Tíminn - 04.12.1992, Side 1

Tíminn - 04.12.1992, Side 1
Föstudagur 4. desember 1992 209. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Hlutfall landsframleiðslunnar sem fer í neyslu hækkað úr 78% í 83% á áratug samkvæmt skýrslu Seðlabanka: Neysla íslendinga í sögulegu hámarki Seðlabankinn telur það mikió umhugsunarefni fyrir þjóðina að þrátt fyrir að minna fé sé nú varið til fjárfestinga en tíðkast hefur í áratugi, höfum við verulegan við- skiptahalla við útlönd, „enda er þjóðhagslegur sparnaður nú í sögulegu lágmarki“ Hin hliðin á þessari þróun sé svo hátt neyslustig. íslendingar fari nú með hærra hlutfall landsframleiðslunnar til neyslu heldur en nokkru sinni fyrr í sögunni — og sömuleiðis töluvert hærra hlutfall heldur en tíðkast hefur að meðaltali hjá iðnríkjum um mörg undanfarin ár. Segja má að þetta neysluhlutfall hafi hér á landi aukist jalht og þétt í áratug, úr um 77—78% á árunum 1982—84 og upp í hið „sögulega hámark" um 83% í fyrra. Þróun þessi er rakin í nýrri greinar- gerð Seðlabankans um innlenda eftir- spum. Þar segir að þjóðarútgjöld hafi aukist um hátt í 6% á síðasta ári, sem var langt umfram vöxt þjóðartekna. Viðskiptahallinn hafi því aukist um 5% af landsframleiðslu. Þessi aukning þjóðarútgjalda hafi fyrst og fremst verið drifin áfram af aukinni einkaneyslu um 5,6% og auk- inni samneyslu um 5,2%. „Aukning einkaneyslunnar varð langt umfram það sem mögulegt er að skýra með þróun ráðstöfunartekna heimil- anna“, segir Seðlabankinn. Heimilin hafi því bæði gengið á spamað sinn og aukið skuldir sínar. Aukinn aðgangur heimilanna að lánsfé með tilkomu 0.84 0.82 0.8 0.76 0.74 0.72 Neysla í hlutfalli við landsframleiðslu ^^stand / y\ j r í \ /v--» /m / K t “ / 'i, /1 f/ \ / / a / l \ r \ a. / /\T V7 \ 1961 1964 1967 1970 1973 1976 1979 1982 1985 1988 1991 dagar til Jóla Af línuritinu má lesa hvemlg hlutfall neyslu af landsframleiösiu hefur þró- ast undanfama þrjá áratugi, á Islandi annars vegar og f iðnríkjum að meö- altali hins vegar. Kemur m.a. glöggt I Ijós hvemig við höfum mörg undan- farín ár brunað lengra og lengra fram úr öörum þjóöum í neyslunni. húsbréfakerfisins hafi hér vafalaust haft sitt að segja. Þegar litið er þrjá áratugi aftur í tím- ann, kemur í ljós að þá fyrstu tvo (1960—1980) notuðu íslendingar oft- ast á bilinu 74% til 76% landsfram- leiðslunnar til neyslu, eða aðeins lægra hlutfall að jafnaði en meðaltal iðnríkja. Kringum fjórðungur lands- framleiðslunnar varð því eftir til ann- ars en neyslu, enda mikið fjárfest á þessum árum. Síðasta áratuginn hef- ur hlutfall neyslunnar hins vegar auk- ist hröðum skrefum og náð hinu „sögulega hámarki“ um 83% á síðasta ári. Þetta þýðir að sá hluti landsfram- leiðslúnnar sem íslendingar hafa eftir til annars en neyslu hefur minnkað um þriðjung (niður í 17%) á einum áratug. íslendingar hafa þar með í neyslu sinni brunað langt fram úr meðaltali iðnríkja. En þau vörðu jafn- aðarlega 79% og 78% landsfram- leiðslu sinnar til neyslu og þar fór þetta hlutfall heldur lækkandi eftir því sem leið á áratuginn á sama tíma og það hækkaði stöðugt hér á landi. Það á svo eftir að koma í ljós hvemig spár eiga eftir að standast um að hlut- fall einkaneyslu af landsframleiðslu lækki um 3,5% í ár og rúmlega 4% á næsta ári — eða meira heldur en ætl- að er að þjóðartekjur minnki á sama tíma. Hins vegar er áætlað að sam- neysla muni aukast bæði árin, eða um 0,5% í ár og 1,7% á því næsta. Aftur á móti þykir sýnt að fjárfesting muni minnka stórlega á þessu ári (13%) og því næsta (6%), eða samtals rúmlega 18%. Þar af er gert ráð fyrir ennþá meiri samdrætti í fjárfestingu atvinnuveganna, eða samtals rúmlega 25% á þessum tveim árum. Þessi mikli samdráttur er áframhald stöð- ugt minnkandi fjárfestingar í meira en áratug. - HEI 6-10% hækk- un mótmælt Cuðmundur Gylfi Guð- mundsson og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, fulltrúar neytenda í Sexmannanefnd, bókuðu mótmæli á síðasta fundi nefndarínnar vegna jþeirrar ákvörðunar sfjórn- valda að lækka sérstakar nið- urgrelðslur í landbúnaði vegna nautakjöts, svínakjöts, alifuglakjöts og eggja. Þau telja að með þessarí lækkun sé í reynd verið að hækka virðisaukaskatt þessara vara um 6-10%, sem muni óhjá- kvæmilega leiða til verulegra hækkana á þessum vörum til neytenda. Þá raski þessi lækkun nið- urgreiðsina verulega þeirrí stefnumörkun um landbún- aðarmál, sem kom fram í sameiginlegum skýrslum Sjömannanefndar og góð sátt hefur náðst um í þjóðfé- laginu í heild. -EÓ GÆSUNUM GEFIÐ Hvort hægt sé orðið aö tala um Reykjavíkurgæsastofninn skal ekki fullyrt, en víst er aö mikill fjöldi gæsa hefur nú vetursetu á og við Reykjavíkurtjörn og hér hópast hluti þeirra kringum litla stúlku og móður hennar í von um brauðbita. Tímamynd Ami Bjama. Síbasti pöntunardagur Macintosh-tölvubúnabar meö verulegum afslætti er limm Innkaupastofnun ríkisins Borgartúni 7, Rvk. Sími: 91-26844

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.