðbönd, myndbönd, síma, símabréf og
námsráðgjöf til að aðstoða þig.
Nám á framhaldsskólastigi
Starfsmenntun, s.s. bókfærsla, vélvarð-
amám o.fl.
íslenska fyrir útlendinga
íslensk stafsetning
Erlend tungumál
Auk þess teikning, sálarfræði o.m.fl.
Sendum ókeypis kynningarefni um allt land,
sími 91-629750
fBLAÐBERA VANTaTI
Njálsgata (vesturhl.)
Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17